Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Blaðsíða 82
1a) Real Madrid og Barcelona eru sigursælustu lið spænsku úrvalsdeildarinnar, La Liga, en saman hafa
þau unnið 51 Spánarmeistaratitil. Þau eru líka tvö af
þremur liðum sem aldrei hafa fallið úr efstu deildinni á
Spáni. Hvert er þriðja liðið sem aldrei hefur fallið? Svar:
Athletic Bilbao
1b) Real Madrid og Barcelona hafa marga hildi háð í gegnum árin og
þessa dagana mætast liðin fjórum
sinnum í þremur keppnum, þar á meðal
spænsku bikarkeppninni sem hefur
undanfarin ár verið tækifæri minni liða
til að fá eins og einn bikar á Spáni. Hvaða lið
er ríkjandi bikarmeistari á Spáni? Svar: Sevilla
2a) Við höldum okkur á Spáni í smástund til viðbótar og horfum til tveggja bestu knattspyrnumanna
heims, Lionels Messi og Cristianos Ronaldo. Fyrri
spurningin er um Messi. Hann skoraði á dögum 48. markið
sitt á leiktíðinni og bætti þar met annarrar mikillar
markamaskínu sem spilaði með Barca á sínum tíma. Hver
átti fyrra metið, 47 mörk? Svar: Ronaldo
2b) Þá er komið að hinum sykurhúðaða Cristiano Ronaldo sem hefur ekki hætt að skora fyrir Real frá
því hann skrifaði undir í Madríd. Ronaldo kom til Real frá
Manchester United en hvaðan keypti Manchester United
þennan magnaða kappa? Svar: Sporting
Lissabon
3a) Við flytjum okkur vestur um haf og horfum til MLS-
deildarinnar í Bandaríkjunum. Þar
heita liðin öll eitthvað sniðugt. Hvað
heitir liðið í Houston og hvað heitir liðið á
Nýja Englandi? Svar: Houston Dynamo og New England
Revolution
3b) Þá eru það tvö lið til viðbótar. Hvað heita liðin í Dallas og Salt Lake City? Svar: FC Dallas og Real Salt
Lake
4a) Árið 1989 gerðist lítið kraftaverk í íslenska boltanum þegar KA stóð uppi sem Íslandsmeistari
í knattspyrnu. Guðjón Þórðarson þjálfaði liðið en
hvaða leikmaður KA sem í dag er þjálfari í Pepsi-
deildinni var valinn besti leikmaður tímabilsins þetta
sumar? Svar: Þorvaldur Örlygsson
4b) Þetta sama ár var ungur markvörður, sem spilaði með ÍA, valinn efnilegasti leikmaður efstu
deildar. Þessi sami maður hefur lagt hanskana á hilluna í
da, en hann hætti eftir að hafa skrópað í lyfjaprófi. Hver
er markvörðurinn?
Svar: Ólafur Gottskálksson
tímabilið 2008 en þeir voru langt frá því að
slá í gegn. Þeir voru þó vel hressir og komust
í hann krappan eitt sinn á djamminu. Hvað
heita þessir herramenn?
Svar: Biro og Ismael
Meiddir leikmenn
1 stig: Owen Har-
greaves er alltaf
rosalega meiddur, því
miður. Hann spilar með
Manchester United
en með hvaða þýska liði
spilaði hann lengi? Svar: FC
Bayern München
3 stig: Michael Owen væri
án efa að gera atlögu að
sæti Alans Shearer sem
markahæsti leikmaður
ensku úrvalsdeildarinnar
hefði hann ekki meiðst
svona mikið í gegnum tíðina.
Owen fékk eldskírnina með Liverpool ungur að
árum en undir lok hvaða tímabils spilaði hann
sinn fyrsta leik?
Svar: 1996–1997
5 stig: Andri Sigþórsson hefði getað náð
miklu lengra en hann gerði ef ekki væri fyrir
öll hans miklu meiðsl. Andri var eitt sinn á
mála hjá þýsku liði. Hvað heitir liðið, hvað
heitir bróðir Andra sem er að gera það gott
í boltanum í dag og með hvaða liði spilar
bróðirinn? Svar: FC Bayern München,
Kolbeinn Sigþórsson hjá AZ Alkmaar
Peningar
1 stig: Eigandi Chelsea er moldríkur Rússi
sem heitir hvað? Svar: Roman Abramovich
3 stig: Malcolm Glazer, eigandi Manchester
United, á einnig NFL-lið sem heitir hvað?
Svar: Tamba Bay Buccaneers
5 stig: Eigandi
Manchester City er
ógnvænlega ríkur.
Hvað heitir hann og
frá hvaða landi er
hann?
Svar: Sheikh Mansour
bin Zayed bin Sultan Al
Nahyan (Sheikh Mansour nóg) frá Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum.
82 | Sport 20.–26. apríl 2011 Páskablað
PáskasPurningakePPni DV
Hvað veist þú
Hér er tilvalin leið til að stytta sér stundir um páskana.
DV hefur sett upp ítarlega spurningakeppni um fót-
bolta, erlendan og innlendan. Hver í vinahópnum veit
mest um fótbolta? Nú er ekkert mál að komast að því.
LEIÐBEININGAR
1 Langbest er að hafa einn spyril en liðin mega innihalda 1–3 liðsmenn.
2 Hraðaspurningarnar eiga að vera 70 sekúndur eða 1 mínúta og tíu sekúndur.
Eitt stig er gefið fyrir hvert rétt svar.
