Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Page 80
80 | Lífsstíll 20.–26. apríl 2011 Páskablað
Allt sem þú þarft til að útbúa bar:
Þinn eigin bar – með eigin bjór
Hefurðu áhuga á að drekka heima-
gerðan bjór á alvörubar heima hjá
þér? Þá eru nokkrir hlutir sem þú
þarft að finna þér. Fyrst þarftu að
sjálfsögðu að finna þér græjur til
að brugga bjórinn. WilliamsWarn
Personal Brewery er tilvalin græja
fyrir alla þá sem vilja brugga bjór.
Græjuna færðu á um 500 þúsund
krónur á vef WilliamsWarn. Það tek-
ur að vísu viku að brugga bjórinn en
græjan er fyrirferðarminni en margar
aðrar heimabrugggræjur.
Það er samt ekki nóg að eiga
græjuna heldur þarftu að sjálfsögðu
hráefnin í bjórinn. Þau geturðu keypt
hjá Brooklyn Brew Shop fyrir 3.400
krónur. Með þeim pakka fylgir líka
glerkrús sem þú getur notað í brugg-
ið – ef þú átt ekki hálfa milljón til að
fjárfesta í alvöru brugggræju. Þú get-
ur sett barinn upp í kringum græjuna
þar sem þú getur hellt beint úr henni
í glasið þitt. Ef þú vilt samt fá bjórinn
úr smekklegri dælu geturðu fjárfest í
einni slíkri. Á netinu er hægt að finna
fjöldann allan af bjórdælum fyrir allt
niður í 6.000 krónur.
Til að fullkomna stemninguna
kemurðu svo öllu fyrir í Markham
Console-bar, sem þú færð fyrir 160
þúsund krónur í vefverslun Pottery
Barn. Stemningin við að vera með eig-
in bar þar sem þú býður upp á eigin
bjór er einstök. Til að gera barinn þinn
enn einstakari geturðu keypt bjórglös
úr vefverslun Elsewares en þar fást
bjórglös sem búin eru til úr stórum
bjórflöskum undan mexíkóska bjórn-
um Sol. Verslunin býður upp á fjögur
slík glös á frá 2.800 krónum.
Ekki ódýrt Það kostar sitt að búa til
alvörubar.
Lyklaborð
fyrir iPad2
Það tekur óþarflega langan tíma að venja
sig á að nota lyklaborðið á iPad. Ef þú vilt
ekki eyða tíma í það geturðu þess í stað
keypt þér Bluetooth-lyklaborð. Logitech
hefur hannað Bluetooth-lyklaborð fyrir
iPad sem virkar líka eins og hulstur utan
um spjaldtölvuna þegar hún er ekki í
notkun. Einnig er hægt er að smella
tölvunni á lyklaborðið þannig að hún virki
í raun eins og fislétt og þunn fartölva.
Hægt er að snúa tölvunni bæði lárétt
og lóðrétt og því geturðu valið hvaða
sjónarhorn þú færð á hlutina. Logitech
Bluetooth-lyklaborðið er einungis
hannað fyrir iPad2 en það er sérstaklega
gert þannig að þegar þú notar það sem
hulstur utan um tölvuna rispar það ekki
skjá hennar.
Steikar-
hnappurinn
Steikarhnappurinn ætti að létta flestum
að ná að grilla steikina nákvæmlega rétt í
sumar. Græjan er gerð úr ryðfríu stáli og er
búin hitamæli sem sýnir hitastigið í kjarna
steikarinnar. Sérstaða steikarhnappsins felst
svo í því að í stað hitastigs eru merkingar yfir
„rare“, „medium“ og „well“ sem segja til um
hversu vel steikin er grilluð. Þannig geturðu
slegið um þig í grillveislunum í sumar og
grillað kjöt samkvæmt pöntunum.
