Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Síða 46
46 | Viðtal 20.–26. apríl 2011 Páskablað
tali líður þá gildir það sem stendur í
stjórnarsáttmálanum nema báðir að-
ilar sammælist um breytingar. Ég hef
verið að reyna að búa til regluramma
um stjórnarráðið og ríkisstjórnina til
að auka á samræmingu og sameigin-
lega stefnumótun ríkisstjórnarinnar,
til dæmis með stjórnarráðsfrumvarp-
inu. Það felur meðal annars í sér leiðir
til að koma í veg fyrir að sú staða geti
komið upp, líkt og fyrir hrun, að mik-
ilvæg efnahagsleg málefni séu ein-
faldlega ekki borin undir ríkisstjórn-
ina. Þetta var eitt af kjarnaatriðum í
gagnrýni rannsóknarnefndar Alþing-
is sem við erum að bregðast við með
frumvarpinu. Nú höfum við einnig
skipað ráðherranefnd í efnahagsmál-
um sem hittist vikulega, og ráðherra-
nefndir í atvinnumálum, ríkisfjármál-
um, jafnréttismálum og málefnum
ESB sem hafa verið mjög gagnlegar.
Það er nauðsynlegt að hjá forsætis-
ráðherra sé skýrt verkstjórnarvald
til þess að samræma þegar ágrein-
ingur er eða þegar málaflokkar skar-
ast milli ráðherra og ráðuneyta. Þetta
snertir einnig verklag við að bera mál
undir ríkisstjórn. Það þurfa að gilda
um þetta reglur en með þessu er ekk-
ert verið að fara inn á verksvið ein-
stakra ráðherra. Það er alveg óbreytt.
Við viljum fyrst og fremst að skipu-
lag sé á hlutunum, og þannig agi að
menn geti haft á tilfinningunni að hér
sé stjórn á hlutunum og að hér hringi
viðvörunarbjöllur þegar eitthvað er
að í efnahags- eða fjármálum. Það er
kjarni málsins en ekki að völd séu tek-
in af einstökum ráðherrum.“
Mótlætið herðir mig
Andstæðingar ykkar segja nánast
daglega að þetta sé veik ríkisstjórn og
hún komi hlutunum ekki í verk. Þar
ber atvinnumál og framkvæmdir oft
á góma. Svo er meirihluti ykkar mjög
naumur. Almennir borgarar tala oft
um að ríkisstjórn þinni hafi ekki tekst
vel að mynda margfræga skjaldborg
um heimilin og fjárvana fyriræki í
kjölfar hrunsins. Hverju svarar þú
þessu?
„Engin ríkisstjórn hefur fengið jafn
erfið verkefni að glíma við. Ég fullyrði
að ég; mín ríkisstjórn og þingflokkar
stjórnarflokkanna hafa lagt sig alla
fram í verkefnum undangeginna ára
og gert sitt ýtrasta til að þoka endur-
reisninni áfram. Við höfum lagt okkur
fram en vel má vera að það hefði mátt
gera betur við þessar erfiðu aðstæður.
Það hefur verið komið á skuldaleið-
réttingu fyrir heimilin og eins kon-
ar skuldahreinsun fyrir fyrirtækin.
Skuldaaðlögunin sem við tókumst á
hendur fyrir einstaklinga er gífurlega
mikil, bæði í afskriftum og í beinum
fjármunum sem við lögðum fram. En
ég dreg ekki dul á að mér hefur sviðið
sárt að sjá þá erfiðleika, skuldaaukn-
ingu og atvinnuleysi sem fólk lend-
ir í. Enginn mannlegur máttur hefði
getað komið í veg fyrir þá erfiðleika
sem hrunið olli en verkefni okkar hef-
ur verið að lágmarka þá eins og kost-
ur er og snúa vörn í sókn. Þetta er að
takast og menn hljóta að horfa til þess
að atvinnleysið er minna en við reikn-
uðum með. Kaupmáttur hefur aukist
um 4 prósent hjá lægst launaða fólk-
inu á tveimur árum. Við höfum reynt
að hlífa velferðarkerfinu og útgjöld til
velferðarmála eru hærri nú en þau
voru á hátindi góðærisins árið 2007
– bæði í krónum talið og sem hlut-
fall af landsframleiðslu. Skattar hafa
lækkað hjá lægst launaða fólkinu.
