Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2011, Síða 64
Stuðmaður
með allt á
hreinu!
„Skemmtileg
blanda“
n „Mér finnst Kristrún Ösp og Sveinn
Andri skemmtileg blanda,“ segir fjöl
miðlakonan Þorbjörg Marinósdóttir,
Tobba Marinós, um turtildúfurnar
Svein Andra Sveinsson og Kristrúnu
Ösp Barkardóttur. Ástarsamband
þeirra hefur vakið talsverða athygli
upp á síðkastið enda heil 27 ár á
milli þeirra. Sitt sýnist hverjum um
aldursmuninn en ljóst er að ástin
blómstrar þeirra á milli. Þorbjörg,
sem hefur skrifað
mikið um konur
og samskipti
kynjanna, er
að minnsta
kosti ánægð
fyrir þeirra
hönd.
„Svona eiga
pör að
vera, ólík
og ófyrir
sjáanleg,“
segir
Þorbjörg á
bloggi sínu á
DV.is
Vinir fyrir vestan
n Ritstjóri Kastljóss, Sigmar Guð-
mundsson, og blaðamaður Fréttatím
ans, Þóra Tómasdóttir, sáust saman á
Ísafirði yfir páskana. Þóra og Sigmar
voru par um tíma og störfuðu saman
í Kastljósinu þar til Þóru var sagt upp
störfum í niðurskurði hjá Ríkisút
varpinu í febrúar í fyrra. Hún fluttist
í kjölfarið til Noregs en áður höfðu
þau Sigmar slitið sambandinu. Ætla
má að það hafi heillað marga að kíkja
á tónlistarhátíðina
Aldrei fór ég
suður á Ísafirði
og voru Þóra og
Sigmar meðal
þeirra sem sóttu
hátíðina, sem
var með allra
glæsilegasta móti
þetta árið.
Sama hvað
öðrum finnst
n Linda Pétursdóttir, eigandi Bað
hússins, segist hafa fengið ómál
efnaleg viðbrögð þegar hún hvatti
til þess að slæmri meðferð dýra
yrði hætt. Þetta sagði hún í ræðu í
Norræna húsinu á þriðjudag en þar
sagðist hún meðal annars hafa fengið
athugasemd um að hún væri ljót eftir
að hún fór að vekja athygli á málstað
málleysingjanna. „En það tók mig
ekki langan tíma að ákveða að ég
væri alveg til í að heyra aðfinnslur
um útlit mitt, sem kemur málinu
auðvitað ekki við á
nokkurn hátt, ef
það gæti orðið til
þess að bjarga
einhverjum dýrum
frá ömurlegu lífi
og enn ömurlegri
dauðdaga.
Enda gæti
mér ekki
verið meira
sama hvort
einhverjum
finnst ég sæt
eður ei,“ sagði
Linda.
„Þetta er nú bara í sáttaferli,“ segir Jón
as Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri.
Vefmiðillinn Eyjan birti á fimmtudag
frétt þess efnis að Egill Ólafsson, stuð
maður með meiru, hefði farið fram
á afsökunarbeiðni frá Jónasi. Jónas
staðfesti í samtali við DV að lögmað
ur Egils hefði haft samband og málið
væri nú í ákveðnu „ferli“. Egill hefur
farið fram á að Jónas biðjist afsökun
ar vegna ummæla sem Jónas lét falla
í aðdraganda Icesavekosninganna,
en þá líkti Jónas Agli við áróðurs
málaráðherra Þriðja ríkis nasista,
sjálfan Jósef Göbbels. Eins og frægt er
orðið las Egill útvarpsauglýsingar þar
sem því var haldið fram, að ef Íslend
ingar samþykktu Icesavesamninginn
myndi það jafngilda því að senda ís
lensk börn til þrælkunar í breskum
kolanámum. Í kjölfarið skrifaði Jón
as á vefsíðu sína meðal annars: „Egill
Ólafsson söngvari fullyrðir, að íslenzk
börn verði seld í ánauð til Bretlands,
ef samningarnir verða samþykkt
ir. Lengra verður ekki gengið í rugli.
Göbbels á þarna Íslandsmet.“ Enn
fremur skrifaði Jónas að „nú hefur
Göbbels sjálfum verið hleypt lausum
á felmtri slegna kjósendur. Þetta er
orðið ógeðslegt.“
Blaðamaður spurði Jónas að því
hvort hann hafði nú þegar tekið um
mælin út af síðu sinni, jonas.is, en
Jónas sagðist ekki hafa gert neitt slíkt.
Þegar Jónas var spurður hvort hann
gæti hugsað sér að biðjast afsökunar
sagði hann að nú væri aðeins verið
að „ræða málið almennt“, og að hann
gæti því ekki tjáð sig frekar að svo
stöddu. Ekki náðist í Egil Ólafsson við
gerð fréttarinnar. bjorn@dv.is
Stuðmaður er óhress með samlíkingu við Jósef Göbbels:
Vill afsökunarbeiðni
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 29. APRÍL–1. MAÍ 2011 49. TBL. 101. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 595 KR.
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
Kjúklingapylsur
Kjúklingapylsurnar frá Holtakjúklingi eru framleiddar úr besta hráefni
sem völ er á. Því geta þeir sem hugsa um hollustuna nú gætt sér á þjóðarrétti
okkar Íslendinga með góðri samvisku. Hvort sem þeir vilja hann með hráum,
steiktum, tómat, sinnepi eða bara beint af grillinu.
Fer fram á afsökunarbeiðni Er ekki sáttur
við að vera líkt við áróðursmálaráðherra nasista.