Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Qupperneq 36
36 | Sakamál 15.–17. júlí 2011 Helgarblað
Tjaldsvæðið er nýlega
komið á nýjan stað á
Flúðum, rétt við litlu laxá.
Mjög góð leikaðsstaða
fyrir börn, blakvöllur og
skemmtileg afþreying
fyrir fjölskylduna.
Tjaldsvæðið
á Flúðum
Frábært tjaldsvæði með
nokkrum flötum og vel
staðsett í útjaðri Akureyrar
Nú er búið að malbika
alla leið að svæðinu
og því skemmtilegra
að koma.
Tjaldsvæðið
við Hamra
Þ
essi saga hefst árið 1895 í
Golden Gate-garðinum í
San Francisco í Bandaríkj-
unum. Einn góðan veður-
dag var Cordelia Botkin á rölti í garð-
inum og hitti þar mann að nafni
John Preston Dunning sem var þar
í mestu makindum á reiðhjóli sínu.
Þrátt fyrir að Cordelia væri fjöru-
tíu og eins árs og níu árum eldri en
John – og að þau væru bæði í hjóna-
bandi – kviknaði einhver neisti hjá
þeim.
Þegar þar var komið sögu var
John hátt skrifaður fréttamaður
Associated Press og hafði meðal
annars unnið að fréttaöflun í Chile
og á Samóa-eyjum. Hann hafði ver-
ið á Samóa-eyjum 1889 þegar sjó-
herir Bandaríkjanna og Bretlands
lentu í þrátefli við sjóher Þýskalands
vegna skiptra skoðana ríkjanna um
hver skyldi verða höfðingi eyjanna,
en valið stóð á milli að minnsta kosti
þriggja manna. Líkur á að stríð bryt-
ist út voru vissulega til staðar en þá
gekk fellibylur yfir eyjarnar með
þeim afleiðingum að flest herskipa
Þýskalands og Bandaríkjanna sukku.
Þótti fréttaflutningur Johns Dunn-
ing af hamförunum og afleiðingum
þeirra vera með miklum ágætum.
Drykkja og fjárhættuspil
En allt að einu. Árið 1896 sagði Mary
Elizabeth, eiginkona Johns, skil-
ið við hann. Hún var enda mikil
trúmanneskja og hug-
nuðust ekki hjúskap-
arbrot ektamannsins.
Mary Elizabeth brá á
það ráð að fara með
dóttur þeirra til Dover í
Delaware og dvelja þar
hjá föður sínum John
B. Penington, fyrrver-
andi þingmanni.
Cordelia var þá
búin að yfirgefa eigin-
mann sinn, en naut þó
fjárhagslegs stuðnings
hans, og var orðin ást-
kona Johns og félagi.
John Dunning
var mikill drykkju-
bolti og féll í ónáð hjá
Associated Press og var
rekinn þegar upp komst
að hann hafði dregið sér
4.000 dali af fé fréttastof-
unnar til að borga spila-
skuldir sem hann hafði
stofnað til. Drykkju-
skapur hans varð síðar
til þess að hann var lát-
inn taka pokann sinn hjá
dagblaði í Salt Lake City
sem og einu dagblaði í San
Francisco . Þá var fokið í
flest skjól hjá okkar manni og hann
flutti inn til Cordeliu Botkin.
Cordelia tekur til sinna ráða
Ástarsamband Johns og Cordeliu
entist í hartnær þrjú ár en þá, í mars
1898, fékk John annað tækifæri
hjá Associated Press og átti að sjá
um fréttaflutning af spænsk-amer-
íska stríðinu. Þegar John fór frá San
Francisco tjáði hann grátandi
Cordeliu að hann kæmi ekki
til hennar á ný.
John sættist við eiginkonu
sína áður en hann fór til Kúbu
og segir sagan að hann hafi
komið að björgun sjóliða af
spænskum herskipum sem
sökkt var í byrjun júlí 1898.
En því miður fyrir hann þá
féllu fréttir hans í skuggann
af fréttum annarra frétta-
manna á Kúbu.
En Cordelia sat ekki auð-
um höndum og sendi nafn-
laus bréf til Mary Eliza-
beth þar sem hún reifaði
í smáatriðum hliðarspor
Johns. Hinn 9. ágúst 1898
fékk Mary Elizabeth send-
ingu sem stíluð var á hana
og systur hennar í Dover.
Sendingin innihélt kon-
fektöskju og stutta orðsend-
ingu: „Ástarkveðja til þín og
barnsins.“
Mary Elizabeth var mik-
ill sælgætisgrís og innbyrti
þrjá mola og deildi hinum
með þeim sem þá sátu á ver-
önd heimilis föður hennar.
Banvænir molar
Eftir að hafa liðið miklar kvalir í tvo
daga gáfu Mary Elizabeth og eldri
systir hennar, Ida Harriet, upp önd-
ina en aðrir sem bragðað höfðu á
góðgætinu sluppu með skrekkinn.
Rannsókn leiddi í ljós að konfekt-
molarnir höfðu innihaldið arsenik.
Faðir Mary Elizabeth tók eftir
því að rithöndinni á orðsending-
unni svipaði til rithandarinnar á ill-
gjörnu bréfunum sem Mary Eliza-
beth hafði fengið og hann síðan
geymt. Lögreglunni tókst að rekja
konfektöskjuna til verslunar í San
Francisco og þaðan til hinnar kald-
rifjuðu og bitru Cordeliu Botkin.
Cordelia Botkin neitaði sök í
málinu en fullyrðingar hennar
féllu í grýttan jarðveg. Hún var sak-
felld fyrir morð í desember 1898 og
sama niðurstaða fékkst við endur-
upptöku málsins árið 1904. Cord-
elia fékk lífstíðardóm og safnað-
ist til feðra sinna árið 1910 í San
Quentin-fangelsinu. Sjálfur hafði
John Dunning látist tveimur árum
áður, en ferill hans var þá að engu
orðinn vegna upplýsinga sem fram
höfðu komið við réttarhöldin.
Banvænn konfektmoli
n Cordelia Botkin var bandarískt morðkvendi n Hún lagði fæð á eigin-
konu fyrrverandi ástmanns síns n Biturð Cordeliu kostaði tvö mannslíf„ Sendingin innihélt
konfektöskju og
stutta orðsendingu: „Ást-
arkveðja til þín og barns-
ins.“
Bitur ástkona Samtímateikning frá réttarhöldunum yfir Cordeliu
Botkin.