Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Qupperneq 8
Útgerðarmenn greiða rÚssum veiðigjald Á rið 2011 sömdu íslensk útgerðarfélög við rúss- nesk yfirvöld um 112 króna leigugjald á hvert þorskígildiskíló leigukvóta vegna veiða í rússneskri lögsögu í Barentshafi. Samkomulagið er hluti af svokölluðum Smugusamn- ingi frá árinu 1999. Íslending- um verður samkvæmt samkomu- laginu úthlutað aflaheimildum í norskri og rússneskri lögsögu. Með samningnum gáfu Ís- lendingar eftir veiðar í Smugunni en samningurinn er afsprengi deilna landanna þriggja. Norskum útgerðum verður úthlutað kvóta innan íslenskrar lögsögu í skipt- um fyrir heimildir Íslands. Það vildu Rússar ekki en sóttu þess í stað fast eftir veiðigjaldi sem inn- heimtist í formi leigu vegna leigu- potts. Samningar um gjald náðust ekki fyrr en árið 2007 en þá samdi LÍÚ fyrir hönd íslenskra útgerðar- manna við rússnesk yfirvöld um leigugreiðslur upp á 900 banda- ríkjadollara á hvert óslægt tonn af þorski en þess utan 700 dollara á hvert tonn meðafla. 55 krónur á kíló Leigan jafngildir 55 krónum á óslægt kíló af þorski sé miðað við gengi dollara gagnvart krónunni í júní árið 2007. Sama dag skráir Reiknistofa fiskmarkaða meðaltalsverð mark- aða á óslægðum þorski á 207 krón- ur kílóið. Framlegð í sjávarútvegi árið 2007 var með minnsta móti. Það hefur komið fram í máli sjáv- arútvegsráðherra að framlegð sjáv- arútvegsins hafi aðeins verið um 33 milljarðar það ár. Þannig hefði sér- stakt veiðigjald botnfisksafla það ár reiknast rúmar tíu krónur. Auk sérs- taka gjaldsins er fast gjald upp á 9,50 krónur. Útgerðarfélög hefðu sam- kvæmt því greitt 20 krónur á hvert kíló þorsks fyrir veiðar hér á landi árið 2007 ef nýsamþykkt lög um veiðigjöld hefðu verið við lýði árið 2007. Það er töluvert undir þeim 55 krónum sem útgerðarmenn greiddu það ár í leigu fyrir kílóið til rúss- neskra yfirvalda. Kostnaði deilt á heildina Samanburður á verði leigukvóta í Barentshafi og svo veiðigjöld- um innan íslenskrar lögsögu er ef til vill ekki algjörlega sanngjarn. Samningar um leigukvóta eru hluti af kröfu Rússa um greiðslur vegna úthlutaðra aflahlutdeilda. „Það hefur verið mat manna til að viðhalda samningnum að Rússarn- ir fá engar veiðiheimildir á móti okkar. Þá höfum við sammælst um að leigja þetta til að ögra ekki Rúss- um til að segja upp samningnum,“ sagði Ólafur Marteinsson í samtali við DV um málið. Útgerðarfélagið Rammi er eitt af fimm stærstu fyr- irtækjunum sem veiða í rússneskri lögsögu. Það fær um 16 prósent úthlutaðra aflaheimilda þar. Það gefur því ef til vill réttari mynd að umreikna gjald vegna leigukvóta yfir á heildarafla ársins. Árið 2007 var íslenskum útgerðum úthlutað 2.369 tonnum en bauðst að auki 1.422 tonn til viðbótar gegn leigu- gjaldi. Heimilaðar veiðar árið 2007 voru því samkvæmt kvótamiðlun LÍÚ 3.791 tonn. Það gera 21 krónu í veiðigjald á kílóið ein eins og áður segir hefði gjaldið samkvæmt frumvarpi sjávarútvegsráðherra orðið tæpar 20 krónur