Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 13
A
mma drengsins fór
fram á að greinin yrði
ekki birt og sagðist jafn-
vel ætla að fá lögbann á
blaðið ef svo yrði. Faðir drengs-
ins sver af sér sakir og segist
vera að íhuga að stefna syni
sínum fyrir meiðyrði. Hann var
þó ekki búin að taka endan-
lega ákvörðun um það hvern-
ig hann ætlaði að bregðast við
orðum sonarins og vildi ekkert
segja að svo stöddu. Hann full-
yrti aftur á móti að ástæða þess
að börnin töluðu svona væri
foreldrafirring, heilaþvottur
af hálfu móður barnanna sem
kæmi svona fram.
Alvarlegt ofbeldi
Foreldrafirring er hugtak sem
notað er yfir það þegar for-
eldrar beita „ljótum“ aðferðum
gegn hinu foreldrinu þegar þeir
deila, meðal annars um for-
ræði. Falskar ásakanir eru yfir-
leitt óaðskiljanlegur hluti af
foreldrafirringu ásamt því að
foreldrar reyni að hindra um-
gengni barns við hitt foreldrið.
Breskur sálfræðingur, dr. L. F.
Lowenstein, hefur rannsakað
þetta fyrirbæri og segir að það
sé óforsvaranlegt og alvarlegt
ofbeldi.
Hugarburður geðlæknis
Þóra Sigfríður Einarsdóttir, sál-
fræðingur í Barnahúsi, seg-
ir að foreldrafirring sé þó afar
umdeilt hugtak á meðal sál-
fræðinga. „Þetta er tekið frá
manni sem heitir Richard Gar-
dner sem var geðlæknir og bjó
til þetta hugtak. Í kringum það
smíðaði hann stóran pakka
sem leit út eins og fræðigrein og
sendi á alla dómstóla í Banda-
ríkjunum. Dómstólar í Banda-
ríkjunum notuðu þetta hugtak
til að taka börn frá mæðrum
sem sökuðu menn um ofbeldi.
Síðan, þegar farið var að skoða
þetta, kom í ljós að þetta var í
raun bara hugarburður þessa
manns, en engar kenningar eða
rannsóknir sem stóðu þarna á
bak við. Ennfremur kom í ljós að
hann var mjög líklega pedófíll.“
Varað við hugtakinu
„Það er ekkert sem styður þetta
hugtak. Það er bara orð sem
foreldrar nota eftir hentug-
leika. En ameríska sálfræði-
félagið hefur tekið klára afstöðu
gegn þessu hugtaki og varar við
því. En núna þegar dómstólar
í Bandaríkjunum eru hættir að
nota þetta því þessi börn eru
orðin fullorðin og það er tekið
meira mark á þeim fyrir rétti þá
er þetta hugtak komið til Evr-
ópu. En þetta er mikið hitamál
innan stéttarinnar – hvort það
sé fræðilega hægt að heilaþvo
einstakling til þess að segja
svona. Ég held að það sé fræði-
lega hægt en líkurnar á því eru
kannski ekkert mjög miklar.“
ingibjorg@dv.is
H
ann er að tala út frá
sínu hjarta,“ segir móð-
ir drengsins. Hún er
greinilega stolt af syni
sínum fyrir að hafa sagt
frá en einnig í nokkru áfalli. Hún
kynntist föður hans þegar hún
var 19 ára og varð strax ólétt.
„Hann er sjö árum eldri en ég.
Við vorum saman í 15 ár.“ Sam-
an eiga þau fjögur börn en eitt
þeirra býr hjá pabba sínum.
Stofnanir brugðust
Forræðisdeilan hefur verið löng
og erfið. „Miklu hefur verið log-
ið upp á mig og þetta hefur verið
hálfgerð múgæsing. Við höfum
sjálf tekið þann pól í hæðina að
vera ekki í skotgrafarhernaði,“
segir móðir drengsins og á við
sig og sambýlismann sinn. Þau
eiga samtals sex börn, en eiga
von á barni saman innan tíðar.
„Stofnanir hafa brugðist okk-
ur að mörgu leyti. En þær hafa
fyrst og fremst brugðist börnun-
um. Það sem sonur minn er að
segja hefur hann sagt öðru fólki.
