Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Blaðsíða 42
42 | Viðtal 20.–26. apríl 2011 Páskablað
segi þeim að hafa samband aftur. Ég
gef hins vegar ekki ráð sem þau ná-
kvæmlega eiga að fara eftir. Þá væri
ég búinn að taka ábyrgðina af þeirra
höndum.“
Æskulýðsfulltrúi á Grund
Séra Pétur var ekki á þeim buxunum
að verða þjónn kirkjunnar á unglings-
árunum. Þá fannst honum kirkjan
asnaleg og kom með þá hugmynd ein-
hverju sinni að það ætti að leggja hana
niður. Hann fór eiginlega í guðfræðina
til að sanna mál sitt. Hann segist hins
vegar hafa afdjöflast á fyrsta ári. Hann
fann að þetta átti við hann. Hann fann
trúna. Hann hafði unnið á elliheim-
ilinu Grund í mörg ár áður en hann
vígðist til prests við Óháða söfnuðinn
fyrir 15 árum.
Enn vinnur hann á Grund; er þar
þrjá morgna í viku í „æskulýðsstarfi“
eins og hann kallar það. „Ég les upp
úr dagblöðunum, ég tek þátt í söng-
stund, við stígum hringdans og ég tek
á móti fólki þegar það flytur á Grund
og læt það fá Nýja testamentið og
bækling Kristilegs félags heilbrigðis-
stétta. Þá er elliheimilið með útibú
í Hveragerði og fer ég þangað einu
sinni í mánuði og er þar í þrjá daga.“
Hann kallar þetta „æskulýðsstarf“ til
að ögra.
Þess má geta að Pétur fór á sínum
tíma í framhaldsnám sem Fulbright-
styrkþegi til Minnesota í Bandaríkjun-
um til að nema hæga hreyfisöngva fyr-
ir aldraða. Ætli presturinn sprelli hjá
gamla fólkinu? „Já. Ég bæti stundum
í fréttir sem ég les upp úr blöðunum.
Ég er ekki að tala um fréttir um banka-
fallið, árásirnar í Líbíu eða hvað Gad-
dafi sé að gera. Maður reynir aðeins að
létta lundina og lesa eitthvað annað.“
Spiksperðill – salamí
Pétur hefur gaman af orðum.
Óvenjulegum orðum. Hann kallar
sig „allsherjarnýyrðaskáld“ og for-
seta Háfrónsku málhreyfingarinnar
á Íslandi. Tveir meðlimir eru í þeim
félagsskap: Pétur og Belgi nokkur.
Pétur er þekktur fyrir að hafa gefið út
Pétrísk – íslenska orðabók í 32 ár. Um
60 ný nýyrði fara í bókina sem kemur
út þetta árið.
„Maður verður hálfallsber þegar
fólk les orðin því þau eru á mörkun-
um. Ég myndi aldrei nota mörg orð-
in í kirkjuhúsinu sjálfu. Ég þekki mín
mörk þó ég sé kannski alveg á mörk-
unum. Ég vil aldrei særa neinn.“
Er klerkurinn góður maður? „Ég
held það. Enginn hefur sagt að ég
væri vondur maður; enginn hefur að
minnsta kosti látið það í ljós.“
Hvað eru orð? „Ég nota sum orð-
in til að vekja fólk til umhugsun-
ar. Málið er svo dýrmætt. Mörg orð
tjá eitthvað sem er öðruvísi. Þau fá
nýja merkingu. Í mínum huga eru
orð tjáning. Orðin eru til alls í upp-
hafi. Þau gefa manni tækifæri til að
geta sagt frá á nýjan hátt. Mér finnst
tvíræðni orðanna skemmtilegust.“
Á meðal nýrra nýyrða Péturs: Sam-
skeyti – þegar fólk sendir fleirum en
einum sama tölvupóstinn, spiksper-
ðill – salamí, útfararkaffi – kaffi sem
er drukkið úr málum sem fólk fer
með út.
Hvert er nýjasta uppáhaldsorð
Péturs? „Stöðuveitingar. Það er þeg-
ar fólk borðar veitingar standandi.“
Hann segir að málið sé í sífelldri end-
urskoðun og fæðingu. „Enda er ég
enn í orðeign, samanber barneign.
Tilgangurinn er að styrkja Kristilegt
félag heilbrigðisstétta með bókinni
og gott ef þessi dæmalausa vitleysa
getur styrkt kristilegt starf.“
Kemst ekki lifandi frá lífinu
Pétur er stundum með uppistand í
félögum og á vinnustöðum þar sem
pétrískan er aðaláherslan. „Þannig
getur maður vonandi aukið gleðina
hjá liðinu og hina líkamlegu horm-
ónastarfsemi.“ Hann hefur haldið
námskeið hjá veiku fólki með áherslu
á húmorinn og segist alveg vera til í
meira af slíku. „Húmorinn er í mín-
um huga eitthvað sem maður gefur
til samferðamanna sinna, til að létta
lundina og maður gerir grín að sjálf-
um sér í leiðinni. Það á ekki að taka
sig of alvarlega. Maður kemst hvort
sem er ekki lifandi frá lífinu.“
Hann trúir á líf eftir dauðann.
