Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Page 24
24 | Nærmynd 11.–13. febrúar 2011 Helgarblað
B
jarni Benediktsson tók við
formennsku í Sjálfstæðis-
flokknum í kjölfar efnahags-
hrunsins. Sjálfur var hann
stórtækur í viðskiptalífinu fyrir hrun
hjá fjölskyldufyrirtækjunum BNT og
N1. Fjölskylda hans átti meðal annars
stóran hlut í Glitni banka og tók Bjarni
þátt í viðskiptafléttum sem nú eru til
skoðunar hjá embætti sérstaks sak-
sóknara. Í síðustu viku markaði hann
sín eigin spor í sögu flokksins þegar
hann skipti um skoðun í Icesave-mál-
inu og fór þvert gegn landsfundará-
lyktun flokksins. Samflokksmenn hans
hafa margir hverjir gagnrýnt hann og
vandaði Davíð Oddsson honum ekki
kveðjurnar í leiðara Morgunblaðsins.
Nokkrir hafa þó lýst yfir stuðningi við
Bjarna og telja margir stjórnmálarýn-
endur að hann hafi styrkt stöðu sína
sem formaður til muna með ákvörðun
sinni og segja að til lengri tíma litið hafi
hann jafnvel styrkt stöðu flokksins.
Engeyjarprinsinn
Bjarni er sonur Benedikts Sveinsson-
ar hæstaréttarlögmanns og Guðríðar
Jónsdóttur húsmóður. Hann er gift-
ur Þóru Margréti Baldvinsdóttur og
á með henni börnin Margréti, Bene-
dikt og Helgu Þóru. Hann er hluti af
einni valdamestu fjölskyldu Íslands,
Engeyjarættinni. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík árið 1989 og lögfræðiprófi frá Há-
skóla Íslands árið 1995. Hann nam
þýsku og lögfræði í Þýskalandi á árun-
um 1995 og 1996 og lauk LL.M.-gráðu
frá University of Miami School of Law
í Bandaríkjunum ári síðar. Hann hlaut
réttindi sem héraðsdómslögmaður
árið 1998 en sama ár varð hann lög-
giltur verðbréfamiðlari.
Bjarni starfaði sem fulltrúi hjá
sýslumanninum í Keflavík árið sem
hann útskrifaðist frá Háskóla Íslands.
Eftir að hann lauk námi í Bandaríkj-
unum vann hann sem lögfræðingur
hjá Eimskip á tímabilinu 1997–1999
en þá hóf hann eigin rekstur á Lex lög-
mannsstofu allt þangað til hann var
kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn
árið 2003. Á Lex lögmannsstofu vann
hann með öðrum þingmanni Sjálf-
stæðisflokksins, Sigurði Kára Krist-
jánssyni.
Bjarni hóf snemma þátttöku í fé-
lagsmálum og stjórnmálum. Hann sat
í stjórn Hugins, félags ungra sjálfstæð-
ismanna í Garðabæ, á menntaskólaár-
unum, þar af eitt ár sem formaður.
Bjarni hefur verið fljótur að komast
í leiðtogahlutverk hvar sem hann hef-
ur komið, hann var framkvæmdastjóri
lögfræðiaðstoðar Orators, félags laga-
nema, á meðan hann var við nám hér
á landi. Hann hefur líka látið málefni
heimabæjar síns, Garðabæjar, varða
en þar sat hann lengi í stjórn heilsu-
gæslunnar og situr enn í skipulags-
nefnd bæjarins.
Árið 2003 var hann kjörinn á þing
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í suðvestur-
kjördæmi. Hann settist strax í alls-
herjarnefnd, fjárlaganefnd og iðnað-
arnefnd þingsins. Hann settist svo í
sérnefnd um stjórnarskrármál og heil-
brigðis- og trygginganefnd árið 2004,
utanríkismálanefnd árið 2005 og efna-
hags- og skattanefnd árið 2007. Flest-
um þessum nefndarsetum hans lauk
árið 2007 og árið 2009, eða þegar þing-
kosningar fóru fram. Hann hefur tví-
vegis verið endurkjörinn á þing.
Íþróttastjarnan
Á sínum yngri árum lék Bjarni fótbolta
á sumrin með Stjörnunni í Garðabæ
en á veturna snéri hann sér að hand-
boltanum. Hann var hluti af sigursæl-
um flokki Stjörnunnar í handbolta og
vann til margra Íslandsmeistaratitla.
