Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Side 19
Fréttir | 19Helgarblað 26.–28. ágúst 2011
og skemmtilegan ánægjuvett
vang,“ segir hann og hlær.
„Ég hugsa að frjálslyndir, víð
sýnir Evrópusinnaðir, grænir
miðjumenn séu ekki endilega
óánægðir sem slíkir. Ég held að
þetta sé upp til hópa bara mjög
ánægt fólk, þótt það sé auð
vitað óánægt með margt í sam
félaginu eins og gerist og gengur.
Það hefur vægast sagt ýmislegt
gengið á.
Þessi flokkur verður hins
vegar ekki skapaður um ein
hverja óánægju heldur um þessi
stefnumið og líka um þá von að
geta orðið að gagni. Mér sýnist
vera þörf á þannig nálgun. Nú
er ég búinn að sitja þessi tvö ár
á þingi og það hefur blasað við
mér meira og meira að þessi
stjórnmálahefð öll, sem var svo
mikil krafa um að myndi breyt
ast, hún er ömurleg og hefur
ekkert breyst. Hún hefur bara
orðið verri.“
Er það leiðinlegt starf að vera
þingmaður?
„Nei, það er ekki leiðinlegt en
á sér leiðinlegar hliðar. Í grunn
inn er þetta mjög skapandi starf,
gefandi og lifandi.“
Þú ert sonur og barnabarn
fyrrverandi formanna flokksins,
kom aldrei til greina hjá þér að
skora Sigmund bara á hólm og
bjóða þig fram til formanns?
„Ég fór aldrei af neinum
þunga í þá spurningu. Ég hef oft
verið spurður en ég hef nálgast
það þannig að maður ákveður
ekki beint sjálfur að verða for
maður í svona flokki. Það eru
flokksmenn sem taka þá ákvörð
un eða gera kröfu um það að
einhver verði formaður. Ég segi
eins og Ísólfur Gylfi Pálmason
held ég að hafi einhvern tím
ann sagt: Það hafa margir hringt
í mig en ekki um þetta. En það
voru margir sem orðuðu það við
mig að einhvern tímann í fram
tíðinni ætti ég að verða formað
ur þarna, en það var ekkert verið
að skora á mig að verða formað
ur á síðasta flokksþingi. Eins og á
því þingi, hvað fáir mættu, ég leit
yfir salinn og sá að margir sem
ég á mikla samleið með voru
ekki mættir. Það endurspeglaði
líka, að ég held, að margir fram
sóknarmenn voru og eru þreyttir
á mjög langvarandi átökum. Það
hafa verið erfiðir tímar í flokkn
um lengi. Margir voru óánægðir
undir stjórn Halldórs og síðan
tók við tímabil fylgishruns og
erfitt uppgjör eftir langt sam
neyti við Sjálfstæðisflokk Davíðs.
Það var skiljanlega ekki stemm
ingin að fara í enn einn for
mannsslaginn.“
Gæti gengið í
Samfylkinguna
Blundaði það ekkert í þér að
verða þriðji ættliðurinn sem
stjórnar flokknum?
„Nei, það hefur aldrei haft
neitt sérstaklega stóra þýðingu
fyrir mér.“
Hafði fjölskyldusagan áhrif
á ákvörðun þína um að ganga
til liðs við Framsókn? Af hverju
varstu ekki áfram í Samfylking
unni? Er ekki akkúrat pláss fyrir
þig í Samfylkingunni?
„Ég gekk úr Samfylkingunni
í rauninni af svipuðum ástæð
um og ég gekk úr Framsókn.
Ég er að leita að þessum frjáls
lynda miðjuvettvangi og ég tel
að hann eigi að vera á sviðinu
þó svo Samfylkingin sé líka á
sviðinu. Samfylkingin er sósíal
demókratískur flokkur en hún
er ekki að sýna sínar frjálslynd
ustu hliðar í samstarfinu við
VG. Auðvitað gæti ég gengið yfir
í Samfylkinguna en þá yfirgef ég
þetta langhlaup mitt, og ann
arra, sem er að búa til þennan
flokk á miðjunni.“
Er það kannski nauðsynlegt
að til þess að jafnaðarmanna
flokkur eins og Samfylkingin er
geti náð fram sínum málum að
hafa annað afl sem getur unnið
með honum?
„Þegar ég horfi á samfélagið
og hvað margt gengur brösug
lega, þá held ég að margt gæti
gengið betur, ef það væri svona
afl á sviðinu eins og ég og fleiri
viljum núna stofna. Það gengi
lipurlegra fyrir sig að koma at
vinnulífinu af stað ef það væri
þessi flokkur til staðar, þessi til
tölulega kreddulausi, skynsami,
víðsýni flokkur sem stundaði
ekki þessa ásakana og skot
grafapólitík. Flokkur sem nálg
aðist ESBaðild með opnum og
faglegum huga eins og menn
vildu gera á flokksþingi Fram
sóknar 2009. Ég hef mikla trú
á nauðsyn svona afls. Það væri
mjög margt miklu betra í ís
lensku samfélagi ef það væri til
staðar. Fyrst ég sé þennan skort,
þá finnst mér að maður eigi að
stíga fram fyrir skjöldu og reyna
að bæta úr honum.“
Um muninn á flokknum
sem hann ætlar að stofna og
Samfylkingunni segir Guð
mundur: „Það er fullkomin
einföldun að segja að þeir sem
muni aðhyllast frjálslyndan
flokk á miðjunni eigi allir heima
í Samfylkingunni. Það held ég
að geti ekki staðist. Síðan er líka
annað sem ég vil leggja áherslu
á. Mér finnst það orðið gamal
dags og úr sér gengið, þó að það
sé nauðsynlegt á einhvern hátt,
að vera svona fullkomlega föst í
því að líta á þetta í svona hólf
um. Það er arfleifð frá liðinni
tíð. Við versluðum einu sinni á
bensínstöðvum eftir því hvað
við kusum. Menn urðu frek
ar bensínslausir en að kaupa
bensín á þeim pólitísku bens
ínstöðvum sem þeir aðhylltust
ekki. Við erum komin í daglegu
lífi burt úr þessu samfélagi. Við
hittumst ekki í heitapottinum
og byrjum á að spyrja í hvaða
flokki fólk er.