Ég vil líka nefna að verðbólgan hefur
lækkað um 16 prósentustig, stýrivext-
ir hafa lækkað um 14 prósentustig og
hafa aldrei verið lægri og fleira mætti
telja. En andstæðingar okkar hafa
verið mjög duglegir við að gagnrýna
þessa ríkisstjórn. Ég kveinka mér ekki
undan málefnalegri gagnrýni og það
er eðlilegt að sársaukafullar aðgerðir
séu umdeildar. En mér finnst gagn-
rýni stjórnarandstöðunnar og aðila
vinnumarkaðarins oft og tíðum ómál-
efnaleg og ósanngjörn. Það er ekki til
að auka virðingu þingsins og stjórn-
málaumræðunnar í samfélaginu.
Áróður andstæðinga okkar er stund-
um andstyggilegur og illkvittinn en
mótlætið herðir mig.“
Nú er tækifærið!
Lítum á nokkur stór mál; fjárlögin
framundan, ESB-málið, fækkun ráðu-
neyta, auðlinda- og sjávarútvegsmál-
in og loks stjórnlagaráðið og afdrif
þess. Þetta eru stór mál. Ertu með góð-
an meirihluta í þessum málum?
„Þetta eru risavaxin mál sem þú
nefnir. Minn flokkur telur ESB-mál-
in vera lykilinn í efnahagsbata og
framþróun samfélagsins. Við vit-
um að við höfum enn ekki meiri-
hluta fyrir því meðal þjóðarinnar,
enda samningurinn ekki enn kom-
inn fram. Fiskveiðistjórnin er gríðar-
mikilvægt mál og ég fullyrði að ef ekki
næst að gera á því breytingar með-
an þessir flokkar eru við stjórnvölinn
mun það ekki takast. Þá getum við
gleymt því að umtalsverð breyting
verði gerð á kvótakerfinu. Þrátt fyrir
knappan meirihuta vil ég láta á það
reyna hvort við getum komið þessu
stóra máli í gegn. Fjárlögin verða erfið
í haust en ekki óyfirstíganleg. Við höf-
um náð fjárlagahallanum, sem var á
þriðja hundað milljarðar króna, niður
í um 40 milljarða króna. Það er ekk-
ert smátt viðfangsefni. Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn tekur eftir þessu sem
og þekktir nóbelshagfræðingar á borð
við Paul Krugman og Joseph Stiglitz.
Ætla mætti af umræðunni að viður-
kenningin um árangur ríkisstjórnar-
innar komi helst utan frá.“
Stórframkvæmdir fram undan
„Ég vil koma aftur að kjarasamning-
unum sem LÍÚ hefur sett í gíslingu.
Þar er um að tefla umtalsverðar kjara-
bætur fyrir fólkið í landinu og þær
skipta gífurlega miklu máli. Þær koma
niður á fjárlagagerðinni og gera hana
erfiðari. Ég vona að LÍÚ sjái að sér og
að ekki komi til ófriðar á vinnumark-
aðnum. Við erum að tala um 35 millj-
arða króna pakka á vegum ríkisins á
næstu árum inn í þessa kjarasamn-
inga sem við erum tilbúin að leggja
fram í formi lækkunar á tryggingar-
gjaldi, hækkunar persónuafsláttar,
hækkunar bóta og atvinnuleysistrygg-
inga svo nokkuð sé nefnt. Við viljum
auk þess setja inn verulegt fjármagn í
opinberar framkvæmdir. Ég vona að
áætlun um fjárfestingar og hagvöxt
sem liggur fyrir nái fram að ganga.
Þar erum við að tala um að fjárfest-
ingar hækki úr 13 í 20 til 21 prósent af
landsframleiðslu. Ég sé fyrir mér stór-
framkvæmdir, bæði í Þingeyjarsýslum
og hér syðra. Þetta eru mjög stór verk-
efni nyrðra upp á kannski 80 millj-
arða króna og framkvæmdir orku-
kaupenda upp á 50 milljarða króna
til viðbótar. Þannig ætti fjárfestingin
að aukast verulega á næstu tveimur
til þremur árum. Ég fullyrði að ríkis-
stjórnin leggur sitt af mörkum til þess
að svo geti orðið. Gangi þetta eftir er
vísast að atvinnuleitendum fækki um
helming og atvinnuleysi fari úr 9 nið-
ur í 4 til 5 prósent á næstu tveimur til
þremur árum.
