Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Blaðsíða 48
48 Páskar20.–26. apríl 2011 Seiðandi stuð í Bláa lóninu Bláa lónið verður opið alla páska-helgina og gestir eiga von á líf-legri dagskrá. Á laugardaginn mun tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson í gervi Bogomils Font flytja nokkrar suðrænar Kalypsovísur með íslenskum textum ásamt Davíð Þór Jónssyni á harmonikku og bongót- rommum. Stuðið heldur svo áfram um páskana, á annan í páskum kl. 13.00 verður 2–3 tíma menningar- og sögu- tengd gönguferð fyrir alla fjölskylduna um nágrenni Bláa lónsins. Áætlað er að gangan taki um þrjár klukkustundir og hefst hún frá bílastæðunum við Bláa lónið. Gengið verður um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól, farið með Skipsstíg, fornri þjóðleið, haldið austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar er ætlunin að líta á Þjófsleiðir og hin gömlu sel Grind- víkinga. Þá verður gengið um Svarts- engi og um litskrúðugt lónssvæðið að Lækningalind og endað í Bláa lóninu. Þeir sem hafa ekki úthald í svo langa göngu geta farið hálfan hring og þegið akstur til baka. Klukkan 15.00 og 16.30 er svo vatnsleikfimi í boði fyrir gesti Bláa lónsins í boði líkamsræktarstöðvar- innar Hreyfingar. Tilvalið fyrir þreytta göngugarpa. Dagskrá í rekjavík og nágrenni um páskana Fimmtudagur 21. apríl, skírdagur n Kolaportið opið frá 11.00–17.00 n Iða kl. 09.00–22.00 n Mál og menning kl. 09.00–22.00 n Smáralind13.00–18.00 n Kraum10.00–17.00 n 12 tónar kl. 10.00–18.00 n Eymundsson kl. 10.00–22.00 n Kringlan 13.00–18.00 n Hafnarhúsið 10.00–22.00. Tískusýning nemenda úr fatahönnunardeild kl. 20.00 n Kjarvalsstaðir kl. 10.00–17.00 n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00 n Hafnarborg kl 12.00–21.00 n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana. Bogomil Font, vatnsleikfimi og menningar– og sögutengd gönguferð er meðal þess sem bíður gesta Bláa lónsins. n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00–17.00 alla páskana n Skautahöll Reykjavíkur opin frá 13.00–18.00 alla páskana n Keiluhöllin opin 11.00–24.00 n Árbæjarlaug 09.00–17.00 n Breiðholtslaug 09.00–17.00 n Grafarvogslaug 10.00–18.00 n Klébergslaug 11.00–17.00 n Laugardalslaug 08.00–22.00 n Sundhöllin 08.00–16.00 n Vesturbæjarlaug 09.00–17.00 Föstudagur 22. apríl, föstudagurinn langi n 12 tónar kl. 10.00–18.00 n Hafnarborg kl. 12.00–17.00 n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00 n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00–17.00 alla páskana n Skautahöll Reykjavíkur opin frá 13.00–18.00 alla páskana n Keiluhöllin opin 14.00–24.00 n Árbæjarlaug 09.00–17.00 n Laugardalslaug 08.00–22.00 Laugardagur 23. apríl n Kolaportið opið frá 11.00–17.00 n Iða kl. 09.00–22.00 n Mál og menning kl. 10.00–22.00 n Smáralind 11.00–18.00 n Kraum10.00–17.00 n 12 tónar kl. 10.00–16.00 n Eymundsson kl. 10.00–22.00 n Kringlan 10.00–18.00 n Hafnarhúsið 10.00–22.00. Útskriftarsýning Listahá- skóla Íslands.Verk nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeildí Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Opnun kl. 14.00 n Kjarvalsstaðir kl. 10.00–17.00 n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00 n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00–17.00 alla páskana n Skautahöll Reykjavíkur opið frá 13.00–18.00 alla páskana n Keiluhöllin opin 11.00–24.00 n Árbæjarlaug 09.00–17.00 n Breiðholtslaug 09.00–17.00 n Grafarvogslaug 10.00–18.00 n Klébergslaug 11.00–17.00 n Laugardalslaug 08.00–22.00 n Sundhöllin 08.00–16.00 n