Fréttatíminn - 10.10.2014, Side 4
siggaogtimo.is
Hvítagull og demantar
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
NA-strekkiNgur, eN þurrt og
úrkomulAust víðAst. svAlt.
HöfuðborgArsvæðið: Hægur
vindur og Heiðríkja.
smá slyddA um A-til, eN bjArt
sv-lANds. kólNANdi.
HöfuðborgArsvæðið: Skýjað
að meStu, en þurrt.
sNjóAr s- og A-lANds, eN ANNArs
Að mestu úrkomulAust.
HöfuðborgArsvæðið: na-gola og
Skýjað með köflum.
kólnar enn
og frystir víða
það eru fremur kaldir og hauslegir dagar
framundan, en við erum á meðan laus við
masta hamaganginn í veðrinu. að mestu
úrkomulaust í dag, en víða frystir yfir
nóttina. Á morgun er spáð rigningu eða
slyddu frá lægðabólu Sa- og
a-lands, en til sunnudags kólnar
enn frekar. þá þarf að fylgjast
með mögulegum snjókomubakka
sem gæti náð yfir mest allt S- og
a-land, líklega hvítnar einnig í
byggð. eftir helgi er að sjá að
áfram verði fremur svalt, en
aðgerðarlítið.
7
4 5
5
8
4
1 1 1
5
3
-1 -3 -1
0
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
19
prósent samdráttur hefur orðið á veltu
íslenskra bókaútgefenda frá árinu
2008. þetta er samkvæmt tölum Hag-
stofunnar.
593
milljónir króna þarf rÚv að greiða af
lánum sínum og skuldabréfi árlega.
Tap hjá DV
Á síðasta ári nam tap á
rekstri útgáfufélags
DV ríflega 37 millj-
ónum króna borið
saman við tap
upp á 65 millj-
ónir króna á
árinu 2012.
Ekki dauður enn
Hagnaður Laugarásvídeós nam 23
milljónum króna á síðasta ári, en árið
á undan var 8,1 milljónar króna tap.
gunnar jósefsson er aðalmaðurinn
þar á bæ.
Víkingamynd
Balta aftur á dagskrá
kvikmyndarisinn
universal Studios
hefur keypt rétt-
inn á kvikmynd
Baltasars
kormáks, vikingr.
Baltasar skrifaði
handritið ásamt
Ólafi Agli Egils-
syni. verkefnið
hefur verið á
teikniborðinu í
áratug.
vikan sem var
20
prósent íslenskra barna
í 4.-7. bekk grunnskóla
eru yfir kjörþyngd.
Þ að eru nokkrir aðilar sem hafa verið og eru að skoða þetta,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri.
Enn bólar ekkert á því að efstu tvær
hæðirnar í Útvarpshúsinu í Efstaleiti
verði leigðar út eins og boðað var í
sparnaðarskyni sumar. Þess í stað er
til skoðunar að selja allt húsið, lóðina
og aðrar eignir. Fjórða og fimmta hæð
hússins voru auglýstar til útleigu í júlí og
samkvæmt útboði hjá Ríkiskaupum áttu
væntanlegir leigutakar að taka við þeim
ekki síðar en 1. október. Á heimasíðu
Ríkiskaupa kemur hins vegar fram að
hætt hafi verið við útboðið.
„Það komu engin fullnægjandi tilboð.
Raunar komu engin formleg tilboð,
bara einhverjar spekúlasjónir,“ segir
Guðmundur Hannesson, forstöðumað-
ur ráðgjafarsviðs hjá Ríkiskaupum,
spurður um ástæðu þess að hætt var við
útboðið. Anna Bjarney Sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri rekstrar, fjármála og
tæknisviðs RÚV lét ekki ná í sig þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir á miðvikudag og
fimmtudag.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum
hafa efstu tvær hæðir Útvarpshússins
þegar verið rýmdar og hefur útvarps-
stjóri til að mynda flutt skrifstofu sína
sjálfur. Magnús Geir útvarpsstjóri segir
að nú sé verið að skoða framtíðarfyrir-
komulag húsnæðismála RÚV og þar
á meðal sölu Útvarpshússins. „Það
blasir við að RÚV er yfirskuldsett
og þar er margra ára saga á bak
við. Framtíðarsýnin er því heild-
rænt í skoðun og því er eðlilegt að
skoða fleiri möguleika en bara að
leigja þessar hæðir út. Nokkrir
aðilar hafa lýst yfir áhuga
á kaupum á húsi og lóð í
heild sinni. Það er þó rétt
að ítreka að stjórn RÚV
hefur enn enga form-
lega ákvörðun tekið
um hvaða leið verður
farin.“
Höskuldur daði
magnússon
hdm@frettatiminn.is
Fjölmiðlar til skoðunar að selja ÚtvarpshÚsið og lóð Þess
Nokkrir áhugasamir um
að kaupa Útvarpshúsið
engin tilboð bárust þegar efstu tvær hæðir Útvarpshússins voru auglýstar til leigu í sumar og
hætt var við útboðið. nú er til skoðunar að selja allt húsið og lóð þess. Útvarpsstjóri segir þetta
eðlilegt í ljósi fjárhagsstöðu RÚV og nokkrir aðilar hafi lýst áhuga á kaupunum.
engin tilboð bárust þegar efstu tvær hæðir Útvarpshússins voru auglýstar til leigu í sumar. nú er til skoðunar að selja húsið og
lóð þess. ljósmynd/Hari
magnús geir
þórðarson út-
varpsstjóri.
4 fréttir Helgin 10.-12. október 2014