Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
Konan fékk þotu-
ferðir við skilnað
Hluti af
skilnaðar-
samningi Karls
Wernersson-
ar, fyrrverandi
aðaleiganda
Milestone, og
eiginkonu hans
Sigríðar Jónsdótt-
ur var að Karl átti
að tryggja henni nokkrar flugferðir
með einkaþotum á hverju ári, eins og
DV greindi frá á miðvikudag. Hjónin
skildu árið 2004 en DV greindi frá því
fyrr í mánuðinum að Sigríður og Karl
tækjust nú á fyrir dómstólum. Sam-
kvæmt upplýsingum af heimasíðu
Héraðsdóms Reykjavíkur var það Sig-
ríður sem stefndi Karli. Blaðið hefur
ekki heimildir fyrir því um hvað mál-
ið snýst en hvorugt þeirra vildi tjá sig
þegar DV fjallaði um málið.
Hreiðar laus við sjö
milljarða skuldir
Einkahluta-
félag sem
ber nafn Hreið-
ars Más Sigurðs-
sonar, fyrrver-
andi forstjóra
Kaupþings, var
úrskurðað gjald-
þrota í Héraðs-
dómi Reykjavíkur
13. apríl. Félagið skuldaði skilanefnd
Kaupþings nærri sjö milljarða króna í
lok árs 2009, samkvæmt ársreikningi
félagsins.
Slitastjórn Kaupþings hefur höfðað
mál á hendur nokkrum stjórnendum
gamla Kaupþings vegna persónu-
legra ábyrgða þeirra vegna hluta-
bréfakaupa. Hreiðar Már er ekki einn
þeirra. Því eru hverfandi líkur á því að
hann þurfi að standa skil á skuldinni
sem hvílir á einkahlutafélagi hans.
Fékk afslátt út á
afskriftir Skúla
Björgólf-
ur Thor
Björgólfsson
og aðrir hlut-
hafar eignar-
haldsfélagsins
Samsonar, sem
keypti Lands-
bankann af íslenska ríkinu í lok árs
2002, fengu 700 milljóna króna afslátt
af bankanum þar sem afskrifa þurfti
meiri skuldir en talið var hjá viðskipta-
vinum bankans, meðal annars hjá
Skúla Mogensen. Björgólfur Thor fékk
því afslátt af bankanum vegna þess að
eignir Landsbankans, sem hafði verið
í eigu íslenska ríkisins að mestu fram
að því, voru ofmetnar í kaupsamn-
ingi ríkisins og Samsonar. Skúli varð
sem kunnugt er stærsti hluthafinn í
nýjum endurreistum MP Banka fyrir
skömmu.
Fréttir vikunnar í DV
1 2 3
Betra loft
betri líðan
Airfree lofthreinsitækið
• Eyðir frjókornum og svifryki
• Vinnur gegn myglusveppi og ólykt
• Eyðir bakteríum og gæludýraflösu
• Er hljóðlaust og sjálfhreinsandi
Hæð aðeins 27 cm
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Gómaður með
barnaklám
Ríkissaksóknari hefur ákært 52 ára
karlmann fyrir að hafa haft í vörslu
sinni 34 hreyfimyndir og rúmlega
tuttugu og tvö þúsund ljósmyndir
sem sýna börn á kynferðislegan eða
klámfenginn hátt.
Aðalmeðferð í málinu fór fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtu-
dag.
Samkvæmt ákæruskjali fannst
barnaníðsefnið á þremur hörðum
diskum í tölvu mannsins sem lagt
var hald á við rannsókn lögreglu í
fyrra. Er hann ákærður fyrir að hafa
geymt þetta óhugnanlega myndefni
um nokkurt skeið og fram til mið-
vikudagsins 14. apríl í fyrra.
Ríkissaksóknari fer fram á að
maðurinn verði dæmdur til refsingar
auk þess sem farið er fram á að allt
myndefnið og turntölva mannsins
verði gerð upptæk. Dómur í málinu
verður kveðinn upp á næstu vikum.
Mikil fjölgun
gjaldþrota
Gjaldþrotum fjölgaði um 94 prósent
milli marsmánaðar í fyrra og á þessu
ári. Alls voru 208 fyrirtæki tekin til
gjaldþrotaskipta í mars í ár. Flest
gjaldþrot voru, sem fyrr, í bygging-
arstarfsemi og mannvirkjagerð. Á
fyrstu þremur mánuðum ársins var
fjöldi gjaldþrota 433 sem er 47 pró-
senta aukning frá því í fyrra.
Á sama tíma hefur nýskráning-
um einkahlutafélaga fjölgað í mars
á milli ára. 178 ný einkahlutafélög
voru skráð í mars í ár samanbor-
ið við 164 í mars í fyrra, sem er 8,5
prósenta aukning. Flest þeirra eru í
heild- og smásöluverslun. Á fyrstu
þremur mánuðum ársins hefur
aftur á móti nýskráningum fækkað
um rúmlega 5,5 prósent miðað við
sama tímabil í fyrra. Í fyrra voru 469
ný einkahlutafélög skráð á fyrstu
þremur mánuðum ársins miðað við
443 í ár.
Verkið „Fallegasta bók í heimi“ hefur
öðlast nýtt líf en bókinni Flora Island-
ica hefur verið komið fyrir í trékassa
í Alliance-húsinu. Verkið var upphaf-
lega til sýnis á myndlistarsýningunni
Koddu í Nýlistasafninu eða þangað til
útgefandi bókarinnar sem notuð er í
verkinu fór fram á að verkið yrði tek-
ið af sýningunni sökum þess að brotið
væri á sæmdarrétti Ágústs H. Bjarna-
sonar og Eggerts Péturssonar, höfunda
bókarinnar.
