Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Síða 28
Vandi íslenskrar umræðu-hefðar verður varla bet-ur greindur en með orðum
Davíðs Oddssonar um sjálfan sig í
bókinni Í hlutverki leiðtogans, eftir
Ásdísi Höllu Bragadóttur, sem Teitur
Atlason bloggari rifjaði upp á dögun-
um. „Ég gerði öll mál tortryggileg og
fylgdi þeirri reglu veiðimannsins að
maður má ekki einungis kasta flugu
sem manni finnst falleg því að mað-
ur veit aldrei hvaða flugu laxinn tek-
ur,“ sagði Davíð og játaði síðan: „Ég
tók því upp öll mál, jafnvel þó að ég
væri í hjarta mínu samþykkur þeim,
og hjólaði í þau...“
Þannig lýsti Davíð störfum sínum
í stjórnarandstöðu í borgarstjórn
Reykjavíkur. Orð hans gefa einstaka
innsýn inn í áróðurstækni, sem eimir
enn sterklega af í stjórnmálum dags-
ins í dag. Til grundvallar er viðhorfið
að almenningur sé eins og lax og starf
stjórnmálamannsins sé að láta fólk
bíta á agn. Þar með verður það mikil-
vægara í hlutverki stjórnmálamanns
að koma höggi á andstæðinga sína og
upphefja sjálfan sig, en að breyta rétt
og heiðarlega. Þetta eru eins konar
iðnaðarstjórnmál.
Áróðursaðferðum Davíðs og fylgis-
manna hans mætti skipta í fjóra flokka:
1. Endurtekningin. Að lýsa einhverjum
eða einhverju ítrekað í ákveðnu ljósi,
þar til laxinn bítur á. „Verklausa ríkis-
stjórnin,“ er til dæmis ítrekað skrifað í
Morgunblaðið þessa mánuðina. Oft er
endurtekningin liður í stimpluninni.
2. Stimplunin gengur út á að tengja
gagnrýnendur annarlegum hags-
munum. Oft er gagnrýnandi svipt-
ur frjálsum vilja eða eigin skynsemi í
stimpluninni, til dæmis sagður vera
handbendi Baugs. 3. Alhæfingin er
þessu tengd. Hún gengur gjarnan út á
að allt sem sá umræddi geri sé slæmt.
Aðferð til þess er til dæmis að „taka
upp öll mál“ og „gera þau tortryggi-
leg“. Alhæfingin felur gjarnan í sér
endurtekningu. 4. Eignunin gengur út
á að allir aðrir séu jafnóheiðarlegir og
þeir sem beita þessum aðferðum sjálf-
ir. Þeir gera ráð fyrir því að aðrir hugsi
eins og þeir og séu á bandi stjórnmála-
flokks eða stjórnmálaleiðtoga. Þegar
þeir eru spurðir hvers vegna þeir saki
aðra um að vera handbendi einhvers
málstaðar, þegar þeir eru það sjálfir
samkvæmt sömu rökum, svara þeir
því til að þeir séu heiðarlegir vegna
þess að þeir viðurkenna tengsl sín,
en aðrir ekki. Líkt og Davíð svaraði
sjálfur í viðtali þegar hann hafði verið
ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins eftir
að hafa gagnrýnt meint tengsl Frétta-
blaðsins við Samfylkinguna í áraraðir.
„Mér finnst miklu heiðarlegra að vera
með flokksskírteinið heldur en vera í
hjarta sínu hlynntur flokki...“ Þannig
varð hinn óheiðarlegi heiðarlegur en
sá heiðarlegi óheiðarlegur í heims-
mynd Davíðs.
Segja má að stjórnmálamenn og
fylgismenn þeirra geti verið „heilir“ í
þessari afstöðu sinni, á þann hátt að
þeir trúa því að svona eigi stjórnmálin
að virka, því þau geti ekki virkað öðru-
vísi. Í því birtist einhvers konar nauð-
hyggju- og tómhyggjuviðhorf gagnvart
lýðræðinu, að sá sem beiti slíkum að-
ferðum muni standa uppi sem sigur-
vegarinn – landa löxunum.
