Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Síða 8
8 | Fréttir 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað
Þorsteinn Hjaltested fyrir dómi:
Auðmaður tapar máli
Hæstiréttur úrskurðaði á miðviku-
daginn að skiptum á búi Sigurðar
Kristjáns Hjaltested, afa Þorsteins
Hjaltested, sé ekki lokið. Þorsteinn
komst í fréttirnar í sumar þegar greint
var frá því að hann hefði greitt mest
allra Íslendinga í opinber gjöld árið
2010.
Afi Þorsteins, Sigurður Kristján,
átti Vatnsendalandið sem var hluti af
búi hans þegar hann lést 13. nóvem-
ber árið 1966. Landið gekk í arf til föð-
ur Þorsteins, Magnúsar Hjaltested.
Þeir sem sóttu málið eru erfingj-
ar Sigurðar. Hæstiréttur féllst á kröfu
þeirra um að skiptum á búinu væri
ekki lokið en Vatnsendalandið teld-
ist ekki lengur eign búsins þar sem
það var afhent Magnúsi Hjaltested
á skiptafundi í dánarbúi Sigurðar 7.
maí 1968, sem kemur fram og stað-
fest er í dómi Hæstaréttar 30. maí
1969, sem birtur er á blaðsíðu 780 í
dómasafni réttarins það ár.
Hæstiréttur taldi að ekki væri nóg
að telja líklegt að skiptunum væri lok-
ið. Lögmaðurinn Unnsteinn Beck sá
um skiptin á búinu en hann lést árið
2004. Ekki hafa fundist nein gögn
sem sýna fram á að skiptunum hafi
verið lokið með formlegum hætti. Því
taldi Hæstiréttur að skipa þyrfti nýjan
skiptastjóra til að ljúka skiptunum.
Þorsteinn hefur á undanförnum
árum auðgast mjög á landsvæðinu
á Vatnsenda þar sem Kópavogsbær
hefur reist mikla íbúðabyggð. Harð-
vítugar deilur hafa staðið á milli Þor-
steins og föðurbræðra hans vegna
landsins en þar sem það tilheyrði óð-
alsbúi föður hans, Magnúsar Hjalte-
sted, var það Þorsteinn einn og sér,
elstur systkina sinna, sem erfði allt. Skattaskóngur Þorsteinn Hjaltested tapaði dómsmáli um skipti á dánarbúi.
V
ið erum gamlir vinir frá
námsárunum,“ segir Hjör-
leifur Sveinbjörnsson um
tengsl sín við Huang Nubo,
stjórnarformann kínverska
fjárfestingafyrirtækisins Zhongkun
Group, sem hefur hug á reisa fimm
stjörnu glæsihótel á Grímsstöðum á
Fjöllum. Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra, sem er mágur Hjörleifs,
átti fund með Nubo á miðvikudaginn
þar sem hann greindi frá fyrir fyrirætl-
unum Zhongkun Group um að fjár-
festa í umhverfistengdri ferðaþjón-
ustu á Íslandi. Fyrirtækið vill þannig
taka þátt í uppbyggingu ferðaþjón-
ustu á Íslandi í samstarfi við íslensk
stjórnvöld. Ráðherrann hefur tekið
vel í hugmyndir Nubos og fagnar er-
lendri fjárfestingu sem og uppbygg-
ingu í ferðaþjónustu hér á landi.
Deildu herbergi
Hjörleifur og Nubo deildu saman her-
bergi á heimavistinni í Peking-há-
skóla þegar þeir stunduðu þar nám og
hafa því þekkst í á fjórða áratug. „Mað-
ur getur auðvitað sagt að ef það ekki
verið þá hefði hann sjálfsagt aldrei
heyrt um Ísland eða tekið sérstak-
lega eftir því,“ segir Hjörleifur. Þeir fé-
lagar hafa haldið góðu sambandi allar
götur síðan en Hjörleifur vill þó ekki
meina að það sé honum að þakka að
þessi fjárfesting sé á leiðinni. Hann
vill allavega ekki eigna sér heiðurinn
af því þó hann viðurkenni að kynni
hans og Nubos á háskólaárunum hafi
vissulega verið óbein kveikja að verk-
efninu.
Umsvifamikið ljóðskáld
Nubo sem er í 161. sæti á lista For-
bes yfir ríkustu menn í Kína, er einnig
ljóðskáld og aðalstyrktaraðli Kínversk-
íslenska menningarsjóðsins. „Þessi
sjóður stóð fyrir ljóðaþingi í Norræna
húsinu í fyrrahaust og þá kom hann
til landsins í tilefni af því og ferðaðist
um og leist dálítið vel á landið. Hann
er umsvifamikill í ferðamennsku og
sá möguleika á að leggja hönd á plóg-
inn hér og svo kemur hann aftur hing-
að núna til að fylgja þessu eftir,“ segir
Hjörleifur um ástæðu þess að Nubo
heillaðist svo af Íslandi.
Hjörleifur bendir þó að fyrirætlanir
Nubos séu allar með þeim fyrirvara að
allt takist vel og að sátt náist um verk-
efnið. Það er sveitarstjórnin í Norð-
urþingi sem hefur skipulagsvaldið á
þessu svæði en þar hefur verið tekið
vel í hugmyndirnar.
„Hann er búinn að semja við land-
eigendur á Grímsstöðum með því for-
orði að samþykki stjórnvalda í Kína
og á Íslandi fáist.“ En kínversk stjórn-
völd þurfa að heimila fjárfestingar og
jarðakaup erlendis.
