Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Side 15
Fréttir | 15Helgarblað 29. apríl–1. maí 2011
„Heilu hverfin ónýt“
Fjölmargir íbúar stálheppnir að sleppa lifandi frá hamförunum:
„Ríghélt í klósettskálina“
„Ég hreinlega man ekkert hvað við
vorum að gera þegar ósköpin dundu
yfir. Ég man bara að ég ríghélt í kló-
settskálina og á meðan fauk yfir okk-
ur mold og drulla.“ Svona lýsir hinn 22
ára gamli T. Spivey upplifun sinni af
óveðrinu sem gekk yfir hluta Banda-
ríkjanna seint á miðvikudagskvöld að
bandarískum tíma. Spivey stundar
nám við háskólann í Rogersville og var
á heimili sínu ásamt tveimur félögum
þegar hvirfilbylur gekk yfir bæinn.
„Þetta tók kannski tuttugu til þrjátíu
sekúndur, svo var þetta búið. Hávað-
inn var gríðarlegur og engu líkara en
lest væri að fara fram hjá,“ segir hann.
Þegar ósköpin voru yfirstaðin fóru
Spivey og félagar hans strax út til að
aðstoða nágranna sína. „Fólk byrjaði
að streyma út á götur eftir nokkrar
mínútur. Það öskraði og var í mikilli
geðshræringu. Sem betur fer komu
lögregla og slökkvilið fljótt á staðinn
til að aðstoða.“
Óveðrið sem gekk yfir suðurríkin
er það mannskæðasta í 40 ár og eru
heilu hverfin rústir einar.
„Þetta gerðist svo hratt að það var
ótrúlegt,“ segir Jerry Stewart, 63 ára
fyrrverandi slökkviliðsmaður, sem
býr í úthverfi Birmingham í Alabama.
Óveðrið skildi eftir sig slóð eyðilegg-
ingar í þessari stærstu borg Alabama-
ríkis. Stewart slapp lifandi úr óveðr-
inu með því að fela sig undir palli við
heimili sitt ásamt konu sinni, dóttur
og tveimur barnabörnum. Nágrann-
ar hans voru hins vegar ekki eins
heppnir. Stewart lýsti því í samtali
við AP-fréttastofuna á fimmtudag að
hann hefði þurft að draga lík tveggja
nágranna sinna út úr rústum húsa
þeirra. Hann og fjölskylda hans eru
því stálpheppin að vera á lífi.
David Hinton, læknir á sjúkrahúsi
í Tuscaloosa, var á vakt þegar óveðr-
ið gekk yfir. Hann fór út þegar óveðr-
ið var yfirstaðið og reyndi að aðstoða
íbúa. Hann segir í samtali við AP að
hann hafi dregið þrjá nemendur úr
húsarústum skammt frá sjúkrahús-
inu. Einn reyndist látinn en hinir mik-
ið slasaðir.
Allt ónýtt Þessi mynd sýnir glöggt eyðilegginguna af völdum óveðursins. Mynd ReuteRs
Hvernig myndast
hvirfilbylur?
n Talið er að óveðrið í Bandaríkjunum
á miðvikudagskvöld komist í sögubæk-
urnar því veðurstofa Bandaríkjanna fékk
yfir 150 tilkynningar um hvirfilbylji. Í apríl
hefur veðurstofan fengið um 300 til-
kynningar í heild. Á Vísindavef Háskóla
Íslands segir að hvirfilbyljir séu mjög
hvassar en smáar hringiður í neðsta
hluta gufuhvolfsins. Þeir myndast þar
sem loft er mjög óstöðugt, þar sem
hlýtt loft er undir köldu lofti, til dæmis í
grennd við þrumuveður.
n Á litlu svæði verður mikið uppstreymi
og í stað loftsins sem streymir upp leitar
loft inn að miðju uppstreymisins og þá
margfaldast snúningur þess. Svonefndir
fellibyljir eru mun meiri að umfangi en
hvirfilbyljir og ná frá yfirborði jarðar upp
að veðrahvörfum. Hvirfilbyljir myndast
oft í fellibyljum.
n Hvirfilbyljir geisa í nokkrar mínútur
en einstaka sinnum lifa þeir í örfáar
klukkustundir. Þeir eru oftast innan við
hundrað metrar í þvermál, að því er fram
kemur á Vísindavef Háskóla Íslands.
Jón Þór Baldvinsson býr í Leeds í Alabama:
„Þetta er hrikalegt“
Íslendingurinn Jón Þór
Baldvinsson býr í bænum Leeds
í Birmingham í Alabama. Bærinn
hans varð illa úti í óveðrinu sem
gekk yfir suðurríkin í Banda-
ríkjunum seint á miðvikudags-
kvöld. „Svæðið sem ég bý á er
alveg í tætlum, það eru svo mörg
hús sem eru alveg í klessu. Þök
rofin og tré fallin, gjörsamlega
rifin upp með rótum,“ sagði Jón
Þór í samtali við fréttastofu
Ríkisútvarpsins á fimmtudag.
„Þegar ég fór og leit út sá ég
að toppurinn af einu trénu hafði
kastast af og var í garðinum. Við
erum að tala um tré sem er sjötíu
metra hátt,“ segir Jón Þór en þegar hann skoðaði heimili vinar sonar síns sá hann að tré
hafði fallið á húsið og klofið það í tvennt. „Þetta er bara hrikalegt. Einn bærinn sem ég
fer oft til í vinnunni, hann er bara í rúst og þeir eru búnir að loka hann af og þeir eru bara
að leita að fólki,“ sagi hann.