Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 53
Fólk | 53Helgarblaðið 8.–10. júlí 2011
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Bolt
inn
í be
inni
Hamraborg 11 w 200 Kópavogur w Sími: 554 2166 w www.catalina.is
Tökum að okkur veislur
Um helgina spilar
HLJÓMSVEITIN SÍN
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn.
n Réttur dagsins alla virka daga
n Hamborgarar, steikar-
samlokur og salöt
n Hópamatseðlar
Boltinn í beinni
Hamraborg 11 w 200 Kópavogur w Sími: 554 2166 w www.catalina.is
Tökum að okkur veislur
Um helgina spilar
HLJÓMSVEITIN SÍN
Snyrtilegur klæðn ður áskilinn.
n Réttur dagsins alla virka daga
Hamborgarar, steika -
sa lokur og salöt
ópamatseðlar
Trúbadorinn Bjössi
úr Greifunum
John Stamos, hefurðu fengið skilaboðin? Karina Smirn-
off vill ólm dansa við þig. Atvinnudansarinn Smirnoff úr
bandarísku sjónvarpsþáttunum Dancing with the Stars
sagði í samtali við bandaríska tímaritið People á síðasta
ári að Stamos væri draumadansfélagi sinn í sjónvarps-
þáttunum. Núna hefur hún endurtekið þetta í samtali við
vefsíðuna Hollyscoop. „Mér finnst hann svo flottur, hann
hefur líka reynslu af því að vera á sviði, að dansa á Broad-
way,“ útskýrir hún í samtali við vefsíðuna.
Það er þó ekki vitað hvort Stamos hafi sjálfur einhvern
áhuga á að koma fram í þættinum Dancing with the Stars,
þar sem Hollywood-stjörnur dansa með atvinnudönsur-
um og keppa um sigur í útsláttarkeppni. Hann vildi þó
ekki koma í stað óþekktarangans Charlies Sheen í gam-
anþáttunum Two and a Half Men og sagði að það hlut-
verk passaði ekki inn í ferilinn sem hann vildi eiga. Sagð-
ist hann vera að leita að annars konar hlutverki.
Það er þó ekki ólíklegt að hann myndi vilja dansa við
Smirnoff ef hann kæmi fram í þáttunum en hún þykir ein
sú glæsilegasta í bransanum vestanhafs. Nýlega sat hún
fyrir á forsíðu karlatímaritsins Playboy
en blaðið hlaut góðar viðtökur.
Karina Smirnoff
vill John Stamos
Vill fá að dansa við Stamos:
Glæsileg Karina
Smirnoff ætti að
geta heillað John
Stamos.
Klámstjarnan Bree Olson er ekki lengur í sambúð með Char-
lie Sheen en hún vill koma einu á hreint: „Ég er samt ennþá
gyðja.“ Þetta segir hún í nýjustu útgáfu bandaríska karlatíma-
ritsins Playboy en þar ræðir hún meðal annars um sambandið
og sambandsslitin við Charlie Sheen. „Ég er bara ekki lengur
gyðjan hans Charlie.“
Meðal þess sem Olson talar um í viðtalinu við Playboy er
hvernig Sheen stóð sig í rúminu. „Hann hefur fengið mikla æf-
ingu,“ segir hún og bætir við að hann hafi verið „blíður og til-
litssamur“ þegar það skipti máli. „Hann er bara rokkstjarna.
Hann er fullur af orku. Hann er seiðandi og kynæsandi mann-
eskja, og þegar ég var með honum leið mér eins og við vær-
um eitt.“ En hvernig var að vera með Charlie og barnfóstrunni
Natalie Kenly? „Það var allt saman rugl,“ segir Olson en bætir
svo við: „Okay, við þrjú vorum saman kannski tvisvar.“
Olson hefur breytt fleiru í lífi sínu en að hætta með Char-
lie Sheen en hún segist vera hætt að leika í klámmyndum.
Hún ætlar að verða venjuleg leikkona og hún segist vera viss
um að hún geti það. Af hverju? „Því ég er svo að vinna akk-
úrat núna.“
Klámstjarnan Bree Olson á forsíðu Playboy:
Charlie Sheen var
góður í rúminu
Ekki neinn óþekktarormur Emma
Watson hefur aðeins einu sinni orðið
drukkin en mótleikari hennar, Daniel
Radcliffe, átti við mikinn áfengisvanda
að stríða.
Hefur einu sinni
orðið drukkin
Emma Watson alveg jafn saklaus og við héldum:
Harry Potter-leikkonan Emma Watson
viðurkenndi í viðtali hjá spjallþátta-
stjórnandanum David Letterman að hún
hefði orðið drukkin – einu sinni! Let-
terman spurði hana út í áfengisnotkun
en í síðustu viku greindi Daniel Rad cliffe,
mótleikari hennar í kvikmyndunum um
galdrastrákinn Harry Potter, að hann
hefði leitað mikið í áfengi til að takast á
við frægðina.
„Þetta er ekki eitthvað sem ég þekki
eitthvað raunverulega til,“ sagði hún
vandræðalega. „Ég veit ekki betur en að
hann hafi aldrei tekið sér veikindadag.
Hann var ótrúlega mikill fagmaður og
bara frábær,“ bætti hún við. Emma Wat-
son og Daniel Radcliffe hafa leikið á móti
hvort öðru frá því að fyrsta Harry Potter-
kvikmyndin var gerð fyrir 11 árum.
Þau eru hvort um sig einir fræg-
ustu unglingar heims en síðasta mynd-
in í Harry Potter-seríunni var frumsýnd
hér á landi á miðvikudag. Myndirnar
eru byggðar á bókum J.K. Rowling um
galdrastrákinn Harry Potter en bækurn-
ar eru einar þær vinsælustu sem komið
hafa út á síðustu árum.