„Ég varð fyrst Íslandsmeistari í fimmta
flokki þegar við unnum Þrótt, svo unn-
um við Víking í fjórða flokki, á yngra
árinu í þriðja flokki unnum við Sel-
foss í mjög eftirminnilegum leik en við
klúðruðum leiknum á eldra ári. Þannig
að það var mjög sætt að vinna þetta í
öðrum flokki því við höfðum unnið
alla yngri flokkana. Þetta var síðasti tit-
illinn sem ég vann í handboltanum því
eftir þetta fór ég í fótboltann. Sneri mér
alfarið að honum,“ sagði Bjarni, sem
hefur verið viðloðandi Stjörnuna eftir
að skórnir fóru upp í hillu, í samtali við
DV fyrir nokkrum árum.
Valdimar Tryggvi Kristófersson var
einn þeirra sem spilaði fótbolta með
Bjarna á yngri árum. Hann segir að
Bjarni hafi stigið fram sem sterkur leið-
togi strax á uppvaxtarárunum. Hann
hafi verið fyrirliði í yngri flokkum og
fljótur að vinna sig upp í meistaraflokk
og orðið þar fyrirliði aðeins sextán
ára. „Bjarni var afburða skemmtilegur
strákur. Mikill húmoristi,“ segir Valdi-
mar. „Hann átti marga brandara og
tók þátt í öllu. Hann var svona brand-
arakall, hann kunni þá fjöldamarga.“
Valdimar segir það ekki hafa komið
sér á óvart þegar Bjarni var kjörinn for-
maður Sjálfstæðisflokksins, hann hafi
alltaf verið leiðtogi í sér. Hann segir að
Bjarni hafi ekki breyst mikið í gegnum
árin, allavega ekki hvað varðar per-
sónueinkenni.
Bjarni er enn þann dag í dag mik-
ið fyrir útivist en hann stundar skíði,
gönguferðir og ýmsa aðra hreyfingu.
Á Facebook-síðu hans má sjá myndir
af honum og eiginkonu hans í göngu-
ferð í Landmannalaugum og stöðu-
uppfærslur um fjölskylduna saman í
útivist. Þá fer hann ekki leynt með að
hann verji sunnudagseftirmiðdegi í
að horfa á enska boltann, eins og svo
margir.
N1-olíufjölskyldan
Í hagsmunaskráningu Bjarna á vef Al-
þingis segir að hann hafi engin tengsl
við einkafyrirtæki og að hann sinni
engum launuðum störfum utan þing-
starfanna. Tengsl Bjarna í gegnum
fjölskyldu sína við stórfyrirtæki á borð
við olíufélagið N1, sem er í eigu föður
og föðurbróður Bjarna, eru hins veg-
ar mikil, jafnvel þótt hann komist hjá
því að skrá þau. Bjarni tók virkan þátt í
fjölskyldufyrirtækinu áður en hann tók
við formennsku í Sjálfstæðisflokknum.
Hann gegndi stjórnarformennsku í
fyrirtæki föður og föðurbróður síns,
olíufélaginu N1, og móðurfélagi þess
BNT.
Hann sagði af sér stjórnarfor-
mennsku í félögunum tveimur í kjölfar
efnahagshrunsins og nokkrum vikum
áður en hann tilkynnti um framboð til
formennsku í flokknum. Hann útskýrði
brotthvarf sitt á þann veg að hann vildi
helga stjórnmálum alla krafta sína og
var ekki að heyra á honum að hann
teldi hagsmunaárekstra liggja í því
að hann sem þingmaður sæti í stjórn
olíufélags heldur sagði það óheppilegt
fyrir félagið. „Ég neita því heldur ekki
að mér finnst á vissan hátt óheppilegt
að vera mjög virkur þátttakandi í við-
skiptalífinu eftir að bankarnir komust
í hendur ríkisins. Það getur möguleika
leitt til einhverrar tortryggni sem gæti
bitnað á hagsmunum félaganna. Mér
finnst það ekki góð staða,“ sagði hann í
samtali við Viðskiptablaðið um málið.
Tugmilljarða flækja sem BNT tók
þátt í var til umfjöllunar í Rannsókn-
arskýrslu Alþingis og sem stjórnarfor-
maður félagins tók Bjarni þátt í flækju
sem er til rannsóknar hjá embætti sér-
staks saksóknara í málefnum tengdum
efnahagshruninu.