Nubo stefnir á að staðsetja glæsi-
hótel sitt á Grímsstöðum á Fjöllum,
eins og áður sagði, en það er mitt á
milli Vatnajökuls- og Jökulsárgljúfur-
þjóðgarðs. „Hann sér fyrir sér upp-
byggingu í ferðamennsku mitt á milli
þessara tveggja þjóðgarða,“ segir Hjör-
leifur en ítrekar að Nubo sé þó ekki að
ásælast þjóðgarðana enda séu þeir
utan þeirrar landareignar sem hann
vill kaupa. „Hann sér ekki Grímsstaði
fyrir sér sem gegnumstreymisstað þar
sem fólk stoppar yfir nóttina heldur
vill hann byggja þar upp þjónustu,“
segir Hjörleifur. „Þetta yrði svona
áfangastaður,“ bætir hann við.
Golfvöllur og hestabúgarður
Að sögn Hjörleifs vill Nubo meðal
annars byggja upp 18 holu golfvöll
á Grímsstöðum. Þeir fóru saman
að skoða svæðið nýlega og fundu
þar gömul tún sem ágætis rækt er í.
„Það gæti verið dæmi um það sem
hann kallar umhverfisvæna ferða-
mennsku. Hann er ekki að tala um
að flytja inn gras heldur að nota það
sem fyrir er og myndi þá nota þessi
gömlu tún sem uppistöðu í golfvelli.“
Hjörleifur segir Nubo einnig sjá fyr-
ir sér að byggja upp hestabúgarð á
Grímsstöðum og að það verði lík-
lega með því fyrsta sem fari í gang á
svæðinu. Þá mun hann einnig vera
mjög áhugasamur um að græða upp
svæðið í samstarfi við Landgræðsl-
una.
Ekki stórkarlaleg uppbygging
Nubo mun líklega aðallega gera út
á ferðamenn frá Kína og Bandaríkj-
unum en að sögn Hjörleifs hefur
hann einnig hug á að byggja hótel í
Reykjavík. „Þetta er miklu þolinmóð-
ara fjármagn en við búum yfir. Við
erum alltaf svo blönk að við viljum fá
þetta helst um leið. Þarna er hann að
tala um vandaða uppbyggingu sem
hann sér fyrir að taki nokkur ár,“ segir
Hjörleifur. Honum líst sjálfum prýði-
lega á fyrirætlanir Nubos. „Ég held að
þetta séu fín plön, þetta er ekki svona
stórkarlaleg uppbygging. Hann vill
standa að þessu með metnaði.“
n Kínverskur auðkýfingur vill reisa hótel á Grímsstöðum á Fjöllum n Gamall skólafélagi Hjörleifs Sveinbjörnssonar
n Utanríkisráðherra, mágur Hjörleifs, tekur vel í verkefnið n Hestabúgarður og 18 holu golfvöllur á teikningunum
Kynnti Ísland
fyrir auðkýfingi
Nubo skoðaði náttúruna í boði ráðuneytis:
Ráðuneytið greiddi fyrir bílaleigubíl
DV greindi frá því í október í fyrra að Hjörleifur hefði ekið um landið með Huang Nubo í
bílaleigubíl sem utanríkisráðuneytið greiddi fyrir. Um var að ræða Suzuki Vitara-jeppling
frá Bílaleigu Akureyrar. Nubo var þá staddur hér á landi í tengslum við kínversk-íslenskt
ljóðaþing í Norræna húsinu. Í samtali við DV á þeim tíma sagði Hjörleifur það alls ekki
óeðlilegt að hann hefði fengið bílinn lánaðan til að sýna Nubo íslenska náttúru. „Þetta er
nú ósköp lítið mál. Utanríkisráðuneytið tengist verkefninu og því er þessi heimsókn ráðu-
neytinu dálítið skyld. Því þótti ráðuneytinu það við hæfi að gera vel við manninn með því
að setja undir hann bíl,“ sagði Hjörleifur í samtali við DV í október 2010. Hjörleifur sagðist
einungis vera á bílnum sem bílstjóri til að sýna Nubo, sem er aðalstyrktaraðili Kínversk-
íslenska menningarsjóðsins, eitt og annað. „Þetta er bíll í einn dag, til að sýna manninum
eitthvað af landinu enda er hann að leggja talsverða peninga í 10 ára samstarf Íslands
og Kína. Ég er ekki að dandalast á einhverjum bíl í einhverri spillingu.“
Ætla má að þeir Hjörleifur og Nubo hafi á síðasta ári skoðað þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfri
og svæðið þar í kring sem sá síðarnefndi er nú svo heillaður af.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Fréttir
Huang Nubo Kínverskur auðmaður með
stór áform á Íslandi.
Herbergisfélagar Hjörleifur og auðkýfingurinn Huang Nubo deildu herbergi á heimavistinni í Peking-háskóla á námsárum sínum.
Ásgeir fær
forgangskröfu
Hæstiréttur Íslands komst á fimmtu-
daginn að þeirri niðurstöðu að launa-
krafa Ásgeirs Jónssonar, fyrrverandi
forstöðumanns
greiningardeildar
Kaupþings, sé for-
gangskrafa í bú bank-
ans. Hæstiréttur sneri
þar með við dómi
Héraðsdóms Reykja-
víkur sem áður hafði
úrskurðað að launa-
krafan væri ekki forgangskrafa.
Ásgeir vildi fá viðurkenndan sem
forgangskröfu samning sem hann
gerði við bankann árið 2006 sem kvað
á um bónusgreiðslur 1. október 2008
og 1. janúar 2009. Þegar Fjármálaeftir-
litið skipaði skilanefnd yfir Kaupþingi
29. október 2008 var Ásgeiri sagt upp
störfum. Krafa Ásgeirs vegna greiðsl-
unnar 1. janúar 2009 hljóðaði upp á
1,3 milljónir króna.