Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Side 46
46 | Lífsstíll 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
Slakir vöðvar gera fólki ófært að herma eftir svipbrigðum:
Bótox hefur slæm áhrif á félagsfærni
Bótóxsprautur eiga að slétta úr hrukk-
um og hafa yngjandi áhrif á útlitið en
öðru máli gegnir um áhrifin sem þær
virðast hafa á félagslega færni fólks að
sögn vísindamanna við háskólann í
Suður-Kaliforníu. Áhrif þess að nota
efnin geta dregið úr færni fólks í sam-
skiptum.
„Fólk sem notar bótox á frekar bágt
með að lesa í tilfinningar annarra eft-
ir svipbrigðum, segir David Neal, pró-
fessor í sálfræði við háskólann.
Bótox hefur þau eituráhrif á vöðva
andlitsins að það slaknar á þeim. Það
gerir að verkum að fólk sem hefur
fengið bótox á erfiðara en annað fólk
með að leika eftir svipbrigðum fólks
eða bregðast á viðeigandi hátt við
svipbrigðum annarra. Svo virðist sem
þetta hafi afleiðingar á félagsfærni.
Þegar þú hermir eftir svipbrigð-
um annarra, þá færðu innsýn í tilfinn-
ingalíf þeirra. Við hermum öll hvert
eftir öðru, það er ein leið okkar til að
læra á tilfinningar annarra,“ segir Da-
vid. „Kaldhæðnin í þessu öllu sam-
an er að bótoxið er upphaflega ætlað
til þess að fela áhrif tilfinninga okkar
á andlitið til þess að gera samskipti
við okkur meira aðlaðandi. „Kráku-
fætur“ við augun tákna annað hvort
að manneskja hefur hlegið mikið eða
grett sig mikið. Hrukkur á enni benda
til þess að viðkomandi hafi haft mikl-
ar áhyggjur eða þunga byrði að bera.
Með bótoxi eru þessi merki um til-
finningar faldar.“
Þ ið hjónin gantist kannski með hvað hitt hrýtur mikið á nótt-unni en hugsanlega er þetta
ekkert gamanmál og jafnvel kem-
ur það niður á kynlífinu án þess að
neinn geri sér það ljóst.
Ef marka má nýlega rannsókn á
svefnvandamálum og afleiðingum
þess staðfesta 61 prósent fullorð-
inna að svefnvandinn komi beint
niður á kynlífinu. Vandinn staf-
ar ekki einungis af því að fólk fær
ekki nægan svefn og er þar með
of þreytt til að stunda kynlíf held-
ur geta kæfisvefn og hrotur einnig
haft sínar afleiðingar.
Í þýskri rannsókn sem gerð var
árið 2009 kom fram að 69 prósent
þeirra sem þjást af kæfisvefni eiga
einnig við alvarleg kynlífsvanda-
mál að etja. Þar má telja vanda-
mál með reisn, erfiðleika við að
kalla fram fullnægingu og almenna
ófullnægju með kynferðislega
ánægju.
Þetta er meðal annars talið or-
sakast af súrefnisskorti en fái lík-
aminn ekki það súrefni sem hann
þarfnast er hætt við að framleiðsla
á „nitric oxide“ (efni sem er karl-
mönnum nauðsynlegt til að öðl-
ast og halda reisn) falli niður í lág-
mark.
HROTUR
Fólk sem hrýtur er tvisvar sinnum
líklegra en það sem ekki hrýtur til að
vera ósátt við kynlíf sitt. Niðurstöð-
ur rannsóknar sem framkvæmd var
af Mayo Clinic í Rochester í Minne-
sota sýna að hroturnar skapa fjar-
lægð í samböndum, bæði líkam-
lega, andlega og bókstaflega þar
sem fólk endar oft á að sofa hvort í
sínu herberginu til að þurfa ekki að
vakna við hroturnar í makanum.
Hvað er til ráða?
Ef fólk tekur málin í sínar hendur
eru oftast lausnir og ráð á reiðum
höndum. Til dæmis er hægt að láta
greina svefnvandann og þá getur
lausnin verið svo einföld að ekki
þarf annað en að skipta um stell-
ingu og sofa þá ýmist á hlið eða
baki, með minna eða meira und-
ir höfðinu. Sumir gætu þurft að
fá súrefniskút í svefnherbergið og
öðrum gæti gagnast að fara í ein-
falda aðgerð sem opnar nasirnar.
