Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Síða 48
48 Páskar20.–26. apríl 2011
Seiðandi stuð
í Bláa lóninu
Bláa lónið verður opið alla páska-helgina og gestir eiga von á líf-legri dagskrá. Á laugardaginn
mun tónlistarmaðurinn Sigtryggur
Baldursson í gervi Bogomils Font flytja
nokkrar suðrænar Kalypsovísur með
íslenskum textum ásamt Davíð Þór
Jónssyni á harmonikku og bongót-
rommum. Stuðið heldur svo áfram um
páskana, á annan í páskum kl. 13.00
verður 2–3 tíma menningar- og sögu-
tengd gönguferð fyrir alla fjölskylduna
um nágrenni Bláa lónsins. Áætlað er
að gangan taki um þrjár klukkustundir
og hefst hún frá bílastæðunum við Bláa
lónið. Gengið verður um mosagróið
Illahraun, framhjá Rauðhól, farið með
Skipsstíg, fornri þjóðleið, haldið austur
með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og
inn á Baðsvelli. Þar er ætlunin að líta
á Þjófsleiðir og hin gömlu sel Grind-
víkinga. Þá verður gengið um Svarts-
engi og um litskrúðugt lónssvæðið að
Lækningalind og endað í Bláa lóninu.
Þeir sem hafa ekki úthald í svo langa
göngu geta farið hálfan hring og þegið
akstur til baka.
Klukkan 15.00 og 16.30 er svo
vatnsleikfimi í boði fyrir gesti Bláa
lónsins í boði líkamsræktarstöðvar-
innar Hreyfingar. Tilvalið fyrir þreytta
göngugarpa.
Dagskrá í rekjavík og nágrenni um páskana
Fimmtudagur 21. apríl, skírdagur
n Kolaportið opið frá 11.00–17.00
n Iða kl. 09.00–22.00
n Mál og menning kl. 09.00–22.00
n Smáralind13.00–18.00
n Kraum10.00–17.00
n 12 tónar kl. 10.00–18.00
n Eymundsson kl. 10.00–22.00
n Kringlan 13.00–18.00
n Hafnarhúsið 10.00–22.00. Tískusýning nemenda úr
fatahönnunardeild kl. 20.00
n Kjarvalsstaðir kl. 10.00–17.00
n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00
n Hafnarborg kl 12.00–21.00
n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana. Bogomil
Font, vatnsleikfimi og menningar– og sögutengd
gönguferð er meðal þess sem bíður gesta Bláa lónsins.
n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00–17.00 alla páskana
n Skautahöll Reykjavíkur opin frá 13.00–18.00 alla
páskana
n Keiluhöllin opin 11.00–24.00
n Árbæjarlaug 09.00–17.00
n Breiðholtslaug 09.00–17.00
n Grafarvogslaug 10.00–18.00
n Klébergslaug 11.00–17.00
n Laugardalslaug 08.00–22.00
n Sundhöllin 08.00–16.00
n Vesturbæjarlaug 09.00–17.00
Föstudagur 22. apríl, föstudagurinn langi
n 12 tónar kl. 10.00–18.00
n Hafnarborg kl. 12.00–17.00
n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00
n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana
n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00–17.00 alla páskana
n Skautahöll Reykjavíkur opin frá 13.00–18.00 alla
páskana
n Keiluhöllin opin 14.00–24.00
n Árbæjarlaug 09.00–17.00
n Laugardalslaug 08.00–22.00
Laugardagur 23. apríl
n Kolaportið opið frá 11.00–17.00
n Iða kl. 09.00–22.00
n Mál og menning kl. 10.00–22.00
n Smáralind 11.00–18.00
n Kraum10.00–17.00
n 12 tónar kl. 10.00–16.00
n Eymundsson kl. 10.00–22.00
n Kringlan 10.00–18.00
n Hafnarhúsið 10.00–22.00. Útskriftarsýning Listahá-
skóla Íslands.Verk nemenda úr myndlistardeild og
hönnunar- og arkitektúrdeildí Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi. Opnun kl. 14.00
n Kjarvalsstaðir kl. 10.00–17.00
n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00
n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana
n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00–17.00 alla páskana
n Skautahöll Reykjavíkur opið frá 13.00–18.00 alla
páskana
n Keiluhöllin opin 11.00–24.00
n Árbæjarlaug 09.00–17.00
n Breiðholtslaug 09.00–17.00
n Grafarvogslaug 10.00–18.00
n Klébergslaug 11.00–17.00
n Laugardalslaug 08.00–22.00
n Sundhöllin 08.00–16.00
n Vesturbæjarlaug 09.00–17.00
Sunnudagur 24. apríl, páskadagur
n 12 tónar kl. 13.00–17.00
n Hafnarborg kl. 12.00–17.00
n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00
n Hafnarhúsið kl. 10.00–17.00. Útskriftarsýning Listahá-
skóla Íslands.
