Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 26
K atrín Júlíusdóttir iðnaðar- ráðherra steig á dögunum stórt skref sem gefur von um að Ísland verði siðbætt. Ráð- herrann fjarlægði á heilu brettu mis- vel þokkaða stjórn Byggðastofnunar og skipaði þess í stað stjórnarmenn á faglegum grunni. Meðal þeirra sem lentu í siðbótarkvörn ráðherrans eru ráðherrasonurinn Bjarni Jónsson og Sturla Böðvarsson, fyrrverandi ráð- herra og forseti Alþingis. Báðir þess- ir aðilar hafa verið umdeildir vegna þeirrar velþóknunar sem þeir njóta af hendi hins opinbera. Eins og DV hefur greint ítarlega frá hefur Sturla setið beggja vegna borðsins. Sú volaða stofnun sem hann stýrði lánaði stórfé til einka- fyrirtækisins Ökugerðis Íslands, sem Sturla stjórnar líka. Einkafyrir- tæki Sturlu hefur að markmiði að koma upp ökukennslu í hrauninu á Reykjanesi. Sturla segist hafa vikið af fundum við afgreiðslu mála sem snúa að einkafyrirtækinu. Það breyt- ir ekki þeim spillingarfnyk sem legg- ur af öllu málinu. Það var farsælt af Katrínu ráðherra að losa skattgreið- endur og Byggðastofnun við þann mann. Rekstur Byggðastofnunar er í kaldakoli. Milljarða vantar til að hún geti skilað því hlutverki sínu að efla byggð víðar á landinu en í hraun- inu á Reykjanesi. Sú stjórn sem var fjarlægð var pólitískt skipuð með til- heyrandi hrossakaupum. Stofnunin er á forræði iðnaðarráðherra sem þó hafði lítil sem engin tök á því að hafa áhrif á hvernig stofnuninni var beitt. Pólitísku gæðingarnir fóru sínar eig- in leiðir með þeim sýnilegu afleið- ingum að stofnunin var í aðra rönd- ina siðlaus og stefnulaust rekald. Framganga Vinstri grænna í þessu máli er með endemum. Þessi samstarfsflokkur Katrínar ráðherra hefur lagst harkalega gegn stjórn- arskiptunum. Allur þingflokkur- inn ályktaði í þá veru að ráðherra byggðamála hefði gengið út fyrir öll mörk með því að fjarlægja gamla Ís- land úr Byggðastofnun. Þetta gerist þótt Katrín hafi í vor látið samstarfs- flokkinn vita með tölvuskeyti um áform sín og ítrekað þau síðsumars án þess að fá viðbrögð fyrr en allt var um seinan. Aðgerðir ráðherrans til siðbótar eru ljós í myrkri inngró- innar íslenskrar spillingar. Það er ástæða til að óska Katrínu til ham- ingju með það heillaspor sem hún steig í þágu siðbótar Íslands. Vinstri grænir verða jafnframt að hugsa sinn gang vandlega. Stjórnmálaaflið sem þóttist vilja gera Ísland betra er kom- ið í ógöngur og er vart stjórntækt lengur vegna blindu á rétt eða rangt. Spillingaröflum verður að eyða. Ef allir ráðherrar hugsuðu eins og Katr- ín yrði Íslandi betur borgið en áður. 26 | Umræða 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Siðbót katrínar Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar: Atli fundinn n Nokkrar áhyggjur hafa dúkkað upp vegna þess að fátt hefur heyrst af óháða þingmanninum Atla Gíslasyni í sumar. Þing- maðurinn stýrði nefnd þeirri sem skipulagði lands- dóm yfir Geir H. Haarde, fyrrver- andi forsætis- ráðherra. Hermt er að þingmað- urinn hafi talið að nefndarstarfið yrði honum til mikils vegsauka en svo varð þó ekki. Hrökklaðist Atli í sumarfrí. Stuðn- ingsmönnum hans til gleði dúkkaði hann upp í Bítinu á Bylgjunni um miðja viku. Atli er því fundinn. Vinsæll skúrkur n Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN, hefur svo sannarlega slegið í gegn eftir að hann var dæmdur í fangelsi fyrir skattsvik. Hann er reglulega í álits- gjöf í þættinum Reykjavík síð- degis þar sem hann vegur og metur mann- kosti stjórn- málamanna og annarra. Þannig