Lykilatriðið er að vera á verði og
leita lausna: Ef makinn segir að þú
hrjótir á nóttunni og þú færð átta
stunda svefn á en ert þrátt fyrir
það þreytt/ur allan daginn – þá er
mál að leita til læknis og láta kanna
ástandið.
Nokkrar staðreyndir um svefn og
svefnvandamál:
Svefntruflanir aukast með aldrinum. Lengri tíma tekur að sofna, fólk vaknar oftar að
nóttu til og erfiðara er að sofa fram eftir. Konur finna oftar fyrir þessum einkennum
sem byrja gjarnan í kringum tíðahvörf. Algengast er að svefnþörf sé 7–8 klukkustundir
á sólarhring. Langir daglúrar draga úr góðum nætursvefni. Meðalsvefntími vinnandi
Bandaríkjamanna hefur styst um tuttugu mínútur á síðasta áratug. Þetta þýðir að nú
sefur meðalmaður í sex klukkustundir og fjörutíu mínútur á hverri nóttu.
Karlar á aldrinum þrjátíu til fjörutíu og fjögurra ára fara verst með sig en þrjátíu
prósent þeirra segjast sofa minna en sex klukkutíma á hverri nóttu.
Sextíu og fimm prósent Bandaríkjamanna segjast hafa átt við svefnvandamál að
stríða vegna streitu.
Tuttugu og sex prósent kvenna segjast eiga erfitt með að sofna að minnsta kosti
vikulega en aðeins sextán prósent karla.
Nítján prósent karla og kvenna á aldrinum fjörutíu og fimm til sextíu og fjögurra ára
segjast missa svefn nokkrum sinnum í viku vegna streituálags.
og kynlífið
Bættu svefninn
Víðtækar rannsóknir sýna fram á að kæfisvefn,
svefnleysi og hrotur geta haft alvarlegar afleiðingar
fyrir kynlíf og nánd í samböndum.
Látið greina
svefnvandann
Farið til læknis og
látið leysa málið.
Hvernig væri hún ef ekki væri
fyrir bótoxið? Þáttastjórnandinn
Joan Rivers er ekki ókunnug þessu
vinsæla efni og gæti því verið ein
þeirra sem á erfitt með að lesa í til-
finningar annarra.
Gott salat með
reyktum laxi
Magn: 12 sneiðar.
Tími: 15 mínútur.
Innihald: Hálfur bolli majónes.
Eitt harðsoðið egg, smátt saxað.
Tvær litlar súrar gúrkur, smátt saxaðar.
Ein matskeið smátt saxaður púrru- eða
graslaukur.
Reyktur lax, skorinn í sneiðar.
Aðferð: Blandið saman majónesi, eggi,
súrum gúrkum og graslauk eða púrrulauk.
Dreifið á sneiðar af grófu dönsku rúgbrauði
eða öðru mjög grófu brauði og setjið sneið
af reyktum laxi þar ofan á.
Berist fram með heitu kaffi í góðum
félagsskap.
Bananahýði
í rósabeðið
Ertu áhugamanneskja um rósir og rósa-
rækt? Þá skaltu prófa snjallræði sem kostar
ósköp lítið. Prófaðu að grafa bananahýði í
um þriggja sentimetra dýpt undir rósarrunn-
anum. Pótassíum flæðir úr bananahýðinu í
moldina og nærir þar með plöntuna og veitir
henni vörn gegn sjúkdómum.
Morfínvaralitur
Allir þekkja varaliti og gljáa sem eiga að
hafa þau áhrif á varirnar að þær líti út
fyrir að vera stærri og fyllri en vanalega.
En varalitur kenndur við
morfín hlýtur að vera
ansi magnaður. Á
markaðinn er kominn nýr
varalitur kenndur við þetta
deyfandi lyf og áhrif þess
að bera hann á sig eiga
að vera öllu magnaðri en
áður hefur þekkst. Þeir
sem fá koss konu með
morfínvaralit finnst eins
og þeir hafi verið deyfðir í
varastað um stutta stund.
Virka efnið í varalitnum
er þó ekki morfín heldur
benzoicaine sem er efni
sem finnst í hóstameðali
og áburði sem er notað á
skordýrabit. Lesið meira á
morphinelips.com.