Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Side 14
14 | Fréttir 20.–26. apríl 2011 Páskablað
„Ég sótti náttúrulega um starfið á
góðum tíma. Ég er nú gjaldgengur í
vinnu alls staðar, nema, að því er virð-
ist, á heimaslóðum,“ segir Hannes
Sigmarsson læknir í samtali við DV.
Hannes sótti nýlega um starf læknis
á Egilsstöðum, en honum var vik-
ið tímabundið úr starfi yfirlæknis í
Fjarða byggð árið 2009.
Tildrög málsins voru meintur fjár-
dráttur og misræmi í reikningum.
Ríkissaksóknari og lögreglan kom-
ust að þeirri niðurstöðu að ekki væri
fótur fyrir ásökununum. Ekki var því
ákært í málinu. „Það var í upphafi villa
í excel-skjali. En frumreikningar voru
allir réttir,“ segir Hannes við DV um til-
drög málsins.
Konunni var einnig sagt upp
Eiginkonu Hannesar, Guðrúnu Helgu
Jónsdóttur, var einnig sagt upp í byrjun
þessa árs. Hún gegndi stöðu læknarit-
ara hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands
(HSA). Hún var ein af tíu starfsmönn-
um við stofnunina sem sagt var upp
vegna niðurskurðar. „Hún var með
25 ára starfsreynslu og eini menntaði
læknaritarinn á Eskifirði,“ segir Hann-
es um uppsögn Guðrúnar. Segir hann
að á sama tíma séu margir læknarit-
arar starfandi víða um land sem ekki
hafi til að bera þá menntun sem hún
hafi. Forstjóri HSA, Einar Rafn Har-
aldsson, sagði í samtali við DV í janúar
að stöðugildið hafi verið fellt niður
þar sem það hafi orðið óþarft. Tölvu-
væðing hafi orðið til þess að ekki þurfi
lengur læknaritara við stofnunina.
Hannes er ekki sömu skoðunar: „Sagt
var að starf læknaritara hefði verið fært
til Neskaupstaðar, en að sjálfsögðu er
starfið ennþá unnið á Eskifirði. Bara á
ófaglegri forsendum.“
Ekki reyndist grundvöllur fyrir
ákæru
„Ég var sakaður um að hafa dregið mér
fé, sem síðar reyndist ekki fótur fyrir.
Bæði rannsóknarlögreglan og ríkis-
saksóknari rannsökuðu þetta tvíveg-
is,“ segir Hannes við DV. Hann segir að
uppsögnin hefði átt að vera tímabund-
in meðan á rannsókn stæði. „Það var
ætíð sagt að þetta væri tímabundið á
meðan rannsókn færi fram. Í rauninni
var forstjórinn með þær yfirlýsingar að
ég myndi fá að snúa aftur til starfa þeg-
ar búið væri að rannsaka málið, en það
gerðist ekki heldur fór málið í einhvern
furðulegan farveg sem það situr enn í.“
Hannes segist ekki hafa fengið neinar
upplýsingar frá því að lögregla vísaði
málinu frá.
Sótti um starf læknis
Hannes sótti um stöðu læknis á Egils-
stöðum, en heilsugæslan á Egils-
stöðum heyrir undir HSA. „Þetta var
auglýst á starfatorgi og ég sótti um á
hefðbundinn máta,“ segir Hannes.
Hann segist vongóður um að fá starf-
ið og telur sig fyllilega gjaldgengan í
það. Hann hafi verið vinsæll á meðal
íbúa Fjarðabyggðar þegar hann starf-
aði þar. Því til stuðnings var stofnaður
Facebook-hópur þar sem lýst var yfir
stuðningi við Hannes, og telur hann
rúmlega 600 meðlimi. „Ég hef mikinn
stuðning frá fólkinu ennþá, enda á ég
heima á Eskifirði og er ekkert að flytja
þaðan,“ segir Hannes.
Segja gilda ástæðu fyrir uppsögn
Stefán Þórarinsson framkvæmda-
stjóri lækninga hjá HSA segir gild-
ar ástæður hafa verið fyrir upp-
sögn Hannesar. „Þetta mál er miklu
flóknara og meintur fjárdráttur er
einungis hluti af því. Honum var
sagt upp störfum af gildum ástæð-
um og hann fékk bréf um það,“ sagði
Stefán í samtali við DV. Hann segir
slíkt hið sama hafa átt við um upp-
sögn konu Hannesar. „Það voru
skipulagsbreytingar og einföldun á
læknaritarastörfum,“ segir hann um
uppsögn Guðrúnar. Einar Rafn Har-
aldsson, forstjóri HSA, hafði svipaða
sögu að segja við Vísi í október árið
2009: „Þetta er [...] bara einn hluti af
málinu sem snýr að meintum fjár-
drætti. Hitt snýr að störfum hans
fyrir stofnunina og þau mál eru enn
ókláruð.“
Aðspurður hvort honum þyki
undarlegt að hafa ekki verið ráð-
inn aftur segir Hannes svo vera:
„Ég held að öllum finnist það mjög
skrýtið. Ég má vinna alls staðar
nema heima hjá mér.“
n Yfirlækni var vikið tímabundið úr starfi n Sækir nú um læknastöðu á Egilsstöðum n Sakaður um fjárdrátt
en ekki voru forsendur fyrir ákæru n Framkvæmdastjóri hjá HSA segir gildar ástæður fyrir uppsögn
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
„Það var ætíð sagt
að þetta væri
tímabundið á meðan
rannsókn færi fram.
Forstjóri HSA Einar Rafn Haraldsson
segir fjárdrátt aðeins eina hlið málsins.
GjaldGenGur alls
staðar nema heima Hannes Sigmarsson Er vongóður um að fá starfið.
VH ehf · Njarðarbraut 11 · 260 Reykjanesbæ · Sími 864-2400 · Sími í verslun 527-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
AF GÆÐUNUM
ÞEKKIÐ ÞIÐ PALLAEFNIÐ
FRÁ VÖLUNDARHÚSUM
VH
/
11
-0
5
Pallaefni, panill, girðinga-
efni, undirstöður, skrúfur
og festingar á frábæru
vor-tilboðsverði.
Sjá nánar á heimasíðu
www.volundarhus.is
70 mm bjálki / Tvöföld nótun
Tilboð Gestahús 25 m²
kr. 1.689.000,- án fylgihluta
kr. 1.989.000,- með fylgihlutum
og byggingarnefndar teiknisetti.
31.5 m² kr. 2.149.000,- án fylgihluta
36.0 m² kr. 2.229.000,- án fylgihluta
39.0 m² kr. 2.499.000,- án fylgihluta
Sjá nánar á heimasíðu www.volundarhus.is
Garðhús og gestahús
í úrvali á frábæru verði
Sjá nánar á heimasíðu
www.volundarhus.is