Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 39
Fókus | 39Helgarblað 26.–28. ágúst 2011 Hvað er að gerast? n GusGus á Nasa Nú er komið að öðrum tónleikum sveitar- innar á þessu ári og fara þeir fram á Nasa við Austurvöll. Söngvararnir Daníel Ágúst, Urður Hákonardóttur og Högni Egilsson verða í forgrunni, President Bongo og Biggi Veira ekki langt undan og Davíð Þór Jónsson og félagar bregða á leik. Að þessu sinni verður boðið upp á tvenna tónleika sömu helgi, annars vegar á föstudegi og hins vegar á laugardegi. Fyrri tónleikarnir hefj- ast kl. 23 á föstudagskvöldi og þeir seinni eru á dagskrá á laugardagskvöldi kl. 21. n Fönksveinar á Sódómu Ungir og ferskir stukku þeir fram á Vetrar- jazzhátíð 2010. Nú koma þeir enn ferskari nýútsprungnir úr hljóðveri. Tónleikarnir hefjast kl. 23.00 n Skúli Sverrisson - Sóló í Þjóð- menningarhúsi Síðastliðna tvo áratugi hefur Skúli Sverrisson komið fram með ákaflega fjöl- breyttum hópi alþjóðlegra listamanna. Nú gefst loks einstakt tækifæri til að heyra hann spila einan. Tónleikarnir hefjast klukkan 17 í Þjóðmenningarhúsi. n Danilo Perez á Jazzhátíð Danilo Perez er alinn upp í Panama en starfar í Bandaríkjunum með helstu spámönnum alþjóðadjassins. Mörgum er í fersku minni snilli hans þegar hann lék með Wayne Shorter á Listahátíð fyrir skömmu en einnig hefur hann spilað með Dizzy Gillespie og Arturo Sandoval svo einhverjir séu nefndir. Tónlist hans, sem kölluð hefur verið Pan-Amerísk, blandar saman djassi og suðuramerískri tónlist á einstakan hátt. Samkvæmt New York Times munu djassáhugamenn framtíðarinnar átta sig á því fljótlega að Danilo Perez er meðal þess besta sem komið hefur fyrir djassinn á síðustu árum. Tónleikarnir verða haldnir í Norðurljósasal Hörpu og hefjast kl. 20.00 n Næturklúbburinn 2:35:1 Eftir tónleika GusGus á laugardagskvöldinu verður bryddað upp á þeirri nýbreytni að setja upp næturklúbb í samvinnu við sænska ofurklúbbinn 2:35:1 sem staðsettur er á Berns í Stokkhólmi. : Það verða þau Nima Khak, Nihad Thule og dj Margeir (aka Jack Schidt) sem spila. n Gullaldardjass Secret Swing Society og Djangojazztríóið spila. Tónleikarnir hefjast kl. 17.00 í Þjóð- menningarhúsinu. Sérstakur gestur: Sigríður Thorlacius. n Jóel á Faktorý Jóel Pálsson spilar tónlist sína af djassplötu ársins, Horn. 26 ágú Föstudagur 27 ágú Laugardagur 28 ágú Sunnudagur Þorleifur hefur verið laus við áfengi og eiturlyf frá því hann leit- aði sér hjálpar í fyrsta skipti. Jú, vonin er til. Það á ekki að gefast upp. Hann er dæmi um mann sem er hvað? Jú, að slá í gegn í hinum stóra heimi. Þetta er hægt. Sýning ársins Fram á sviðið gengur rúmlega tvítug- ur maður. Nýútskrifaður leikari frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Hann einbeitir sér að leikstjórn hér heima. Pólitísk verk svolítið áberandi. Hann vill út fyrir landsteinana. Hann kemst inn í virtan leiklistarskóla í Berlín, Ernst Busch, og nemur leik- stjórafræði í fjögur ár. „Ég vissi að þetta væri einn besti leikstjórnarskóli í veröldinni og það að stúdera þar gæti opnað dyrnar inn í þýskt leikhús. Ég hafði lengi verið heillaður af þýsku leikhúsi, aðferða- fræðinni og hvernig Þjóðverjar nálgast verkin. Ég ákvað að reyna á það og at- huga hvort þeir hefðu áhuga á mér. Ég hafði búið í Þýskalandi í hálfan vetur þegar ég var yngri þannig að ég þótt- ist tala þýsku. Það kom ekki í ljós fyrr en ég byrjaði í skólanum og texti eftir þýska heimspekinginn Heid egger var lagður á borðið að það reyndist vera misskilningur hjá mér. Ég var m.a. í tímum í hagfræði og heimspeki en grunnhugmynd skólans er einföld – ef maður ætlar að vera listamaður þá skal maður hafa einhverja sýn á heim- inn, einhverja afstöðu gagnvart heim- inum og til að hafa afstöðu þarf maður að vera upplýstur og til að vera upp- lýstur þarf maður að mennta sig.