n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana
n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00-17.00 alla páskana
n Skautahöll Reykjavíkur opin frá 13.00–18.00 alla
páskana
n Keiluhöllin opin 14.00–24.00
n Árbæjarlaug 09.00–17.00
n Laugardalslaug 08.00–22.00
Mánudagur 25.apríl, annar í páskum
n Kolaportið opið frá 11.00–17.00
n Iða kl. 09.00–22.00
n Mál og menning kl. 09.00–22.00
n Kraum 12 .00–17.00
n 12 tónar kl. 10.00–18.00
n Eymundsson kl. 10.00–22.00
n Kringlan 12.00–17.00
n Hafnarhúsið 10.00–22.00. Útskriftarsýning Listahá-
skóla Íslands
n Kjarvalsstaðir kl. 10.00–17.00
n Þjóðminjasafnið kl. 11.00–17.00
n Bláa lónið opið frá 10.00–20.00 alla páskana
n Fjölskyldugarðurinn opinn frá 10.00–17.00 alla páskana
n Skautahöll Reykjavíkur opin frá 13.00–18.00 alla
páskana
n Keiluhöllin opin 11.00–24.00
n Árbæjarlaug 09.00–17.00
n Breiðholtslaug 09.00–17.00
n Grafarvogslaug 10.00–18.00
n Klébergslaug 11.00–17.00
n Laugardalslaug 08.00–22.00
n Sundhöllin 08.00–16.00
n Vesturbæjarlaug 09.00–17.00
Listvinafélaga Hallgrímskirkju
stendur fyrir fjórum viðburðum
á skírdag og föstudaginn langa.
Á skírdag kl. 17 verður haldin
Söngvahátíð barnanna.
Á skírdagskvöld kl. 23. verða
miðnæturtónleikar þar sem
Passíusálmar Hallgríms Péturs-
sonar verða fluttir af Kristínu
Ernu Blöndal sópransöngkonu,
Gunnari Gunnarssyni orgel-
leikara og Matthíasi Hemstock
slagverksleikara.
Á föstudaginn langa verða
Passíusálmarnir lesnir í kirkj-
unni frá kl. 13–18. Flytjendur
eru hópur íslenskukennara.
Um kvöldið verða svo tón-
leikar Schola Cantorum sem
flytur sex radda mótettur um
pínu og dauða Jesú, eftir ítalska
endurreisnarskáldið Carlo
Gesualdo de Venosa. Stjórnandi
eru Hörður Áskelsson og upp-
lesari Halldór Hauksson.
Leikfélagið Peðið mun frumsýna
leikritið Hlátur eftir Kristin heit-
inn Kristjánsson, fyrrverandi for-
mann Hins íslenska glæpafélags, um
páskana. Sýningar fara fram á Gall-
erí-Bar 46 við Hverfisgötu og frum-
sýningin verður að kvöldi föstudags-
ins langa.
Leikritið Hlátur gerist á hláturn-
ámskeiði hjá lífsstílsgúrúnum Freyju
Freysdóttur og fáum við gamansama
innsýn í líf hennar og þeirra einstak-
linga sem námskeið hennar sækja,
sem og kennslu í því hvernig, hve-
nær og að hverju við eigum að hlæja.
Hlátur vann í leikritasamkeppni á
vegum Peðsins fyrir nokkrum árum.
Kristni gafst því miður ekki færi á að
vinna nánar með sín verk, því hann
féll frá stuttu síðar. Nú hefur höfuð-
skáld Peðsins, Jón Benjamín Einars-
son, hins vegar búið verkið undir
sýningu í samvinnu við leikstjórann
Guðjón Sigvaldason.
Fyrir utan frumsýninguna á
föstudaginn langa eru sýningar á
Hlátri einnig áformaðar á páskadag
og á öðrum í páskum.
Söngvahátíð
barna og
passíusálmar
Peðið sýnir
Hlátur
Hefðbundið í Hallgrímskirkju:
Leikrit eftir formann glæpafélags:
Passíusálmar í Hallgrímskirkju
Vilborg Dagbjartsdóttir er í hópi
þeirra íslenskukennara sem lesa
Passíusálmana á föstudaginn langa.
Notalegt að næra sig í
heitu vatni Lífleg dagskrá
í Bláa lóninu um páskana
og skemmtileg ganga um
svæðið á annan í páskum.
Heimsókn í húsdýragarðinn gleður börnin
Opið í fjölskyldu- og húsdýragarðinum um páskana.
Sund um páskana Sundstaðir eru
opnir víða um páskana. Á páskadag eru
Árbæjarlaug og Laugardalsslaug opnar.
Á skauta um páskana
Skautahöllin er opin alla páskana.