„Gersamlega,“ segir hann með
áherslu. „Ég held að það sé mikið
fjör hinum megin; fyrir handan. Að
það sé þvílík gleði með Guði. Ég segi
í lokin í hverri jarðarför að við mun-
um hitta þá sem á undan eru
gengnir. Það er þessi himneska
von sem við höfum. Þeir sem
eru í kirkjunni hafa eitthvað til
að hlakka til.“ Hvað er dauð-
inn í huga Péturs? „Dauðinn er
samruni við guðdóminn.“ Hann
hræðist þá væntanlega ekki
dauðann? „Nei, ég bara hlakka
til.“
Dansar og djöflast
Hann býr einn í lítilli íbúð vest-
ur í bæ og ekur um á bíl með
bílnúmerinu HÁÓÐUR. Býður
einstæðu fólki í tilhleypinga-
teiti einu sinni á ári. Pétur seg-
ist synda í Vesturbæjarlaug-
inni á hverjum einasta morgni.
Er þar í „Húnahópnum“ – hópi
þeirra sem eru yfirleitt fyrst-
ir ofan í snemma á morgnana.
Hann syndir bringusund – 500
metra á um tíu mínútum – og fer
svo í heita pottinn og spjallar við
aðra meðlimi hópsins. Þá taka
við samverustundir með íbúum
Grundar þrjá morgna í viku en
Pétur er í 75% starfi hjá Óháða
söfnuðinum.
Hvað með áhugamál? „Ég
hef gaman af tónlist. Ég ætla á
Eagles-tónleikana og vera þar
í fremstu röð. Ég hef gaman af
að dansa og djöflast á diskótek-
um. Stundum fer ég til að hlusta
á tónlist með löppunum á stöð-
um þar sem er lifandi tónlist. Á
sumrin fer ég yfirleitt í fimm til sex
daga bakpokagönguferðir í hóp til að
skoða náttúruna, umhverfið og þess
háttar – það sem Guð hefur skapað
og gefið okkur.“
Það er farið að fjölga í kirkjunni.
Maður kíkir inn á skrifstofuna. Það
er að hefjast 12 spora fundur. „Þetta
er andlegt ferðalag sem fjallar meðal
annars um fyrirgefningu, reiði, kala
og hatur. Það er verið að hjálpa fólki
að vera sáttara við sjálft sig.“ Ég kveð
klerkinn. Hann bendir á að mér sé
velkomið að ganga í Óháða söfnuð-
inn. Hann er alltaf tilbúinn að bæta
við sóknarbörnum. Ég held mig samt
áfram við þjóðkirkjuna.
Bossanova
í fermingunni
Ég fæ tölvupóst frá Pétri tveim-
ur dögum seinna. Subject: Grín og
glens. Í tölvupóstinum er slóð á You-
Tube: Interview with Satan on his
views about church. Maður í rauð-
um skrattafötum í hlutverki þess
í neðra. Ástæða sendingarinnar:
Séra Pétur býður mér í fermingar-
messu daginn eftir. Í tölvupóstinum
stendur að brasilísk söngkona muni
syngja við athöfnina og að systir
eins fermingarbarnsins muni syngja
frumsamið lag um einelti. „Á þetta
værir þú velkomin á morgun og
gott að fá gagnrýni, hvað þér þætti
um svona öðruvísi messu heldur en
þessar hefðbundnu.“ Undirskrift:
Grínarinn.
Kirkjuklukkurnar klingja í hvítu
kirkjunni þennan sunnudag og prúð-
búnir kirkjugestir fylla kirkjuna. At-
höfnin hefst og virðulegur, miðaldra
prestur gengur hægum skrefum inn
kirkjugólfið og glæsileg fermingar-
börn í kjölfar hans. Blóm næld í hvíta
kyrtlana og sumar stúlkurnar með
blóm í hárinu. Börnin setjast fremst
í kirkjunni og athöfnin hefst. „Ég
heilsa öllum í Jesú nafni,“ segir Pét-
ur hressilega og söfnuðurinn klapp-
ar. Brasilíska söngkonan syngur Janis
Ian-lagið At Seventeen. Sálmasöng-
ur og bænir. Fermingarbörnin ganga
upp að altarinu en áður en þau ferm-
ast kemur systir eins úr hópnum og
syngur um reynslu sína af einelti. Á
meðan snúa fermingarbörnin baki í
prestinn og altarið.
Fram undan: Fermingin. Prestur-
inn talar um syndaseli þegar hann
býður kirkjugestum að ganga til
altaris. Svolítill djass leikinn á flygil
á meðan þeir þiggja oblátu og vín
við altarið. Að athöfninni lokinni
tilkynnir séra Pétur að söngkonan
muni syngja bossanova-lagið The
Girl from Ipanema. „Obrigado,“ segir
hann við hana. Presturinn og ferm-
ingarbörnin ganga síðan út á meðan
lagið hljómar í kirkjunni. Þau standa
í röð í anddyrinu. Presturinn fremst-
ur – kominn út. Virðulegur í hemp-
unni.
Svava Jónsdóttir
„Ég held að það
sé mikið fjör hinum
megin; fyrir handan.
Að það sé þvílík gleði
með Guði.
Ætlar á Eagles „Ég hef gaman af að dansa
og djöflast á diskótekum. Stundum fer ég til að
hlusta á tónlist með löppunum á stöðum þar
sem er lifandi tónlist.“