Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Blaðsíða 70
Helgi fæddist á Eskifirði og ólst þar upp. Hann lauk kennara-prófi frá Kennaraskóla Íslands
1972 og BA-prófi í sérkennslu frá
sama skóla 1990.
Helgi var kennari við Eskifjarðar-
skóla 1972–73, við Réttarholtsskóla
1973–74, við Egilsstaðaskóla frá 1974–
77, var yfirkennari við skólann 1977
og gegndi því starfi til 1986 er hann
var ráðinn skólastjóri skólans.
Helgi var bæjarstjóri á Egilsstöðum
1994–98 og var þá í leyfi frá Egilsstaða-
skóla en hóf þar störf aftur skólaárið
1998–99. Vorið 1999 voru grunnskól-
arnir á Egilsstöðum og Eiðum sam-
einaðir og tók þá Helgi við stjórnun
nýja skólans og var þar skólastjóri til
2001. Þá varð hann skólastjóri Digra-
nesskóla í Kópavogi og gegndi því
starfi til 2006. Hann varð þá skóla-
stjóri nýs skóla, Hörðuvallaskóla og
hefur gegnt því starfi síðan.
Helgi hefur verið virkur í félags-
störfum. Hann sat í stjórn íþrótta-
félagsins Hattar og var formaður þess
í eitt ár, sat í sveitarstjórninni á Egils-
stöðum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, fyrst
sem varamaður kjörtímabilið 1978–
82 og aðalmaður 1982–89. Hann var
formaður bæjarráðs og forseti bæjar-
stjórnar 1986–89. Þá sat Helgi í stjórn
Sambands sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi í þrjú ár.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 10.6. 1972 Albertu Tul-
inius, f. 14.4. 1952, kennara. Foreldr-
ar hennar eru Axel V. Tulinius, sýslu-
maður, sem er nú látinn, og Áslaug
Stefanía Tulinius húsmóðir.
Börn Helga og Albertu eru Axel
Hrafn, f. 6.7. 1973, sölufulltrúi hjá
Jónum - Transport, búsettur í Garða-
bæ, kvæntur Margréti Þorleifsdóttur
kennara; Þóra Magnea, f. 5.5. 1981,
félagsráðgjafi, búsett í Reykjavík en
maður hennar er Guðmundur Þorkell
Guðmundsson, félagsfræðingur hjá
Pricewaterhouse Cooper; Stefán Þór,
f. 19.2. 1989, viðskiptafræðinemi.
Systkini Helga eru Georg, f. 2.10.
1941, skrifstofumaður á Eskifirði;
Hansína, f. 31.10. 1946, húsmóðir á
Eskifirði; Sigríður, f. 7.6. 1953, kennari
á Egilsstöðum.
Foreldar Helga voru Halldór Frið-
riksson, f. 5.11. 1918, d. 7.1. 2009, hús-
vörður og sýningarmaður á Eskifirði,
og Þóra Magnea Helgadóttir, f. 15.2.
1915, d. 17.5. 1988, húsmóðir.
70 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 20.–26. apríl 2011 Páskablað
Til hamingju!
Afmæli 23.–25. apríl
Laugardagur
30 ára
Guðlaugur Bragason Austurbrún 2, Reykjavík
Ölrún Björk Ingólfsdóttir Ásbúð 5, Garðabæ
Halldóra Björk Guðmundsdóttir Básahrauni
32a, Þorlákshöfn
Kristín Ósk Stefánsdóttir Bakkagötu 15,
Kópaskeri
Jóhanna Ágústsdóttir Haukanesi 6, Garðabæ
Svala Ingibertsdóttir Hringbraut 27, Hafnarfirði
Brynja Árnadóttir Lækjarvaði 25, Reykjavík
Hilmar Pétur Hilmarsson Rauðavaði 3, Reykjavík
Anton Ingi Eggertsson Lundarbrekku 10,
Kópavogi
Davíð Sæmundsson Mávakletti 14, Borgarnesi
Tinna Pétursdóttir Lækjargötu 28, Hafnarfirði
40 ára