Við erum búin að reyna en það
hefur ekkert gengið. Þess vegna
er ég svo hissa á viðbrögðun-
um við glósunni. Við erum búin
að ganga í gegnum allt þetta og
búin að reyna að fá hjálp og tala
við allar stofnanir sem gætu að-
stoðað okkur. Við erum hins
vegar í staðinn alltaf sjálf und-
ir eftirliti. Við erum alltaf að fá
lögguna hingað þar sem pabbi
hans er alltaf að tilkynna okkur.
Þessi viðbrögð á netinu eru því
ótrúleg“.
Sjálf kvíðasjúklingur
Hún dregur ekkert úr því að sjálf
eigi hún við sín vandamál að
stríða. „Ég er kvíðasjúklingur
og óvirkur alkóhólisti. Ég þróaði
með mér sjúkdóm með heimil-
isofbeldinu. Það er kvíðaröskun
– maður getur kviðið öllu. Ég hef
tekið mig á og það hefur geng-
ið vel síðustu tvö árin. Ég féll
einu sinni fyrir tveimur árum og
hann fullnýtti það tækifæri.“
Börnin gleymast
Það er erfitt fyrir hana að rifja
upp ofbeldið. „Mér finnst mjög
erfitt að rifja upp þessa slæmu
hluti sem hann er að segja. Ég
vil bara setja þetta á bak við mig.
Ég veit ekki alveg hvernig ég á
að lýsa þessu. Börnin mín þurfa
hjálp við að komast út úr þessu.
Þau eru búin að heyra tröllasög-
ur og ljótar sögur af mömmu
sinni síðan þau voru bara börn.
Við erum búin að reyna og
reyna, en börnin gleymast bara.
Börnin og þeirra líðan er það
sem gleymist – þau eru margbú-
in að segja þetta.“
„Ekki svona mikil hetja“
Hún segir að hún hafi gefist upp
á því að velta því fyrir sér hvers
vegna hún lenti í ofbeldi, við
því séu engin svör. „Ég velti því
fyrir mér í fimmtán ár, af hverju
hann væri svona ofbeldisfullur.
Ég fékk aldrei svar við því. Ég er
hætt að leita að því. Ég er hætt
að reyna að skilja af hverju. Ég
veit ekki hvers vegna þetta er
svona.
Þetta var gróft ofbeldi. Ég
dáist að syni mínum að gera
þetta svona. Ég er bara ekki
svona mikil hetja. Mér þykir
þetta mjög erfitt. Þetta er erfitt
fyrir þau enda áttu þau alltaf
von á því að vera vakin upp á
nóttunni til að vera sýnt hvað
mamma þeirra var rugluð. Ég á
bara ekki nógu sterk orð til að
lýsa þessu. Þú getur ekki lýst
þessum sársauka. Ég skil ekki,
en samt skil ég það af hverju ég
lét mig hafa þetta svona lengi.
Ég varð bara veik með honum.“
Lögreglan vanmáttug
„Í fyrsta skiptið sem ég fór í
Kvennaathvarfið var hann
bara pínulítill, þá vorum við
þar í nokkrar vikur.“ Hún segir
eins og sonurinn að leyndin sé
samt verst.
„Maður leynir þessu svo
rosalega. Það verður manni
svo að falli. Ef maður kall-
aði á lögregluna þá gat hún
ekki gert neitt. Og maður sat
bara uppi með verra ástand.
Í dag er verið að tala um að
breyta lögunum. Ég vona að
það verði farið eftir því. Mað-
ur verður bara svo meðvirkur.
Þetta er ekki eitthvað sem þú
kastar fram úr erminni. Fólk
hugsar: „iss, þetta er ekki svo
slæmt“ en þú segir konum
ekkert gerðu þetta og gerðu
hitt. Þetta er ekki auðvelt. Það
sem ég sé núna er hvað börn-
unum svíður þetta og hvað
þetta bitnar á þeim.“
ingibjorg@dv.is
Fréttir | 13Helgarblað 26.–28. ágúst 2011
Feluleikur Öll tala þau
um hversu mikill feluleikur
fylgi ofbeldinu.
Íhugar að kæra son sinn
„Ég varð veik með honum“
n Pabbinn segist saklaus og kennir foreldrafirringu um
n Móðirin segist ekki hafa sama hugrekki og sonurinn
Óskemmtileg skilaboð
Þetta fékk drengurinn sent seint í
gærkvöldi af já.is. Hann heldur að
þetta komi frá ömmu sinni.