Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað Slæmt veður olli usla: Fjúkandi timbur braut rúðu Vindur olli talsverðum usla á suð- vesturhorni landsins á fimmtudag og þurftu björgunarsveitir á Suður- nesjum, í Hafnarfirði og Grindavík að sinna nokkrum aðstoðarbeiðnum vegna þess. Á Suðurnesjum aðstoðaði björg- unarsveit íbúa húss þar sem fjúk- andi timbur hafði brotið rúðu og endað inni á gólfi. Einnig fuku þak- plötur af kofaskrifli og hjólhýsi, sem áður hefur verið til vandræða í óveðri, var bundið niður. Björgunarsveit Hafnarfjarðar festi skilti sem var að losna og gekk frá einangrunarplasti sem fauk af ný- byggingu. Húsmóðir í Reykjavík fékk einnig aðstoð sveitarinnar þegar trampólín „kom af himnum ofan“ og lenti við hús hennar. Annað trampólín var á ferðinni, að þessu sinni í Grindavík, þar sem eitt slíkt var komið upp í tré. Með- limir björgunarsveitarinnar Þor- björns gengu frá því og gengu líka frá brotinni rúðu og festu landgang er var laus á flotbryggju. Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir hæglætisveðri um helgina. Hiti verður á bilinu 5 til 11 stig en hlýjast verður á Norður- landi á föstudag. Enn verður þó bið á því að sólin láti sjá sig af viti. Eftirlýstur af Interpol Íslenskur ríkisborgari, Chigozie Óskar Anoruo, er eftirlýstur af Inter- pol að beiðni íslenskra lögregluyfir- valda. Anoruo, sem fæddur er í Nígeríu, á að afplána tveggja ára fangelsis- dóm sem hann hlaut í Héraðs- dómi Reykjavík- ur árið 2009 fyrir að stinga mann í hálsinn með hnífi í Hafnarstræti í Reykjavík. Fréttablaðið greindi frá því á fimmtudag að hending hefði ráðið því að fórnarlambið lét ekki lífið í árásinni en þetta er fjórði dómurinn sem Anoruo hlýtur fyrir líkamsárás. Íslensk yfirvöld sendu beiðni til Interpol þann 20. apríl síðastliðinn um að lýst yrði eftir Anoruo. Samkvæmt upplýsingum af vef Interpol er Anoruo 37 ára og um 181 sentímetri á hæð. Össur Skarphéðinsson utanríkisráð- herra átti á fimmtudag fund í borg- inni Jammu í Indlandi með Omar Abdullah, forsætisráðherra Kasmír, og innanríkisráðherranum, Nasir As- lam Wani, um þróun á samstarfi ís- lenskra og indverskra fyrirtækja um nýtingu jarðhita. Svo virðist sem mikill áhugi sé á slíku samstarfi af hálfu yfirvalda í Kasmír en þar er að finna möguleika á að virkja jarðhita til raforkuframleiðslu. Samkvæmt utanríkisráðuneytinu er samvinna þegar hafin á milli indverskra og ís- lenskra fyrirtækja um verkefni í hér- aðinu. Atvinnulíf í Kasmír byggist að miklu leyti á ferðaþjónustu í tengslum við náttúrufegurð Hima- layafjalla og Kasmír-dalsins og á fundinum fór utanríkisráðherra yfir nýja möguleika sem gætu opn- ast með tengslum ferðaþjónustu og jarðhitavinnslu. Þar vísaði hann sér- staklega til frumkvöðlastarfs Bláa lónsins í því sambandi. Össur heim- sótti einnig bæinn Leh í Labakh-hér- aði í Kasmír, þar sem mikinn jarðhita er að finna. Á miðvikudag og fimmtudag átti Össur fundi með dr. Faruk Abdullah, ráðherra endurnýjanlegrar orku í ríkisstjórn Indlands í borginni Sri- nagar. Þar ræddu þeir um samstarf Íslendinga og Indverja á sviði jarð- hita og lýsti ráðherrann verkefnum í Kasmír sem hann óskaði eftir að Ís- lendingar kæmu að. Á fundunum ræddu ráðherrarnir enn fremur að- komu íslenskra fyrirtækja að gerð lít- illa vatnsaflsvirkjana hátt í fjöllum og dr. Abdullah lýsti vilja sínum til þess að íslensk fyriræki kæmu að ráðgjöf og eftirliti við byggingu stórra vatns- aflsvirkjana sem indversk stjórnvöld hafa ákveðið að ráðast í við rætur Hima laya-fjalla. hanna@dv.is Össur Skarphéðinsson ræddi við indverska ráðherra um jarðhita: Vilja samstarf Indverskur jarðvarmi