Við erum byrjuð að nálgast
tilveruna allt öðruvísi, fyrir
löngu síðan. Það er svo ótal
margt sem við erum sem sam
einar okkur og annað vissu
lega sem stundum sundrar. En
krafan um að setja mannlífið í
svona hólf er út úr hlutföllum
við það sem raunverulega þarf.
Hólfin endurspegla ekki raun
veruleikann nema að litlu leyti.
Það sem blasir við mér núna
er því þessi þversögn: Hvernig
stofnar maður flokk sem hef
ur það að markmiði sínu að
minnka vægi flokka? Ég held að
það sé hægt.“
Framsóknarhomminn
Þú ætlar að verða leiðtogi í
stjórnmálaflokki. Myndin sem
fólk hefur af þér er að þú sért
þægilegur náungi, miðbæjar
bóhem og rólegur … þú kinkar
kolli?
„Ég ætla ekki að rökræða
það.“
En ekki endilega stjórn
málaleiðtogi. Ertu efni í öflugan
flokksformann?
„Ég horfi á flokksformenn
ina og ég segi: Af hverju ekki?
Ég meina í alvöru. Þetta er samt
svo skrýtið. Einn galli sem er
á þessum hefðbundnu flokk
um er að það eru svo furðu
lega gamaldags kröfur ríkjandi.
Ein krafan á flokksleiðtogum
í stjórnarandstöðu, til dæm
is, er að styðja alls ekki ríkis
stjórnina. En hvers konar krafa
er þetta? Þetta er grundvallar
krafa um að vera á móti bara til
að vera á móti. Þá má spyrja sig:
Hverslags einstaklingur væri
þannig einstaklingur í daglega
lífinu? Yrði hann ekki fullkom
lega óþolandi? Þarna er ein
hver kerfislæg krafa um að til að
vera leiðtogi þurfi að gera svona
hluti sem eru bara fullkomlega
fáránlegir.
Það er almennt fáránlegt
þegar menn eru að spila ein
hverja leiki sem eru fullkomlega
gegnumsjáanlegir til að þjónk
ast einhverjum gamaldags
hefðum.“
Talið berst að samræðu
pólitíkinni sem Guðmundur
boðar að flokkur hans muni
standa fyrir. Óhjákvæmilega
kemur nafn Steingríms Her
mannssonar, föður Guðmund
ar, upp. „Pabbi hafði þá trú að
lykillinn að því að stjórna væri
að leggja sjálfan sig oft til hlið
ar og tala mjög mikið við fólk á
hverjum degi. Það er verið að
tala um villiketti núna. Ég hef
oft rifjað það upp í huganum og
átti góðar samræður við pabba
um vinstristjórnina 1989–1991.
Hún var háð atkvæði Stefáns
Valgeirssonar sem var óháður
þingmaður að norðan. Stefán
sagði aldrei ákveðið hvort hann
styddi eða ekki. Flestir fundir
enduðu svona á kannski.
Í ríkisstjórninni sátu, talandi
um villiketti, Jóhanna Sigurðar
dóttir og Jón Baldvin, sem áttu
ekki endilega mikið skap sam
an. Síðan voru þarna Jón Sig
urðsson og Steingrímur J, Ólafur
Ragnar Grímsson nokkur, hann
var og er ekkert með neitt lítið
egó. Svo var þarna Svavar Gests
son og í þingliðinu Hjörleif
ur Guttormsson. Þetta var eins
naumur meirihluti og hægt var
að hafa. Hann lýsti þessu sem
stanslausu samræðuverkefni,
og þetta tókst og var mjög farsæl
ríkisstjórn.“
Pabbi þinn var alþýðlegur
stjórnmálamaður, það var hluti
af hans sterku útgeislun, er þetta
sú hefð sem þú kemur úr?
„Já, að vera sá sem maður er.
Það er lykilatriði. Í mínu tilviki
svona framsóknarhommi,“ bæt
ir hann við og hlær. Guðmundur
segist ekki hafa móðgast við um
mæli Ingva Hrafns í vikunni. „Ég
get ekki séð að þetta sé hnjóðs
yrði. Segir meira um Ingva Hrafn
ef hann hefur hugsað það þann
ig. Mér fannst þetta bara fyndið.
Alexía setti á Facebook að hún
hefði ekki orðið vör við að ég
væri samkynhneigður.“
„Það eru ýmsar
hættur í þessu
og þetta getur alveg
gjörsamlega klúðrast.
Guðmundur Steingrímsson
„Ég segi eins og Ísólfur Gylfi Pálma-
son held ég að hafi einhvern tímann
sagt: Það hafa margir hringt í mig en
ekki um þetta.“ myndir SiGtryGGur ari
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun