Fréttatíminn - 10.10.2014, Side 28
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu
og fáðu Alta til prufu í vikutíma
Sími 568 6880
Prófaðu ALTA frá Oticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Góð heyrn er okkur öllum mikilvæg. ALTA eru ný
hágæða heyrnartæki frá Oticon sem gera þér kleift
að heyra skýrt og áreynslulaust í öllum aðstæðum.
ALTA heyrnartækin eru alveg sjálfvirk og hægt er
að fá þau í mörgum útfærslum.
Missir á meðgöngu breytir
manni til frambúðar
Í kjölfar missis á með-
göngu ákváðu þrjár konur
að gera þyrfti endurbætur
á duftreitnum í Fossvogs-
kirkjugarði. Styrktarfélagið
„Gleym mér ei“ var stofnað
og síðan hafa þær ekki hætt
að láta sig málefnið varða.
Anna Lísa Björnsdóttir er
ein þessara kvenna en hún
á í dag lítinn dreng eftir að
hafa farið í smásjáraðgerð
á leghálsi. Þessi nýstárlega
aðgerð hefur verið fram-
kvæmd þrisvar á Íslandi af
kvensjúkdómalækninum
Jóni Ívari Björnssyni, sem
starfar við Háskólasjúkra-
húsið í Harvard.
A nna Lísa missti son sinn árið 2011 og í kjölfarið greindist hún með legháls-
bilun. Leghálsbilun veldur fóstur-
missi í um það bil 2% tilfella þeirra
sem missa á meðgöngu og síðan á
sjötta áratug síðustu aldar hefur
verið framkvæmd inngripsmikil
aðgerð á leghálsi til að koma í veg
fyrir missi. Í þá daga voru konur í
nokkra daga inni á spítala og í allt
að átta vikur að jafna sig en í dag
er hægt að framkvæma kviðsjár-
aðgerð á leghálsinum með smásjá
sem er ekki eins mikið inngrip í
líkama og gerir konum kleift að
fara heim samdægurs. Síðan árið
2007 hefur kvensjúkdómalæknir-
inn Jón Ívar Einarsson sérhæft sig
í aðgerðinni á kennslusjúkrahúsi
Harvardsjúkrahússins Brigham
and Women’s Hospital, þar sem
hann starfar. Jón Ívar framkvæmdi
aðgerðina á Önnu Lísu árið 2011
og hefur síðan hjálpað tveimur öðr-
um konum hérlendis. „Eftir að hafa
kynnt mér þessa gömlu aðgerð á
leghálsi fannst mér hún ekki koma
til greina, fannst hún of inngrips-
mikil og gamaldags og enn síður
þegar ég frétti af þessari aðgerð
sem Jón Ívar framkvæmir í Banda-
ríkjunum. Hún er mjög árangurs-
rík og engan veginn inngripsmikil
og mér fannst alls ekki koma til
greina að reyna að verða barns-
hafandi aftur fyrr en ég væri búin
að fara í þessa aðgerð. Við höfðum
bara samband við Jón Ívar beint
og hann bauðst til að gera þetta í
næsta fríi á Íslandi.“
Hræðslan eftir missinn
Anna Lísa segir það auðvitað ekki
vera auðvelt að ganga í gegnum
aðra meðgöngu eftir að hafa misst.
Það fylgir því gríðarleg hræðsla og
óöryggi. „Ég hafði hellt mér út í upp-
lýsingaöflun við gerð bæklinganna fyrir Landspítal-
ann og vissi því að það er enginn tími öruggur þegar
kemur að því að missa og það er aldrei hægt að vera
100% öruggur um það að barnið komi með heim
lifandi af fæðingardeildinni. En að sama skapi var
alveg sérstaklega vel hugsað um mig í meðgöngu-
eftirlitinu á Landspítalanum þar sem ég var í áhættu.
Við þurftum að mæta reglulega og það var mikið að-
hald. Það er svo ofsalega góð þjónusta þar og gott
starfsfólk, bæði læknar og sálfræðingar, sem verður
til þess að manni fór að líða í betur í svona öruggum
höndum.“
Anna Lísa segist hugsa daglega til Örlygs, en það
er nafnið sem þau hjónin gáfu syni sínum. Hún segir
svona reynslu breyta lífinu til frambúðar. Björn kom
með sólina inn í líf mitt en ég á samt aldrei eftir að
hætta að syrgja Örlyg. Ég varð móðir árið 2011 þótt
það sé ekki áþreifanlegt og ég lít svo á sem ég eigi á
tvo syni, það verður alltaf þannig í mínum huga.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Anna Lísa Björnsdóttir með kraftaverkabarnið sitt. Anna
Lísa fór í aðgerð á leghálsi hjá Jóni Ívari Einarssyni kven-
sjúkdómalækni árið 2011 og varð barnshafandi að Birni
syni sínum tveimur árum síðar. Mynd/Hari
Styrktarfélagið „Gleym mér ei“ var stofnað af þremur
mæðrum sem hafa misst á meðgöngu, þeim Önnu Lísu
Björnsdóttur, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur og Þórunni
Pálsdóttur. „Til að byrja með vildum við safna fyrir
endurbótum á duftreitnum í Fossvogskirkjugarði, en þar
er sérstakur duftreitur fyrir fóstur og börn sem fæðast
andvana. Það er yndislegt og alveg nauðsynlegt að hafa
einhvern stað til að heimsækja þar sem litlu krílin eru.
Svo vatt samstarf okkar upp á sig, við gerðum bækling
fyrir Landspítalann um missi á meðgöngu og
fórum í samstarf við Aurum við gerð skartgripalínunnar
„Gleym mér ei,“ segir Anna Lísa. Hugsunin á bak við
skartgripalínuna er að gefa fólki tækifæri til þess að
styðja málstaðinn ásamt því að eignast eða gefa fallegan
skartgrip sem gerir fólki kleift að tengja minningu um
látinn ástvin við eitthvað áþreifanlegt, en það er oft
stór hluti af sorg foreldra sem missa á meðgöngu. „Svo
ákváðum við að skipuleggja minningarstund 15. október
ár hvert, en það er alþjóðlegur dagur fyrir missi á með-
göngu og skömmu eftir fæðingu.“
Minningarstund verður klukkan 21:00 í Bústaðakirkju
þann 15. október næstkomandi.
Missir á
meðgöngu
Fósturlátum er
oftast skipt í
snemmkomin og
síðkomin fósturlát.
Með snemm-
komnum fóstur-
látum er átt við þau
sem verða á fyrsta
þriðjungi með-
göngu, þ.e. fyrstu
12 vikum hennar en
með síðkomnum
fósturlátum er átt
við þau sem verða
eftir 12. viku og til
og með 22. viku
meðgöngu. Eftir
22. viku er talað um
andvana fæðingu.
Uppgefnar tölur
um fósturlát eru
nokkuð á reiki en
algengt er að talað
sé um að meðganga
endi með fósturláti
í 10-20% greindra
þungana sem þýðir
að 1 af hverjum 10
og allt upp í 1 af
hverjum 5 með-
göngum endi með
slíkum missi. Missir
á meðgöngu verður
því að teljast mjög
algengur. Ef reynt
er að heimfæra
þessar tölur upp
á Ísland, þar sem
fæðast rúmlega
4000 börn á ári,
má áætla að a.m.k.
440 og allt upp í
1000 meðgöngur
endi með fósturláti
á ári hverju. Þannig
má sjá að missir á
meðgöngu snertir
hundruð fólks hér á
landi árlega.
Tekið af vef Ljó-
mæðrafélagsins.
28 úttekt Helgin 10.-12. október 2014