Það er hins vegar í hagsmunum al-
mennings að sjá í gegnum og uppræta
umræðuhefð sem felur í sér að stjórn-
málamenn beiti óheiðarlegum aðferð-
um til að upphefja sjálfa sig.
Að lenda í klóm rógburðar og vera hafður fyrir rangri sök er ábyggilega eitt það versta sem
menn upplifa á lífsleiðinni. Tilraun-
ir til mannorðsmeiðingar og mark-
viss eyðilegging orðspors eru athafn-
ir sem verða að þyngri böggum en
ímyndunin ræður við. Oft fá menn
uppreist æru sína og endurheimt-
ur mannorðs eiga sér stundum stað
þegar sannleikurinn nær inní sviðs-
ljósið.
Ég fór að hugleiða þetta með
mannorðið um daginn þegar ég sá
hversu auðvelt það getur verið að
ýta á einn rangan takka á lyklaborð-
inu og orði er breytt frá bestu merk-
ingu til þeirrar verstu. Og þegar illa
orðið er farið af stað þá er einsog það
fái meiri athygli og alúðlegra tillit en
öll orð sem á undan voru rituð. Allt,
já, bókstaflega allt miðast við að gera
hinu illa orði svo hátt undir höfði
sem verða vill.
Þegar blessaður karlinn hann
Nixon (þáverandi Bandaríkjaforseti)
var staðinn að glæpsamlegu athæfi í
alvarlegu hneykslismáli þá byrjuðu
Kanarnir ekki á því að gera hann að
ritstjóra eins af stóru dagblöðunum
þar í landi. Nei, þeir ráku hann úr
embætti og lækkuðu launin. Og svo
var það eiginlega þannig að mann-
orðssjálfsvíg hans gerði það að verk-
um að hann hafði nánast ekki rétt til
almennra skoðanaskipta og sjálfur
skerti hann málfrelsi sitt með því að
kunna að skammast sín og þegja.
En þegar Íslendingar fengu að
upplifa það að Dabbi litli, banka-
maður, sigldi íslenskri þjóðarskútu
í strand, eftir að hafa borubrattur
lofað alla spillingu útrásarliðsins og
reynt að sanna sakleysi sitt með útúr-
snúningum, var hann gerður að rit-
stjóra Moggans (sem nýverið breytti
um nafn og heitir nú LÍÚ-tíðindi). Já,
og eftir að hann sá um að lána fall-
andi bönkum helling af klinki lands-
manna þá fékk hann sjálfur óskor-
að vald til að stýra fjölmiðli og allri
þeirri rannsóknarblaðamennsku
sem hugsanlega hefði mátt inna af
hendi. Svo gerðist það núna nýver-
ið, að indæl snót, Siv Friðleifsdóttir,
var í LÍÚ-tíðindum sögð vera gleði-
kona sem reyndi að húkka sér far
með stjórn ráðstjórnarríkisins Ís-
lands. Auðvitað sárnaði mönnum að
sorprit LÍÚ skyldi gerast svo ósmekk-
legt að bendla þessa ágætu konu við
stétt portkvenna. Sjálfur tel ég þó að
skárra sé að láta spyrða sig við þá
stétt en þjófafélag Framsóknar og
helmingaskiptaklíku íhaldsins.
Sem verstu dólgar dæmast þeir
er djöflum verð’ að liði
en orðspor hinna aldrei deyr
sem iðka góða siði.
