Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Blaðsíða 18
18 | Fréttir 20.–26. apríl 2011 Páskablað
– VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200
www.velfang.is • velfang@velfang.is
Fr
um
Nýtt og traust umboð
fyrir á Íslandi
varahlutir
þjónusta
verkstæði
vélar
DV fjallaði á mánudaginn um fjárfest-
ingarverkefni Róberts Wessmann og
Björgólfs Thors Björgólfssonar í Murcia
á Spáni árið 2005. Verkefnið gekk út á
kaup á 2 ferkílómetra landsvæði þar
sem byggja átti 2.500 íbúðir og íbúð-
arhús. Til stóð að selja byggingarnar
til vel stæðra Evrópubúa en í nokkra
áratugi hefur verið vinsælt hjá þessum
hópi að eiga sumarhús á Spáni.
Umfjöllun DV byggði að hluta til á
skýrslu sem ráðgjafarfyrirtækið Aquila
Venture Partners vann fyrir íslensku
fjárfestana. Sá sem vann skýrsluna,
Haukur Harðarson, mælti með því
að embættismönnum í Murcia yrði
mútað með sex milljónum evra til að
liðka fyrir því að byggingarleyfi fengist
á landinu og var reiknað með þessum
mútum í útreikningum hans um kostn-
að verkefnisins. Byggingarlandið kost-
aði rúmlega 100 milljónir evra, í kring-
um 8 milljarða króna á gengi þess tíma,
og ætluðu íslensku fjárfestarnir að selja
byggingarnar á svæðinu fyrir um 500 til
600 milljónir evra samkvæmt skýrslu
Hauks.
Róbert hafnar því að mútur hafi
verið greiddar
DV sendi Róbert Wessmann nokkrar
spurningar þar sem blaðið forvitnaðist
um viðskiptin á Spáni. Meðal þess sem
kemur fram í svörum Róberts er að þeir
hafi ákveðið að fylgja ekki hugmynd-
um Hauks um mútugreiðslur. Róbert
ræðir hins vegar ekki ástæðurnar fyr-
ir þessu heldur segir að það hafi aldei
komið „til álita að greiða fjármuni til
embættismanna til að flýta samþykkt-
arferli byggingarleyfis“.
Í máli Róberts kemur auk þess fram
staðfesting á því að Björgólfur Thor
Björgólfsson lánaði honum fjármuni
vegna kaupanna á landinu í Murcia.
Björgólfur Thor hefur stefnt Róberti út
af þessari skuld.
Þá kemur fram að Róbert hafi látið
gera verðmat á landinu sem bendi til
að landið í Murcia geti verið 100 millj-
óna evra virði og því gæti söluverðmæti
þess verið nokkurn veginn álíka mikið
og útistandandi skuldir félagsins sem
keypti landið.
n Róbert Wessmann segir að aldrei hafi komið til álita að múta spænskum embættismönnum
n Ráðgjafi hans mælti með því til að liðka fyrir viðskiptum hans á Spáni n Mútur hluti af útreikningum
Lentu í biðstöðu út
af spillingarmálum
1. Var tekin efnisleg afstaða til þeirra hugmynda um mútur sem fram
koma í skýrslu Hauks? Af hverju var ekki farið eftir tilmælum hans,
líkt og þú segir að hafi ekki verið gert, þar sem hann lagði ríka áherslu
á að mútur væru mikilvægar í viðskiptum á Spáni til að fá sínu fram-
gengt? Mér finnst ekki trúverðugt, miðað við það sem við vitum um
viðskiptaumhverfið á Spáni í þessu máli, að AB Capital hafi ákveðið
að veikja stöðu sína með því að taka ekki þátt í því að reyna að tryggja
sér byggingaleyfi með gestion-greiðslum, mútum. Af hverju var þessi
ákvörðun tekin þegar þinn ráðgefandi aðili mælti svo mjög með því og
fyrirvarinn í kaupunum var svo skammur? Hvaða skoðun hafði Björg-
ólfur Thor, eða starfsmaður hans eða ráðgjafi, á mútugreiðslunum
sem Haukur mælti með?
