Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
Enginn arður greiddur út í ár:
Smáralind
tapaði
hálfum
milljarði
Tap af rekstri Smáralindar ehf., félags
sem heldur utan um samnefnda versl
unarmiðstöð í Kópavogi, nam 562
milljónum króna á síðasta ári. Þetta
kemur fram í ársreikningi félagsins
sem birtur var á fimmtudag. Í honum
kemur fram að stjórnendur félagsins
séu nú í viðræðum við Landsbanka og
Íslandsbanka um endurfjármögnun
lána og hafa þeir samþykkt að endur
fjármagna þau til fimm ára með tut
tugu og fimm ára afborgunarferli. Í
endurfjármögnuninni felst að lánin
verða verðtryggð í íslenskum krónum,
sem dregur úr áhættu þar sem stærst
ur hluti leigusamninga er verðtryggð
ur. „Í tengslum við endurfjármögnun
á lánum í erlendri mynt hafa bank
arnir samþykkt höfuðstólsleiðréttingar
sem eru yfir 700 milljónum króna en
ekki hefur verið tekið tillit til þeirrar
leiðréttingar í árslok 2010,“ segir í árs
reikningnum.
Í ársreikningnum kemur fram að
hlutafé félagsins hafi numið í árslok
2010 1.423 milljónum króna. Það er
allt í eigu Fasteignafélags Íslands hf.
Leigutekjur félagsins námu 1.119
milljónum króna en samkvæmt efna
hagsreikningi námu eignir 11,9 millj
örðum króna í árslok. Eigið fé nam
1,1 milljarði í árslok síðasta árs. Stjórn
félagsins hefur lagt til að á árinu 2011
verði ekki greiddur út arður til hlut
hafa vegna taps á rekstrarárinu 2010.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmað
ur Sjálfstæðisflokksins, hefur hót
að því að kæra Björn Val Gíslason,
þingmann Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs, fyrir ærumeiðingar
og brot á friðhelgi einkalífsins, biðjist
sá síðarnefndi ekki afsökunar á um
mælum sem hann birti um Guðlaug
á bloggsíðu sinni. Málið má rekja til
þess að Björn Valur sagði Guðlaug
hafa þegið mútur í prófkjörsbaráttu
sinni fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið
2006, en Guðlaugur þáði um 25 millj
ónir króna í styrki á árunum 2005 til
2007. Hann gerir athugasemdir við
ummæli Björns og krefst afsökunar
beiðni.
Björn Valur segist í samtali við DV
ennþá vera þeirrar skoðunar að þeir
sem þiggi háa styrki frá einkafyrir
tækjum, eins og Guðlaugur Þór gerði,
skuldbindi sjálfa sig þessum sömu
aðilum. Þá segir Björn sér nokkuð
brugðið vegna síðbúinna viðbragða
Guðlaugs, en færsluna skrifaði hann
í desember síðastliðnum. Í bréfi frá
lögfræðingi Guðlaugs Þórs, sem
sent var þann 11. apríl síðastliðinn,
kom fram að Björn hefði fimm daga
til þess að biðjast afsökunar ellegar
myndi Guðlaugur sækja málið fyrir
dómstólum. Björn Valur bað um að
fá frest til þess að ákveða hver næstu
skref yrðu og rennur sá frestur út nú
um mánaðamótin. Það er því ljóst
að á næstu dögum ákveður Björn
Valur hvort hann biðjist afsökunar á
ummælunum eða láti reyna á málið
fyrir dómstólum.
Samþykkt á landsfundi
„Engan veit ég þingmann um utan
umræddan Guðlaug Þór sem er með
landsfundarályktun síns eigin flokks
á bakinu um að hann skuli hætta
sem þingmaður flokksins. Og hvers
vegna ætli það sé?“ ritaði Björn Valur
á bloggsíðu sína þann 21. desember.
Það voru þó ekki þessi ummæli sem
fóru hvað mest fyrir brjóstið á Guð
laugi Þór, heldur þau sem fylgdu á
eftir: „Jú, vegna mútugreiðslna sem
þingmaðurinn þáði og komu hon
um til þeirra valda sem hann hafði
sem ráðherra í ríkisstjórn Geirs H.
Haarde.“
Fer Guðlaugur fram á að Björn
Valur dragi ummælin til baka og
biðjist afsökunar á þeim, geri hann
það ekki þurfi hann að axla ábyrgð
á þeim fyrir dómstólum. Ummæli
Björns Vals má rekja til þess að á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem
haldinn var í júní í fyrra, var eftir
farandi tillaga Halldórs Gunnars
sonar samþykkt: „Þeir sem hafi þeg
ið háa styrki frá félögum eða notið
fyrirgreiðslu sem ekki hafi staðið
almenningi til boða ættu að sýna
ábyrgð sína með þeim hætti að víkja
úr þeim embættum sem þeir hafi
verið kosnir til að gegna.“
Ennþá sömu skoðunar
Í kjölfar tillögunnar sagði meðal
annars Þorgerður Katrín Gunnars
dóttir af sér varaformennsku í þing
flokknum og tók sér tímabundið leyfi
frá þingstörfum. Guðlaugur Þór sat
hins vegar sem fastast á þingi og lýsti
því yfir að hann myndi ekki segja af
sér þingmennsku. Þess má geta að
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þing
kona Samfylkingarinnar, sagði af sér
þingmennsku í kjölfar umræðu um
styrkjamálin, en hún þáði 13 milljónir
í styrki á árunum fyrir hrun.