Þegar talað er um stórframkvæmd-
ir er rétt að hafa í huga rammaáætlun
um vernd og nýtingu náttúruauðlinda
sem er að verða að veruleika. Ramma-
áætlunin á að vera okkur leiðsögn um
kosti og forgangsröðun. Það er grund-
vallaratriði að viðskipta- og umhverf-
issjónarmið ráði ferðinni. Beiting á
handafli stjórnvalda til að knýja fram
þóknanlega niðurstöðu fyrir tiltekna
hagsmunaaðila er úr sögunni. Það er
mikilvægt að reynt sé að ná sátt milli
öfgasjónarmiða um vernd og nýtingu.
Rammaáætlunin á að vera okkur leið-
sögn og þetta á ekki að þurfa að vera
slíkt deilumál sem það er nú. Við eig-
um að leggja áherslu á græna orku og
uppbyggingu ferðaþjónustunnar sem
enn býður upp á ótal tækifæri. Við
sjáum ennfremur mikil tækifæri í ný-
sköpun, skapandi greinum og okkar
mikla mannauði.“
Þjóðin kjósi um
sjávarútveginn í leiðinni
Upp koma flokkar með þjóðernis-
áherslur í nágrannalöndunum og
flokkar hér eru klofnir í mikilvægum
málum. Sérðu fyrir þér breytingar á
vettvangi stjórnmálanna?
„Ég er sannfærð um að við mun-
um sjá breytingar á næstu árum. All-
ir flokkar, nema Samfylkingin, glíma
við mikinn málefnaágreining og
innri átök og kjósendur hafa þegar
gefið gömlu flokkunum gula spjald-
ið í síðustu sveitarstjórnarkosning-
um. En fjórflokkakerfið er seigt og
ég hugsa að þróunin verði jafnvel sú
að fleiri flokkar komist inn á þing,
áður en fólk fer aftur að sameinast
um tiltekin grundvallarmál. Ég vona
að þjóðernishreyfingar sem byggja
á hræðsluáróðri og hatri gagnvart
innflytjendum og alþjóðasamstarfi
verði ekki hluti af þeirri umbreyt-
ingu, en ég óttast það. Það er því
miður daðrað við slík sjónarmið víða
í umræðunni. Ég tel ekki skynsam-
legt að fara í kosningar nú og er þar
sammála miklum meirihluta þings-
ins sem lagðist gegn kosningum við
atkvæðagreiðsluna um vantraust
á ríkisstjórnina um daginn. Það er
okkur miklvægt að sjá fyrir endann
á stjórnlagamálinu og sjávarútvegs-
málunum. Stjórnlagaráðið þarf að
fá að ljúka sínu starfi. Ég tel það vel
koma til greina og vil hugleiða að
þegar það hefur lokið stöfum og skil-
að tillögum sínum verði efnt til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um tillögurnar.
Jafnvel tel ég koma til greina að bera
tillögur um fiskveiðistjórnarkerfið
undir atkvæði þjóðarinnar í leiðinni.
Þetta eru tvö stór mál sem skipta afar
miklu máli um framtíð Íslands.“
Vill einhver hafa ESB-kosningar
af þjóðinni?