“ Tvö ár eru liðin frá útskrift og Þor- leifur hefur ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. „Fyrsta stóra verkefnið var að setja upp sýningu á Rómeó og Júlíu í St. Gallen í Sviss sem svo sló í gegn. Það náðist einhver mistík með uppsetn- ingunni. Mér tókst að sleppa tökun- um og fara í æðislegt ferðalag með hópi af fólki og það myndaðist frábær stemning. Þarna bráðnuðu grensurn- ar á milli leikara og fígúru, milli fígúru og verks og milli verks og áhorfenda. Það varð til einhver upplifun sem við svo deildum með áhorfendum.“ Dóm- ar voru frábærir þó svo að ekki væru allir sáttir. „Það hrönnuðust upp bréf- in frá fólki sem varð alveg brjálað og fólk sagði upp áskrift að leikhúsinu. Ég var m.a. sakaður um að ráðast á hinn góða, svissneska smekk. En það bara sýnir mér að fólki er ekki sama – ekk- ert er jafnslæmt og sýning sem öllum er sama um.“ Síðan hefur Þorleifur m.a. leikstýrt Pétri Gauti en sýningin vann verðlaun hjá gagnrýnendum sem og áhorfend- um sem sýning ársins í Þýskalandi, Sviss og Austurríki. Þá hefur Þorleifur m.a. leikstýrt Lé konungi. „Ég er heppinn að fá svona stór tækifæri – að setja upp stór verk á stórum sviðum.“ Honum hefur verið boðið að gerast listrænn stjórnandi hjá stóru leikhúsi en hann afþakkaði. Leðurblakan, Óþelló … Fram undan? Engu minni verk. Nokkur stór verk í vetur. Hann leik- stýrir Móður hugrekki eftir Bertolt Brecht sem hann setti upp í vor í Suður-Þýskalandi en sýningin verð- ur sýnd á alþjóðlegri leiklistarhá- tíð í Írak í haust. Hann mun leik- stýra Meistaranum og Margarítu sem verður sett upp í Tübingen í Suður-Þýskalandi og eftir það verð- ur óperettan Leðurblakan sett upp í óperuhúsinu í Augsburg. „Segja má að þessi óperetta sé þjóðareign og andans mjólk; það þekkja hana allir í Þýskalandi. Uppsetningar á Leður- blökunni eiga það til að vera íhalds- samar. Ég ætla að hrista töluvert mikið upp í henni en þó að halda í það sem er fallegast í kjarnanum í henni.“ Þorleifur mun í kjölfarið setja upp frumflutning í Luzern á nýju verki byggðu á Grímsævintýr- um. „Ég get lítið sagt um verkið, enda situr skáldkonan nú í fjalla- kofa í Ölpunum og skrifar það. Við vinnum með tilurð og sögu þessara ævintýra sem eru samofin þýskum menningararfi.“ Þorleifur setur síðan upp Óþelló í St. Gallen í Sviss. Leitar að kjarnanum Hvað eiga uppsetningar Þorleifs sameiginlegar? Hann líkir þeim við óræða póesíu. „Ég reyni að skapa andrúmsloft á æfingum til þess að opna dyr inn í sköpunina. Sú vinna er nátengd vinnunni með leikaranum – enda er vinna þeirra hápunktur leikhúss- ins. Það eru í raun og veru leikararnir sem galdra; ég reyni að hjálpa þeim að ná því fram. Þetta er eins og dans. Það þarf að vera eitthvert kemestrí. Auðvitað þarf leikstjórinn að hafa margt, vera vel lesinn, hafa sýn á heiminn og hafa einhverju að miðla en án leikarans kemst það aldrei til skila. Ég þyki óþýskur. Ég blanda sam- an – miklum látum í bland við hæglát andartök og rokna hlátri við skerandi sársauka. Dramað og kómíkin liggja svo ofboðslega ná- lægt hvort öðru – eru í raun tvær hliðar á sama peningi – í leikhús- inu rétt eins og í lífinu. Ég leita að kjarna hvers verks og reyni svo að vinna út frá honum. Undirbý mig gríðarlega vel og skipulega en er svo reiðubúinn að kasta öllu og treysta á ferðalagið. Ég er ekki séní og ég er ekki snillingur og ég þurfti að vinna rosalega fyrir öllu sem ég kann. Ég er að læra; ég hef þurft að læra og ég ætla að halda áfram að læra.“ Þorleifur segist skapa einhvers konar heim með samstarfsfólki sínu. „Hann þarf ekkert að vera tengdur raunveruleikanum. Leik- húsið er simbólískt. Það er hug- lægt. Það er svo leiðinlegt þegar það þykist vera raunveruleiki. Það er ekki raunveruleiki. Það er blekk- ing sem liggur til grundvallar leik- húsinu. Heimurinn er alveg nógu fullur af raunveruleika. Leikhúsið er svar við þrúgandi raunveruleik- anum; leikhúsið er galdrastaður.