Aðspurður hvort hann sé ennþá
þeirrar skoðunar að um mútur hafi
verið að ræða í tilviki Guðlaugs Þórs
segir Björn Valur í samtali við DV: „Já,
það er eindregið mín skoðun að þegar
stjórnmálamenn eru farnir að þiggja
styrki upp á tugi milljóna, þá sé það
ekki bara óeðlilegt, heldur ósæmilegt.
Þarna er einhver tilbúinn að reiða
háar upphæðir af hendi til tiltekins
aðila, væntanlega vegna þess að hann
telur þann aðila líklegri til þess að sjá
hag sínum borgið en einhverjum öðr
um.“ Í þessu samhengi segir Björn
til að mynda harla ólíklegt að Vinstri
græn hafi þegið jafnháa styrki frá fyr
irtækjum tengdum stóriðju eins og
aðrir flokkar. „Ég er einfaldlega ekkert
viss um að slíkir aðilar sjái hag sínum
borgið í því að VG sé ráðandi afl í sam
félaginu frekar en aðrir.“
Milljónir frá orkugeira
Strangt til tekið fékk Guðlaugur Þór
Þórðarson 10 milljónir króna til kosn
ingabaráttu sinnar árin 2005 til 2007
frá fyrirtækjum sem sáu hagnaðarvon í
samstarfi við orkufyrirtæki í almanna
eigu. Sjálfur atti hann kappi við Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra um
hylli sjálfstæðismanna í höfuðborg
inni á þessum árum og var stjórnar
formaður Orkuveitu Reykjavíkur til
vorsins 2007. Mánuðina þar á undan
hafði Orkuveita Reykjavíkur stofnað
Reykjavík Energy Invest sem síðar átti
að verða eign Geysis Green Energy.
Um svipað leyti, í ársbyrjun 2007, hafði
Landsbankinn stofnað Hydrokraft In
vest í samvinnu við Landsvirkjun.
Af um 16 milljónum króna, sem
Guðlaugur Þór hefur gert fulla grein
fyrir, fékk hann á árunum 2005 til 2007
alls 8 til 9 milljónir króna frá fyrir
tækjum sem gerðu tilraunir til þess að
efna til samstarfs við orkufyrrtæki í al
mannaeigu eða stofna útrásarfyrirtæki
með þeim. Hann hefur ekki ennþá
gert grein fyrir 9 milljónum króna sem
hann hlaut í styrki en hann hefur að
eigin sögn ekki ennþá fengið leyfi til
þess. Þess má geta að skömmu fyrir
þingkosningarnar 2009 var upplýst um
mikla styrki FL Group og Landsbank
ans til Sjálfstæðisflokksins, samtals 55
milljónir króna. Flokkurinn brást við
með því að endurgreiða styrkina.
Málið í farvegi
Guðlaugur Þór vill lítið tjá sig um
mögulega málshöfðun gegn kollega
sínum á þingi í samtali við DV. „Nei,
nei, þetta fer bara sína leið. Þetta mál
er bara í farvegi, ég sendi bara lög
mann í þetta.“ Þá segir hann málið
ekki þarfnast frekari útskýringa, það
sé frekar augljóst. „Ég ætla ekkert að
tjá mig meira um það fyrr en hann
er búinn að svara. Það eina sem ég
hef heyrt frá honum er það að hann
bað um frest og sá frestur var veittur.“
Aðspurður hversu háar skaðabætur
hann ætli sér að krefja Björn Val um
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
n Guðlaugur Þór krefst afsökunar-
beiðni frá kollega sínum á þingi vegna
ummæla um mútuþægni n Björn Valur
fær frest fram á sunnudag til að ákveða
hvort hann dragi ummælin til baka
n Guðlaugur þáði 25 milljónir í styrki á
árunum fyrir hrun n Björn Valur segist
ennþá vera sömu skoðunar
STYRKJAKÓNGUR
KÆRIR KOLLEGA
„Jú, vegna mútugreiðslna sem
þingmaðurinn þáði og komu
honum til þeirra valda sem hann hafði
sem ráðherra í ríkisstjórn Geir H. Haarde.
Á sömu skoðun Björn
Valur Gíslason sakaði
Guðlaug um mútuþægni
á bloggi sínu.