Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Page 14
„Mér sýnist að skýrsla FME sem þið
hafið fjallað um gefi það í skyn að
þarna hafi eitthvað verið að verklag
inu,“ segir Soffía Björgvinsdóttir, for
maður slitastjórnar Sparisjóðsins í
Keflavík, um starfsemi sjóðsins. Hún
og félagar hennar í slitastjórn sjóðs
ins eru öll sammála því að það hafi
komið mörgum á óvart hversu slæm
staða sjóðsins virðist hafa verið. Það fé
sem slitastjórnin fékk til umráða til að
klára slitin er upp urið og virðist ljóst
að stjórnin nái ekki að klára vinnu sína
við slitin. Stjórnin hefur því farið fram
á það við Fjármálaeftirlitið að skipta
stjóri verði skipaður yfir þrotabúi
sparisjóðsins og að skiptalok fari fram.
Gríðarlegt tap
Þegar sjóðurinn var tekinn yfir af rík
inu í apríl 2010 var sjóðnum skipt upp
í tvennt. Annars vegar SpKef, sem tók
yfir allar eignir og innistæður gamla
sparisjóðsins, og svo stóð eftir Spari
sjóðurinn í Keflavík í umsjá slitastjórn
arinnar. Í sparisjóðnum voru um 24
milljarðar í skuldum auk 100 milljóna
í reiðufé sem áttu að fara til að ganga
frá slitum sjóðsins. „Það fæst ekkert
upp í þessar kröfur,“ staðfestir Soffía
sem segir einnig stöðuna á útlánasafni
sjóðsins hafa verið gríðarlega ofmetna
í bókum sjóðsins. Þegar sjóðurinn var
tekinn yfir var talið við fyrstu drög að
sparisjóðurinn ætti um sjö milljarða
inni við skiptin, en síðar kom í ljós að
líklega yfirtók SpKef meiri skuldir en
eignir frá gamla sparisjóðnum. Líklega
er um að ræða þrjá til fjóra milljarða
sem SpKef tók yfir og var síðar rennt
inn í Landsbankann.
Eins og DV hefur áður greint frá
var rekstrartap sparisjóðsins um 46,5
milljarðar á árunum 2008 til apríl 2010.
Þar að auki stendur eftir skuld spari
sjóðsins upp á 24 milljarða auk þeirra
þriggja til fjögurra milljarða af skuld
um sem SpKef tók yfir umfram eignir.
Eignasafn Sparisjóðsins í Keflavík hef
ur því rýrnað um meira en sjötíu millj
arða síðan í ársbyrjun 2008.
Fjármunir slitastjórnar búnir
Elvar Unnsteinsson, sem situr í slita
stjórninni, staðfesti í samtali við DV
að allir fjármunir sem stjórninni var
úthlutað séu upp urnir. Slitastjórnin
hefur því brugðið á það ráð að kalla
eftir skiptalokum í sparisjóðnum. Það
þýðir þó ekki slitastjórnin hafi náð að
ljúka sínu verki. Ekki hefur verið tek
in afstaða til ýmissa mögulegra rift
unar og skaðabótamála svo dæmi
sé tekið. Einnig á eftir að ljúka við
kröfuhafaskrá sjóðsins. Elvar segir að
ekki sé búið að taka afstöðu til þeirra
sem lýstu yfir forgangskröfu í sjóðinn.
Sumra þeirra hafi verið tekin afstaða
til og verið neitað. Líklega má álykta
sem svo að einhverjir þeirra sem fengu
neitun muni láta reyna á þá niður
stöðu fyrir dómi. Flestar forgangskröf
ur voru greiddar að fullu þegar sjóður
inn var tekin yfir af ríkinu en ef einhver
krafa fæst viðurkennd sem forgangs
krafa er ljóst að vandamál blasa við.
Þá vaknar sú spurning hvernig verður
farið með málið þegar stærsti hluti for
gangskröfuhafa í búið eru búnir að fá
greitt, en hinir sem eftir standa fá ekk
ert greitt. Einnig hafa ýmsir kröfuhafar
lýst yfir skuldajöfnunarrétti við sjóðinn
og á eftir að taka afstöðu til þess hvern
ig farið verði með mál þeirra.
Allir aðilar sem DV hefur rætt við,
bæði innan slitastjórnarinnar og utan,
virðast vera gáttaðir á stöðu sjóðsins.
Aðspurður um hvernig svona geti far
ið segir Elvar: „Það virðist vera þann
ig að yfirmenn þarna virðast hafa vals
að með sjóðinn eins og þeim sýndist.