Samkvæmt utanríkisráðuneytinu er hafin sam- vinna á milli indverskra og íslenskra fyrirtækja um verkefni í Kasmír-héraði. Þorsteinn efast um rekstur á Íslandi Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri útgerðarfélagsins Samherja hf, efast um að hann geti rekið alþjóðlegt fyrirtæki á Íslandi. Þetta segir hann í grein sem hann skrifaði á fimmtu- dag þar sem hann veltir því fyrir sér hvort það sé þess virði að reka al- þjóðlegt markaðsfyrirtæki á Íslandi í dag vegna gjaldeyrishafta. Vandræði með gjaldeyri Tilefni skrifanna var vandræði dóttur fyrirtækis Samherja, Ice Fresh Seafood, við að fá gjaldeyri fyrir starfsmenn sína sem þurftu að fara utan í viðskiptaerindum á vegum fyrirtækisins. Starfsmenn Iceland Fresh Sea- food ætluðu sér að sækja stærstu sjávarútvegssýningu í Evrópu sem haldin er árlega í Brussel en fyrir- tækið er með bás á sýningunni, að sögn Þorsteins. Þegar óskað var eftir að taka jafngildi 7.400 evra út af eig- in reikningi í farareyri handa starfs- mönnum Ice Fresh Seafood kom í ljós að búið er að byggja upp virkt og öflugt eftirlit með gjaldeyrisviðskipt- um á Íslandi. Um langt árabil hafa Ice Fresh Seafood og Samherji tekið er- lenda mynt út af reikningum sínum fyrir starfsmenn sem þeir hafa síð- an haft með sér utan í farareyri til að greiða útlagðan kostnað. Þetta hefur verið gert til þæginda fyrir þá sem ferðast á vegum félaganna auk þess sem þetta hefur sparað tíma og fjár- muni hingað til að sögn Þorsteins. Sóttu um undanþágu Þorsteinn segir fjármálastjóra Ice Fresh Seafood hafa óskað eftir að taka út 7.400 evrur í tveimur bönk- um án árangurs. „Leiðirnar sem okkur voru boðnar voru meðal ann- ars, að selja okkar evrur og leggja andvirðið í íslenskum krónum inn á reikning starfsmanna, en einungis ef þeir áttu launareikning í viðkom- andi útibúi! Starfsmennirnir máttu síðan hver og einn fara í bankann og kaupa sér evrur fyrir andvirðið gegn framvísun farseðils. Fjármála- stjóranum hugnaðist ekki þessi leið og ákvað að sjá hvað þyrfti til að ná þessum evrum út af reikningnum. Það leiddi að lokum til að sótt var formlega um undanþágu til Seðla- banka Íslands vegna 7.400 evra með tilheyrandi bréfaskriftum,“ skrifar Þorsteinn í greininni sem birtist á vefsíðu Samherja. Tugir símtala Þetta ferli segir Þorsteinn hafa spannað tvo vinnudaga. „Það komu ekki færri en 13 starfsmenn fjög- urra fyrirtæka og stofnana  að verk- efninu og varlega áætlað má ætla að þeir hafi samtals notað meira en 15 vinnustundir til að leysa þetta viða- mikla verkefni.  Það voru skrifuð tvö formleg bréf, það var skrifaður fjöldi tölvupósta og símtölin eru tal- in í tugum.  Við náðum að fá undir- skrift aðstoðarseðlabankastjóra Ís- lands á annað bréfið og ætla má að kostnaður við að afgreiða okkur um þessar evrur af eigin reikningi nemi um þriðjungi  af heildarupphæðinni sem óskað var eftir að taka út,“ skrifar Þorsteinn. „Að undanförnu hefur verið fjallað nokkuð um starfsumhverfi fyrirtækja á Íslandi. Er óeðlilegt í því sambandi að maður spyrji sig: Er hagkvæmt að reka alþjóðlegt sölu- og markaðsfyrirtæki á Íslandi ef það tekur tvo daga að taka út farareyri  af reikningi fyrirtækis, handa starfs- mönnum þess,“ spyr hann að lokum í greininni. Birgir Olgeirsson blaðamaður skrifar birgir@dv.is n Þorsteinn Már segist spyrja sig hvort hægt sé að reka alþjóðlegt fyrirtæki á Íslandi n Tók tvo daga að fá gjaldeyri fyrir þrettán starfsmenn og ófáar vinnustundir fóru í súginn Þorsteinn Már Telur að kostnað- urinn við að afgreiða evrurnar nemi um þriðjungi af heildarupphæðinni sem óskað var eftir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.