Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Qupperneq 12
12 | Fréttir 15.–17. júlí 2011 Helgarblað
Þ
rír af helstu stjórnendum
Sparisjóðs Kópavogs, Jón
Kristjánsson, Páll Þór Magn-
ússon og Birgir Ómar Har-
aldsson, létu sparisjóðinn
selja fjárfestingarfélagi í sinni eigu
og sparisjóðsins, IceCapital ehf.,
rúmlega 2.000 fermetra fasteign að
Digranesvegi 1 í Kópavogi í byrjun
apríl árið 2007. Inni í kaupsamn-
ingnum var ákvæði um að spari-
sjóðurinn myndi leigja fasteignina í
tíu ár. IceCapital seldi sparisjóðnum
Byr svo fasteignina fyrir rúmlega 400
milljónum króna meira í nóvember
2007 en Sparisjóður Kópavogs sam-
einaðist Byr sumarið 2007. Þegar
Byr keypti eignina af IceCapital var
fjárfestingarfélag þeirra Jóns og Páls
Þórs, Sund, eini eigandi IceCapi-
tal eftir að hafa keypt 40 prósenta
eignarhlut Sparisjóðs Kópavogs í
félaginu. Þetta kemur fram í kaup-
samningunum í viðskiptunum og
öðrum gögnum sem DV hefur undir
höndum.
Stjórn Byrs sendi ábendingu um
umrætt mál til Fjármálaeftirlitsins
og sérstaks saksóknara í fyrra vegna
gruns um að umboðssvik og auðg-
unarbrot hefðu átt sér stað í viðskipt-
unum. Fjármálaeftirlitið og sérstakur
saksóknari hafa ekki rannsakað mál-
ið sérstaklega eftir því sem DV kemst
næst.
Jón, Páll og Birgir Ómar sátu í
stjórn eða varastjórn sparisjóðsins
á tímabilinu frá sameiningu Spari-
sjóðs Kópavogs við Byr og þar til eft-
ir hrunið 2008. Jón og Páll eru einna
þekktastir fyrir að vera eigendur og
helstu stjórnendur fjárfestingar-
félagsins Sunds sem var þriðji stærsti
hluthafi Byrs árið 2008 með rúmlega
6 prósenta eignarhluta. Sundsmenn
voru einnig meðal stærstu hluthafa
fjárfestingarbankans VBS.
Páll er tengdur Jóni þannig að
hann er giftur systur hans, Gabriellu
Kristjánsdóttur, og Birgir Ómar er
kvæntur föðursystur Jóns, Hrafnhildi
Jóakimsdóttur. Þremenningarnir
tengjast því fjölskylduböndum og
hafa unnið náið saman í viðskiptum
á síðastliðnum árum.
Verðmatið 763 milljónir
Fasteignin sem um ræðir er staðsett
á brúnni yfir Hafnarfjarðarveg við
Hamraborg í Kópavogi. Byr, trygg-
ingafélagið Allianz og verðbréfafyr-
irtækið Virðing eru með skrifstofur
í húsinu í dag en Landsbankinn var
þar áður til húsa meðal annars. Eins
og segir í verðmati sem fasteignasal-
inn Dan Valgarð Wiium vann vegna
viðskipta IceCapital og Sparisjóðs
Kópavogs er fasteignin „frábærlega
staðsett í miðbæ Kópavogs“ og hef-
ur „geysimikið auglýsingagildi“. Dan
Valgarð komst að þeirri niðurstöðu í
lok mars 2007 að húsið væri rúmlega
763 milljóna króna virði.
Tilkynnt var um flutning á höf-
uðstöðvum Sparisjóðs Kópavogs úr
Hlíðasmára og að Digranesvegi 1 í
ársbyrjun 2007. Þá var drifið í því að
klára húsið sem litið var á sem fram-
tíðarhúsnæði fyrir Sparisjóð Kópa-
vogs. Með sameiningu sparisjóðs-
ins við Byr var einu af útibúum Byrs
komið fyrir í húsinu.
Birgir Ómar báðum megin við
borðið
Í kaupsamningnum milli IceCapital
og Sparisjóðs Kópavogs frá því í byrj-
un apríl 2007 kemur fram að kaup-
verð hússins hafi verið 550 milljónir
og var það fundið út frá skuldastöðu
eignarhaldsfélagsins sem hélt utan
um húsið, D-1 ehf. Rúmlega 200
milljóna króna munur var því á
kaupverði hússins og verðmatinu
sem var unnið vegna viðskiptanna
en þetta skýrist væntanlega af því að
ekki var búið að ljúka framkvæmd-
unum við húsið.
