Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Síða 48
48 | Lífsstíll 29. apríl–1. maí 2011 Helgarblað
AUKUM ATVINNU - BÆTUM KJÖRIN
Göngum saman 1. maí
Samtök launafólks
á almennum og
opinberum markaði
1. maí gangan í Reykjavík
Söfnumst saman á horni Snorrabrautar
og Laugavegar kl. 13.
Upphitun með vel völdum lögum
lúðrasveitanna.
Lagt af stað niður Laugaveg kl. 13:30.
Örræður fluttar meðan á göngunni stendur.
Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin
Svanur leiða gönguna niður á Austurvöll.
Útifundur á Austurvelli kl. 14:10 - 15:00.
Dagskrá útifundar á Austurvelli
Ávarp fundarstjóra: Ingvar Vigur Halldórsson, stjórnarm
aður í Eflingu
Ræða: Signý Jóhannesdóttir, varaforseti ASÍ
Hljómsveitin Dikta
Ræða: Garðar Hilmarsson, 2. varaformaður BSRB
Hljómsveitin Dikta
Ávarp: Heiða Karen Sæbergsdóttir, formaður Sambands í
slenskra framhaldsskólanema
Í lok fundar syngjum við saman Internationalen við un
dirleik Lúðrasveitar
verkalýðsins og Lúðrasveitarinnar Svanur.
Chili-piparinn leynir á sér:
Sterkt krydd
heldur hungrinu frá
Sterkur matur og megrun fara vel saman.
Chili-pipar virðist slá á hungurtilfinninguna
samkvæmt rannsóknum sem gerðar voru
í Purdue-háskóla í Indiana-ríki í Bandaríkj-
unum. Virka efnið í piparnum kallast capsa-
icin, sama efni og gefur piparnum þennan
bragðbrodd. Efnið eykur líka brennslu í
líkamanum og er sérstaklega virkt hjá þeim
einstaklingum sem borða ekki chili-pipar á
hverjum degi. Bruninn sem þú finnur fyrir í
munninum þegar þú bragðar á chili virðist því
eiga sér samsvörun í efnaskiptum líkamans.
F
imm mínútna próf gæti greint
einhverfu í börnum við eins
árs aldur. Þessu er haldið
fram af vísindamönnum við
Háskólann í Kaliforníu um þessar
mundir.
Orsakir einhverfu eru lítið þekkt-
ar, þótt vitað sé að þær séu af líffræði-
legum toga. Líklegt er að um nokkrar
mismunandi orsakir sé að ræða. Vit-
að er að truflanir á einhverfurófinu
geta verið arfgengar. Þá er vitað að í
einstaka tilfellum kemur einhverfa
fram í kjölfar smitsjúkdóma á með-
göngu eða í kjölfar ákveðinna efna-
skiptasjúkdóma.
Hve algeng er einhverfa ?
Flestar rannsóknir hafa sýnt að af
hverjum 10.000 fæddum börnum
greinast á bilinu 5 til 10 með ein-
hverfu. Einhverfa er algengari meðal
drengja en stúlkna, en á móti hverri
stúlku sem greinist með einhverfu
greinast 3 til 4 drengir. Á Íslandi
eru yfir 3.000 einstaklingar með fötl-
un á einhverfurófi.
Brosir barnið við þér?
Prófið er einfalt og inniheldur
nokkrar spurningar er varða hegð-
un og hreyfingar barnsins við 12
mánaða aldur. Ein spurninganna
er einfaldlega: Brosir barnið eða
hlær meðan það horfir í augu þér?
Önnur spurning er: Þegar barnið
þitt leikur sér með leikföngin sín,
horfir það þá til þín stöku sinnum
á meðan?
Höfundur prófsins er Karen
Pierce og segir hún prófið vera
gagnlegt til þess að hefja meðferð
við einhverfu fyrr en ella.
„Það eru miklar rökstuddar líkur
á því að meðferð sem hefst svo
snemma geti haft jákvæðar afleiðing-
ar á vöxt og þróun heilans. Tækifærið
sem gefst til að greina börn fyrr en
ella felur í sér mikla möguleika fyrir
einhverf börn.“
Rannsóknin er birt í tímariti
barnalækna, Journal of Pediatrics,
137 barnalæknar tóku þátt í rann-
sókninni á þessu prófi og prófuðu
öll börn við eins árs aldur.
Prófuð til þriggja ára aldurs
Barn sem greindist með ein-
hverfu samkvæmt stöðlum prófs-
ins var sent áfram til greining-
ar til háskólans. Þessi börn voru
síðan prófuð aftur með sex mán-
aða millibili til þriggja ára aldurs
til þess að greina hvenær greini-
leg merki einhverfu eins og hún
er greind í dag færu að gera vart
við sig. Af þeim 184 börnum sem
voru greind 1 árs voru 75% með
þroskavandamál. 32 þeirra fengu
staðfesta greiningu á einhverfu
við þriggja ára aldurinn. 56 voru
með seinbúinn málþroska og níu
þeirra með þroskaseinkun. 36
barnanna þurfa frekari greiningar
við og eru með víðtækari þroska-
vanda en einhverfu.
„Ekkert foreldri vill heyra það
að barn þess sé með einhverfu
eða annan sjúkdóm sem tengist
þroska þeirra og getu til að glíma
við lífið,“ sagði Pierce.
Er barnið þitt
með einhverfu?
Einfalt próf til að greina einhverfu
Prófið reyndist greina vel frávik í þroska.
Prófið tekur fimm mínútur!
Saffran með ginseng
örvar kynhvötina
Kanadískur háskóli birti undir lok síðasta
mánaðar afar áhugaverða skýrslu þar sem
fjallað er um hvaða krydd geta örvað og
aukið kynhvötina hjá körlum sem og konum.
Greinin heitir því skemmtilega nafni: Krydd-
aðu ástarlífið, bókstaflega! Margt af því sem
fram kemur í skýrslunni var áður vitað en vildi
háskólinn staðfesta margar af sögunum í
kringum hin og þessi krydd. Eitt nýtt og afar
áhugavert kom þó í ljós, að sé dýrasta kryddi
heims, saffrani, blandað við örlítið ginseng
verður úr fínasta krydd sem eykur og örvar
kynhvötina.