Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað Skilnaðurinn fyrir dóm Grétar Rafn Steinsson, leikmaður enska knattspyrnuliðs- ins Bolton, deilir nú við Manuelu Ósk Harðardóttur um umgengnis- rétt yfir dóttur þeirra. Deilurnar hafa orðið til þess að Grétar hefur ekki gefið kost á sér í íslenska lands- liðið í knattspyrnu vegna „baráttu utan vallar.“ Manuela getur feng- ið helming af eignum þeirra hjóna en hún hefur verið heimavinnandi húsmóðir frá því hún giftist Grétari. Samkvæmt breskum réttarvenjum ætti hún að geta fengið þessa kröfu sína í gegn og gott betur. Heimildir DV herma að Grétar berjist fyrir því að fá að umgangast kornunga dóttur þeirra. Milljarða króna tap Út- sýnis- staðurinn Perlan í Öskjuhlíð verður aug- lýstur til sölu á næstu vikum eða mánuðum, að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upp- lýsingafulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur, eiganda hússins. Hitaveita Reykjavík- ur, fyrirrennari Orkuveitu Reykjavíkur, byggði húsið upphaflega árið 1991. Orkuveitan mun hins vegar halda eftir hitaveitutönkunum fimm sem Perlan er byggð á enda eru þeir not- aðir í starfsemi Orkuveitunnar. Salan á Perlunni er liður í þeim aðgerðum Orkuveitunnar að selja eignir fyrir um 10 milljarða króna til að reyna að rétta af taprekstur stofnunarinnar. Stuðst er við þá meginhugmynd við eignasöl- una að selja eignir sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Ofsótt af óðum kærasta „Hvað á ég að gera? Á ég að sitja hér og lifa í ótta þar til hann finnur sér nýtt fórnar- lamb?“ spurði kona á fertugs- aldri sem lagði fram kæru á hend- ur fyrrverandi kærasta sínum til tveggja ára í vikunni. Sambandinu lauk endanlega þegar hann nef- braut hana síðasta laugardag fyrir framan sjö ára gamla dóttur hennar. Þar sem málið er í rann- sókn hjá lögreglunni vill konan ekki koma fram undir nafni að svo stöddu, því hún óttast að það gæti eyðilagt fyrir sér. Hún lifir þó ekki í skömm vegna þess sem gerðist heldur segir öllum frá því. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3 P jakkur er mjög góður í alla staði,“ segir Elísabet Guð- mundsdóttir, íbúi á Akur- eyri, um hundinn sinn. Akureyrarbær hefur sett henni þá úrslitakosti að annaðhvort losi hún sig við hundinn eða flytji úr íbúðinni sem hún býr í. Elísabet býr í blokk á vegum bæjarins en hún seg- ir engrar óánægju gæta meðal íbúa blokkarinnar vegna hundsins. „Það eru allir íbúarnir búnir að skrifa upp á að ég megi hafa hundinn,“ seg- ir Elísabet sem bætir við að hún sé mjög þakklát fyrir þann stuðning sem nágrannar hennar hafa sýnt henni í málinu. Jón Heiðar Daðason, húsnæðis- fulltrúi Akureyrarbæjar, segir málið vera í ákveðinni biðstöðu. „Gælu- dýrahald er bannað í leiguíbúðum Akureyrarbæjar, og það kemur fram í leigusamningunum. Það er hins vegar verið að skoða málið og hvort breyta eigi reglunum,“ segir hann. Margra mánaða barátta Elísabet flutti inn í íbúðina í byrj- un desember síðastliðins en það var þremur mánuðum eftir að hún flutti inn að hún fékk fyrstu skila- boðin frá Akureyrarbæ um að hún mætti ekki vera með dýr í íbúðinni. „Ég fékk bréf eftir þrjá mánuði en þá var ég nýkomin úr stórri magaaðgerð þannig að ég var ekki í neinu standi til að takast á við þetta,“ útskýrir hún. Málið hefur síðan velkst um í kerfinu og hefur Elísabet meðal annars far- ið á fund með bæjarfulltrúa á Akur- eyri vegna málsins. Þar segist hún hafa fengið vilyrði fyrir því að fá að hafa hundinn áfram í íbúðinni. Það hefur þó ekki gengið eftir og er enn pressað á hana að losa sig við hund- inn eða yfirgefa íbúðina. „Ég er búin að vera að kíkja eftir íbúðum hérna í marga mánuði og það er bara ekk- ert að fá nema einhverjar risaíbúðir sem ég hef ekkert við að gera,“ segir Elísabet. Treystir mjög á hundinn „Þetta er fjögurra ára border