Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Side 76
76 | Lífsstíll 20.–26. apríl 2011 Páskablað
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra gengur að
eiga Bjarna Bjarnason rithöfund á laugardag-
inn. „Svo ætlum við nýgiftu hjónin að hafa það
rosalega huggulegt heima á páskadag. Bara tvö.
Við höldum páskana hátíðlega með strákunum
okkar á mánudaginn í staðinn og verð ég með
páskalamb og tilheyrandi.“
Katrín segir að þau Bjarni ætli að hafa þetta
einfalt og þægilegt á brúðkaupsdaginn þegar
gestir samfagna þeim. „Það verður fingramat-
ur og kökur. Þetta verður standandi partí. Svo
verður dansað og sér plötusnúður um tónlist-
ina. Ég er svo mikill unglingur þegar kemur
að tónlist, ég vona að tónlistin verði sem fjöl-
breyttust.“
Katrín hefur stundum farið út á land um
páskana. „Svo hef ég líka legið heima í fullkom-
inni leti og mér finnst það oft bara best: Vakna
snemma, vera í náttfötunum, borða páska-
egg og horfa á fjölskyldumyndir og hafa það
huggulegt.“
Hvað segir iðnaðarráðherrann um páskahá-
tíðina sem slíka? „Þetta eru magnaðir dagar.
Það er kraftmikið að gifta sig daginn fyrir upp-
risuna. Það var ekki alveg út í bláinn að sá dagur skyldi vera valinn. Ég lít alltaf svo á að
páskahátíðin marki ákveðin tímamót og ég upplifi páskana alltaf sem tímamót. Ég nota
páskana alltaf sem ákveðið viðmið. Það er byrjað að birta af degi og ég upplifi páskana
alltaf þannig, enda eru þeir það líka í trúarlegum skilningi. Það var heilmikið sem gerðist á
þessum tíma. Páskarnir eru trúarleg hátíð en þetta er líka tækifæri fyrir okkur í þessu hraða
samfélagi til að slaka á og njóta samveru með okkar uppáhaldsfólki, hvort sem það eru
fjölskylda eða vinir.“
um páskana
Út og suður
Hvað gerir fólk um páskana? Það er heima, fer
út á land eða til útlanda. Svo kjósa einhverjir
að ganga í hjónaband á þessum tíma. Katrín,
Ómar, Páll Óskar, Ragnar, Sigrún og Yrsa segja
hvað þau ætla að gera um hátíðina.
Páskabrúðkaup
Skýrslulesning
í suðrænni sól
Katrín Júlíusdóttir „Það er
kraftmikið að gifta sig daginn fyrir
upprisuna. Það var ekki alveg út í
bláinn að sá dagur skyldi vera valinn.“
Ómar Ragnarsson er farinn til Portúgal þar sem hann ætlar
að vera um páskana og er þetta í fyrsta sinn sem hann er
ekki á Íslandi þegar sú hátíð stendur yfir. „Fjölskyldur okkar
hjóna eru mjög stórar og oft eru fermingar um páskana auk
verkefna á ýmsum sviðum. Í þetta sinn var engin ferming í
innsta hring og búin að vera mikil törn án nokkurra frídaga í ár
og daga. Margra ára gamalt boð dóttur og tengdasonar um að
koma og vera hjá þeim í sumarhúsi á strönd Portúgals var því loks
þegið og það með löngum fyrirvara.
Konan mín hafði áður þegið slíkt boð án þess að
ég kæmi með og kominn tími til að breyta þessu,
að vísu með þeim fyrirvara að hafa með sér á átt-
unda hundrað blaðsíður af skýrslum varðandi
stjórnarskrána og liggja yfir þeim í bland.“
Húsið sem fjölskyldan dvelur í er um 70
km fyrir sunnan borgina Porto. „Það var farið
úr éljunum heima í 25 stiga hita og sólskin.
Þetta er afar frjálst og óþvingað en fjölskylda
dóttur minnar er vön því að fylgjast með
einhverjum þjóðlegum hátíðahöldum
páskanna hér.“
Þegar Ómar er spurður hvað páskarn-
ir séu í huga hans segir hann: „Páskarn-
ir eru í raun grundvallarhátíð kristinna
manna og mesta hátíðin í mínum huga. Hér í hinu kaþólska umhverfi er það bara gott
mál að njóta helgidaganna til tilbreytingar frá kvikmyndatökuferðum um jökla Íslands
sem oft hafa verið á dagskrá hjá mér um páska.“
Ómar Ragnarsson „Margra ára gamalt boð dóttur og
tengdasonar um að koma og vera hjá þeim í sumarhúsi á
strönd Portúgals var því loks þegið og það með löngum
fyrirvara.“
Líf Magneudóttir vefritstjóri og varaborg-
arfulltrúi VG ætlar að flytja um páskana.
