Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Qupperneq 36
Enn og aftur stunda menn þann siðlausa samkvæmisleik að hossa sér eftir meðvitaða rass-
breikkun. Þetta er gert með þeim
hætti, að spurt er leiðandi spurn-
inga til þess eins að framleiða svör
sem eru hinum „leiðandi“ miðl-
um þóknanleg. Menn eru semsagt
að spá í það hversu margir seg-
ist treysta þingfréttaritara RÚV og
hversu margir geti hugsað sér að
játa traust sitt á vefriti LÍÚ-tíðinda.
Svo kemur út einhver tala sem á
að segja okkur að svo og svo mörg
prósent þjóðarinnar treysti við-
komandi miðli.
Ef ég væri spurður að því hvaða
blað ég gæti hugsað mér að fá inná
mitt heimili myndi ég svara: -DV.
Og ef ég yrði spurður að því hvort
ég treysti DV, myndi ég svara því til,
að ég kaupi DV vegna þess að það
er eina blaðið sem ég veit að þorir
að fjalla um málefnin á nákvæm-
lega réttastan hátt.
Okkur er sagt að trúa því, að
dillibossar íhaldsins, uppábúnir
einsog siðað fólk, geti flutt okkur
sannar fréttir. Og þegar okkur er
sagt að fulltrúar náhirðar og helm-
ingaskipta séu besta fólkið, þá læð-
ist ósjálfrátt að okkur sá grunur að
samkvæmisleikur hinna siðblindu
hafi farið úr böndunum.
Ég treysti því fólki sem þorir að
vera heiðarlegt, en ég fyrirlít lyddur
og loddara sem hafa þann helga sið
í lífinu að vera í eilífum höfðingja-
sleik við úrhrök sem aldrei hafa
tekið þátt í einu eða neinu án þess
að hafa rangt við. Þeir skora sem
þora, hinir bora í nefið og leita að
sannfærandi svindli.
LÍÚ-tíðindi segja okkur að for-
kólfur samtaka atvinnurekenda
verði að fá endurnýjaða kvóta-
gjöf uppá borðið, svo greiða megi
launafólki þá hækkun sem það
átti að fá fyrir nokkrum misserum
(hækkun sem reyndar er nú þeg-
ar farin útí verðlagið). Og þetta er
lapið upp af konu sem matreiðir
fréttir að hætti þjófafélagsins í Val-
höll. Enn einn bjáninn, Sigurður
klári og aðrir þeir sem þiggja laun
frá Launasjóði íslenskra útvegs-
manna, hafa það eitt í hyggju að
tryggja endurkomu auðmanna að
þeim kjötkötlum sem þeir náðu að
tæma. Og nú vælir lúsablesahjörð-
in og heimtar kosningar. Við eigum
að trúa því að náhirðin ætli að gefa
okkur eitthvað af því sem hún stal
frá okkur.
Samkvæmisleikur hinna sið-
blindu er komin svo langt út fyrir
þjófabálkinn að jafnvel Siv Frið-
leifsdóttir virðist eiga auðvelt með
að sýna ímyndaðan heiðarleika.
Hún heldur því statt og stöðugt
fram að til séu heiðarlegir fram-
sóknarmenn sem vilji styrkja ríkis-
stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Er Framsókn með sín feitu svín
á fjölgun grísa í vændum,
þá er ljóst að þjóðin mín
þarf að fækka bændum.
36 | Umræða 20.–26. apríl 2011 Páskablað
„Þórsarar eiga
stóran hlut í
hjarta mínu“
n Aron Einar Gunnarsson,
leikmaður Coventry, ætlar að
mæta á alla þá Þórs-leiki sem hann getur í
sumar enda uppalinn þar. - Fótbolti.net
„Það yrði náttúrlega algjör
draumur að fá að hitta
hana í eigin
persónu“
n Atli Freyr Arnarson hefur skráð sig í
keppni um að verða aðstoðarmaður Lady
GaGa. - Fréttablaðið
„Ég er nú bara
móðir hans“
n Erla Baldursdóttir móðir
Gunnars Helga Steinþórsson-
ar, sem vann páskaegg í páskaeggjaleik
DV, sótti fyrir hann eggið. - DV
„Ógeðslegt blað já í alla
staði“
n Bubbi Morthens er ekki sáttur við
Morgun blaðið þessa dagana eftir
vafa sama skopmynd af Siv Friðleifsdóttur.
- DV.is
„Bókin mín, 500 dagar í
helvíti: Þegar ég ákvað að
byrja að þjálfa meistara-
flokk kvenna, kemur út
1. október“
n Vélbyssukjafturinn Þorkell Máni
Pétursson úr Harmageddon stefnir á
bókarskrif um tíma sinn í boltanum. -
Twitter-síða Þorkels
Sægreifar og sjóræningjar
Leiðari
Bókstaflega
Reynir Traustason ritstjóri skrifar
DV lætur drauminn rætast
Skáldið skrifar
Kristján
Hreinsson
„Og nú vælir lúsa-
blesahjörðin og
heimtar kosningar.