það ár. Tregir til leigu „Lengst af var ekki gengið til samninga um kaup á þessum aflaheimildum. Það hefur aldrei verið neitt vit í þessum verðum og við vildum raunar vera lausir við þetta,“ sagði Friðrik Jón Arngríms- son framkvæmdastjóri Landssam- bands íslenskra útvegsmanna um leigugjaldið. „Rússar hafa hins vegar lagt áherslu á þetta og vís- að til þess að norðmenn eru með heimildir til veiða í íslenskri lög- sögu. Við höfum látið okkur hafa það fjórum sinnum á þeim fjórt- án árum sem samningurinn hef- ur verið í gildi að kaupa þessar aflaheimildir. Það hefur verið gert með heildarhagsmuni af samn- ingnum í huga og íslensk stjórn- völd hafa verið þeirrar skoðunar að þetta sé mikilvægt. Ég sé ekki ástæðu til að halda þessu áfram á þessum forsendum og það hafa ekki verið gerðir samningar í ár. Það er ekkert vit í þessu enda tap á þessum veiðum þegar gjaldið er svona hátt,“ segir Friðrik. Tveir þriðju hlutar aflaheim- ilda sem úthlutað er til íslenskra aðila í rússneskri lögsögu ganga til fimm fyrirtækja. Það eru HB Grandi ehf., Brim ehf., Rammi hf., Samherji ehf. og FISK Seafood. Sömu fyrirtæki hafa raunar skipt á milli sín ábyrgð á að leigja heim- ildir af rússneskum yfirvöldum og þannig lagt sitt af mörkum til þess að samningurinn haldi. 8 Fréttir 29. júní–1. júlí 2012 Helgarblað n 112 krónur fyrir þorskígildiskíló í leigu til rússneskra yfirvalda n „Stórtap á þessu,“ segir LÍÚ Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is Himinhátt gjald Íslenskir útgerðarmenn hafa frá árinu 2007 gert samninga við rússnesk yfirvöld um leigu á aflaheimildum í Barentshafi. Samningar hafa náðst fjórum sinnum og hefur gjaldið verið frá 55 til 130 krónum á kílóið. „Það hefur aldrei verið neitt vit í þessum verð- um og við vildum raunar vera lausir við þetta Fimm stærstu aflamestu útgerðarfyrirtækin Útgerð: Hlutdeild: HB Grandi hf. 17,91% Brim hf. 16,87% Rammi hf. 16,59% Samherji ehf. 12,81% FISK Seafood ehf. 12,22% Aðrir HB Grandi hf. FISK- Seafood ehf. Samherji ehf. Rammi hf. Brim hf. Veiðigjald: Ísland og Rússland Ár Verð í krónum Veiðigjald Leiguverð Leiguverð Sérstakt veiði- Veiði- Veiðigjald Veiðigjald Gengi 1. júní á leigt tonn alls (krónur á leigt kíló) (deilt á allar heimildir) gjald gjald** Rússland* Ísland hvert ár 2007 55.440 78.835.680 55 21 10,21 9,5 21 19,71 61,6 2008 77.910 110.632.200 78 29 47,84 9,5 29 57,34 74,2 2009 0 0 0 46,97 46,97 9,5 0 56,47 116,7 2010 27.106 261.965.466 127 48 50,36 9,5 48 59,86 129,7 2011 112.308 269.089.968 112 42 50,36 9,5 42 59,86 114,6 2012 0 0 0 0 23,2 9,5 0 32,7 129,5 *Samkvæmt fyrstu drögum frumvarps. ** Samkvæmt sátt um þinglok. *** Tölur fyrir sérstakt veiðigjald árið 2011 eru ekki til. Framlegð sjávarútvegsins árið 2011 er 75 milljarðar í glæru sjávarútvegsráðherra um framlegð frá árunum 2001–2012. Til samanburðar eru útreikningar ársins 2010 hafðar. **** Ekkert samkomulag við rússnesk yfirvöld. **** *** ****
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.