Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Side 34
34 | Nærmynd 20.–26. apríl 2011 Páskablað
S
igmundur Davíð Gunn-
laugsson varð óvænt for-
maður í Framsóknarflokkn-
um en hann hafði stuttu
áður tekið þátt í baráttu
InDefence-hópsins í Ice-
save-málinu. Sigmundur var tals-
maður hópsins sem barðist gegn
fyrstu samningum ríkisstjórnarinn-
ar við Breta og Hollendinga um Ice-
save-reikningana.
Eftir að hann komst á þing var Ice-
save-málið honum afar hugleikið og
hefur það einkennt málflutning hans
úr ræðustóli Alþingis sem og þegar
hann kemur fram í fjölmiðlum. Hann
minntist þó ekki einu orði á samn-
inginn – sem felldur var í þjóðarat-
kvæðagreiðslu – í ræðu sinni á nýlega
afstöðnu flokksþingi Framsóknar-
flokksins, þar sem hann var endur-
kjörinn í rússneskri kosningu.
Sigmundur hefur þó ekki ver-
ið óumdeildur innan eigin flokks en
tveir þingmenn flokksins, þau Guð-
mundur Steingrímsson og Siv Frið-
leifsdóttir, hafa ekki alltaf fylgt for-
manninum eftir í veigamiklum
málum.
Menntun Sigmundar óljós
Í síðustu viku upplýsti Fréttatíminn
hversu missaga Sigmundur Davíð
hefur verið varðandi menntun sína.
Minnst fjórar mismunandi sögur fara
af menntun formannsins sem hefur
eytt mörgum árum í erlendum há-
skólum án þess að hafa lokið þaðan
prófi, svo staðfest sé.
Óumdeilt er að Sigmundur Davíð
lagði stund á nám í viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Íslands með fjöl-
miðlafræði sem aukagrein. Þaðan
segist hann hafa farið í Plekhanov-há-
skóla í Moskvu í hálft ár og var tvö ár
í skiptinámi við stjórnmálafræðideild
Kaupmannahafnarháskóla. Loks fór
hann svo til Oxford á Englandi þar
sem hann segist hafa stundað tveggja
ára þverfaglegt mastersnám, einkum
í hagfræðideild og stjórnmálafræði-
deild. Sigmundur var formaður Fé-
lags viðskipta- og hagfræðinema á
Norðurlöndum auk þess að vera einn
stofnanda og formaður Oxford Uni-
versity Heritage Society.
Á Facebook-síðu formannsins var
hægt að skoða menntun hans og titil,
en hann hefur löngum titlað sig sem
skipulagshagfræðing. Það er þó ekki
lengur en samkvæmt heimildum DV
hvarf titillinn „skipulagshagfræðing-
ur“ af Facebook eftir að Fréttatíminn
birti frétt sína. Samkvæmt heimildum
DV hefur hann ekki heldur leyfi til að
titla sig sem hagfræðing en það er lög-
verndað starfsheiti.
Þekkt andlit úr sjónvarpinu
Þrátt fyrir að Sigmundur Davíð hafi
mjög óvænt orðið formaður í Fram-
sóknarflokknum var hann ekki
óþekkt andlit meðal landsmanna.
Hann hafði samhliða námi unnið
sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu
en þar starfaði hann um sjö ára skeið
en hann hætti störfum fyrir ríkismið-
ilinn á góðærisárinu 2007.
Eftir að hann hætti sem fréttamað-
ur gerði hann tilraun til að hafa áhrif á
skipulagsmál í borginni og tók meðal
annars sæti í skipulagsráði Reykjavík-
urborgar. Hann hefur auk þess talað
mikið fyrir þeim menningar- og um-
hverfisverðmætum sem felast í varð-
veislu og endurnýjun eldri húsa og
borgarhverfa og situr í skipulagsráði.
Hann settist í skipulagsráð ári áður en
hann var kjörinn formaður á lands-
fundi Framsóknarflokksins rétt fyrir
kosningar sem boðað hafði verið til í
kjölfar búsáhaldabyltingarinnar.