“ Skapar heima Þorleifur segir það vera gaman að fá að skapa heima og sjá þá verða til; leiða fólk í vinnuferli sem endar sem upplifun fyrir kannski mörg þúsund manns. „Ég vinn við það sem ég elska að gera og ég er ótrúlega þakklátur fyrir að fá að starfa við eitthvað sem er jafngefandi. Þetta er líka ofboðs- lega krefjandi starf og það er bara hægt að sinna því ef maður er tilbú- inn til að gefa sig allan í það. Maður þarf að glíma við gagnrýni. Ég stend frammi fyrir því að allt sem ég geri endar frammi fyrir klappi eða púi. Það er mikil pressa og það reynir á að leyfa henni ekki að stjórna ferðinni, að frelsa sig undan oki ímyndaðr- ar frægðar, velgengni eða væntinga. Hlutverk mitt er að gefa leikurunum svo að þeir geti gefið áfram.“ Á sviðinu er ungur maður. Glað- legur. Hamingjusamur. Framtíðin virðist brosa við honum. Hann gengur öruggum skrefum út í sólskinið. Svava Jónsdóttir Dramað og kómíkin „Ég blanda saman – miklum látum í bland við hæglát andartök og rokna hlátri við skerandi sársauka. Dramað og kómíkin liggja svo ofboðslega nálægt hvort öðru – eru í raun tvær hliðar á sama peningi – í leikhúsinu rétt eins og í lífinu.“ „Ég var í verulega vondum málum um tvítugt. Nú dugðu efnin ekki lengur til þess að bæla niður óttann og óhamingjuna. Það stefndi allt í það að ég myndi kasta lífi mínu á glæ. Afmælishátíð á Akureyri n Akureyrarvaka er haldin er síðustu helgina í ágúst í tilefni afmælis Akureyrarbæjar A kureyrarvaka  er bæjarhátíð sem haldin er síðustu helgina í ágúst í tilefni afmælis Akur- eyrarbæjar, 29. ágúst. Setn- ing Akureyrarvöku  verður að venju í Lystigarðinum á föstudagskvöldi.  Garðurinn verður með rómantískum blæ, upplýstur og fallegur. Veittar verða viðurkenningar fyrir fallegustu garða bæjarins og bestu matjurtagarðana.  Á göngu um garð- inn munu gestir rekast á salsadans- ara, álfar bjóða til veislu, tónlist og hlýleiki umvefur garðinn. Óperutöfrar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur starfsár sitt með töfrum óper- unnar í Hofi þann 26. ágúst. Tón- leikarnir hefjast kl. 20.00 og á þeim sameina krafta sína undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, Helga Rós Indriðadóttir, Sigríður Að- alsteinsdóttir, Gissur Páll Gissurar- son og Ágúst Ólafsson. Á efnisskránni eru valin atriði úr óperunum La Boheme, Toska, Rak- aranum frá Sevilla, Tannhauser og Carmen. Bítladrengir og Egill Ólafs Bítladrengirnir blíðu ásamt Agli Ólafssyni og Gunnari Þórðarssyni flytja allt það besta frá bestu hljóm- sveitinni, Bítlunum, á Græna hatt- inum. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 á föstudagskvöldi. Afmælistónleikar Björgvins Afmælistónleikar Björgvins Hall- dórssonar verða haldnir kl. 17.00 og 21.00 á laugardag í Menningarhús- inu Hofi. ODDdesign og nágrannar „Við kölluðum þetta samstarf suðu- pott í byrjun og að okkar mati hef- ur okkur tekist að búa til þennan suðupott,“ segir Helga Mjöll Odds- dóttir fatahönnuður sem hannar undir nafninu ODDdesign. Vinnu- stofa og verslun Helgu Mjallar er til húsa á annarri hæð á Ráðhústorgi 7 á Akureyri en í apríl tóku fjögur fyrir- tæki sig saman og hófu starfsemi í húsnæðinu á sama tíma. Þetta eru, auk ODDdesign, fatahönnunarmerk- ið Múndering, Guðrún Hrönn fótóg- rafía og Breyta arkitektar en hópurinn ætlar að taka virkan þátt í Akureyr- arvöku sem fram fer um helgina. Í boði verður tískusýning ODDdesign, sýning á hugmyndavinnu hönnuða Breyta arkitekta fyrir Lystigarðinn á Akureyri, ljósmyndasýning auk þess sem allar vinnustofurnar verða opn- ar gestum og gangandi. Afmælistónleikar á Akureyrarvöku Björgvin Halldórsson heldur afmælis- tónleika í Hofi á laugardaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.