Roman Slawomir Bojko Hverfisgötu 58a,
Reykjavík
Guðmundur Guðni Símonarson Þórólfsgötu
7a, Borgarnesi
Anna Þóra Birgisdóttir Tunguseli 10, Reykjavík
Gunnar Hólm Friðriksson Espigerði 2, Reykjavík
Björn Sigmundsson Hátúni 10b, Reykjavík
Haraldur Friðgeirsson Skaftahlíð 20, Reykjavík
Jóhanna Elín Halldórsdóttir Borg, Akureyri
Heiðbjört Ófeigsdóttir Klukkurima 2, Reykjavík
Sigríður Júlíusdóttir Álfheimum 7, Reykjavík
Jón Fjörnir Thoroddsen Hjálmholti 3, Reykjavík
50 ára
Ida Hildur Fenger Spóahöfða 15, Mosfellsbæ
Sigþór Rafn Rafnsson Miðvangi 41, Hafnarfirði
Skarphéðinn Njálsson Hraundal 12, Reykjanesbæ
Halldór Halldórsson Víðihlíð 2, Sauðárkróki
Þröstur Leó Gunnarsson Stýrimannastíg 13,
Reykjavík
Gunnhildur Kristín Björnsdóttir Aflagranda
35, Reykjavík
Guðrún Björg Sigtryggsdóttir Stekkjarholti
16, Húsavík
Hjálmar Jóhannsson Þiljuvöllum 32, Neskaupstað
Margrét Erlendsdóttir Vallarhúsum 4, Reykjavík
Vilhjálmur Magnússon Strandgötu 7, Stokkseyri
Haraldur Jónsson Reynimel 31, Reykjavík
60 ára
Helgi Jóhannsson Stóragerði 42, Reykjavík
Gunnar Þór Sveinsson Eskihlíð 1, Sauðárkróki
Pálmi Pálmason Gimli, Reykjavík
Helgi Þórsson Kúrlandi 1, Reykjavík
Margrét Sigmundsdóttir Lautasmára 25,
Kópavogi
Margrét Hvannberg Ægisíðu 98, Reykjavík
Geirþrúður Elísdóttir Víðivöllum 2, Akureyri
Stefán B. Gunnarsson Víðihlíð 32, Reykjavík
70 ára
Guðmundur Guðjónsson Harastöðum, Búðardal
Katrín Bjarney Jónsdóttir Urðarvegi 32, Ísafirði
Grétar J. Guðmundsson Hólum 18, Patreksfirði
75 ára
Gunnar B. Axelsson Hléskógum 2, Egilsstöðum
Einar J. Hansson Hólatjörn 2, Selfossi
Emil Hjartarson Hátúni 6, Reykjavík
Guðrún Ingveldur Jónsdóttir Hofsvallagötu
49, Reykjavík
Jón Birgir Jónsson Sólbraut 2, Seltjarnarnesi
Sverrir Kolbeinsson Furugerði 13, Reykjavík
Tama V. Bjarnason Fýlshólum 11, Reykjavík
80 ára
Emil Karvel Arason Sléttahrauni 26, Hafnarfirði
Kristján Jóhannesson Móaflöt 22, Garðabæ
Ingvi Böðvarsson Heiðargerði 17, Akranesi
Baldur Sveinsson Hrafnakletti 4, Borgarnesi
Halldóra Haraldsdóttir Grænumörk 5, Selfossi
90 ára
Þórunn Sveinbjarnardóttir Sléttuvegi 13,
Reykjavík
95 ára
Friðdóra Guðlaugsdóttir Skipagötu 7, Akureyri
Páskadagur
30 ára
Silbene Dias Da Conceicao Langholtsvegi 113,
Reykjavík
Jón Ævar Sveinbjörnsson Snægili 24, Akureyri
Arnar Sigurður Hallgrímsson Asparholti 2,
Álftanesi
Sigurður Guðjón Jónsson Vesturbraut 7,
Hafnarfirði
Sigrún Ósk Ingólfsdóttir Árnesi 2, Norðurfirði
Eyþór Björn Arnbjörnsson Lyngholti 20, Reykja-
nesbæ
Sigurbjörg Sigurpálsdóttir Brúarflöt 5, Garðabæ
Sif Jónsdóttir Baugakór 7, Kópavogi
Oddný Helgadóttir Fálkagötu 19, Reykjavík
Anna Jastrzebska Skúlaskeiði 6, Hafnarfirði
40 ára
Dallilja Sæmundsdóttir Suðurgötu 29, Akranesi
Ólafur Hrannar Eyþórsson Viðarási 3, Reykjavík
Sigurður Þór Helgason Grandavegi 7, Reykjavík
Sigfús Ingason Klettaborg 30, Akureyri
Guðbjörn Þór Þórðarson Vörðubergi 2, Hafnar-
firði
50 ára
Líney Rut Halldórsdóttir Vættaborgum 111,