Grátstafir Lilju
n Lilja Mósesdóttir, þingmaður utan
þingflokka, hafði um það grátstafi
á Fésbók sinni að hefðbundnir fjöl-
miðlar fjölluðu
ekki um mál-
stað smælingja.
Þannig var hún
þakklát Fés-
bókinni fyrir að
koma málum á
framfæri. Ein-
hverjum ofbauð
málflutningur
Lilju sem hefur verið manna mest
áberandi í fjölmiðlum að undanförnu
vegna klofnings VG. Víst er að í hlut-
falli við fylgi er þingmaðurinn í forrétt-
indahópi, eins og þetta Sandkorn
undirstrikar.
Grænir hákarlar
n Mikil spenna er nú í kringum
stjórnmálin þar sem kosningar gætu
brostið á fyrirvaralítið. Meðal þeirra
sem gera sig klára
í slaginn er Guð-
mundur Franklín
Jónsson, formaður
og stofnandi
Hægri grænna,
sem safnar
að sér þunga-
vigtarmönnum
í slaginn. Meðal
þeirra hákarla sem taldir eru á hægu
róli í áttina að Hægri grænum er
Jón Kristinn Snæhólm, áhrifamaður í
Sjálfstæðisflokknum og fyrrverandi
aðstoðarmaður Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, sem allt eins er talinn vilja vera
Hægri grænn.
Össur huggar
stríðsmenn
n Talsvert uppnám varð þegar Jón
Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, neitaði
að heiðra þýska sjóherinn með nær-
veru sinni og bar
við friðarást. Þjóð-
verjarnir komu
til Reykjavíkur á
herskipum sínum
með eina þyrlu í
farteskinu til að
leysa af Gæslu-
þyrlu sem er til
viðgerðar. Þótti
framlagið til öryggismála Íslendinga
göfugt þótt Jón hundsaði stríðsgarp-
ana. Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra upplýsti í Bítinu á Bylgjunni
hvernig honum rann móðgunin til
rifja og ákvað hann að bera smyrsl á
sárin. Hélt ráðherrann um borði í her-
skipið og ávarpaði hina smáðu með
þeim orðum að þeir væri velkomnir
til Íslands.
Sjaldséður þingmaður
n Heitasti brandarinn á Alþingi þessa
dagana er að Lee Buchheit, formaður
Icesave-samninganefndarinnar, hafi
komið oftar á
fundi fjárlaga-
nefndar Alþingis
í vetur en Ás-
mundur Einar
Daðason sem þó
situr í nefndinni.
Fer það orð af
þingmanninum
unga að hann sé
mikið á ferðinni úti í bæ í reddingum
hvers konar.
Sandkorn
tryGGVaGötu 11, 101 rEykjaVík
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Svarthöfði
Rumpulýður hefur að undan-förnu vaðið uppi í íslenskri pólitík án þess að hafa um-
boð kjósenda. Þetta er hagsmuna-
hópur útgerðarmanna og vinnu-
veitenda sem telur sig vera þess
umkominn að segja Alþingi og rík-
isstjórn fyrir verkum. Þeir neita að
færa launþegum kjarabætur nema
forsætisráðherra fari að þeirra skip-
unum um að viðhalda hinu illræmda
kvótakerfi. Átökin snúast um það að
þeir sem reyna að bylta réttkjörnum
stjórnvöldum vilja halda áfram að
fara með eignarhald á verðmætustu
auðlind landsins. Samtök atvinnu-
lífsins dansa nú eftir pípu talsmanns
sægreifanna og neita að semja við
launþega landsins. Þeir reyna meira
að segja að fá verkalýðssamtök til
liðs við sig um að senda út bókun um
að ríkisstjórnin sé ómöguleg.
Þessi samtök um pólitískt ofbeldi
höfðu nýverið afskipti af þjóðar-
atkvæðagreiðslunni um Icesave.
Þeir boðuðu að allt færi í kalda-
kol ef þjóðin felldi samninginn. Og
beittu því vopni sínu að ekki yrði
samið ef þjóðin segði nei. Þjóðin lét
ekki sægreifana og jakkalakkana í
Samtökum atvinnulífsins kúga sig.
Það er ekki síst fyrir tilstilli þeirra að
Icesave-samningurinn var felldur.
Almenningi ofbauð ofríkið. Heið-
virðir félagar í Samtökum atvinnu-
lífsins verða að stöðva skepnuskap-
inn eða segja skilið við samtökin.
