Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2012, Qupperneq 31
Það hefur enginn hótað mér Ísland njóti blessunar af því að Dorrit er gyðingur Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, um viðbrögð við þjóðhátíðarlaginu 2012. – DVSnorri Óskarsson í Betel ætlar að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson sem forseta. – DV.is Bullið á Bessastöðum Spurningin „Nei, þetta er svolítið erfið ákvörðun. Ætli ég taki hana ekki bara á síðustu stundu.“ Elísabet Sigurðardóttir 42 ára grunnskólakennari „Nei, eða kannski er maður innst inni búinn að ákveða það.“ Steinunn Snorradóttir 40 ára námsráðgjafi „Já, en það eru tveir sem koma til greina, Andrea og Ari Trausti.“ Sigurður Óttar Ragnarsson 27 ára verslunarstjóri „Já, ég ætla að kjósa Þóru og ákvað það fyrir löngu.“ Guðmundur Hafsteinsson 45 ára verslunarstjóri „Já, ég hef alltaf verið viss um hvern ég muni kjósa.“ Svandís Gunnarsdóttir 21 árs nemi og vinnur í Nostrum Design Ertu búin/n að ákveða hvern þú kýst á morgun? 1 Segir Ólafi tamt að tala um sjálfan sig í þriðju persónu Þóra Arnórsdóttir gagnrýndi Ólaf harð- lega í aðsendri grein í Fréttablaðinu. 2 Le’Macks starfar fyrir fram-boð Þóru Auglýsingastofan sem vinnur fyrir Þóru starfar einnig fyrir útgerðarmenn og Sjálfstæðisflokkinn. 3 „Það væri miklu auðveldara fyrir alla ef ég myndi bara láta mig hverfa“ Ágústa Sif Aðalsteinsdóttir steig fram í viðtali við DV og talaði um fæðingar- þunglyndi. 4 Herdís svarar prófessor fullum hálsi Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóð- andi svaraði Gunnari Helga Kristinssyni prófessor sem sagði á RÚV að „opið bókhald“ væri merkingarlítið. 5 Binni í Vinnslustöðinni: „Við bara hættum þessari útgerð“ Vinnslustöð Vestmannaeyja sagði upp 40 starfsmönnum á miðvikudag. 6 Hundar til manneldis barðir til dauða DV birti sláandi myndir af slátrun hunda í Kína, þar sem þeir eru fláðir og bornir á borð fyrir heimamenn. Engin dýraverndunarlög eru í gildi í Kína. Mest lesið á DV.is Jóhannes Iceland í Högum S varthöfði fylgist af áhuga með þróuninni á matvörumarkaðn- um enda aðsjáll maður með af- brigðum. Hann fagnar þar af leiðandi samkeppni á markaðnum og bölvar fákeppni. Þeim mun fleiri mat- vörubúðir, þeim mun meiri samkeppni og vonandi lækkað vöruverð. Svarthöfði vill sinn kost sem ódýrastan: bruður og brauð eiga að kosta sem minnst. Þess vegna fagnar hann því að Jó- hannes Jónsson, kenndur við Bónus, ætli sér að opna verslun í Engihjallan- um í Kópavogi undir merkjum Iceland. Jafnframt blæs Svarthöfði á þá tilgátu greiningardeilda Arion og Íslands- banka að Jóhannes muni ekki geta velgt Högum, sínu gamla fyrirtæki sem meðal annars á Bónus, undir uggum. Svarthöfði hélt að enginn tæki leng- ur mark á pípinu í greiningardeildum bankanna og þeirra kristalskúlum. Jó- hannes kann að minnsta kosti tvennt vel: Að verka og vinna með kjöt og búa til stórveldi úr engu á matvörumarkaði – lesist Bónus. Svarthöfði heyrir ávæning af því að taktík Jóhannesar sé að láta verslun- ina í Engihjallanum sprengja utan af sér húsnæðið vegna ásóknar nýrra við- skiptavina. Líklegt þykir að Jóhannes muni bjóða upp á lægra vöruverð en Bónus og jafnvel meira vöruúrval sem skapa muni miklar vinsældir í verslun- inni. Önnur verslun, og jafnvel verslan- ir, gætu því sprottið upp. Þá spillir ekki fyrir Jóhannesi að sonur hans, Jón Ásgeir, og hinn breski Malcolm Walker, forstjóri Iceland- keðjunnar í Bretlandi, eru með hon- um í verslunarrekstrinum. Báðir hafa þeir mikla þekkingu og reynslu af smá- sölumarkaði og geta örugglega veitt Jóhannesi góð ráð í rekstrinum. Staða Jóhannesar og verslun- ar hans gæti því orðið sterk þrátt fyr- ir hrakspárnar. Enginn skyldi vanmeta Jóhannes gamla í Bónus sem hef- ur áður sýnt hvað hann kann og get- ur. Ekki einu sinni Hagar geta blásið á hann sem smálax. Sú staða gæti jafn- vel komið