Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Page 6
6 | Fréttir 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað L A U G A V E G I 1 7 8 Sími: 568 9955 - www.tk. is Opið: mánud-föstud.12-18 - laugard.12-16 - sunnud. LOKAÐ Erum flutt að Laugavegi 178 (næsta húsi við frægustu bensínstöð landsins) BRÚÐKAUPS GJAFIR 20 teg. Söfnunarstell 20 teg. Söfnunarhnífapör 20 teg. Söfnunarglös iittala vörur - hitaföt o.fl. Brúðhjón sem skrá óskalistann hjá okkur fá fallega gjöf og lenda einnig í lukkupotti Ákærður fyrir að smygla e-töflum: Verðmætið nem- ur 45 milljónum Þrjátíu og sex ára Reykvíkingur hef- ur verið ákærður fyrir að reyna að smygla rúmlega 15 þúsund e-töflum og rúmlega 15 grömmum af MDMA- dufti til landsins skömmu fyrir jól. Aðalmeðferð í máli ríkissaksókn- ara á hendur manninum fór fram í héraðsdómi á fimmtudag en honum er gefið að sök að hafa miðvikudag- inn 22. desember reynt að flytja inn efnin undir fölskum botni í ferða- tösku með flugi frá Kaupmanna- höfn. Tollverðir fundu efnin við leit á Keflavíkurflugvelli. Ríkissaksóknari telur efnin hafa verið ætluð til söludreifingar hér á landi en götuverðmæti 15 þúsund stykkja af e-töflum er talið vera um 45 milljónir króna samkvæmt ný- legri verðkönnun SÁÁ. Þetta magn MDMA-efna, einnig þekkt sem e-töflur, er þó ekki það mesta sem reynt hefur verið að smygla til landsins. Í lok mars var maður handtekinn með 36 þúsund e-töflur og 4.400 skammta af LSD í Leifsstöð en það er stærsta e-töflu smyglmál sögunnar hér á landi.  Arion banki vill selja 10-11 Arion banki hefur auglýst rekstrar- félagið Tíu-ellefu ehf., sem rekur 23 verslanir undir merkjum 10-11 á landinu, til sölu. 10-11 var fært yfir í sérstakt rekstrarfélag, Eignabjarg, eftir að Arion banki tók yfir verslanaveldið Haga, sem áður var í eigu Jóhann- esar Jónssonar kaupmanns og fjöl- skyldu hans. Fram kemur í auglýsingu sem birtist á fimmtudag að boðið sé til sölu allt hlutafé í rekstrarfélagi Tíu- ellefu ehf. og það verði selt í einu lagi. Söluferlið skuli vera opið öllum áhugasömum fjárfestum sem geti sýnt fram á að hafa viðeigandi þekk- ingu og til þess bæran fjárhagslegan styrk, eða aðgang að 300 milljónum í auðseljanlegum eignum að minnsta kosti. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka tekur við óskuldbindandi tilboðum til 18. maí. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafís, á tímamótum: „Ég verð að vinna áfram“ „Ertu að hætta Guðmundur? hefur verið spurt undanfarna daga. Svar- ið er að ég ákvað það fyrir allmörg- um árum og tilkynnti það á félags- fundi að ég vildi fara eftir því sama og gert væri í norrænum systurfélög- um okkar, að hætta þegar ég næði 65 ára aldri, sem ég gerði í vetur,“ ritar Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, á blogg- síðu sinni. Þing Rafiðnaðarsambandsins var sett á fimmtudaginn og stendur fram á laugardag en miðað við yfirlýs- ingar Guðmundar á bloggsíðu sinni þá mun hann ekki gefa kost á sér til áframhaldandi formannssetu hjá sambandinu. Hann segir áskorunum um að gefa kost á sér áfram þó hafa rignt yfir sig en hann vill nýta sín síð- ustu starfsár meira í sjálfan sig. „Þú ert í vinnunni allan sólarhringinn alla daga segir konan við mig og það er margt til í því,“ ritar Guðmundur, en hann hefur gegnt formennsku í Rafiðnaðarsambandinu í áratug. „Ég er reyndar ekki í ríkistryggð- um lífeyrissjóði eins og sumir aðr- ir og get ekki hætt að vinna upp úr sextugt og farið að leika mér í golfi. Ég verð að vinna áfram og er svo sem ekkert að gráta það,“ ritar Guðmund- ur sem mun hafa eitthvað við að vera á næstu mánuðum því hann er einn fulltrúa í stjórnlagaráði sem vinnur nú hörðum höndum að því að end- urskoða stjórnarskrá íslenska lýð- veldisins. Hann hefur einnig staðið í ströngu í Karphúsinu að undan- förnu í viðræðum um nýja kjara- samninga sem strandað hafa á sjáv- arútvegsmálum. Kosning um nýjan formann Rafiðnaðarsambandsins fer fram í dag, föstudag og þrír hafa gefið kost á sér. solrun@dv.is Hættur Guðmundur ætlar ekki að gefa kost á sér