Fréttatíminn - 10.10.2014, Page 42
heimili & hönnun Helgin 10.-12. október 201442
Hátún 6a • 105 Rvk • Sími: 552 4420 • fonix.is
Mikið úrval af heimilistækjum
Kæli og frystiskápar
Spanhelluborð
Blástursofnar
Uppþvottavélar
Hátún 6a • 105 Rvk • Sími: 552 4420 • fonix.is
Mikið úrval af heimilistækjum
Kæli og frystiskápar
Spanhelluborð
Blástursofnar
Uppþvottavélar
Heimilis-
tækjadagar
20%
afsláttur
„Litríkir hlutir ná oft athygli minni.“
Hún segir það forréttindi að vera með skrifstofu.
É
g vil helst allt-
af hafa nota-
lega birtu og
kertaljós. Lit-
ríkir hlutir ná
oft athygli minni og sér-
staklega ef þeir eru bleikir
eða fjólubláir. Líklega vil
ég hafa bleika litinn til að
fá mýkt og kvenleika inn
á heimilið því ég er eina
konan á heimilinu, á móti
fjórum karlmönnum,“ seg-
ir Lára G. Sigurðardóttir,
læknir og doktorsnemi í
lýðheilsuvísindum. Hún
býr í Garðabænum ásamt
þremur sonum sínum og
eiginmanni. „Ég hef lagt
mikið upp úr því að dreng-
irnir uni sér saman og séu
til staðar fyrir hvern ann-
an þegar eitthvað bjátar á.
Eiginmaðurinn er sjálfur
natinn við drengina og er
betri en ég í mörgum upp-
eldishlutverkum.“
Það nýjasta sem keypt
var inn á heimilið er
standlampi frá 1972, loft-
ljós úr Góða hirðinum og
svefnsófi frá Línunni. „Ég
var að breyta „húsbónda-
herberginu“ sem orðið
var að ruslageymslu í
virðulegt gestaherbergi.“
Hún segir það fara eftir til-
efninu hvert hennar eftir-
lætisherbergi er en hún
segir það vera forréttindi
að hafa skrifstofu. „Ég
vinn þar gjarnan eftir að
börnin eru sofnuð. Mið-
strákurinn minn er búinn
að óska eftir sérherbergi
og því þarf ég líklega að
pakka saman skrifstof-
unni á næstunni.“
Lára heldur sérstaklega
upp á bókastandinn sem
hún smíðaði á smíðanám-
skeiði í Iðnskólanum.
„Bókahillan frá Epal er
líka í svolitlu uppáhaldi
því hún geymir bækur um
flest áhugamálin mín. Ætli
ég haldi ekki samt mest
upp á vinnuskjáinn minn
og fartölvuna.“ Natuzzi
sófi er eftirlætishúsgagn
Láru en henni finnst mjög
notalegt að sitja í honum
og lesa. „Ég hef samt lært
að tengjast ekki persónu-
lega hlutum á heimilinu
eftir að Bing Bang ljósið
okkar brotnaði í barnaaf-
mæli. Við höfðum hengt
það upp fyrr um daginn.“
Lára er með marga
bolta á lofti en hún stefnir
á að verja doktorsritgerð-
ina sína næsta vor. „Sam-
hliða doktorsnámi hef ég
unnið fyrir Krabbameins-
félag Íslands í ýmsum
störfum. Nýlega tók ég við
starfi sem formaður Fag-
og fræðsluráðs Krabba-
meinsfélagsins. Auk þess
hef ég ásamt Sigríði Örnu
fylgt eftir bókinni „Útivist
og afþreying fyrir börn“.
Við höfum einnig haldið
fyrirlestra þar sem við
fjöllum um hvað fjölskyld-
an getur gert til að skapa
góðar minningar.“
Hef lært að
tengjast hlutum
ekki persónulega
Lára G. Sigurðardóttir
býr í Garðabænum ásamt
þremur sonum sínum og
eiginmanni. Lára lærði
að tengjast ekki hlutum
persónulega eftir að
Bing Bang ljósið þeirra
brotnaði í barnaafmæli.
Ljósmynd/Hari