28 | Umræða 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
„Ég er
ógeðslegur.“
n Vöðvafjallið og
rithöfundurinn Egill
„Þykki“ Einarsson er orðinn
svarthærður vegna hlutverks síns í
kvikmyndinni Svartur á leik. – DV
„Vorið er búið og nú tekur
við snemmsumartíð.“
n Siggi stormur spáir
sumarkomu. – DV.is
„Ég get ekki sagt að þessi
spá komi mér á óvart. Það
er hefð fyrir því að KR sé
spáð ofarlega og FH
eðlilega í 1. sæti.“
n Ólafur Kristjánsson, þjálfari
Íslandsmeistara Breiðabliks, gefur lítið
fyrir að vera spáð fjórða sæti af
sérfræðingum fotbolti.net. – fotbolti.net
„Þetta gerist ekki sárara.“
n Sveinbjörn Pétursson, markvörður
Akureyrar, var niðurbrotinn eftir að FH
vann fyrsta leikinn í úrslitaeinvíginu um
Íslandsmeistaratitilinn með marki á
síðustu sekúndunni. – mbl.is
„Þetta er frekar
kúl. Ég horfi
alltaf á þættina.
Þeir eru í miklu
uppáhaldi.“
n Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds á
tvö lög í næstu þáttaröð af So You Think
You Can Dance sem fer í loftið í lok maí.
– Fréttablaðið
Áróðurstækni Davíðs
Leiðari
Bókstaflega
Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar„Áróðursaðferðum
Davíðs og fylgis
manna hans mætti
skipta í fjóra flokka.
Mannorð af misjöfnum toga
Skáldið skrifar
Kristján
Hreinsson
„Auðvitað sárnaði
mönnum að sorp
rit LÍÚ skyldi gerast svo
ósmekklegt að bendla
þessa ágætu konu við
stétt portkvenna.
Örlög þremenninga
n Menn velta fyrir sér hvers vegna
Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ás-
mundur Einar Daðason stofnuðu ekki
þingflokk þegar
þau hittust í vik-
unni. Ástæðan
gæti verið að Atli
hyggist hætta á
þingi eða þurfi
löng frí. Þá
annaðhvort næst
ekki lágmarks-
fjöldi til stofn-
unar þingflokks eða að varamaður
hans taki sæti sem á ekki samleið
með hinum tveimur. Í öðru lagi
kynni þeim þremur að verða úthýst
úr VG. Í þriðja lagi gætu þau hafa
fengið orðsendingu úr innanríkis-
ráðuneytinu um að bíða átekta.
Hvað segja þeir nú?
n Lögfræðingarnir Sigurður Kári
Kristjánsson og Birgir Ármannsson,
þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
hafa ekki
verið spurðir út
stjórnsýslubrot
Árna Mathiesen
er hann skipaði
Þorstein Davíðs-
son (Oddssonar)
dómara fyrir
jólin 2007. Árni
var dæmdur
til að greiða umsækjanda miska-
bætur í Hæstarétti fyrir skemmstu.
Sigurður Kári sagði á þingi í janúar
2008 að Árni væri ekkert bundinn af
áliti nefndar sem mat hæfi umsækj-
enda. Birgir sagði í þingræðu að
málefnalega hefði verið staðið að
skipun Þorsteins.
Formaður undir feldi
n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for-
maður Framsóknarflokksins nýtur
hvíldar í Kanada eftir sigur í Icesave-
málinu og formannskjöri á flokks-
þingi. Hans bíður að taka afstöðu til
samstarfs við ríkisstjórnina í anda
tilboðs sem Jóhanna Siguðardóttir
forsætisráðherra lagði fyrir hann í
viðtali við DV. Sumir í þingflokknum
láta líklega um slíkt samstarf. Sagt
er að málið sé viðkvæmt innan
flokksins og formanninum sé vandi
á höndum og hann þurfi að ráðfæra
sig við Guðna, Davíð og Þórólf.
Styrkirnir ekki
gleymdir
n Hótanir lögmanns Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins, um að höfða meiðyrðamál
gegn Birni Vali Gíslasyni, þingmanni
VG, hafa enn á ný
beint sjónum að
miklum persónu-
legum styrkjum
til einstakra
frambjóðenda
fyrir banka-
hrunið, einkum
frá fyrirtækjum
sem tóku þátt í
að hanna hrunið. Björn Valur talaði
á bloggi sínu um mútugreiðslur
sem komið hefðu þingmanninum
til valda. Einn maður hefur verið
dæmdur fyrir mútubrot hér á landi
síðustu 10 til 15 ár það best er vitað.
