Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Síða 58
58 | Páskaleikur 20.–26. apríl 2011 Páskablað
-sælureitur innan seilingar!
Svalaskjól
Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær | Sími: 554 4300 | Fax: 564 1187 | www.solskalar.is
YFIR 40
LITIR Í
BOÐI!
Engir póstar
Innbyggðar vatnsrennur
Frábært skjól
gegn vindi og regni
A4_svalaskjol.indd 1 2/17/11 2:12 PM
Vinningshafarnir komu hver á fætur öðrum við á ritstjórn blaðsins á þriðjudaginn til þess að sækja verðlaunin sín, en þá voru dregnir út vinningshafar laugar-, sunnu- og mánu-
dags. Sumir fóru þó með umboð vinningshafa þar sem sjálfir sigur-
vegararnir gátu ekki sótt eggið sitt.
Ragnar Guðlaugsson hugðist
gefa syni sínum eggið sitt. Að-
spurður hvort hann sé ánægður með
vinninginn stendur ekki á svarinu.
„Hæstánægður, ég kom alla leið frá
Noregi til að sækja eggið!“ Ragnar
hyggst þó ekki borða eggið sitt sjálfur.
„Sonur minn fær eggið, ég má nú ekki
við því,“ segir hann í samtali við DV
og brosir.
Erla Baldursdóttir kom og sótti
páskaeggið fyrir son sinn, Gunnar Helga
Steindórsson, sem var staddur úti á landi.
Erla var ekki í vafa um að sonurinn yrði
ánægður með vinninginn. „Hann verður
það,“ sagði Erla við blaðamann. Hún vildi
þó lítið fullyrða þegar hún var spurð um
hvort eggið væri ekki minna en hún hefði
viljað. „Ég var nú bara beðin um að sækja
þetta,“ sagði Erla og hló. „Ég er nú bara
móðir hans,“ bætti hún við að lokum.
Fjóla Hilmarsdóttir var
hæstánægð með vinninginn. „Þetta
er rosa gaman. Mjög óvænt að vinna
svona,“ sagði hún glöð í bragði þegar
hún sótti vinninginn sinn í dag. Hún
sagðist ætla að gæða sér á egginu
sjálf, þó að fjölskyldan fengi kannski
örlítinn skerf líka.
Í dag er sannkallaður gleðidagur fyrir
Fjólu, enda var hún að útskrifast sem
þroskaþjálfi í dag. Starfsmenn DV óska
henni því til hamingju með þann merka
áfanga sem og með vinning dagsins.
Bergdís Rósantsdóttir kom
ásamt Hákoni Garðari og Aroni Páli að
sækja sitt egg. „Það er alltaf gaman
að fá páskaegg,“ sagði hún, aðspurð
hvort að vinningurinn væri henni ekki
að skapi. Bergdís hyggst deila egginu
sínu með manninum sínum, en það
vakti ekki kátínu hjá Hákoni, sem leið-
rétti hana: „Nei, með fjölskyldunni!“
sagði hinn ungi maður. Bergdís var þó
á öndverðu meiði: „Þú átt nú þitt eigið,
það er nógu stórt,“ sagði Bergdís, með
eggið í hönd.
Páskaleikur
DV og Góu
Um 20.000 manns skráðu sig í páskaleik DV og Góu með því að biðja um málshátt á Facebook
Kátt á hjalla Gleði meðlima Sinfóníuhljómsveitar Íslands var
ósvikin þegar þeir fylktu liði og gengu frá Háskólabíói, þar sem sveitin hefur haft aðsetur frá
árinu 1961, til Hörpu. Harpa verður nýtt heimili Sinfóníuhljómsveitarinnar en eins og sjá má
keppast iðnaðarmenn nú að því að fullklára bygginguna umdeildu. Á leiðinni léku
lúðraþeytarar og slagverksleikarar Sinfóníunnar á hljóðfæri sín en lokatónleikar sveitarinnar í
Háskólabíói höfðu farið fram deginum áður. Gleði skein úr hverju andliti á föstudaginn þegar
fyrsta hljóðprufan fór fram í nýjum tónleikasal Hörpu.
mynd RóBERt REynisson