Reykjavík
Soffía Þóra Einarsdóttir Góuholti 2, Ísafirði
Magnús Magnússon Deildarási 9, Reykjavík
Stefán Þormar Suðurgötu 34, Reykjanesbæ
Guðmundur Ólafsson Sæviðarsundi 52, Reykjavík
60 ára
Róbert Trausti Árnason Espigerði 2, Reykjavík
Þórdís Trampe Ægisgötu 18, Ólafsfirði
Bjarney Sigríður Sigvaldadóttir Löngumýri
36, Akureyri
Einar Ólafsson Stokkhólmi, Varmahlíð
Guðmundur Emilsson Sogavegi 224, Reykjavík
Friðrik L. Jóhannesson Skútahrauni 15, Mývatni
Egill Viðar Þráinsson Skipholti 12, Ólafsvík
70 ára
Edda Eyfeld Miðholti 5, Mosfellsbæ
Pétur Jónsson Hæðarbyggð 13, Garðabæ
Erlingur Emilsson Hamrahlíð 4, Vopnafirði
Þorkell Bjarnason Fornuströnd 10, Seltjarnarnesi
Snæbjörn Guðbjartsson Sætúni 8, Hofsós
Kristrún Guðmundsdóttir Hraunbrún, Garðabæ
Inga Björk Sveinsdóttir Kristnibraut 6, Reykjavík
75 ára
Ragnheiður Þórólfsdóttir Bleiksárhlíð 16,
Eskifirði
Guðmundur Guðbrandsson Safamýri 13,
Reykjavík
Halldóra P. Jóhannsdóttir Hjallalandi 18,
Reykjavík
Sólveig Berndsen Grandahvarfi 2, Kópavogi
Esther H. Skaftadóttir Krummahólum 8,
Reykjavík
Jóna Vestmann Grandavegi 11, Reykjavík
80 ára
Hreinn Gunnlaugsson Skipholti 21, Reykjavík
Árni Ingvarsson Tjörn 1, Hvammstanga
Ragnhildur Kvaran Ægisíðu 76, Reykjavík
Guðbjartur Þorleifsson Barðastöðum 79,
Reykjavík
90 ára
Árný Guðmundsdóttir Dúfnahólum 2, Reykjavík
Annar í páskum
30 ára
Edyta Beata Szroeder Snælandi 6, Reykjavík
Magdalena Dorota Deredas Vesturbergi 4,
Reykjavík
Sveinbjörg Kristjánsdóttir Löngumýri 17, Selfossi
Hermann Sigurðsson Bæjarbrekku 8, Álftanesi
Björn Fannar Björnsson Álftamýri 58, Reykjavík
Birgir Daníelsson Teigaseli 4, Reykjavík
Berglind Þórisdóttir Brekkuási 5, Hafnarfirði
Bragi Bjarnason Tjaldhólum 50, Selfossi
Ívar Örn Hauksson Dalbraut 9, Bíldudal
40 ára
Frode Flaalökken Jakobsen Hólmgarði 26,
Reykjavík
Danijela Jugovic Staðarhrauni 25, Grindavík
Dorota Fraczek Feliksiak Súluhólum 6, Reykjavík
Haukur Örvar Pálmason Malarási 3, Reykjavík
Hólmfríður Sólveig Pálsdóttir Dalhúsum 17,
Reykjavík
Olga Sigurðardóttir Austurbrún 33, Reykjavík
Guðmundur Marteinn Sigurðsson Maríubakka
14, Reykjavík
Þorgeir Jónsson Miðstræti 12, Neskaupstað
Katrín Jónsdóttir Hlunnavogi 4, Reykjavík
Áslaug Arna Stefánsdóttir Týsgötu 3, Reykjavík
Dagný Ásgeirsdóttir Háholti 21, Hafnarfirði
50 ára
Guðmundur Leifur Gunnlaugsson Berjarima
43, Reykjavík
Ágústa Lilja Ásgeirsdóttir Hörðalandi 6,
Reykjavík
Jóhann Jónsson Fjarðarbakka 1, Seyðisfirði
Halla Böðvarsdóttir Tindaflöt 1, Akranesi
Gunnar Þór Baldvinsson Fannafold 247,
Reykjavík
Baldur Grétarsson Kirkjubæ, Egilsstöðum
Ragnheiður S. Einarsdóttir Leifsgötu 4,
Reykjavík
60 ára
Björn Birgisson Norðurvör 10, Grindavík
Elsa Guðmundsdóttir Grænuhlíð 6, Reykjavík
Soffía Guðmundsdóttir Drápuhlíð 1, Reykjavík
Þórarna Pálsdóttir Sólheimum 37, Reykjavík
Magnús Ólafsson Markarvegi 16, Reykjavík
Sigurður Ingimarsson Lindarbyggð 15, Mos-
fellsbæ
70 ára
