Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Qupperneq 11
Heimsreisa bragðlaukanna
Kærleikur og von
Trú - Mannfólkið andspænis guði sínum er
einstæð bók sem staðfestir rækilega að
hjörtum mannanna svipar saman, þó þeir
dreifi sér vítt um jarðarkringluna og aðhyllist
ólík trúarbrögð.
Í fimmtán ár ferðaðist listaljósmyndarinn Ken
Opprann um heiminn og myndaði fólk á fundi
við guð sinn. Hann var viðstaddur ótal trúar-
hátíðir helstu trúarbragða heims, vitjaði
helgistaða og sótti fólk heim. Myndirnar bera
vitni falslausri einlægni og þrotlausri leit að
þeim mætti sem er æðri öllum skilningi.
Bókin geymir einnig glögga umfjöllun um
Hindúasið, Kristindóm, Gyðingdóm, Búddasið
og Íslam.
Bókaútgá fan Opna · Sk ipho l t i 50b · 105 Reyk j av í k · s ím i 578 9080 · www.opna . i s
Íslenzkir þjóðhættir eftir séra Jónas frá
Hrafnagili er grundvallarrit í íslenskri bók-
menningu og sannkallað afreksverk þegar litið
er til þeirra aðstæðna sem höfundurinn bjó
við. Bókin kom fyrst út 1934, og sú útgáfa er
lögð til grundvallar hér. Þegar hún var
endurútgefin árið 1945 var fullyrt á
bókarkápu að þar færi „... sú bók íslenzk sem
tvímælalaust hefur hlotið bezta dóma.“
Gullnáma
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Sjóður sem aldrei rýrnar
- frábærar fermingargjafir -
Gallerí
innan bókarspjalda
Þetta glæsilega stórvirki skapar ný
viðmið í miðlun listasögunnar,
menningarsaga veraldarinnar í eitt
þúsund stiklum. Einstakur
prentgripur, alls 1066 blaðsíður í
stóru broti sem sýna eitt þúsund
listaverk – listsköpun mannsins frá
örófi alda og þá ótrúlegu
fjölbreytni sem þar er að finna.
Hér er uppspretta sem hægt að
leita í aftur og aftur til að fræðast
og auðga andann.
Heimsmynd tungumálanna
Tungumál veraldar segja lifandi menningar-
sögu. Í þessari glæstu bók er boðið til mikillar
reisu, þar sem lesendur kynnast eitt þúsund
tungumálum um veröld víða. Lýst er bakgrunni
þeirra, sögu, tengslum við önnur mál og
sérkennum. Með hjálp fjölbreytilegra ljós-
mynda, skýringarmynda og landakorta
opnast heillandi veröld - aðgengileg og
umfram allt bráðskemmtileg.
Vinsæl og víðförul
Saga listarinnar eftir E.H.
Gombrich er sannarlega einn
af hornsteinum heimilis-
bókasafnsins. Hún hefur um
árabil verið vinsælasta
listasaga heimsins enda eru
eldhugur og lifandi og
greinargóðar lýsingar
höfundarins bráðsmitandi.
Þessar bækur fást allar á freistandi tilboðsverðum í helstu bókaverslunum í tilefni ferminga!