uppnefndi hann Guðmund Steingrímsson og kall- aði framsóknarhomma. Ráðherrar og fulltrúar ríkisins, sem Ingvi var dæmdur fyrir að hlunnfara, streyma í viðtöl til hans. Á meðal þeirra sem mætt hafa eru Árni Páll Árnason efna- hagsráðherra og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Bjarni bjargar sér n Fæstir botna í þeim viðsnúningi Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, að vilja hætta við að leyfa þjóðinni að taka afstöðu til aðildar að ESB. Innan Sjálfstæð- isflokksins er sú skýring gjarnan á takteinum að Bjarni hafi fundið sig knúinn til að koma þannig til móts við öfgaöfl í flokknum. Þar ráði ekki síst að jákvæð afstaða formannsins til að semja um Icesave hafi veikt hann mjög. Hörð andstaða við ESB sé því einungis til að bjarga eigin skinni og tryggja endurkjör sem for- maður. Ekki Bingi n Björn Ingi Bjarnason, fangavörður og formaður Önfirðingafélagsins og Hrútavinafélagsins, hefur verið ráð- inn kynningarfulltrúi Vestfirska for- lagsins sem heldur úti öflugri útgáfu á bókum sem tengjast Vest- fjörðum. Björn Ingi á rætur vest- ur á fjörðum en hann ólst upp á Flateyri og hefur haldið tryggð við þann stað síðan. Nafni hans, Björn Ingi Hrafnsson vefkóngur, er einnig alinn upp á Flateyri að hluta. Það vakti því athygli þegar vefur hans, eyjan.is, hlekkjaði á frétt með fyrir- sögninni ,,Björn Ingi til Vestfirska forlagsins“. Héldu þá einhverjir að Bingi hefði gefist upp á vefmiðlun- um en svo er þó ekki. Sandkorn E itt sinn borguðum við tíund til kirkjunnar, eða tíu prósent af öllu. Nú borgum við tuttugu prósent af öllu í vexti til bank- anna. Þau tíðindi eru orðin að bank- arnir eru kirkja nútímans og trúar- brögðin eru neysluhyggja. B ankarnir eru nánast almátt- ugir. Jesús tók fimm brauð og tvo fiska og mettaði þúsund- ir manna með töfrabrögðum sínum. Bankarnir seldu óveiddan fisk í sjónum. Og eftir að allur óveiddur fiskur í sjónum var seldur fengu þeir sem keyptu hann lán út á óveidda fiskinn. Þannig urðu til miklu meiri verðmæti en þegar Jesús margfald- aði tvo fiska. Betri eru tveir fuglar í hendi en einn í skógi. Nú er óveiddur fiskur og lán út á óveiddan fisk mik- il auðlegð í bókhaldi bankanna. Þess vegna er ekki hægt að veita þjóðinni eignarrétt yfir óveiddum fiski. Bank- inn segir, að eftir 15 ár þegar óveidd- ur fiskur verður almannaeign, muni enginn fiskur verða veiddur. A llt kemur frá bankanum og á endanum tekur bankinn allt. Ef bankinn tapar tapar þú. Ef bankinn græðir græðir þú. Þess vegna er það svo, að almenn- ingur tapar stórfé á því að eignast óveidda fiskinn. Birtingarmyndir bankans eru alls staðar. Án bankans skapast engar tekjur. Bankinn er allt- umvefjandi. Í upphafi var bankinn. Og bankinn var Guð. Án bankans er ekkert. B ankinn skapar peninga. Hann getur lánað tíu sinnum meira en hann á. Í húsi bank- ans eru margir þjónustu- þættir. Hann leiddi okkur í gegnum eyðimörkina og veitti okkur lán. Vegir hans eru órannsakanlegir. Bankaleynd tryggir að bankinn er alsjáandi og alvitur, ólíkt okkur hin- um. Bankinn er Guð nútímans. Hér eru boðorð hans: 1. Ég er lánardrottinn þinn sem fjár- magnaði húsnæðið þitt. Þú skalt ekki aðra banka hafa. Hafir þú ekki nógu marga þjónustuþætti innan bankans þíns borgarðu hærri vexti. 2. Þú skalt ekki leggja nafn bankans við hegóma, annars verður þér stefnt fyrir höfundarréttarbrot eða meið- yrði. 3. Minnstu þess að vinna á hvíldar- deginum til að fá borguð yfirvinnu- laun svo þú greiða megir yfirdrátt- arvextina. 