Stjórnirnar, að minnsta kosti á tilteknu
árabili, virðast ekki hafa haft það eftir
lit sem vera ber. Innri endurskoðun
virðist hafa brugðist og eftirlit eftirlits
stofnana líka. Það má þó ekki gleyma
því að FME tók út skýrslu um mánað
armótin ágúst/september 2008.“ Að
hans mati má spyrja sig hvers vegna
ekki var gripið fyrr í taumana í stjórn
sjóðsins. Sams konar hlutir hafi átt sér
stað í hinum bönkunum á Íslandi en
vegna smæðar Sparisjóðsins í Kefla
vík er staða þrotabúsins mun verri en
í hinum bönkunum.
Tók ekki við skýrslunni
Slitastjórn Sparisjóðsins í Keflavík var
gert að greiða fyrir rannsókn Price
waterhouseCoopers á Sparisjóðn
um. Sú rannsókn var ítarleg og end
aði í rúmlega 250 blaðsíðna skýrslu
til Fjármálaeftirlitsins og var hún af
hent slitastjórninni með miklum
kvöðum. Slitastjórnin fékk afhent eitt
eintak og voru sett ýmis skilyrði fyrir
því hvernig slitastjórnin mætti not
færa sér skýrsluna. Elvar sagði í sam
tali við DV að hann hefði staðið upp
af fundi með FME og neitað að taka
við skýrslunni með þeim skilmálum
sem settir voru. Þær Soffía og Auður
Ósk sem einnig sitja í slitastjórninni
tóku á móti skýrslunni fyrir hönd slit
astjórnarinnar. „Ég taldi afar óeðlilegt
að okkur væru settar einhverjar sér
stakar hömlur á því hvað við létum
gera við skýrslu sem við vorum látin
borga fyrir. Og ég tek fram að við vor
um látin borga fyrir þrátt fyrir mót
mæli af okkar hálfu,“ segir Elvar en
ljóst er að PricewaterhouseCoopers
fær að öllum líkindum ekki einu sinni
alla sína reikninga greidda fyrir vinn
una vegna stöðu sjóðsins.
Samkvæmt heimildum DV er
skýrsla PricewaterhouseCoopers um
Sparisjóðinn í Keflavík ansi dapurleg
á að líta. Einn viðmælenda sagði hana
ansi svarta og er ljóst að ef skýrslan í
heild sinni kemur fyrir sjónir almenn
ings mun hún vekja mikla eftirtekt.
Slitastjórnin hefur afhent sérstökum
saksóknara afrit af skýrslunni og er
það gert með vitund Fjármálaeftirlits
ins. Það rennir stoðum undir áhyggj
ur manna af því hvaða upplýsingar
skýrslan hefur að geyma. DV hefur
undir höndum hluta skýrslunnar og
þar á meðal efnisyfirlit hennar. Þar
kemur meðal annars fram að 21 blað
síða er undirlögð umfjöllun um lána
fyrirgreiðslur til starfsmanna. 21 blað
síða til viðbótar fer undir afskriftir
lána. Það er því ljóst að af nægu er að
taka. Þær Auður Ósk og Soffía sem sitja
í slita stjórninni vildu lítið tjá sig um
innihald skýrslunnar við DV en Auð
ur sagði þó að um væri að ræða stað
festingu á því sem fram kom í skýrslu
FME frá því í september 2008, það er
að ýmislegt skrýtið hafi verið í gangi
innan sjóðsins.
14 | Fréttir 15.–17. júlí 2011 Helgarblað
„Völsuðu
með sjóðinn
eins og þeim
sýndist“
Guðni Rúnar Gíslason
blaðamaður skrifar gudni@dv.is
n Slitastjórn Sparisjóðs Keflavíkur nær ekki að klára sína vinnu
n Peningar sjóðsins duga ekki til að klára slitameðferð
n Kemur öllum á óvart hversu slæm staðan er
„Það
fæst
ekkert upp í
þessar kröfur.
„Yfirmenn þarna
virðast hafa vals-
að með sjóðinn eins og
þeim sýndist.
Kemur á óvart Þau Soffía, Auður og Elvar í slita
stjórn Sparisjóðs Keflavíkur eru öll sammála um að
það hafi komið mörgum á óvart hversu slæm staða
sparisjóðsins var orðin.
„Brú til brottfluttra“ 14. – 17. júlí 2011 „Vinir frá Vík í Mýrdal“