upp að Jóhannes í Iceland byrji að stríða Högum með lægra verði og öðru vöruvali, og svo spillir auðvitað ekki fyrir að þrátt fyrir hrakfarir liðinna ára, á Jóhannes ennþá sína aðdáendur meðal almennings á Íslandi. Hann er ennþá maður sums fólks. Kannski mun innkoma Jóhannes- ar hrista þannig upp í matvörumark- aðnum að hlutabréfaverð í Högum taki dýfu og að núverandi hluthafar muni vilja losna út úr fyrirtækinu og selji þau á lægra verði en þeir ætluðu. Þá gæti Jóhannes – og Jón Ásgeir – boðið þeim aura fyrir Hagabréfin og kannski aftur náð til sín fyrirtækinu sem hann byggði upp úr litlu og bætti svo við. Fákeppn- in gæti þá orðið hans sem fyrr og hann yrði Jóhannes Iceland í Högum. H vað þarf forseti Íslands að hafa til brunns að bera? Hann þarf að geta skrif- að ræðu sem enginn skilur og hann þarf að geta túlkað stjórnarskrá sér í hag. Þjóðin gerir ekki beina kröfu um neina mannkosti og ekki er einu sinni gert ráð fyrir að forsetinn kunni undirstöðuatriði í mannasiðum. Lengst af, var um innantómt emb- ætti að ræða; kósí djobb sem menn gátu sinnt með hangandi hendi eða hendur í vösum. Svo fékk forsetinn hlutverk … og svo fleiri og fleiri og svo fóru sérfræðingar í lögum og aðrir fá- fræðingar að túlka stjórnarskrá okkar, með þeim ófyrirsjáanlegu afleiðingum að valdsvið forsetans var skyndilega þanið út fyrir endimörk velsæmis. Í eina tíð var það víst þannig að einungis var hugsanlegt að gegnheilu, greindu og vel þenkjandi fólki væri ætlað að bæla dýnurnar á Bessastöð- um. En svo gerðist það einhverju sinni að öfug uggaháttur (sem að vísu hef- ur lengi fylgt minni þjóð) leyfði nær ómálga viðundrum að gefa kost á sér: „Ástþórs-tímabilið“ í íslenskum kosn- ingum var runnið upp. Rugludallaelít- an fann hvern sótraftinn og hlandaul- ann á fætur öðrum og menn lögðust svo lágt að nefna menn einsog Dabba litla blaðbera og Árna Nonsens til leiks. Eftir að brandari Besta flokksins hafði gefið þjóðinni nokkra broskarla, þótti við hæfi að finna fjölmiðlaandlit sem með ungæði gæti hugsanlega ýtt Ólafi konungi af stalli. Og í stað Ást- þórs kom ástrík Þóra og átti að rúlla þessu öllu upp með aðstoð þeirra sem komu Silvíu Nótt á koppinn og með dyggri aðstoð auglýsingastofunn- ar sem skóp hina ósiðlegu áróðurs- herferð útgerðarinnar, sem átti að sýna almenna fátækt íslenskra kvótakónga. Já, vitleysan er ekki öll af sama meiði. Reyndar held ég að við þurfum ekki neinn forseta. Þjóð sem leyfir útvöld- um lýð að ræna banka, skella skuld á almenning og koma svo aftur til starfa með rassgatið fullt af seðlum, sú þjóð þarf byltingarleiðtoga á Bessastaði. Og það sem meira er, sú þjóð þarf að átta sig á því að fáfræðin er ekki það skynsamlegasta sem fólk tileinkar sér í lífinu. Það er til veröld sem er meira virði en veröld helmingaskipta, lyga og græðgi. Það er til veröld réttlætis, sannleika og nægjusemi. Hér þarf að umbylta öllu og hér þarf að dusta ryk- ið af þeim góðu gildum; þeim dyggð- um sem samfélag okkar var reist á, af fólki sem virkilega trúði á sanngirni og sannleika. Kannski mun sá dagur koma að okk- ur auðnast að velja besta kostinn. En á meðan fáfræði er það fag sem þjóðin helst vill sinna, er vonin afar veik. Hann er indæll hann Ólafur Ragnar, hann átök með þjóðinni magnar, víst fagna hér hræður ef flytur hann ræður þó fögnum við mest ef hann þagnar. „Kannski mun sá dag- ur koma að okkur auðnast að velja besta kostinn Sumarhátíð leikskólans Krakkarnir á leikskólanum Vinaminni héldu sumarhátíð sína á dögunum þar sem þeir sungu meðal annars og foreldrar barnanna léku leikritið Rauð- hetta og úlfurinn. Mynd: Jónatan GrétarssonMyndin Svarthöfði Skáldið skrifar Kristján Hreinsson Umræða 31Helgarblað 29. júní–1. júlí 2012 Þóra er ekki vörumerki Ásdís Ólafsdóttir aðstoðarkona Þóru Arnórsdóttur svarar gagnrýni. – DV.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.