Í aðdraganda kosninganna sýndu
skoðanakannanir veika stöðu Fram-
sóknarflokksins á höfuðborgarsvæð-
inu og um tíma leit út fyrir að Sig-
mundur, formaðurinn sjálfur, næði
ekki kjöri á Alþingi þrátt fyrir að vera
efsti maður á lista Framsóknarflokks-
ins í öðru Reykjavíkurkjördæmanna.
Stuðningur úr óvæntri átt
Undanfarið hefur Sigmundi Dav-
íð borist óvæntur stuðningur úr rit-
stjórnarstóli Morgunblaðsins þar sem
fyrrverandi formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Davíð Oddsson, hefur lýst
yfir ánægju sinni með Sigmund Dav-
íð í ritstjórnarpistlum sínum. Davíð
starfaði náið með Framsóknarflokkn-
um um langt skeið en hann leiddi rík-
isstjórnir sem flokkarnir tveir mynd-
uðu. Staðföst skoðun Sigmundar
Davíðs gegn Icesave-samningnum er
líklega ástæðan fyrir því að flokkur-
inn hefur haldið jöfnu fylgi frá síðustu
kosningum þrátt fyrir stefnubreytingu
í nokkrum veigamiklum málum. Gera
má ráð fyrir því að hann hafi sótt fylgi
til fólks sem hingað til hefur stutt aðra
stjórnmálaflokka.
Þegar Sigmundur tók við sem for-
maður í Framsóknarflokknum lýsti
hann þeirri skoðun sinni að nú væri
ráð fyrir flokkinn að leita lengra til
vinstri og yfirgefa hægristefnuna sem
hafði einkennt forystu flokksins í
stjórnarsamstarfi hans við Sjálfstæð-
isflokkinn. Þeirri stefnu hans er ekki
hægt að segja að hann hafi fylgt eftir
í verki en flokkurinn hefur í flestum
málum myndað sterka stjórnarand-
stöðu ásamt sínum gamla samstarfs-
flokki. „Tveggja flokka stjórn Fram-
sóknarflokks og Vinstri grænna væri
góður kostur en óvíst er að þeir tveir
flokkar fái nægt fylgi til þess,“ sagði
Sigmundur Davíð í viðtali við DV í að-
draganda kosninganna en hann lýsti
því líka í viðtalinu að hann gæti hugs-
að sér stjórnarsamstarf með Samfylk-
ingunni.
Ótvíræðir leiðtogahæfileikar
Samstarfsmaður hans í Framsóknar-
flokknum, Birkir Jón Jónsson, seg-
ir Sigmund Davíð vera stefnufastan
mann sem hafi þó ekki endilega gott
tímaskyn. „Hann er mjög ákveðinn
og stefnufastur og þegar að hann hef-
ur komist að niðurstöðu þá verður
honum ekki mjög auðveldað hnik-
að,“ segir Birkir Jón sem segir hann
þó vera húmorista í góðra vina hópi.
„Hann er ekki laus við galla en hans
sterkasta hlið er nú ekki stundvísi og
af þeim sökum geta ferðir vítt og breitt
um landið orðið ansi viðburðaríkar
og stundum geta riðlast flest plön.“
Stundvísin kemur þó Sigmundi ekki í
koll í leiðtogahlutverkinu. „Hann hef-
ur ótvíræða leiðtogahæfileika,“ segir
Birkir Jón sem segir það ekki vera á
hvers manns færi að ná að komast inn
í pólitík á þeim tíma sem Sigmundur
gerði en hann varð óvænt formaður
í Framsóknarflokknum stuttu eftir
efnahagshrunið.