Nú eru þrjótarnir aftur komnir á
stjá. Að þessu sinni er það kvótakerf-
ið sem verja skal með kjafti og klóm.
Sjóræningjar og sægreifar sameinast
nú í að svipta þjóðina þeim rétti að
fara með forræði stærstu auðlindar
sinnar. Það er engin leið að láta sam-
tök af þessum toga vaða uppi. Þeir
hafa úthúðað forsætisráðherranum
með afar persónulegum hætti. Al-
þingi Íslendinga verður þegar í stað
að útfæra frumvarp sem byltir kvóta-
lögunum. Tryggja verður að þýfinu
úr „stærsta ráni Íslandssögunnar“
verði skilað til fólksins. Samhliða
lagasetningunni um kvótann og
eignarhaldið verður að setja lög um
að málið fari í þjóðaratkvæði. Kjós-
endur á Íslandi fá þar með tækifæri
til að afnema lénsveldið sem nærist
á lifandi fiski í hafinu. Alþingi, ríkis-
stjórn og forseti Íslands verða nú að
taka höndum saman um að eyða
ranglæti sem hefur viðgengist í ára-
tugi.
1Bjarni Benediktsson lagði fram vantrauststillögu á ríkisstjórn-ina í kjölfar þess að þjóðin felldi
Icesave-samning hennar en hann
hafði sjálfur stutt samninginn. Þetta
er vissulega eitt af undrum Alþingis.
Bjarni hefði rétt eins getað lýst yfir
vantrausti á sjálfan sig. Útskýring:
Bjarni varð að vera fyrri til að lýsa
vantrausti á einhvern, svo hann yrði
ekki fyrir því sjálfur. En sumir sjá í
gegnum þetta.
2Þingmennirnir Atli Gísla-son, Lilja Mósesdóttir og Ás-mundur Einar Daðason hafa
yfirgefið Vinstri græna. Þau sögðu
ástæðuna vera að þau hefðu orðið
fyrir gagnrýni fyrir að fylgja ekki for-
ystu flokksins. Hin ástæðan fyrir því
að þau hætta er að flokkurinn gerði
ekki það sem þau vildu að hann
gerði, til dæmis að hætta við aðildar-
umsókn að Evrópusambandinu. Því
virðist komin upp frekju-þverstæð-
an; þau krefjast þess að þau megi
hafa sína eigin stefnu, en vilja ekki
leyfa flokknum það. Útskýring: Það
er margt skrýtið í kýrhausnum.
3Sjálfstæðisflokkurinn hefur ný-verið öðlast djúpstæða lýðræð-isást, sem brýst einungis fram í
málum ríkisstjórnarinnar sem hann
styður ekki. Útskýring: Lýðræðisást-
in er uppgerð, en gamla flokkapóli-
tíkin er hjartans sönn.
4 Jóhanna Sigurðardóttir og Samfylking hennar höfðu djúpstæða lýðræðisást, sem
hvarf þegar lýðræðið kom í Icesave-
málinu. Útskýring: Flestir vilja lýð-
ræði þar til þeir komast til valda.
5 Jóhanna Sigurðardóttir lofaði að auka gegnsæi, en kom svo með upplýsingalög sem hindr-
uðu aðgengi almennings að skjölum
ríkisins í 60 til 110 ár. Útskýring: 110
ár breyta spillingu í sagnfræði.
6Guðmundur Steingrímsson þingmaður er Evrópusinnaður og virðist engan veginn passa
inn í hinn þjóðernissinnaða Fram-
sóknarflokk. Hann var eini fram-
sóknarmaðurinn sem studdi ekki
vantrauststillögu gegn ríkisstjórn-
inni. (Hluti af því að vera framsókn-
armaður er að kunna að marsera
fram í takt: Árangur áfram – ekkert
stopp!) Hvers vegna er Guðmund-
ur í Framsókn, en ekki í Samfylk-
ingunni? Útskýring: Framsóknar-
flokkurinn hefur ekki borið sitt barr
síðan faðir Guðmundar, Steingrímur
Hermannsson, var formaður. Guð-
mundur býður færis fyrir genetíska
hallarbyltingu.
7Katrín Jakobsdóttir mennta-málaráðherra fékk sam-þykkt lög, sem gefa eftirmanni
hennar – sem áreiðanlega verður
sjálfstæðismaður, eins og Björn
Bjarnason og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir – vald til að skipa
nefnd sem getur refsað fjölmiðlum
fyrir óholla umfjöllun, meðal annars
með dagsektum. Útskýring: Vinstri
grænir eru frábærir í hugsjón, en
hræðilegir í framkvæmd.
Sjö undur AlþingiS
„Þýfinu úr „stærsta
ráni Íslands-
sögunnar“ verði skilað
til fólksins.