Hún lætur flutningana þó ekki standa í vegi
fyrir sprelli um helgina. „Ég ætla að nota
páskafríið í að flytja og koma mér fyrir á
nýjum stað í kvótaminnsta kjördæmi lands-
ins. Það er alveg tilvalið að flytja um páska
því þá eru allir í fríi og hafa ekkert betra að
gera en að bera nokkra kassa upp á þriðju
hæð. Á páskadag verður svo mikið stuð hjá
krökkunum við að leita að páskaeggjum
á nýjum felustöðum. Það var ekki seinna
vænna að flytja, það var orðið ansi strembið
að fela páskaeggin í gömlu íbúðinni.“
Nýir felustaðir
fyrir páskaeggin
VON OG VOR
„Það verður nóg að gera um páskana,“
segir Páll Óskar Hjálmtýsson. „Ég verð
bæði fyrir norðan og vestan. Ég verð
á miðvikudagskvöld með ball á All-
anum á Siglufirði og á fimmtudaginn
verð ég með ókeypis barnaskemmtun
í bænum. Um kvöldið sé ég síðan um
unglingaball fyrir 14 ára og eldri.
Ég verð með ball á Sjallanum á
Akureyri á föstudaginn langa en ég
verð á Ísafirði um helgina á hátíðinni
Aldrei fór ég suður.“
Hvað með lagavalið þessa dagana?
„Öll mín bestu lög. Böllin mín ganga
þannig fyrir sig að ég er bæði plötu-
snúður og söngvari. Ég spila helstu
partíslagara mannkynssögunnar og
þegar leikar standa sem hæst þá treð
ég upp, þá tek ég mitt eigið „show“.
Fyrir mig persónulega er það alltaf
hápunktur kvöldsins.“
Páll Óskar segir að það sé búið að
bjóða sér í matarboð á öllum stöð-
unum.
Hann segist yfirleitt vera að vinna
á páskunum og er því ekki vanur að
elda páskamat.
Hvað eru páskarnir í huga hans?
„Ef lykilatriðið er upprisa þá þýða
páskarnir von fyrir mig. Það er líka
vor í lofti, grasið er að spretta upp á
nýtt eftir vetrardvala, fuglarnir farnir
að syngja aftur, allt er að verða voða
væmið og orkan verður allt önnur.
Páskarnir eru fyrir mér alltaf von og
vor.“
Hvað með páskaegg? „Ég er nú
þegar búinn að torga ég veit ekki hvað
mörgum páskaeggjum. Ég stenst ekki
freistinguna að kaupa þetta í kjör-
búðum, enda fara páskaeggin upp í
hillur löngu fyrir hátíðina sjálfa og fæ
ég langan tíma til að stelast í að narta
í þetta.“ Ef öll páskaeggin hefðu verið
sett saman í eitt: „Ég held að ég sé bú-
inn að borða páskaegg númer 35.“
Páll Óskar
Hjálmtýsson „Ef
lykilatriðið er upprisa
þá þýða páskarnir von
fyrir mig.“
Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur verður heima
um páskana. Hún segist ætla að fara í gegnum
búslóðina og henda því sem þarf að henda.
„Það er búið að taka húsið í gegn en það var
svo mikið rask að við þurftum að flytja út og
núna þarf að koma búslóðinni aftur fyrir.“
Rithöfundurinn ætlar líka að vinna við
skriftir í páskafríinu. Hún er spurð hvort hún
sé komin langt með næstu bók. „Hálfnað er
verk þá hafið er. Þetta er komið af stað.“
Yrsu og eiginmanni hennar er boðið í þrjú
matarboð: Á föstudaginn langa, á laugardag-
inn og á páskadag.
Hún segist yfirleitt vera á Íslandi um
páskana. „Þetta er svolítið eins og jólin. Við
erum vön að vera með páskaboð fyrir börnin
í ættinni og er okkur yfirleitt boðið í mat á
páskadag til foreldra minna eða tengdafor-
eldra.“
Um páskana segir rithöfundurinn: „Þeir
þýða fyrir mig vor og oft eiga sonur minn og
pabbi afmæli á þessum tíma. Þetta er bjart-
sýnishátíð, fram undan sól og sumarylur. Auð-
vitað er þetta kristin hátíð en ég er ekki mjög
ræktarleg hvað það varðar. Við erum ekki dug-
leg að fara í kirkju eða hlusta á útvarpsmess-
ur en auðvitað ber ég virðingu fyrir uppruna
páskanna.“
Bjartsýnishátíð
Strembið að fela í gömlu íbúðinni
Líf Magneudóttir ætlar að koma nýrri íbúð
í stand um páskahelgina og finna nýja
felustaði fyrir páskaeggin.
Yrsa Sigurðardóttir „Við erum
vön að vera með páskaboð fyrir
börnin í ættinni og er okkur yfirleitt
boðið í mat á páskadag til foreldra
minna eða tengdaforeldra.“