3 Það lið sem er undir fær fyrstu víxlspurninguna, hitt liðið þá næstu og
svo koll af kolli. Spurningarnar eru sniðnar
þannig að bæði lið svara spurningum um
svipuð málefni. Eitt stig er gefið fyrir hvert
rétt svar.
4 Það lið sem er undir eftir víxlspurning-arnar fær að velja valflokk á undan.
Eftir að það hefur valið sér flokk er byrjað
á spurningunni sem gefur 1 stig, svo 3 stig
og síðast 5 stig. Geti viðkomandi lið ekki
svarað spurningunni fær hitt tækifæri til
að stela stigunum með réttu svari. Það lið
sem á flokkinn á þó alltaf fyrsta svarrétt í
sínum flokki.
5 Það lið sem fær fleiri stig vinnur og veit meira en hitt.
6 Góða skemmtun!
um fótbolta?
Hraðaspurningar
70 sekúndur
1. Hvað var síðasta Reykjavíkurliðið til þess að verða
Íslandsmeistari? Valur
2. Hvað heitir þjálfari Porto? Andre Villas Boas
3. Hver var kjörinn besti leikmaður
Pepsi-deildarinnar í fyrra?
Alfreð Finnbogason
4. Hver er leikjahæsti landsliðsmaður
Íslands? Rúnar Kristinsson
5. Á hvaða velli tryggði Arsenal sér
Englandsmeistaratitilinn
árið 2002? Old Trafford
6. Hver er markahæsti leikmaðurinn í sögu ensku
úrvalsdeildarinnar? Alan Shearer
7. Hvaða þýska lið vann Meistaradeildina árið 1997?
Borussia Dortmund
8. Hvað heitir knattspyrnuliðið í Bergen sem svo
margir Íslendingar hafa spilað með? Brann
9. Hvað heitir heimavöllur Blackpool?
Bloomfield Road
10. Hvernig fór landsleikur Íslands og Ítalíu á
Laugardalsvelli 2002? 2–0
11. Man. United, Arsenal, Chelsea og hvaða lið hafa
unnið ensku úrvalsdeildina? Blackburn
12. Hvað lið er ríkjandi meistari í Hollandi? FC Twente
13. Hver er markahæsti erlendi leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar? Thierry Henry
14. Hver er eini leikmaðurinn sem hefur verið
valinn besti leikmaður efstu deildar á
Íslandi tvívegis? Allan Borgvardt
15. Hver var stjóri Liverpool á undan Rafa
Benitez? Gerard Houllier
16. Með hvaða liði spilar Craig Bellamy?
Cardiff
17. Hvaða spænska lið tapaði í úrslitum
Meistaradeildarinnar tvö ár í röð 2001 og 2002?
Valencia
18. Hvað heitir Meistaradeildin í Suður-Ameríku? Copa
Libertadores
1 2
3
Víxlspurningar
Valflokkar
Markahrókar
1 stig: Hvaða kröftugi framherji varð
markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar í
fyrra? Svar: Gilles Mbang Ondo
3 stig: Sjö Englendingar eru á listanum
yfir markahæstu leikmenn ensku úrvals-
deildarinnar frá upphafi. Hinir
eru Frakki, Hollendingur
og Trínidadi? Hvað heita
þeir? Svar: Thierry
Henry, Jimmy Floyd
Hasselbaink og Dwight
Yorke.
5 stig: Af tíu efstu
markahæstu leikmönnum ensku úrvals-
deildarinnar eru tveir enn að spila í deildinni.
Hvað heita þeir og með hverjum spila þeir?
Svar: Michael Owen hjá Manchester United
og Frank Lampard hjá Chelsea.
Eftirminnilegir útlendingar
1 stig: Hér á landi hafa spilað margir
kostulegir leikmenn. Einn þeirra er mikill
markahrókur frá Serbíu sem varð fyrsti
útlendingurinn til þess að verða markahæsti
leikmaður efstu deildar. Hann gat skorað
endalaust þó hann væri alltaf nokkrum
kílóum of þungur. Hvað heitir þessi mikli
meistari? Svar: Mihajilo
Bibercic
3 stig: Þegar Leiftursævintýið var í fullum
gangi fyrir norðan og stórlð eins og Ham-
burg spiluðu þar Evrópuleiki voru nokkrir
flottir erlendir leikmenn í liði Leifturs. Einn
sá eftirminnilegasti er færeyskur landsliðs-
markvörður. Hvað heitir hann og hvert var
hans helsta einkenni? Svar: Jens Martin
Knudsen og hann spilaði alltaf með húfu.
5 stig: Tveir Brasilíumenn léku með Þrótti
5a) KR er óumdeilanlega sigursælasta lið Íslands í knattspyrnu en það hefur unnið
Íslandsmeistaratitilinn 24 sinnum og bikarinn
ellefu sinnum. Samtals 35 stóra bikara.
Hvaða lið kemur þar næst með
tuttugu Íslandsmeistaratitla og
níu bikarmeistaratitla?
Svar: Valur
5b) Skagamenn segja gjarnan að þeir séu
sigursælasta lið Íslands eftir
að „Reykjavíkurmótið“ lagðist af
og fleiri lið fóru að taka þátt í Íslandsmótinu.
Skagamenn leika nú í 1. deild eftir að hafa
fallið 2008 en hvaða ár lék ÍA síðast í næst-
efstu deild? Svar: 1991