Framsóknarkonan Siv Friðleifs-
dóttir tekur í sama streng og Birk-
ir Jón og segir Sigmund vera sterkan
leiðtoga. „Það er gott að vinna með
honum,“ segir hún. „Hann er dug-
legur ungur maður og mér finnst gott
hvað hann er lítt upptekinn af eigin
persónu, eins og formenn vilja stund-
um verða. Þeir sem veljast til forystu
í stjórnmálaflokkum verða stundum
svo uppteknir af eigin tilveru, hann
þarf ekki að vera að sanna sig inni í
hópnum frá degi til dags.“ Aðspurð
hverjir gallar Sigmundar væru seg-
ir Siv að erfitt geti reynst að ná sam-
bandi við hann. „Hann er gríðarlega
upptekinn þannig að það getur verið
erfitt að ná til hans en ef maður sendir
honum sms þá hringir hann alltaf til
baka.“
Fjölskylduhagir
Sigmundur Davíð fæddist í Reykjavík
12. mars 1975. Faðir hans er Gunn-
laugur M. Sigmundsson fyrrverandi
alþingismaður Framsóknarflokks-
ins en móðir hans er Sigríður G. Sig-
urbjörnsdóttir, lífeindafræðingur og
skrifstofustjóri. Sigmundur Davíð
gekk að eiga unnustu sína Önnu Sig-
urlaugu Pálsdóttur, mannfræðing og
fjárfesti, í athöfn í Dómkirkjunni.
Anna Sigurlaug er dóttir Páls
Samúelssonar, fyrrverandi forstjóra
Toyota, og Elínar Jóhannesdóttur
húsmóður. Anna Sigurlaug er vell-
auðug, á eignir sem nema meira en
milljarði króna, samkvæmt upplýs-
ingum úr tekjublöðum sem byggja á
skattgreiðslum einstaklinga til ríkis-
ins. Ekki er vitað hvernig Anna Sigur-
laug efnaðist svo mjög. Þó má ætla að
það kunni að tengjast föður hennar
sem seldi Toyota-umboðið til Magn-
úsar Kristinssonar fyrir metfé á sínum
tíma.
Í viðtali við DV í janúar 2009 rifjaði
Sigmundur upp fyrstu kynni þeirra
Önnu Sigurlaugar þegar þau hittust í
boði fyrir rúmum níu árum. „Það er
í raun ekki mikið um það að segja,
nema að við hittumst í áramótaboði,
smullum vel saman og höfum verið
saman síðan,“ sagði Sigmundur í við-
talinu og bætti hálfskömmustulega
við í viðtalinu að það stæði til að biðja
hennar. „Við förum ekki í fjölskyldu-
boð án þess að frænkurnar bendi
okkur á þá staðreynd að við séum enn
barnlaus. Við sjáum hvað framtíðin
ber í skauti sér,“ sagði hann einnig í
viðtalinu.
„Svolítið nörd“
Birgitta Jónsdóttir, samstarfskona
Sigmundar Davíðs á þingi og í utan-
ríkismálanefnd þingsins, segir að Sig-
mundur sé nörd. „Mér finnst hann
bara svolítið nörd. Hann fer mjög
ofan í saumana á öllu og ef hann hef-
ur áhuga á einhverjum málefnum fer
hann mjög vel ofan í þau,“ segir Birg-
itta. „Þegar við vorum að semja um
þinglok og í þessari vinnu í kringum
Icesave þá fannst mér mjög þægilegt
að vinna með honum. Hann er mik-
ill diplómat þangað til að kemur að
sársaukamörkunum – eins og með
Icesave á sínum tíma.“ Samkvæmt
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
varð formaður Framsóknarflokksins nokkuð
óvænt fyrir þingkosningarnar árið 2009. Hann
hefur þó reynst góður og traustur leiðtogi og hefur
náð að halda fylgi flokksins nær óbreyttu frá
þingkosningum. Undanfarið hefur umræða um
menntun Sigmundar farið hátt en hann hefur í það
minnsta verið fjórsaga um menntun sína. Þegar DV
kannaði málið kom líka í ljós að hann hefur kallað sig
skipulagshagfræðing og þar með brotið lög.
„Mér finnst hann bara
svolítið nörd“
„Hann er ekki
laus við galla
en hans sterkasta hlið
er nú ekki stundvísi.
Ástfangin Sigmundur Davíð á brúðkaupsdaginn ásamt eiginkonu sinni, Önnu Pálsdóttur.
MynD SiGtryGGur Ari
Fyrsta atkvæðið sem formaður
Sigmundur Davíð greiddi atkvæði í
Reykjavíkurkjördæmi suður en sjálfur
var hann í framboði fyrir Framsóknar-
flokkinn í Reykjavík norður.
MynD KriStinn MAGnúSSon
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is