Róbert: „Fullyrðingar blaðsins um að mútur hafi verið hluti að við-
skiptum AB Capital á Spáni eru fráleitar og endurspegla á engan hátt
framkvæmd umræddra viðskipta. Blaðið ákveður að vitna í skýrslu
þriðja aðila og fullyrðir að tillögur þess aðila hafi náð fram að ganga.
AB Capital leitaði til fjölmargra aðila um ráðgjöf við undirbúning
viðskiptanna. Til að tryggja framgang verkefnisins réð félagið til sín
fremstu sérfræðinga á sínu sviði til að vinna að deiliskipulagi, um-
hverfismati og hönnun fasteigna. Þeir aðilar sem komu m.a. að verk-
efninu voru RTKL arkitektastofa sem er leiðandi fyrirtæki í Evrópu
við gerð umhverfismats og deiliskipulags og Roca-Junyent við undir-
búning deiliskipulags, en sú lögfræðistofa er einnig leiðandi á sínu
sviði. Þá kom fjöldi annarra sérfræðinga tímabundið að verkefninu.“
2. Olli það AB Capital einhverjum erfiðleikum að greiða ekki slíkar
mútur, líkt og þú segir að þið hafið ekki gert, í ljósi þess sem félagið
vildi fá í gegn á La Primavera-svæðinu? Félagið var væntanlega að
veikja samningsstöðu sína fyrst slík háttsemi var algeng, líkt og fjöl-
miðlaumfjöllun sýnir fram á. Var þetta eitthvað rætt hjá ykkur?
Róbert: „Það kom aldrei til álita að greiða fjármuni til embættis-
manna til flýta samþykktarferli byggingaleyfis. Við urðum ekki varir
við að andstaða væri við okkar verkefni hjá þeim stofnunum sem
veita slík leyfi.“
3. Hvað gerði AB Capital til að fá samþykkt deiliskipulag og fá bygg-
ingarleyfi eftir að landið var keypt? Áttu sér stað einhver samskipti
við stjórnmálamenn eða embættismenn í Murcia um þetta atriði? Var
sett einhver pressa á þessa aðila í kjölfar kaupanna?
Róbert: „AB Capital vann þetta á mjög hefðbundinn hátt og áttu
ráðgjafar á vegum félagsins góð samskipti við stofnanir á Spáni.
Þeir aðilar sem að verkefninu komu, þ.m.t yfirvöld í héraðinu,
voru mjög áhugasamir um að það næði fram að ganga. Ástæðan
var meðal annars sú að atvinna myndi skapast í héraðinu vegna
framkvæmdanna, en ekki síður vegna þess að Lamanga-klúbburinn
sem landið stóð við hefur þrisvar verið kosinn besti golfklúbbur í
Evrópu. Slík stækkun gæti þannig laðað til sín fjölda ferðamanna
með tilheyrandi innstreymi gjaldeyris.“
4. Fjármagnaðir þú eiginfjárframlag þitt í viðskiptunum með landið
í La Primavera með láni frá Björgólfi Thor? Ragnhildur segir þetta í
DV. Þetta þýðir jafnframt að framlag þitt var fjármagnað að mestu
með lánum. Nú er þetta lán útistandandi að hans mati og hefur hann
höfðað mál gegn þér út af þessu. Hver er þín sýn á þetta mál? Ljóst er
að þú ert ekki sammála því að þú skuldir honum þessa fjármuni.
Róbert: „Framlag mitt til þessara viðskipta var annars vegar fjár-
magnað með eigin fé og hins vegar með láni frá félagi í eigu Björgólfs
Thors. Greiðsla lánsins er hluti af skuldajöfnunarsamningi milli ólíkra
félaga í okkar eigu, þar sem gert er ráð fyrir að skuldir allra félaga í
okkar eigu yrðu skuldajafnaðar. Eftirstöðvar af því uppgjöri greiðast
til mín.“
5. Ljóst er að lánveitendur AB Capital voru íslenskir bankar. Reynduð
þið að fá lán hjá mörgum spænskum bönkum fyrir La Primavera-fjár-
festingunni áður en þið ákváðuð að leita til íslenskra banka? Í skýrslu
Hauks kemur fram að rætt hafi verið við La Caixa-bankann auk þess
sem fleiri þarlendir bankar eru nefndir til sögunnar sem mögulegir
lánveitendur.
