Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 36
36 | Sakamál 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað A ð fara út að ganga með hundinn sinn er eflaust athöfn sem veitir hundaeigend- um mikla ánægju; maður og ferfætlingur á rölti í makindum um hverfið sitt á góðum degi. Eflaust hefur það verið til- finningin sem Jacqueline Ross fann sunnudaginn 30. janúar 2005 þegar hún tölti með ter- rier-hundinum sínum skammt frá heimili hennar í New Mills í Derbyskíri á Englandi. Jacqueline var tveggja barna móðir, 44 ára, og var þetta sennilega alvanalegur viðburður hjá henni. En lykt- ir þessa göngutúrs urðu aðr- ar en ætla mátti því þegar hún mætti ókunnugum ungum manni byrjaði tíkin Rosie að gelta og glefsa eftir manninum. Skömmu síðar fannst Jacque- line illa haldin í blóðpolli við sýkisbakka þar skammt frá. Hún var með töluverða höfuð- áverka sem henni höfðu verið veittir með múrsteini og var flutt í skyndi á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hennar. En allt kom fyrir ekki, hún féll í dá og lést níu dögum síðar. Dýrkeypt reynslulausn Þremur dögum eftir líkams- árásina handtók lögreglan tví- tugan mann, Ben Redfern-Ed- wards, og var hann ákærður fyrir líkamsárás. Ákærunni var síðan breytt í morðákæru þeg- ar Jacqueline Ross lést á spít- ala. Við upphaf réttarhaldanna neitaði Ben sök, en saksóknari í málinu upplýsti að Ben hefði aðeins þremur dögum fyr- ir árásina verið veitt reynslu- lausn af stofnun fyrir unga af- brotamenn. Ben var á skilorði eftir að hafa afplánað innan við helming fjögurra og hálfs árs dóms sem hann fékk fyrir rán og aðrar misgjörðir. Samkvæmt einni kenn- ingu hafði Ben myrt Jacqueline til að koma í veg fyrir að hún ákærði hann fyrir líkamsárás sem hefði haft í för með sér fangelsisvist fyrir hann. Tók enga áhættu „Eftir að hafa slegið frú Ross á göngustígnum gekk sakborn- ingurinn á brott,“ sagði sak- sóknarinn. „En hann ákvað að snúa við því hann var á reynslulausn úr fangelsi og vildi ekki fara í grjótið aftur. Hann snéri við og sló hana með múrsteini. Hann sá til þess að frú Ross myndi aldrei geta bent lögreglu á hann. Hann varð að vera þess fullviss að hún gæti aldrei bent á hann. Það voru miklar líkur á því að hann yrði sendur í fangelsi á ný. Og honum hugnaðist það engan veginn.“ Líkt og oft vill verða var það röð tilviljana sem varð þess valdandi að Jacqueline og Ben Redfern-Edwards gengu fram á hvort annað þennan örlaga- ríka morgun. Ben var á heim- leið eftir að hafa eytt nóttinni í drykkju og gleðskap í tilefni reynslulausnar hans. Þrátt fyrir að ekki fyndust líkamlegar vís- bendingar um að Jacqueline hefði verið kynferðislega sví- virt höfðu nærbuxur hennar og buxur verið dregnar niður undir hné. Tólf högg hið fæsta Síðar viðurkenndi Ben fyrir foreldrum sínum að hafa ráðist á Jacqueline: „Hún lét mig ekki í friði … Ég varð að meiða hana. Ég sló hana með múrsteini … Ég hélt bara áfram að slá hana.“ Við réttarhöldin kom í ljós að Rosie var hjá Jacqueline þegar hún fannst. Hún hafði verið slegin að minnsta kosti tólf sinnum í höfuðið, en var enn með meðvitund en með öllu óþekkjanleg. Hendur hennar og hand- leggir báru þess merki að hún hafði reynt að verjast árásinni og á líkama hennar fundust 69 áverkar; á höfði og bringu. Hinn 11. nóvember komst kviðdómur að samhljóða nið- urstöðu um sekt Bens Redfern- Edwards. Þegar hann hlýddi á niðurstöðuna hló hann og sendi társtokknum aðstand- endum Jacqueline V-sigur- merkið. Enginn nýgræðingur Ben var enginn nýgræðingur í afbrotum. Hann hafði hlot- ið dóm sjö sinnum áður fyrir rán, líkamsárás, umferðarbrot, tjón, hótanir