Steingrímur Einarsson Eyjahrauni 35, Þorláks-
höfn
Bragi Halldórsson Melateigi 8, Akureyri
Stella Þ. Guðmundsdóttir Heydal, Ísafirði
Guðrún Bjarnadóttir Hvammstangabraut 16,
Hvammstanga
Kristín Anna Kristinsdóttir Naustahlein 8,
Garðabæ
75 ára
Svanhildur Baldursdóttir Ófeigsstöðum,
Húsavík
Jóhannes Helgason Bústaðavegi 57, Reykjavík
Jóna G. Þórarinsdóttir Hraunbæ 140, Reykjavík
Friðrik Jensen Heiðarholti 34a, Reykjanesbæ
Valdís Ólafsdóttir Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ
Jón T. Ágústsson Lækjarbrún 5, Hveragerði
Gerður Guðjónsdóttir Ártúni 7, Selfossi
80 ára
Guðný Bjarnadóttir Helgafellsbraut 23c, Vest-
mannaeyjum
Heiðar Marteinsson Hjallaseli 55, Reykjavík
Steinunn S. Úlfarsdóttir Kjarrmóa 6, Selfossi
Jóhanna Guðjónsdóttir Njarðvíkurbraut 24,
Reykjanesbæ
Hörður Þormóðsson Brautarlandi 11, Reykjavík
Ingibjörg fæddist í Vík í Skagafirði og ólst þar upp. Hún tók kennara-próf frá Kennaraskóla Íslands árið
1971 og leikskólapróf frá Fóstruskóla
Íslands árið 1972.
Ingibjörg og eiginmaður henn-
ar tóku við búi foreldra hennar í Vík
í Skagafirði 1973 og þar búa þau enn
með stórt kúabú.
Ingibjörg rak auk þess
sumardvalar heimili í Vík frá 1973 til
1992. Hún var kennari við Barnaskóla
Sauðárkróks á árunum 1975–95, þar
af tvo vetur í Varmahlíðarskóla.
Ingibjörg var oddviti Staðar-
hrepps 1994–98, sat í fræðslunefnd
fyrir hreppinn og sinnti fleiri nefndar-
störfum um árabil. Hún átti sæti í
sveitarstjórn Skagafjarðar og byggð-
aráði frá árinu 1998–2006. Ingibjörg
sat í stjórn Sambands sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra 1994–98, sat í
stjórn Iðnþróunarfélags Norðurlands
vestra 1996–98 og í stjórn Sambands
skagfirskra kvenna fyrr á árum og síð-
ar formaður þess til 2010. Þá sat hún
í stjórn og var formaður Kvenfélags
Staðarhrepps um árabil. Hún var for-
maður Soroptimistaklúbbs Skaga-
fjarðar 1999–2001. Hún situr nú í
stjórn Félags kúabænda í Skagafirði.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 15.10. 1972 Sigurði
Sigfússyni, f. 2.11. 1947, bónda. For-
eldar hans voru Sigfús Sigurðarson og
Svanlaug Pétursdóttir sem bæði eru
látin.
Sonur Ingibjargar og Sigurðar er
Jón Árni f. 25.6. 1972, bifvélavirki í Há-
vík í Skagafirði en sonur hans er Aron
Már Jónsson, f. 3.7. 1999.
Systkini Ingibjargar eru Þórólfur
H. Hafstað, f. 27.9. 1949, jarðfræðing-
ur hjá Orkustofnun í Reykjavík; Ásdís
Hafstað f. 4.7. 1952, bókasafnsfræð-
ingur við Menntaskólann í Hamra-
hlíð í Reykjavík; Steinunn H. Hafstað
f. 15.3. 1954, framhaldsskólakennari
og deildarstjóri við Fjölbrautaskólann
við Ármúla í Reykjavík.
Foreldrar Ingibjargar voru Haukur
Hafstað, f. 23.12. 1920, d. 29.1. 2008,
lengst af bóndi í Vík en síðar fram-
kvæmdastjóri Landverndar, og k.h.,
Áslaug Sigurðardóttir, f. 29.1. 1919, d.
20.8. 2006, húsfreyja í Vík og forstöðu-
kona barnaheimilis stúdenta og fleira.
Þau voru búsett i Vík, í Reykjavík og
síðar í Hávík í Skagafirði.