Róbert: „Starfsmenn Novator önnuðust fjármögnun á verkefninu.“
6. Hvaða áhrif hafði rannsóknin á spillingunni í Murcia á verkefnið
ykkar? Hversu langt komnir voruð þið í verkefninu þegar þessi
spillingarmál komu upp? Greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að
þessi spillingarmál hafi komið í veg fyrir að þið gætuð fengið bygg-
ingarleyfi.
Róbert: „Þegar spillingarmál komu upp í Murcia-héraðinu þá voru
öll leyfismál sett í biðstöðu. Nær engin leyfi voru veitt í héraðinu í
um tvö ár á meðan verið var að rannsaka hvaða verkefni tengdust
hugsanlegum mútumálum og hver ekki. Í kjölfar alþjóðlegrar fjár-
málakreppu var frekari vinna í tengslum við skipulagsmál sett í
biðstöðu.“
7. Hvað telur þú að fáist fyrir landið í Murcia þegar það verður selt?
Fæst nægilega mikið upp í kröfur þeirra fjármálafyrirtækja sem
lánuðu til verksins árið 2005 til að ekki þurfi að ganga á persónulegar
ábyrgðir þínar og jafnvel afskrifa einhverja fjármuni? Á hverju byggist
þetta verðmat þitt?
Róbert: „Erfitt er að segja með vissu hvert söluverð landsins verður.
Þess má þó geta að alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið DTZ vann verðmat
árið 2009, sem gerir ráð fyrir að verðmæti landsins sé yfir 100
milljónir evra. Fáist byggingaleyfi samþykkt eins og vonir standa til
er því líklegt að verðmæti landsins verði á pari við lánveitingu vegna
verkefnisins. Ég á því ekki von á því að fjármunir verði afskrifaðir og í
raun ekkert sem bendir til þess.“
8. Hver er skuldastaða AB Capital um þessar mundir – nýlegur árs-
reikningur liggur ekki fyrir?
Róbert: „AB Capital er í fjárhagslegri endurskipulagningu með
lánveitendum sínum sem gert er ráð fyrir að ljúki í haust. Eins og áður
segir er vonast til þess að verðmæti landsins sé sambærilegt við
skuldastöðu fyrirtækisins. Komi til viðbótargreiðslu eru fullnægjandi
tryggingar fyrir því.“
9. Hver er staðan á þessu landi núna? Hvað er verið að reyna að gera
við það? Selja það eða? Hvað? Má ekki reikna með að kröfuhafar AB
Capital taki landið yfir með tíð og tíma? Þá verður það væntanlega
þeirra verk að koma því í verð og reyna að sleppa við afskriftir á
skuldum AB Capital?
Róbert: „Fasteignamarkaðurinn á Spáni er í lægð í dag. Búist er við
að deiliskipulag fyrir a.m.k. 30 prósent af landinu fáist í fyrsta fasa
sem gæti skilað ágætis arðsemi umfram skuldir félagsins í dag. Gera
má þó ráð fyrir að markaðurinn taki lengri tíma að jafna sig. Því má
segja að landið sé til sölu ef ásættanlegt tilboð fæst í það. Samhliða
því verður unnið að því að fá deiliskipulag formlega samþykkt. Óski
lánveitendur eftir því að leysa til sín umrædda eign, kemur vel til
skoðunar að verða við því.“
Spurningar DV og svör Róberts um fjárfestingarverkefniðIngi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Framlag mitt
til þessarra við-
skipta var annar vegar
fjármagnað með eigin
fé og hins vegar með
láni frá félagi í eigu
Björgólfs Thors.
Spillingin á Spáni Róbert
segir að spillingarmál hafi orðið
til þess að þeir fengu ekki bygg-
ingarleyfi í Murcia. Hann vonast
til að söluverðmæti landsins
dugi fyrir skuldum AB Capital.