Viðskiptin fóru þannig að Ice-
Capital keypti D-1 ehf. af Sparisjóði
Kópavogs. Samkvæmt kaupsamn-
ingnum átti IceCapital að greiða fyr-
ir húsið með skuldajöfnun á hluta-
fjárframlagi Sparisjóðs Kópavogs
að upphæð tæplega 320 milljón-
ir og eftirstöðvarnar, 230 milljónir,
átti IceCapital að greiða í maí 2007.
Um þetta segir í kaupsamningnum:
„Áhvílandi lán á D-1 ehf., áætluð um
kr. 550.000.000 skal kaupandi endur-
fjármagna þannig: – Í fyrsta lagi með
skuldajöfnun á hlutafjárframlagi
Sparisjóðs Kópavogs að upphæð kr.
319.800.000 sbr. áskriftarskrá dags. 4.
apríl 2007 og í öðru lagi eftirstöðvar
kr. 230.200.000 eigi síðar en 15. maí
2007.“ Hlutaféð sjálft var svo keypt á
500 þúsund krónur.
Athygli vekur að Birgir Ómar Har-
aldsson, stjórnarformaður Sparisjóðs
Kópavogs og stjórnarformaður Ice-
Capital, skrifaði undir kaupsamn-
inginn fyrir hönd beggja aðila. Jón
Kristjánsson og Páll Þór Magnússon
skrifuðu svo einnig undir kaupsamn-
inginn fyrir hönd IceCapital. Líkt og
áður hefur komið fram voru Birgir
Ómar, Jón Kristjánsson og Páll Þór
Magnússon ráðandi aðilar í báðum
félögunum, IceCapital og Sparisjóði
Kópavogs. Sömuleiðis vekur athygli
að hluthafasamkomulagið um stofn-
un IceCapital á milli Sunds og Spari-
sjóðsins í Kópavogi er dagsett sama
dag, þann 4. apríl 2007, og samning-
urinn um kaupin á fasteigninni á milli
IceCapital og Sparisjóðsins í Kópa-
vogi. IceCapital virðist því hafa verið
stofnað gagngert til að eiga í þessum
viðskiptum með D-1 og var stofnun
félagsins drifin í gegn til þess.
Leiga hluti af kaupsamningi
Í kaupsamningnum á milli Spari-
sjóðsins í Kópavogi og IceCapital var
tekið fram að sparisjóðurinn myndi
Dularfull fasteignaviðskipti
Sunds send til saksóknara
n Fjárfestingarfélagið Sund beggja vegna borðs í fasteignaviðskiptum n Seldu sér fasteign út úr Sparisjóði Kópavogs n Kaupverð hlutafjárins hækkaði 160 falt n Málið sent til Fjármálaeftirlits og saksóknara
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Grunur um lögbrot
Stjórn Sparisjóðs Kópavogs taldi hugsanlegt
að viðskiptin með D-1 brytu í bága við 55.
grein laga um fjármálafyrirtæki. Sú grein
fjallar um þátttöku stjórnarmanna í meðferð
mála.
„Stjórn fjármálafyrirtækis skal ekki taka
þátt í ákvörðunum um einstök viðskipti,
nema umfang þeirra sé verulegt miðað við
stærð fyrirtækisins. Einstakir stjórnarmenn
skulu ekki hafa afskipti af ákvörðunum um
einstök viðskipti.
Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis skulu ekki
taka þátt í meðferð máls ef mál varðar:
1. Viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem
þeir sitja í stjórn hjá, eru fyrirsvarsmenn fyrir
eða eiga að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta í; eða
2. Viðskipti samkeppnisaðila þeirra aðila sem ræðir um í 1. tölul. Hið sama skal gilda
um viðskipti aðila sem eru tengdir stjórnarmönnum persónulega eða fjárhagslega.
Viðskiptaerindi stjórnarmanna, sem og fyrirtækja sem þeir eru í fyrirsvari fyrir, skulu
lögð fyrir stjórn fjármálafyrirtækis, eða stjórnarformann félags, til samþykktar eða
synjunar. Stjórn fjármálafyrirtækis er þó heimilt að setja almennar reglur um afgreiðslu
slíkra mála þar sem fyrir fram er ákveðið hvaða viðskiptaerindi þurfi, og þurfi ekki, sér-
staka umfjöllun stjórnar áður en til afgreiðslu þeirra kemur, sbr. 54. gr.“
Rúmlega 400 milljóna munur Rúmlega 400 milljóna króna munur var á kaupverði hússins á Digranesvegi 1 þegar IceCapital keypti það af Sparisjóði Kópavogs og söluverði þess þegar IceCapital seldi það til Byrs.
1. hluti