Ætt
Meðal systkina Hauks: Árni tækni-
fræðingur, Sigurður sendiherra; Páll
deildarstjóri; Sigríður, húsfreyja á
Tjörn í Svarfaðardal; Steinunn hótel-
stjóri; Erla bókavörður; Halldór, b. í
Útvík; Guðbjörg, kennari á Varma-
landi, og Valgerður, listmálari í New
York.
Haukur var sonur Árna J. Haf-
stað, bónda í Vík, sonar Jóns, b. á Haf-
steinsstöðum Jónssonar, b. á Hóli
Jónssonar. Móðir Jóns á Hóli var Guð-
björg Þorbergsdóttir, b. í Gröf Jóns-
sonar og Þuríðar, systur Jóns, langafa
Ólafs Friðrikssonar verkalýðsleiðtoga
og Haraldar Níelssonar prófessors,
föður Jónasar Haralz, fyrrv. banka-
stjóra. Þuríður var dóttir Jóns, pr. á
Hafsteinsstöðum Jónssonar. Móð-
ir Árna var Steinunn Árnadóttir, b. á
Ysta -mói Þorleifssonar. Móðir Árna
Þorleifssonar var Steinunn Árnadótt-
ir, pr. á Tjörn Snorrasonar og Guðrún-
ar Ásgrímsdóttur, systur Gísla, langafa
séra Sigurbjarnar, föður Gísla á Grund
og Lárusar borgarminjavarðar.
Móðir Hauks var Ingibjörg, dótt-
ir Sigurðar, b. á Geirmundarstöðum
Sigurðssonar, bróður Sigurlaugar,
móður Jakobs Benediktssonar orða-
bókarritstjóra. Móðir Ingibjargar var
Ingibjörg Halldórsdóttir, b. á Geir-
mundarstöðum Björnssonar.
Meðal systkina Áslaugar: Þor-
grímur Vídalín, prófastur á Staða-
stað; Hrefna, Anna, forstöðumaður
Kvennasögusafns Íslands; Guðmund-
ur Axel, dó ungur, lögfræðinemi;
Guðrún húsmóðir; Margrét húsmóð-
ir; Aðalheiður húsmóðir; Sigurmar
Ásberg borgarfógeti.
Systir Áslaugar, samfeðra, var
Kristín Lovísa, alþm. í Reykjavík.
Áslaug var dóttir Sigurðar, skóla-
stjóra á Hvítárbakka í Borgarfirði, son-
ar Þórólfs, b. á Skriðnafelli á Barða-
strönd Einarssonar, skipstjóra og b.
á Hreggstöðum á Barðaströnd Jóns-
sonar, b. á Hreggstöðum Einarssonar.
Móðir Jóns var Ástríður Sveinsdóttir,
systir Guðlaugs, langafa Páls, langafa
Ólafs Ólafssonar, fyrrv. landlæknis.
Móðir Áslaugar var Ásdís, systir
Guðrúnar, móður Tómasar Á. Tóm-
assonar sendiherra. Ásdís var dóttir
Þorgríms, b. á Kárastöðum á Vatns-
nesi, bróður Davíðs, langafa Davíðs
Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins.
Þorgrímur var hálfbróðir Frímanns,
föður Sigurbjargar, langömmu Guð-
rúnar Agnarsdóttur, læknis og fyrrv.
formanns Krabbameinsfélags Ís-
lands. Þorgrímur var sonur Jónatans,
b. á Marðarnúpi Davíðssonar. Móð-
ir Jónatans var Ragnheiður Friðriks-
dóttir, pr. á Breiðabólstað í Vesturhópi
Þórarinssonar, ættföður Thoraren-
senættar Jónssonar. Móðir Friðriks
var Sigríður Stefánsdóttir, móðir Jóns
Espólín sagnaritara og systir Ólafs,
stiftamtmanns í Viðey, ættföður
Stephensenættar. Móðir Ragnheið-
ar var Hólmfríður Jónsdóttir, vara-
lögmanns í Víðidalstungu Ólafs-
sonar, lögsagnara á Eyri og ættföður
Eyrarættar Jónssonar, langafa Jóns
forseta. Móðir Ásdísar var Guðrún
Guðmundsdóttir, systir Guðbjargar,
móður Jóns Ásbjörnssonar hæstarétt-
ardómara.
Ingibjörg H. Hafstað
Bóndi, kennari og fyrrv. oddviti í Vík í Skagafirði
Helgi Halldórsson
Skólastjóri Hörðuvallaskóla
60 ára sl. þriðjudag
60 ára á föstudaginn langa