„Ég var ánægð með að meirihluti
þingsins reyndist andvígur kosn-
ingum nú enda hefði það einungis
aukið á vanda okkar að bæta póli-
tískri upplausn við þá vandasömu
stöðu sem nú er uppi í efnahagsmál-
um. Það væri líka afleitt ef núverandi
stjórnarflokkar gæfust upp núna og
kæmu ekki fram sínum stóru málum
sem ég hef nefnt og að Sjálfstæðis-
flokknum yrðu afhent völdin á ný,
með eða án kosninga. Þess vegna
heiti ég á vinstrimenn og jafnaðar-
menn í landinu að standa saman
og standa að baki þessari ríkisstjórn
sem og stuðningsmenn hennar inni
á Alþingi. Þetta eru stór mál, ESB,
fiskveiðistjórnarkerfið og stjórnlaga-
ráðstillögur. Ég spyr: Vill einhver
hafa það af þjóðinni að fá að kjósa
um ESB-samning eins og alltaf hef-
ur verið gert ráð fyrir? Á þjóðin ekki
að fá að hafa síðasta orðið þegar hún
veit hvað er í boði? Nú erum við að
skoða hver vegferð okkar er nú þegar
við erum hálfnuð með kjörtímabilið
og með knappan meirihluta. Höf-
um við erindi áfram fyrir þjóðina og
stjórnarsamstarfið? Munum við ráða
við verkefnið eða ekki? Ég hef fulla
trú á að við ráðum við þetta. En þeg-
ar við erum búin að fara yfir stöðuna
getur vel verið að niðurstaðan verði
sú að við verðum að styrkja ríkis-
stjórnina. Það vil ég ekki útiloka. Ég
horfi þar helst til Framsóknarflokks-
ins og hugsanlega Hreyfingarinnar.“
Framsóknarflokkurinn
og Hreyfingin
„Nú er komið að ákveðinni ögur-
stund fyrir jafnaðarmenn og félags-
hyggjufólk. Við verðum að sýna að
við getum staðið saman. Við feng-
um sögulegt tækfæri til þess í síð-
ustu kosningum og óvíst er hvort
það komi aftur í bráð, ef okkur mis-
tekst núna. Risavaxin verkefni eru
framundan sem einungis er vilji til
að leysa í röðum jafnaðarmanna og
félagshyggjufólks. Ég er tilbúin til við-
ræðna ef nauðsynlegt er að styrkja
ríkisstjórnina til þessara verka, við
alla þá aðila, einstaklinga eða flokka,
sem reiðubúnir eru að leggja þess-
um málum lið. Verkefnin eru öfl-
ug atvinnu- og hagvaxtaruppbygg-
ing sem eykur fjárfestingu úr 13 í 21
prósent og þar með hagvöxt í 4 til 5
prósent og minnkar atvinnuleysi
um helming. Koma á kerfisbreytinu
í fiskveiðistjórnarmálum sem felur í
sér jafnræði og réttlæti við úthlutun
aflahlutdeildar og að arðurinn renni
í meira mæli til þjóðarinnar, að sam-
eign þjóðarinnar á auðlindum verði
bundin í stjórnarskrá, tekjuskipt-
ingin verði jöfnuð til hagsbóta fyr-
ir fólk með lágar og millitekjur, til-
lögur stjórnlagaráðs og hugsanlega
fiskveiðistjórnarkerfið fari í þjóðar-
atkvæðagreiðslu og að þjóðin fái að
kjósa um fullbúinn aðildarsamning
að ESB þegar hann liggur fyrir. Þar
horfi ég að sjálfsögðu mest til Fram-
sóknarflokksins og Hreyfingarinnar
eins og ég sagði áðan. Vandinn er sá
að formaður Framsóknarflokksins
hefur sagt að hann vilji mynda þjóð-
stjórn og fara í kosningar í haust. Sú
leið er ávísun á pólitíska upplausn og
efnahagslegan óstöðugleika næstu
mánuði og auk þess tel ég fullvíst
að ekki næðist sátt við Sjálfstæðis-
flokkinn í þjóðstjórn um breytingar
á fiskveiðistjórnarkerfinu eða um að
tillögur stjórnlagaráðs færu í þjóðar-
atkvæðagreiðslu.“
Sérhagsmunir víki fyrir
almannahagsmunum
„Það er núna sem tækifærið er hjá
vinstrimönnum að sýna að þeg-
ar þeir eru við stjórn geti þeir breytt
samfélaginu. Það sé annað samfélag
en undir stjórn íhaldsaflanna. Það
sé samfélag réttlætis og jöfnuðar þar
sem hinn almenni maður í landinu
njóti þeirra gæða sem landið hef-
ur upp á að bjóða en safnist ekki á
hendur fárra manna og græðgin nái
yfirhöndinni. Það er okkar að sýna
að sérhagsmunir víki fyrir almanna-
hagsmunum þegar við stjórnum.“
johann@dv.is
„Það er okkar
að sýna að sér-
hagsmunir víki fyrir
almannahagsmunum
þegar við stjórnum.
Þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs „Jafnvel
tel ég koma til greina að bera tillögur um fiskveiðistjórnar-
kerfið undir atkvæði þjóðarinnar í leiðinni.“ MyNd Sigtryggur Ari