og ofbeldisfulla hegðun og hnífaburð. Eitt sinn hafði hann hótað að brjóta hnéskeljar á verslun- areiganda og hann hafði hlot- ið fjögurra mánaða dóm fyrir að henda múrsteini í gegnum rúðu á indversku veitingahúsi. Einnig hafði hann gert sér að skemmtun að festa flugeld við marsvín og tendra kveikinn og í annað sinn stal hann gælu- hamstri og frysti til dauða. Því má telja ljóst að Ben Redfern-Edwards var enginn engill og hann undirstrikaði það þegar hann var leiddur út úr dómsalnum því þá notaði hann tækifærið til að hrækja á lögregluþjóna og eiginmann fórnarlambsins. Ben Redfern-Edwards fékk lífstíðardóm – tuttugu og tveggja ára fangelsisvist áður en til greina kemur að íhuga reynslulausn. Banvæn reynslulausn „Hún lét mig ekki í friði … Ég varð að meiða hana. Ég sló hana með múr- steini … Ég hélt bara áfram að slá hana. n Skapstilltur hrotti fékk reynslulausn snemma n Sex dögum síðar var hann handtekinn fyrir líkamsárás n Kerfið kostaði tveggja barna móður lífið Jacqueline Ross Var óþekkjanleg þegar hún fannst. Viðvaningur fremur morð F östudaginn 11. septem- ber árið 1874 mælti breski burstagerðar- og kaup- sýslumaðurinn Henry Wainwright sér mót við Harriet Lane. Harriet Lane var, auk þess að vera ástkona Henrys, móð- ir tveggja barna hans. Móts- staðurinn var geymslan í versl- un hans við Whitechapel Road í austurhluta Lundúna og til að gera langa sögu stutta myrti Henry ástkonu sína og barns- móður í geymslunni og gekk rösklega til verks; hann skaut hana, skar hana á háls og gróf líkið í verslunarhúsnæðinu. Ástæða morðsins var sú fjárhagslega byrði sem Harriet var orðin Henry, en fyrir morð- ið hafði hann neyðst til að finna henni ódýrara húsnæði í við- leitni sinni til að draga úr kostn- aði vegna hennar. Þannig var mál með vexti að Henry Wainwright taldi sig hafa orðspor að hugsa um, enda nokkuð vinsæll innan síns hóps, og þegar hann varð sínkur á fé Harriet til handa tók hún upp á því að veðsetja ýmsa hluti, auk þess sem hún hallaði sér að flöskunni í meira mæli en áður var raunin. Henry hafði af því áhyggjur að hún kynni í ölæði að missa út úr sér eitthvað sem varpa kynni skugga á orðspor hans. Því ákvað hann að grípa til sinna ráða, sem hann og gerði. Eftir á gaf hann þá skýringu að Harriet hefði flutt til Brigh- ton og sennilega hefði allt gengið upp ef ekki hefði verið fyrir gjaldþrot verslunar hans. Í júlí 1875 neyddist Henry til að selja vöruhúsið við Whitecha- pel Road og gerði sér því ferð til að grafa upp lík Harriet og brá honum verulega í brún þegar í ljós kom að það var í ótrúlega góðu ásigkomulagi. Hann leitaði til bróður síns, Thomas, sem hjálpaði honum að sundurlima líkið og pakka líkamshlutunum inn. Að því loknu fékk hann Alfred Phi- lip Stokes, fyrrverandi starfs- mann sinn, til að hjálpa sér við að bera bögglana út í leiguvagn og hugðist losa sig við þá annars staðar. Það hefði Henry bet- ur látið ógert því á með- an hann var að útvega leiguvagn lét Alfred und- an forvitninni og opnaði einn böggulinn og fylltist óhugnaði þegar hann sá innihaldið. En Alfred missti ekki stjórn á sér og þegar leiguvagninn rann af stað elti Alfred fótgangandi. Við fyrsta tækifæri hafði hann samband við lögregluþjón og bræðurnir voru handteknir. Thomas fékk fangelsisdóm vegna aðildar sinnar en Henry endaði ævina með lykkju um hálsinn 21. desember 1875. n Stundum er betur heima setið en af stað farið Burstagerðarmaðurinn Henry Wainwright komst ekki upp með morð. Ben Redfern- Edwards Hæddi fjölskyldu fórnarlambsins þegar hann hlýddi á dóminn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.