áfram sem formaður Rafís. Hann ætlar þó að vinna áfram og grætur það ekki. Hilmar Leifsson, sem einnig er þekktur sem „forsetinn“, stendur nú í málaferlum við íslenska ríkið ásamt sambýliskonu sinni. Málið snýst um húsleit sem framkvæmd var á heimili þeirra en rannsókn leiddi ekki til ákæru. Hilmar og sambýlis- kona hans fara fram á eina milljón króna í skaðabætur hvort. Við hús- leitina var tökulið frá sjónvarpsþætt- inum Kastljósi í för með lögreglu og vilja Hilmar og kona hans meina að lögreglan hafi brotið gegn þagnar- skylduákvæðum með því að leyfa Kastljósi að vera viðstatt húsleitina, en grunur lék á að á heimilinu væri að finna fíkniefni. Grunur um fíkniefni Húsleitin fór fram í mars 2009 en sjálfur var Hilmar ekki viðstaddur meðan hún fór fram, þar sem hann var í flugi á leið frá Spáni ásamt fjöl- skyldu sinni. Við komuna til landsins voru þau handtekin og haldið í sólar- hring áður en þeim var sleppt. Eng- inn grundvöllur var fyrir ákæru og fundust engin fíkniefni við húsleit- ina. Aðdragandi leitarinnar og rann- sóknar á hendur Hilmari var að í janúar 2009 uppgötvaðist umfangs- mikil kannabisræktun í heimahúsi í Breiðholti. Enginn bjó í íbúðinni og var hún eingöngu notuð til rækt- unar á kannabisplöntum. Hilm- ar var skráður eigandi íbúðarinnar en framleigði hana til annars að- ila. Í kjölfar þess beindist grunur að Hilmari en hann var ekki ákærður í tengslum við málið. Mynd af Tony Montana Samkvæmt heimildum DV býr Hilmar í stóru einbýlishúsi á stór- höfuðborgarsvæðinu. Veggi hússins prýða merki Hells Angels og þar má sjá stóra mynd af Al Pacino í hlut- verki Tony Montana, glæpaforingj- ans úr myndinni Scarface. Hilmar titlar sig sem framkvæmdastjóra, en sambýliskona hans er skráð eini eigandinn í fyrirtækinu sem heitir Leifur-þjónusta og tengist starfsemi þess leigu á atvinnuhúsnæði. Sam- kvæmt nýjasta ársreikningi félags- ins, sem er frá árinu 2008, á félagið sex fasteignir og nam hagnaður þess tíu milljónum króna en skuld- ir félagsins námu sextíu og fjórum milljónum króna. Lokað þinghald Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kastljóss, segir í samtalið við DV að á þessum tíma hafi Kastljósið feng- ið að fylgjast með aðgerðum lög- reglunnar við að uppræta kanna- bisræktun sem hafði aukist mikið á þeim tíma. „Á sínum tíma ákváð- um við að fara þess á leit við lög- regluna að fá að fylgjast með henni í sambandi við kannabisrækt. Við fengum að fylgjast með þeim upp- ræta kannabisræktun um nokkurt skeið og með því safna saman efni í fréttaskýringu. Við fylgdum þeim víða og stundum komum við á stað þar sem verið var að rækta og stund- um ekki. Varðandi þetta tilfelli þá höfðum við verið með lögreglunni fyrr um daginn þar sem fór fram ræktun á kannabis og myndað þar og upp úr því fórum við á fleiri staði og þar á meðal þetta heimili. Þar voru lögmenn viðstaddir. Við eltum lögregluna inn eins og áður en síð- an kom í ljós að engin ræktun var í gangi á þessu heimili og þar af leið- andi skipti þetta heimili okkur engu máli í umfjölluninni. Við birtum því engar myndir þaðan eða neitt slíkt.“ Sigmar segir myndefninu síðar hafa verið eytt. Í fyrirtöku málsins sem fór fram á fimmtudag krafðist Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Hilmars og konu hans, þess að þinghald yrði lokað vegna viðkvæmra upplýsinga sem munu koma fram við réttar- höldin og til að virða friðhelgi einka- lífsins og var það samþykkt. Vill milljón vegna myndatöku Kastljóss „Við eltum lög- regluna inn eins og áður en síðan kom í ljós að engin ræktun var í gangi á þessu heimili. n Hilmar Leifsson og sambýliskona hans krefjast hvort um sig einnar milljónar króna í skaðabætur frá íslenska ríkinu n Segja að lögreglan hafi brotið gegn þagnarskyldu- ákvæði með því að leyfa myndatökumanni Kastljóss að vera viðstaddur húsleit Vinir Hilmar Leifsson og Ásgeir Þór Davíðsson eru ágætir vinir. Hilmar hefur stefnt íslenska ríkinu og krefst einnar milljónar í skaðabætur. MYND SKJÁSKOT AF FACEBOOK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.