Krómhúðuð
eldhústæki
Ertu að hugsa um að kaupa þér eingöngu
krómhúðuð eldhústæki? Þá ætti Krups
Silver Art Collection að vera rétta línan
fyrir þig. Krups býður upp á krómhúðaðar
útgáfur flestra algengustu eldhústækjanna
á verðbilinu 9–35 þúsund krónur. Meðal
tækjanna sem eru í krómlínu Krups eru kaffi-
vélar, espresso-vélar, tekatlar, brauðristar
og djúsvélar. Tilvalin eldhúslína fyrir þá sem
vilja að allt glansi í eldhúsinu. Það fylgja þó
án efa mikil þrif slíkum tækjum ef ætlunin
er að halda þeim jafnglansandi og þau eru á
myndum.
A
lla hefur einhvern tímann
dreymt um að fljúga eins og
fugl. FlyNano er líklega það
tæki sem kemur þér hvað
næst þeim draumi en tækið er smá-
flugvél sem gerð er fyrir eina mann-
eskju og engan farangur. Samkvæmt
framleiðanda tækisins á hver sem
er að geta lært að fljúga því en þeir
sem einhvern tímann hafa verið með
flugmannsréttindi ættu að ráða við
tækið án þess að læra sérstaklega
á það. Til að geta tekið á loft og lent
tækinu þarftu að vera á vatni – nema
þú sért til í nokkuð harkalega lend-
ingu.
Hönnun FlyNano er samsett úr
léttum efnum og miðaðist hönn-
unarferlið mikið við að tækið yrði
eins létt og mögulegt var án þess þó
að draga úr flugeiginleikum þess.
Nokkrar mismunandi útgáfur eru til
af FlyNano en ein þeirra gengur ein-
göngu fyrir rafmagni. FlyNano flug-
vélin getur náð allt að 150 kílómetra
hraða á klukkustund en þrjár mis-
munandi útgáfur eru til af vélinni.
Sú útgáfa sem gengur fyrir rafmagni
nær 140 kílómetra hraða á klukku-
stund. Flugdrægið er þó minna en
hjá hinum, eða aðeins um 40 kíló-
metrar. Flugdrægi þeirra sem ganga
fyrir hefðbundnu eldsneyti er allt að
70 kílómetrar.
Þróunin hófst fyrir 10 árum þegar
nokkrir einstaklingar sem allir hafa
búa að reynslu af flugi eða hönnun
flugvéla tóku sig saman til að hanna
létta flugvél. Markmiðið var strax
sett á að flugvélin yrði léttari en 70
kíló og réð það markmið mestu um
hönnunina sem er nokkuð frábrugð-
in öðrum hönnun annarra flugtækja
og -véla. Í fréttatilkynningu sem send
var út í tilefni frumsýningar tækisins
kemur fram að það sé finnskri hönn-
un og góðum kolefnistrefjum að
þakka að þyngdarmarkmiðinu hafi
verið náð.
FlyNano var fyrst kynnt á flug-
sýningunni Aero 2011 sem fram fór í
Friedrichshafen í Þýskalandi um síð-
ustu helgi. Flugsýningin er ein helsta
flugsýning Evrópu en þar eru flug-
vélar og önnur slík tæki frumsýnd.
Vænghaf FlyNano er nálægt fimm
metrum en frá nefi flugvélarinnar
og að stéli hennar eru þrír og hálf-
ur metri. Fyrstu eintökin af FlyNano
verða send úr verksmiðju í sumar en
verðið verður í kringum 4,4 milljónir
króna.
n FlyNano kemur á markað í sumar n Smáflugvél sem gerir nánast öllum kleift að
fljúga n Tækið kostar um 4,4 milljónir n Hægt að fá umhverfisvæna útgáfu sem
gengur einungis fyrir rafmagni n Nær allt að 170 kílómetra hraða á klukkustund
Fljúgðu frjáls
eins og fuglinn
Skemmtiflugvél FlyNano kemur úr verksmiðju í sumar.