Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Blaðsíða 54
54 Páskar20.–26. apríl 2011
20 fjallgöngur sem eru
á færi barna frá 6 ára aldri
og allrar fjölskyldunnar
Önnur prentun
komin í verslanir
Gleðilega Páska
Eitt helsta trúarrit
Íslendinga
í gullfallegri útgáfu
Valdir biblíutextar sem búa yfir
visku, styrk og hvatningu
– gott veganesti fyrir lífið
Fermingargjafir
sem fylgja barninu
alla ævi
Skemmtilegar sumargjafir
fyrir börnin
Gömlu góðu gildin í
í bráðskemmtilegri sögu
Önnur prentun komin í verslanir
Bók sem eflir hugmyndaflug og
sköpunarkraft barnanna
„...ekki aðeins barnabók
heldur listaverk fyrir alla.“
★★★★★ Morgunblaðið.
Gullfalleg bók um
skemmtilegan prakkara sem
heillar yngstu börnin
salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík
Salka / M
EL
GönGuferðir
um páskana
Gönguferðir geta verið skemmti-
leg útivera fyrir fjölskylduna en þú
þarft ekki að leita langt ef þig langar
að skreppa í gönguferð í páskafríinu.
Fjölmargar gönguleiðir eru allt í kring-
um höfuðborgarsvæðið og ættu allir
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Í heiðmörk er að finna fjölmarga
stíga sem henta hverjum sem er sem
langar bara að fá sér smá frískt loft í
fríinu og komast í annað umhverfi en
flesta aðra daga ársins. Fyrir þá sem
vilja aðeins meiri hreyfingu er svo
hægt að kíkja í Mosfellsbæ og ganga
á Úlfarsfell. Gott er að hafa í huga að
þegar farið er í gönguferðir er mikil-
vægast að klæða sig eftir veðri.
Gaman getur verið að taka með
sér nesti og eyða jafnvel heilum degi
í gönguferðina. Slíkar ferðir geta fært
fjölskylduna þéttar saman og getur
verið frábær tilbreyting frá skóla eða
vinnu. Settu heitt súkkulaði eða kakó
á brúsa, smurðu nokkrar samlokur og
eyddu deginum með fjölskyldunni í
faðmi náttúrunnar.
Heiðmörk Fínar göngu-
leiðir í nágrenni við borgina.
1. Góðgæti
Útbúðu hollt og gott góðgæti til að
narta í yfir páskana til þess að hafa
við höndina innan um öll sætindin.
Til að mynda skemmtilega eggjarétti,
gróft og fallegt brauð.
2. Ratleikur
Leggðu metnað í skemmtilegan rat-
leik um íbúðina heima og nágrenni.
Útbúðu skemmtilegar vísbend-
ingar og feldu páskaegg eða annað
góðgæti á vel völdum stöðum.
3. Búið til páskaskraut
sem má borða
Leggðu smjörpappír á borð, eða
plastdúk. Hitaðu súkkulaði og
tempraðu það svo með því að bæta
söxuðu súkkulaði við það brædda.
Sprautaðu hin ýmsu form og láttu
storkna. Það má gera páskaunga og
hengja á greinar, stafi fjölskyldumeð-
lima, blóm og útlínur páskaeggja.
3. Laumið málshætti
til ástvina
Búðu til þína eigin málshætti.
Skrifaðu þá með skrautskrift og
laumaðu til ástvina.
4. Lesið góða bók
Það er ómissandi hluti af páskahá-
tíðinni að hafa góða bók við hendina
meðan japlað er á súkkulaði og öðru
góðgæti.
5. Leikið við börnin
Mikið er um að vera yfir páska-
helgina. Bjóddu börnunum á skauta
eða í sund eða farðu með þau í
skemmtilegan göngutúr.
6. Klæðið ykkur vel
Páskahretið er svo sem ekkert til að
gleðjast sérstaklega yfir en er engin
hindrun. Klæðið ykkur vel.
7. Kakó í brúsa
Þeir sem vilja vera gamaldags, geta
brætt gott súkkulaði og hitað með
mjólk og sett á brúsa. Heimalagað
kakó er nauðsyn með á skautana
eða skíði eða bara eftir sundferð í
páskahreti.
8. Tékkaðu á menningunni
Fjöldi viðburða er tengjast menningu
og listum er um helgina. Þeir sem eru
fyrir norðan geta hlustað á þrumandi
kanónur með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, þeir sem eru fyrir vestan
og austan geta rokkað frá sér allt vit
og þeir sem eru í höfuðstaðnum geta
farið á útskriftarsýningu Listaháskóla
Íslands þar sem velta má fyrir sér von
í listheiminum.
9. Þrífið bílinn
Það er ferlega leiðinlegt að skjótast
um á skítugum bíl. Takið laugar-
daginn frá og gerið bílinn skínandi
hreinan.
10. Hvílist og hugleiðið
Það má ekki gleyma því að hvílast
mitt í öllu umstanginu. Takið tíma frá
til þess að róa hugann og safna orku
fyrir næstu vinnuviku.
yfir páska-
helgina
Topp 10
Góð ráð: