Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 47
Sport | 47Helgarblað 11.–13. febrúar 2011
Clint Dempsey hefur farið á kostum
með Fulham það sem af er leiktíð-
inni í ensku úrvalsdeildinni. Hann
hefur meira og minna alltaf skilað
sínu frá því hann kom til liðsins árið
2007 frá Bandaríkjunum og er allra
vanmetnasti leikmaðurinn í þess-
ari bestu deild heims. Það fer ekki
mikið fyrir honum en hjá Fulham
er hann orðinn goðsögn enda gef-
ur hann sig allan í leikinn. Dempsey
ólst upp við erfiðar aðstæður og átti
lengi vel í vandræðum með skapið.
Hann hefur þó náð að virkja orkuna
inni á vellinum og er ekkert lamb að
leika sér við.
Ólst upp í hjólhýsi
Clinton Drew Dempsey fæddist
austarlega í Texas í mars 1983. Mest-
alla ævi sína bjó hann í hjólhýsi með
foreldrum sínum og fjórum systkin-
um við erfiðar aðstæður. Foreldr-
ar hans studdu hann þó alltaf hvað
varðar knattspyrnuna og ók fað-
ir Dempseys honum alltaf á æfing-
ar. Dempsey þurfti að ferðast mik-
ið vegna boltans og þar sem pabbi
hans elti hann út um allt voru syst-
kin hans löngum stundum föðurlaus
heima fyrir. Þetta er eitthvað sem
Dempsey sér eftir í dag.
Dempsey hefði getað verið kom-
inn mun fyrr til Englands en þegar
hann var á unglingsaldri var honum
boðið að ganga í raðir unglingaaka-
demíu Arsenal. Um sama leyti veikt-
ist systir hans illa og þurfti hann því
að vera heima. Dempsey var fyrir-
myndarnemandi og átti í litlum
vandræðum með að klára háskól-
ann. Hann ákvað að fara í nýliðaval-
ið fyrir MLS-deildina árið 2004 þar
sem New England Revolution valdi
hann sem áttunda valrétt. Hann sló
strax í gegn hjá New England, spilaði
alla leikina nema einn, skoraði sjö
mörk og var lykilmaður í liðinu sem
komast í úrslit austurdeildarinnar.
Hann var fyrir vikið kjörinn nýliði
ársins. Dempsey átti tvívegis eftir að
fara í úrslitaleikinn í MLS-deildinni
en honum tapaði liðið í bæði skiptin.
Dýrastur úr MLS-deildinni
Í desember 2006 bauð Fulham fjórar
milljónir punda í Dempsey en aldrei
áður hafði leikmaður verið keyptur á
svo mikið fé úr MLS-deildinni. Hann
gekk því í raðir Lundúnaliðsins en
þáverandi stjóri þess, Chris Cole-
man, hreifst mikið af leikstíl hans.
Dempsey hefur það með sér að hann
gefst aldrei upp og lætur alltaf finna
fyrir sér. Hjá Fulham hefur hann
blómstrað og sérstaklega á þess-
ari leiktíð þar sem hann er á meðal
bestu framherja deildarinnar. Hann
er fyrir löngu orðinn lykilmaður hjá
Fulham en hann er markahæsti leik-
maður liðsins í dag með níu mörk.
Dempsey á nú að baki 68 lands-
leiki fyrir Bandaríkin en hann spil-
aði sinn fyrsta landsleik árið 2004
gegn Jamaíka. Hann er búinn að
skora nítján mörk, þar af sitthvort
markið á HM 2006 og 2010. Aðeins
þrír bandaríkjamenn hafa náð þeim
áfanga.
Kjálkabrotinn og braut kjálka
Áður en Dempsey náði að beisla
orku sína inni á vellinum var hann
öðrum leikmönnum einfaldlega
hættulegur. Hann var sendur í
tveggja vikna bann hjá New Eng-
land í mars 2006 eftir að hafa lent í
slagsmálum við liðsfélaga sinn, Joe
Franchino, í miðjum æfingaleik.
Þetta sama ár var honum tvíveg-
is vikið af velli fyrir gróf brot. Fyrst
braut hann kjálkann á einum mót-
herja sinna með svakalegu olnboga-
skoti og ári síðar í leik með Fulham
braut hann kinnbein á enska lands-
liðsmiðverðinum John Terry. Sjálfur
er Dempsey þó grjótharður en 2004
spilaði hann tvo leiki með brotinn
kjálka áður en læknar komust að því.
Þá spilaði hann lengi vel með New
England, tognaður á ökkla.
Dempsey er númer 23 hjá Ful-
ham en það númer valdi hann vegna
körfuboltahetjunnar Michaels Jor-
dans. „Þegar ég kom til Fulham og
leit yfir númeralistann var þetta eina
númerið sem skipti mig einhverju
máli og var laust. Ég lít gríðarlega
upp til Michaels Jordans og þó ég
viti að ég nái aldrei sömu hæðum og
hann geri ég alltaf mitt besta. Sjálfur
sagði Jordan alltaf að hann væri bara
að gera sitt besta. Það var bara betra
en hjá nokkrum öðrum í sögunni,“
segir Clint Dempsey.
n Clint Dempsey er einn af vanmetnustu leikmönnum úrvals-
deildarinnar n Ólst upp við erfiðar aðstæður og átti í vand-
ræðum með skapið n Er númer 23 vegna Michaels Jordans
Fullt nafn: Clinton Drew Dempsey
(Deuce)
Þjóðerni: Bandarískur
Fæddur: 9. mars 1983 í Texas í
Bandaríkjunum
Leikstaða: Framherji eða vængmaður
Félög: New England Revolution og
Fulham
Landsleikir: 68 (19)
Leyndir hæfileikar: Góður rappari
Clint Dempsey
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Harður í horn að taka Dempsey
lætur olnbogana stundum fylgja með.
Hetja hjá Fulham Clint Dempsey
er í miklum metum hjá Fulham.
Grjótharður
úr hjólhýsinu
Cafe Catalina n Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n Sími: 554 2166 n www.catalina.is
Um helgina leikur
Hljómsveitin
feðgarnir
allar veitingar í boði s.s:
n BBQ svínarif, hamborgarar,
steikarsamlokur
n Hádegismatur m/súpu og kaffi
n Hópamatseðlar fyrir veislur,
smáréttaborð og fleira
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn
Tökum að okkur þorra-
veislur, árshátíðir og
annan mannfagnað
boltinn
alltaf í
beinni