Sjálfur vel stæður
Bjarni er sjálfur sterkefnaður maður
og getur leyft sér ýmsan munað. Hann
keyrir til að mynda um á Range Rov-
er-jeppabifreið, býr í glæsilegu einbýl-
ishúsi í Garðabænum, sem stendur við
sömu götu og hús margra Engeyinga,
og átti um tíma íbúð í Dúbaí. Hann
berst þó ekki alltaf á og mætti til að
mynda ekki á Range Rover-jeppan-
um á kjörstað í síðustu alþingiskosn-
ingum, þar sem augu allra beindust
að honum. Hann var þó líka nokkuð
skuldsettur en fram kemur í Rann-
sóknarskýrslu Alþingis að hann hafi
skuldað íslensku bönkunum 174
milljónir árið 2008. DV greindi svo frá
því að hann hefði átt bankareikning
í Julius Baer-bankanum í Sviss. Að-
spurður hvers vegna hann væri með
bankareikning í Sviss svaraði Bjarni:
„Þetta er einfaldlega þannig að ís-
lenskur bankastarfsmaður, sem áður
sá um eignastýringu fyrir mig, hóf
störf í þessum banka og ég færði við-
skipti mín yfir til hans.“
Bjarni var sjálfur skráður fyrir 1
prósents hlut í BNT þar til árið 2008 en
hann mun hafa átt hlutinn frá því N1
varð til við sameiningu nokkurra fyr-
irtækja. Talið er að Bjarni hafi þá selt
Einari Sveinssyni, föðurbróður sínum,
hlutinn. Gera má ráð fyrir því að
Bjarni hafa hagnast vel á þessum við-
skiptum þar sem N1 var metið á þess-
um tíma á um fimm milljarða króna.
Ástæðan fyrir sölunni var sögð vera sú
að Bjarni hefði viljað fjárfesta í öðru
en hlutabréfum en hann mun einnig
hafa átt hlutabréf í öðrum félögum á
íslenskum hlutabréfamarkaði á sama
tíma. Ekki er vitað hvaða fyrirtæki það
voru en samkvæmt heimildum DV og
hagsmunaskráningu á vef Alþingis á
Bjarni ekki hlut í neinum fyrirtækjum
í dag.
Gott að leita til hans
Sigurður Kári Kristjánsson þing-
maður hefur unnið með Bjarna í
hartnær tvo áratugi. Fyrst unnu þeir
saman á Lex lögmannsstofu en
síðar á Alþingi. Sigurður Kári ber
Bjarna vel söguna og segir hann
einstaklega traustan og góðan
mann. „Bjarni er auðvitað bæði
samstarfsmaður minn og svo
bara persónulegur vinur. Sama
gildir um konuna hans og
konuna mína. Við sitjum ekki
bara saman í þingflokki held-
ur erum persónulegir vin-
ir,“ segir hann. Sigurður Kári
segir að Bjarni sé einstaklega
þægilegur, góður og áreið-
anlegur. „Hann hefur skiln-
ing á sjónarmiðum annarra
og hlustar eftir þeim,“ seg-
ir Sigurður Kári og segir að
þrátt fyrir að þeir félagar
hafi verið ósammála um
einstök mál hafi það ekki
haft áhrif á vinskap þeirra.
„Það hefur aldrei slest upp
á vinskapinn eða kastast í
kekki.
Hann er laufléttur og
skemmtilegur og tek-
ur sjálfan sig ekkert allt-
of hátíðlega. Mjög þægi-
legur í umgengni á allan
hátt,“ segir hann. „Hann
reynir að sjá spaugilegu
hliðarnar á flestum mál-
um. Hann er mjög létt-
ur og það er alveg sama
hvort það er í daglegu lífi
eða í vinnunni.“ Sigurður
Kári segir að það sé einna
helst að Bjarni skipti skapi
í golfi. „Það er kannski
bara af því að honum
gengur ekkert sérstaklega
vel í þeirri íþrótt,“ segir Sig-
urður Kári og hlær. „Hann
á mjög mörg áhugamál og
hann er mikill útivistarkall.
Hann er ættrækinn og
mikill fjölskyldumaður, eins
og ég held að þeir Engeying-
ar séu, þeir búa nú margir
hverjir í sömu götunni,“ seg-
ir hann. „Hann Bjarni fær öll
mín bestu meðmæli og hann
hefur aldrei reynst mér og mín-
um neitt annað en vel. Öll mín
reynsla af honum er góð.“
Byrjaði í brotsjó
Bjarni Benediktsson var kjörinn
formaður Sjálfstæðisflokksins á
landsfundi flokksins árið 2009, eft-
ir efnahagshrunið og eftir að Geir
H. Haarde sagði af sér sem formað-
ur í kjölfar hrunsins. Hann sigr-
aði Kristján Þór Júlíusson, þing-
mann flokksins, í kosningunum
til formanns með rúmlega þrjú
hundruð atkvæða mun. Bjarni tók við
flokknum á erfiðum tímum og leiddi
hann inn í þingkosningar sem voru á
næsta leiti og flokkurinn mældist með
lítið fylgi í skoðanakönnunum. Stuttu
eftir að hann tók við þurfti hann líka
n Markar spor í sögu flokksins n Brýst undan öflum sem hafa verið ráðandi
innan flokksins síðustu áratugi n Hefur sjálfur viðkvæman bakgrunn
úr viðskiptalífinu n Sá bakgrunnur gæti orðið honum að falli
Formaðurinn sem
ögraði flokknum