Hann heitir Árni Johnsen.
Sandkorn
TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
SvarthöfðiL íklega er það einstakt í heimin-um hvað glæpamenn væla mikið hér á landi. Það líður varla sá
dagur að þeir kvarti ekki yfir því hvað
allt sé erfitt og hvað allt sé öllum öðr-
um að kenna.
Morðingjar hóta málsókn af því að nafn þeirra er nefnt í fjöl-miðlum. Glæpamenn kvarta
yfir þrengslum í fangelsi. Allir „lentu“
þeir í glæpum. Það má ekki segja
nöfnin þeirra í fjölmiðlum. Það nýjasta
er að glæpamenn kvarta yfir því að
nöfn þeirra séu birt í fjölmiðlum, af því
að það láti þeim líða eins og stjörnum
og því brjóti þeir meira af sér. Í staðinn
er birt viðhafnarviðtal við fyrrverandi
handrukkara, sem kvartaði yfir því
hvað fjölmiðlar voru vondir við hann
með því að segja frá honum.
F yrir nokkrum dögum fékk mað-ur nokkur dæmdar sjö milljónir króna frá tryggingafélagi vegna
þess að hann slasaðist við að stinga
lögguna af á 200 kílómetra hraða.
Hann hunsaði stöðvunarmerki, fór
framhjá vegatálma lögreglunnar og
lagði saklausa vegfarendur í mikla
hættu. Almenningur borgaði máls-
kostnaðinn fyrir hann, enda fékk hann
gjafsókn. Fyrir nokkrum misserum
fékk dæmdur kókaínsmyglari gjafsókn
frá ríkinu til að stefna blaðakonu fyrir
að segja að hann væri kókaínsmyglari.
E inn dæmdur maður orðaði þetta skemmtilega í viðtali við DV fyrir nokkru. Hann sagðist ekki vera
hræddur við að fara í fangelsi. „Það er
nú lítið mál að sitja í fangelsi hér á Ís-
landi. Eftir smá tíma er þetta bara eins
og heimavist fyrir stráka,“ sagði hann
brakandi ferskur. Óhætt er að
fullyrða að hvergi í heimin-
um hafi glæpamenn það
jafngott og á Íslandi,
enda brosa austur-
evrópskir starfs-
bræður þeirra
gjarnan þegar
þeir fara fyrir
dóm hér á landi.
F yrir nokkru byrjuðu sjón-varpsþættir á mbl.
is þar sem fólki gafst
tækifæri til að fá inn-
sýn í starf lögregl-
unnar. Lögreglan
vinnur við að
grípa glæpa-
menn, en þeir
voru blörraðir
í þættinum.
Þeir eru strax
byrjaðir að kvarta af því að allt var
ekki eins og þeir vildu þegar þeir voru
handteknir.
En þeir sem eru á móti því að birt-ast blörraðir í sjónvarpinu ættu að prófa eitt: Hætta að brjóta
lögin. Hins vegar er fjölmargt fólk svo
meðvirkt glæpamönnum á Íslandi
að það hugsar að þeir geti það ekki
greyin. Þeir lentu nefnilega í fíkniefn-
um. Þess vegna er líklegt
að fjölmargir muni
taka undan
kvartanirnar.
V enju-legt fólk vælir ekki
svona mikið, ekki
einu sinni yfir því
þegar glæpamenn
eyðileggja fyrir því.
Glæpamenn á Íslandi
kvarta miklu meira
en fórnarlömb þeirra.
Löghlýðnir borgarar
eiga ekki skilið að þurfa
að hlusta á þetta. Allir þeir
sem hafa þurft að þola að
eignir þeirra séu skemmdar,
að vera rændir eða jafnvel
barðir ættu að taka sig
saman og krefjast þess að
íslenskir glæpamenn ann-
að hvort hætti að væla eða hætti
að fremja glæpi.
HÆTTIÐ AÐ VÆLA!