Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 20
É g er sagður vera með svipaðan persónu­ leika og prófessor. Ég á mjög auðvelt með að hella mér út í hlut­ ina og útiloka allt ann­ að á meðan, sem getur verið kostur þegar maður þarf að vinna krefjandi hluti og ein­ beita sér að strembnum verk­ efnum en þetta getur líka ver­ ið galli. Stundum gleymi ég mér og tala of mikið um sjálf­ an mig og eigin hugðarefni þegar ég er einfaldlega fastur í þeim. Ég get verið utan við mig og velt mér endalaust upp úr sama hlutnum sem kallar oft á kvíða eða óþarfa áhyggjur. Ég er því svolítið ýktur pers­ ónuleiki en svona er ég bara og er meðvitaður um það og reyni að passa að eiga fleiri en eitt áhugamál og dvelja ekki of lengi við sama hlutinn í einu,“ segir fjölskyldufaðirinn og verðandi stærðfræðingurinn Gunnar Björn Björnsson en Gunnar Björn er greindur með kvíða eða panic disorder, geð­ hvarfasýki og þráhyggjurösk­ un. Gunnar féllst á að segja sögu sína í von um að hjálpa öðrum sem mögulega standa í þeim sporum sem hann stóð í árið 1994, þá tvítugur að aldri, þegar veröld hans hrundi og svartnættið eitt blasti við. Eftir á í félagslegum þroska „Ég var mjög einrænn sem barn og leið best þegar ég var einn að grúska eitthvað. For­ eldrar mínir höfðu áhyggjur af mér strax á leikskólaaldri þar sem ég var mjög einrænn og var lítið fyrir leiki í hóp. En svo þroskaðist ég og lærði að lifa með þessu og smám sam­ an varð ég flinkari í mannleg­ um samskiptum,“ segir Gunn­ ar og bætir við að honum hafi gengið vel í framhaldsskóla, bæði á félagslega sviðinu og í náminu. „Sérstaklega í nám­ inu. Ég var samt dálítill trúð­ ur og gekk langt í því að reyna að vera fyndinn sem hefur verið einhver skortur á sjálfs­ trausti eða minnimáttarkennd. Reyndar hef ég alltaf haft gam­ an af góðum húmor og það hefur hjálpað mér mikið. Ég hef alltaf farið óhefðbundn­ ar leiðir og átti önnur áhuga­ mál en hinir unglinganir. Ég var til dæmis í júdó og stúd­ eraði indverska stjörnuspeki auk þess að ég ætlaði alltaf að verða stærðfræðingur og gaf út kennslubók í stærðfræði þegar ég var 19 ára. Einnig hef ég smá grunn í króatísku sem er varla staðalímynd ungra manna á Íslandi. Ég var af mörgum tal­ inn á undan í vitsmunaleg­ um þroska en eftir á í félags­ legum,“ segir Gunnar sem var 17 ára farinn að taka að sér að kenna og aðstoða þá sem áttu í erfiðleikum með stærðfræði. „Annaðhvort var ég svona klár eða námsefnið var svona auð­ velt en allavega eyddi ég álíka miklum tíma í að fylgjast með í tímum og að hjálpa bekkjar­ félögum mínum. Ég var með himinháar einkunnir og hafði þá reglu að um leið og ég var búinn að kynnast einhverju námsefni þá treysti ég mér til að kenna öðrum það. En svo gerðist það að veröldin hrundi undan mér. Í fyrsta skiptið á ævinni fannst mér stærðfræð­ in óyfir stíganleg og lífið sjálft í leiðinni.“ Reiði og biturð Gunnar Björn, sem á ræt­ ur að rækja til Suðurnesja, leigði á þessum tíma herbergi í Reykjavík og sótti nám við Háskóla Íslands. „Á fáum vik­ um var ég kominn með ein­ kenni sem ég hafði ekki feng­ ið áður. Svefninn var í óreglu og ég upplifði mikla depurð. Það sem ég hafði áður haft ánægju af fannst mér allt í einu hundleiðinlegt og til­ gangslaust. Lífið var orðið ein allsherjar jarðarför. Það skorti alla gleði, sjálfstraust einbeit­ ingu og drifkraft. Ég hætti að rækta sambandið við vini og fjölskyldu, fannst námið erf­ iðara og ég var ekki duglegur að hreyfa mig. Ég var einrænn og átti erfitt með að kynnast skólafélögunum. Ég reyndi að leggja harðar að mér en ein­ beitingin og vinnuþrekið varð að engu. Veikindin helltust hratt yfir og á örfáum vikum var ég orðinn það veikur að ég hugsaði um að taka mitt eigið líf. Ég flosnaði upp úr náminu og fór í kjölfarið í láglaunaða vinnu og var orðinn gjörólík­ ur sjálfum mér. Þar sem ég hafði alltaf stefnt að því að verða stærðfærðingur var ég ekki með neitt plan B og upp­ lifði ofboðslega mikla reiði og biturð út í menntakerfið. Mér leið eins og ég væri hæfileika­ laus og að ég gæti aldrei orðið neitt. Sjálfstraustið var algjör­ lega í molum. Þegar geðveik­ in var sem mest og svart­ nættið sem verst og ég lá og hugleiddi sjálfsmorð þá varð það mér til happs að fatta að dauðinn væri engin lausn og minn ósigur ætti ekki að verða annarra manna sorg. Ég hlyti að vera eitthvað veikur og þess vegna væri best að fara til læknis. Þar með hófst mín langa lækna­ og spítalasaga.“ Skipstjóri í eigin lífi Gunnar Björn segir næstu ár hafa einkennst af miklu limbói. Hann vissi að hann væri tæpur og viðkvæmur fyr­ ir álagi en að sama skapi hafi hann gert miklar kröfur til sín því þegar vel gekk hafi hann, eins og aðrir, viljað geta skilað sínu til samfélagsins, menntað sig og stundað vinnu. „Á góð­ um stundum hætti mér til að gleyma að ég væri með geð­ sjúkdóm og ég gerði oft miklar kröfur til sjálfs mín, líkt og ég væri fullfrískur. Stundum hef ég orðið veikur án þess að ráða við það en stundum vegna þess að ég hef farið fram úr sjálfum mér.“ Gunnar segir ofsakvíða­ köst hafa verið erfiðust. Þá hafi honum liðið eins og eitthvað skelfilegt væri að fara að gerast, 20 | Fréttir 24. ágúst 2011 MIðvikudagur Veröld Gunnars Björns Björnssonar hrundi þegar hann var tvítugur háskólanemi og svo virtist sem svartnættið eitt umlykti hann. Gunnar hefur háð baráttu við geðveikina í 17 ár og eftir erfitt stríð á köflum er hann í dag ákveðinn í að hafa betur með jákvæðnina að vopni. Gunnar tekur geðheilsunni alvarlega og segir hana hornstein lífsins en tekst þó að líta á spaugilegu hliðarnar á veikindum sínum. Allir geta misst geð- heilsuna Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Viðtal „Ég var í hálf- gerðri maníu þegar ég drakk en datt svo niður í mjög djúpt og erfitt þung- lyndi og upplifði jafn- vel sjálfsmorðshug- leiðingar. Í dag langar mig álíka mikið að fá mér í glas og að lenda í bílslysi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.