collie- hundur. Ég treysti rosalega mikið á hann,“ segir Elísabet. Geðlæknir hennar hefur meðal annars skrifað bréf til bæjarins þar sem hann seg- ir að ekki væri ráð að henni verði gert að losa sig við hundinn. Elísa- bet býr ein með hundinum þannig að hann er eini félagsskapurinn sem hún getur treyst á. „Hann er að öllu leyti minn fasti punktur í lífinu,“ seg- ir hún. Elísabet er langt frá því sátt við þá meðferð sem mál hennar hefur fengið hjá bænum og segir sárt að horfa upp á hvernig bærinn gefi öðrum séns sem ekki standi við skuldbindingar eins og að borga leigu. „Mér finnst þetta helvíti hart miðað við að afdalafyllibytt- um sem borga ekki leiguna er ekki hent út nema eftir marga, marga mánuði, þegar leigan er komin upp í hundraða þúsunda skuld,“ segir hún. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is n Akureyrarbær hefur sett íbúa úrslitakosti n Stendur í skilum en verður borinn út ef hundurinn fer ekki n Bærinn segir málið í skoðun Hundaeigandi hrakinn burt „Hann er að öllu leyti minn fasti punktur í lífinu. Treystir á hundinn Elísabet býr ein með hundinum Pjakki. Mynd RAgnHeiðuR guðMundSdóTTiR Kalli í Pelsinum: Meint brot enn í rannsókn Engin ákæra hefur verið gefin út á hendur Karli Steingrímssyni, sem oftast er kallaður Kalli í Pelsinum. Þrír bankar undir forystu slitastjórn- ar Glitnis kærðu Karl til efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra fyrir nokkru. Rannsókn hófst í málinu eftir að kæran barst embættinu og var Karl meðal annars kallaður til yfirheyrslu. Málið virðist vera eitt fjölmargra mála sem embættið hefur ekki náð að sinna. Bankarnir þrír hafa ekki fengið neinar upplýsingar um stöðu málsins. Greint var frá málinu í DV í janúar árið 2010 en þar kom fram að 14. des- ember árið 2009 hafi Aron Karlsson, sonur Karls, skrifað undir tilboð frá Auro Investment Partners í Bandaríkj- unum um kaup á fasteign í miðbæn- um. Það félag var þá í eigu Indverja sem höfðu nokkur tengsl við landið og höfðu haft augastað á byggingunni með hugsanlegan hótelrekstur í huga. Umsamið kaupverð var 575 milljón- ir króna. Sama dag var undirritaður kaupsamningur félags í eigu þeirra feðga um húsnæðið en það var útskýrt á þann hátt að eignin þyrfti að vera í félagi sem ekki hefði aðrar skuldbind- ingar en vegna húsnæðisins. Samhliða þessum viðskiptum gerðu feðgarnir samning við kínverska sendiráðið hér á landi um kaup á hús- inu fyrir jafnvirði 870 milljóna króna. Munurinn á samningunum við ind- versku fjárfestana og kínverska sendi- ráðið var því 300 milljónir króna. Málið snýr að viðskiptum Karls við kínversk stjórnvöld með húseign sem stendur við Skúlagötu 51. Húsið var í eigu Karls en veðsett fyrir mörg hundruð milljónir króna hjá Arion banka, Glitni og Íslandsbanka. Á sama tíma og Karl samdi við kínversk stjórnvöld kynnti hann talsvert lægra tilboð frá indverskum fjárfestum fyrir lánardrottnum sínum. Bankarnir sem kært hafa Karl telja sig hafa verið blekkta í söluferlinu og að félag í eigu Karls, sem sá um eignarhald hússins, hafi ætlað að skjóta undan hundruð- um milljóna króna. Þegar upphaflegi kaupsamning- urinn vegna fasteignarinnar við ind- versku fjárfestana var kynntur sam- þykktu bankarnir þrír að aflétta öllum veðum í fasteigninni um leið og 575 milljónirnar yrðu lagðar inn á reikn- ing í Arion banka. Ákváðu bankarnir að þeir myndu skipta með sér sölu- verðinu í samræmi við þau veð sem þeir áttu í fasteigninni. Arion banki átti að fá 239 milljónir króna upp í kröfur sínar, Íslandsbanki 155 millj- ónir króna og Glitnir liðlega 180 millj- ónir króna. – VERKIN TALA Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 www.velfang.is • velfang@velfang.is Fr um Nýtt og traust umboð fyrir á Íslandi varahlutir þjónusta verkstæði vélar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.