Vesturbæjarlaug 09.00–17.00 Sunnudagur 24. apríl, páskadagur n 12 tónar kl. 13.00–17.00 n Hafnarborg kl. 12.00–17.00 n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00 n Hafnarhúsið kl. 10.00–17.00. Útskriftarsýning Listahá- skóla Íslands. n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00-17.00 alla páskana n Skautahöll Reykjavíkur opin frá 13.00–18.00 alla páskana n Keiluhöllin opin 14.00–24.00 n Árbæjarlaug 09.00–17.00 n Laugardalslaug 08.00–22.00 Mánudagur 25.apríl, annar í páskum n Kolaportið opið frá 11.00–17.00 n Iða kl. 09.00–22.00 n Mál og menning kl. 09.00–22.00 n Kraum 12 .00–17.00 n 12 tónar kl. 10.00–18.00 n Eymundsson kl. 10.00–22.00 n Kringlan 12.00–17.00 n Hafnarhúsið 10.00–22.00. Útskriftarsýning Listahá- skóla Íslands n Kjarvalsstaðir kl. 10.00–17.00 n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00 n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00–17.00 alla páskana n Skautahöll Reykjavíkur opin frá 13.00–18.00 alla páskana n Keiluhöllin opin 11.00–24.00 n Árbæjarlaug 09.00–17.00 n Breiðholtslaug 09.00–17.00 n Grafarvogslaug 10.00–18.00 n Klébergslaug 11.00–17.00 n Laugardalslaug 08.00–22.00 n Sundhöllin 08.00–16.00 n Vesturbæjarlaug 09.00–17.00 Listvinafélaga Hallgrímskirkju stendur fyrir fjórum viðburðum á skírdag og föstudaginn langa. Á skírdag kl. 17 verður haldin Söngvahátíð barnanna. Á skírdagskvöld kl. 23. verða miðnæturtónleikar þar sem Passíusálmar Hallgríms Péturs- sonar verða fluttir af Kristínu Ernu Blöndal sópransöngkonu, Gunnari Gunnarssyni orgel- leikara og Matthíasi Hemstock slagverksleikara. Á föstudaginn langa verða Passíusálmarnir lesnir í kirkj- unni frá kl. 13–18. Flytjendur eru hópur íslenskukennara. Um kvöldið verða svo tón- leikar Schola Cantorum sem flytur sex radda mótettur um pínu og dauða Jesú, eftir ítalska endurreisnarskáldið Carlo Gesualdo de Venosa. Stjórnandi eru Hörður Áskelsson og upp- lesari Halldór Hauksson. Leikfélagið Peðið mun frumsýna leikritið Hlátur eftir Kristin heit- inn Kristjánsson, fyrrverandi for- mann Hins íslenska glæpafélags, um páskana. Sýningar fara fram á Gall- erí-Bar 46 við Hverfisgötu og frum- sýningin verður að kvöldi föstudags- ins langa. Leikritið Hlátur gerist á hláturn- ámskeiði hjá lífsstílsgúrúnum Freyju Freysdóttur og fáum við gamansama innsýn í líf hennar og þeirra einstak- linga sem námskeið hennar sækja, sem og kennslu í því hvernig, hve- nær og að hverju við eigum að hlæja. Hlátur vann í leikritasamkeppni á vegum Peðsins fyrir nokkrum árum. Kristni gafst því miður ekki færi á að vinna nánar með sín verk, því hann féll frá stuttu síðar. Nú hefur höfuð- skáld Peðsins, Jón Benjamín Einars- son, hins vegar búið verkið undir sýningu í samvinnu við leikstjórann Guðjón Sigvaldason. Fyrir utan frumsýninguna á föstudaginn langa eru sýningar á Hlátri einnig áformaðar á páskadag og á öðrum í páskum. Söngvahátíð barna og passíusálmar Peðið sýnir Hlátur Hefðbundið í Hallgrímskirkju: Leikrit eftir formann glæpafélags: Passíusálmar í Hallgrímskirkju Vilborg Dagbjartsdóttir er í hópi þeirra íslenskukennara sem lesa Passíusálmana á föstudaginn langa. Notalegt að næra sig í heitu vatni Lífleg dagskrá í Bláa lóninu um páskana og skemmtileg ganga um svæðið á annan í páskum. Heimsókn í húsdýragarðinn gleður börnin Opið í fjölskyldu- og húsdýragarðinum um páskana. Sund um páskana Sundstaðir eru opnir víða um páskana. Á páskadag eru Árbæjarlaug og Laugardalsslaug opnar. Á skauta um páskana Skautahöllin er opin alla páskana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.