4. Heiðra skaltu föður þinn og móður þína. Engir eru betri ábyrgð- armenn að lánum en foreldrar. 5. Þú skalt ekki morð fremja, nema viðkomandi hafi keypt launavernd hjá bankanum sem tryggir áfram- haldandi launagreiðslur í sjö ár eft- ir andlát, sem lágmarkar fjárhags- legt tjón aðstandenda hins myrta. 6. Þú skalt ekki drýgja hór að und- angengnum kaupmála. 7. Þú skalt ekki stela. Ef bankinn þinn stelur skal það nefnast vextir eða verðtrygging. 8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum, nema þú gegnir stöðu upplýsingafulltrúa bankans. 9. Þú skalt girnast hús náunga þíns. 10. Þú skalt girnast konu náunga þíns, bíl hans, föt hans, glingur og græjur, og allt það sem náungi þinn á. Kannski hljómar þetta eins og Sat- an frekar en Guð, en við lifum í hans ríki, hvor sem hann er, og fylgjum hans reglum. Bankaorðin tíu Svarthöfði U m daginn fóru bresk ung- menni útí óeirðir og mót- mæli sem fengu eiginlega á sig afþvíbara-stimpil. En undirrótin nærist eflaust ekki ein- vörðungu á skemmdarfíkn og árás- arhneigð. Hvatinn er ábyggilega sóttur í hinn almenna yfirgang þess sem gárungarnir kalla markað. En þegar talað er um stjórntæki mark- aðarins þá er átt við fyrirbæri sem heitir peningavald. Þetta hátterni ungmennanna í Bretaveldi vakti óskipta fyrirlitn- ingu, þeirra sem fréttirnar fluttu. Og ef fréttamiðlar eru skoðaðir, kemur í ljós, að þar hneykslast menn hver um annan þveran yfir því að ung- mennum skuli yfir höfuð koma til hugar að mótmæla bágu ástandi. En mig sjálfan hneykslar þó alltaf annað veifið, hversu sjaldan fólk á Vesturlöndum mótmælir af hörku. Óréttlætið er nefnilega svo fárán- lega augljóst. Ég hef lengi haldið því fram, að lýðræði sé ekkert annað en snuð sem peningavaldið stingur upp í lýðinn. Okkur er sagt að við fáum að velja þingmenn; menn sem síð- an eru sagðir vernda dómsvald, lög- gjafarvald og framkvæmdavald. En svo kemur í ljós, að þessum mönn- um er stjórnað af hinu eina sanna valdi; peningavaldinu. Og það vald stjórnar svo auðvitað fjölmiðlum. Fagrar hugsjónir ná sjaldnast fram að ganga, því hér í heimi er það pen- ingavaldið sem alltaf nær að stjórna öllu. Skýrt dæmi um ofurvald pening- anna, opinberast okkur í fréttum af nýskeðum viðburðum: Þegar leik- skólakennarar kröfðust launahækk- unar (á grundvelli réttlætis), básún- aði fréttamannakórinn, að nú yrði samfélagið að hækka skatta. En hér erum við að tala um launahækkun sem kostar samfélagið ekki nema örfáar milljónir á ári. En, kæru vin- ir, þegar menn (sem með réttu ættu að vera í fangelsi), gera stórfyrir- tæki gjaldþrota og hirða útúr þeim alla peninga, þ.e.a.s. þegar tuga, ef ekki hundraða milljarða kostnaður fellur á samfélagið, þá má ekki einu sinni hvísla því að okkur að slíkt kosti skattahækkanir fyrir samfélagið. Sjóvá, sparisjóðir og N1 eru dæmi um andlit á glæpaklíkum sem njóta verndar alræðisvalds peninganna. Heimskreppan er afurð græðg- innar. En væntanlega mun græðgin ekki ráða för um aldur og ævi. Þjóð- félagið er dregið áfram á asnaeyrum, á meðan örfáir peningamenn raka til sín öllu því sem ætti í raun og veru að vera til skiptanna. Ríkir verða rík- ari og arðrændar sálir sameinast í yndis legri þögn. Er fagnar sigri fjöldinn sljór með feigð í lífsins stríði þá verða asnaeyrun stór okkar mesta prýði. Skáldið skrifar Kristján Hreinsson Hinn mikli Mammon„Ég hef lengi haldið því fram, að lýð- ræði sé ekkert annað en snuð sem peningavaldið stingur upp í lýðinn. „Aðgerðir ráð- herrans eru ljós í myrkri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.