Í tölvupósti sem Kristján B. Jónas-
son, útgefandi Crymogeu, sendi sýn-
ingarstjóra sýningarinnar miðviku-
daginn 27. apríl, fer hann fram á það
að verkinu verði eytt í viðurvist full-
trúa útgáfunnar. Sýningarstjórarnir,
þau Ásmundur Ásmundsson, Hannes
Lárusson og Tinna Grétarsdóttir, hafa
svarað Kristjáni. Þar segjast þau líta á
kröfuna um að verkinu verði eytt sem
brandara sem hafi farið verulega úr
böndunum.
Í mannheldum klefa
Hannes Lárusson segir að verkið verði
uppi á sýningunni alveg til 15. maí þeg-
ar henni lýkur. Hann segir verkið vera í
mannheldum klefa og það sé vaktað.
Grípa þurfi til stóraðgerða vilji menn
ná bókinni út úr búrinu. „Það verður
hreinlega að brjóta verkið til þess að
komast að bókinni, en hún er bara lítill
hluti af verkinu, að minnsta kosti í um-
fangi,“ segir Hannes. DV hefur undir
höndum afrit af tölvupósti Kristjáns B.
Jónassonar til sýningarstjóranna sem
og svarbréf þeirra. Í pósti Kristjáns
segir orðrétt: „Bókaútgáfan Crymo-
gea ehf. fyrir hönd höfunda, Ágústs
H. Bjarnasonar og Eggerts Pétursson-
ar, fer þess á leit við sýningarstjóra að
verkið „Fallegasta bók í heimi“ verði
fjarlægt af sýningunni og því eytt í við-
urvist fulltrúa útgáfunnar.“
Þá segir Kristján að ljóst sé að
sæmdarréttarákvæði höfundarlaga
hafi verið brotin með því að nýta
bókina á þennan hátt. Það hafi feng-
ist staðfest með ákvörðun Nýlista-
safnsins um að ekki hefði verið stætt
að sýna bókina. Bréfi Kristjáns lýk-
ur með þessum orðum: „Crymogea
ehf. f.h. höfunda dettur ekki annað til
hugar en að sýningarstjórar bregðist
vel og ljúfmannlega við þessari bón,
enda hafa þeir sjálfir margítrekað tal-
að um mikilvægi starfsheiðurs lista-
manna og skorað á Samtök íslenskra
myndlistarmanna að standa vörð um
hann.“
Hreppstjóravaldi beitt
Hannes Lárusson segir í samtali við
DV að um hótunarbréf hafi verið að
ræða, enda hafi Kristján sent afrit af
því til lögfræðings. „Mér er farið að
sýnast meira og meira að þetta mál
snúist ekki um lögfræði og ekki um
sæmdarrétt. Þetta snýst bara um yfir-
ráðarétt og tilkall til eignarhalds á ís-
lenskri menningu. Ég held að menn
skynji það að undir þessu liggur yfir-
gangur og hroki. Það er bara verið að
hræða okkur til hlýðni með hrepp-
stjóravaldinu, eins og það var kallað
í gamla daga. Ég held að íslenskur
listaheimur þurfi ekki á því að halda
núna að beygja sig fyrir hreppstjór-
anum.“
Blaðamaður DV hafði samband
við Kristján B. Jónasson sem vildi ekk-
ert tjá sig um málið. Sagðist hann vera
ósáttur með að blaðamaður hefði
fengið afrit af bréfunum.
„Þetta voru samskipti okkar
tveggja í millum sem voru formleg,“
sagði hann.
Smekklaus skrítla
Í svarbréfi sýningarstjóranna, sem DV
hefur undir höndum, og sent var til
Kristjáns á föstudaginn, segir meðal
annars að Nýlistasafnið hafi troðið á
sæmd og heiðri listamanna með því að
ráðast á verkið. Stjórn Nýlistasafnsins
er gagnrýnd harðlega fyrir atburði lið-
innar viku, hún teljist vart marktækur
umsagnaraðili um hvað teljist eðlileg
umgengni við listaverk og hvað sé boð-
legt til sýninga. Um ráðgjafa Crymo-
geu er sagt að þeim yfirsjáist „grund-
vallaratriði hvað varðar hinn ríkulega
og stórbrotna heim myndanna, þar
sem ekki er allt sem sýnist.“
Bréfinu er lokað á þessum orðum:
„Sýningastjórar Koddu vænta þess að
forsvarsmenn Crymogeu dragi þessa
smekklausu skrítlu til baka á opin-
berum vettvangi, til að sá orðrómur
komist ekki á kreik að í undirbúningi
sé önnur árás á verkið Fallegasta bók í
heimi og sýninguna Koddu.“
Listaverk læst inni
n Kristján B. Jónasson fer fram á það í tölvupósti að verkinu „Fallegasta bók í heimi“ verði eytt
n Sýningarstjórar Koddu segja kröfuna brandara n Bókinni hefur verið komið fyrir inni í trébúri
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
„Ég held að íslensk-
ur listaheimur
þurfi ekki á því að halda
núna að beygja sig fyrir
hreppstjóranum.
Lokuð inni í búri Verkið „Fallegasta bók í
heimi“ hefur öðlast nýtt líf en nýr mannheldur
klefi umlykur nú bókina Flora Islandica.
Verkið er vaktað (Má klippa Hannes út og hafa litla
mynd af honum) Myndlistarmaðurinn Hannes Lárusson segir
í samtali við DV að verkið sé vel vaktað.