Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Síða 23
Fréttir | 23Helgarblað 26.–28. ágúst 2011 F orstjóri flugfélagsins Astraeus, sem er í eigu Pálma Haralds­ sonar fjárfestis, Mario Fulgoni, mun láta af störfum hjá flug­ félaginu í lok mánaðarins að sögn Skarphéðins Bergs Steinarsson­ ar, framkvæmdastjóra Fengs, móður­ félags Astreaus. Fulgoni sagði upp störfum fyrir nokkrum mánuðum. Fengur á einnig íslensku ferða­ skrifstofuna Iceland Express. Astra­ eus annast áætlunarflug fyrir Iceland Express til og frá Íslandi. Iceland Ex­ press er ekki með íslenskt flugrekstr­ arleyfi og getur því ekki átt og rekið þotur til farþegaflutninga hér á landi. Hart hefur verið deilt á Iceland Ex­ press á síðustu vikum og mánuð­ um þar sem ferðaskrifstofunni hefur gengið illa að halda sig við áætlanir – vélar fyrirtækisins eru seinar í 64 pró­ sent tilfella samkvæmt Fréttablaðinu. Skiptastjóri þrotabús eignarhalds­ félags Pálma, Fons, hefur stefnt Pálma og vill láta rifta kaupum hans á Astra­ eus og Iceland Express eftir banka­ hrunið árið 2008. Enginn hasar segir Skarphéðinn Fulgoni er einn af stofnendum Astra­ eus og hefur starfað hjá flugfélaginu síðan árið 2002. Skarphéðinn Berg segir að starfslok Fulgonis beri að með eðlilegum hætti. „Það er eng­ inn hasar í þessari uppsögn,“ segir Skarphéðinn Berg, í samtali við DV frá skrifstofum Astraeus við Gat­ wick­flugvöll í London. Upphafleg­ ar heimildir DV hermdu að Fulgoni hefði verið látinn fara vegna deilna við Pálma Haraldsson. Skarphéðinn Berg segir hins vegar að Fulgoni hafi ekki verið rekinn. Ör vöxtur Iceland Express Fulgoni segir aðspurður að eng­ ar deilur hafi verið á milli hans og eigenda flugfélagsins. Hann seg­ ist hafa metið sína stöðu sem svo að meiri samþætting þyrfti að vera í rekstri Astraeus og Iceland Ex­ press þar sem starfsemi íslensku ferðaskrifstof unnar hefði blásið út á tiltölulega skömmum tíma. „Iceland Express er fyrirtæki sem hefur stækkað mikið á skömmum tíma. Líkt og gildir yfirleitt um fyr­ irtæki sem stækka mikið á skömm­ um tíma þá koma upp erfiðleikar í rekstrinum sem þarf að lagfæra. Með stækkun Iceland Express þá liggur fyrir að Astraeus þarf að vinna enn nánar með Iceland Ex­ press og styrkja félagið. Annar rekstur Astraeus, leiga á flugvélum til annarra aðila, er orðinn minna mikilvægur vegna þessa. Ég út­ skýrði það því fyrir eigendum flug­ félagsins fyrir nokkru að þeir þyrftu forstjóra sem hentaði betur til að vinna að þessari samþættingu á milli Iceland Express og Astraeus.“ Fulgoni segist hafa tjáð eigend­ um flugfélagsins að hann teldi að það þjónaði betur hagsmunum samstæðunnar að finna annan for­ stjóra. „Hugsanlega væri betra fyrir þá að ráða íslenskan forstjóra,“ seg­ ir Fulgoni. Hann segir engar deil­ ur hafa verið um starfslok hans hjá Astraeus. Eftirmaðurinn ófundinn Skarphéðinn Berg, sem jafnframt er stjórnarformaður Astraeus, seg­ ir að eftirmaður Fulgonis sé ófund­ inn. Hann segir að nýr forstjóri verði kynntur í haust. „Það ferli er ekki byrjað – þetta er kannski ekki rétti árstíminn til að ráða eftirmann hans. Við munum ráða eftirmann hans í haust.“ Aðspurður hvort stjórnendur og eigendur Fengs vilji ráða Íslending í starfið segir Skarphéðinn að það verði ekki efst á blaði yfir þá eigin­ leika sem nýr forstjóri þurfi að hafa þó vissulega gæti það verið hentugt vegna þeirra miklu tengsla sem eru á milli Iceland Express og Astraeus. „Það gæti verið áhugavert að hafa Íslending í þessu starfi enda mjög náin samskipti á milli Astraeus og Iceland Express,“ segir Skarphéð­ inn og bætir því við að til standi að ráða mann með mikla reynslu af flugbransanum. n Mario Fulgoni hættur hjá Astraeus n Breska flugfélagið annast áætlunarflug Iceland Express Forstjórinn hvarf á braut Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Mikil samþætting Fulgoni segir að vegna mikils vaxtar Iceland Express og samþættingar við starfsemi Astraeus hafi hann ákveðið að stíga til hliðar. Eftirmaðurinn ráðinn í haust Skarphéðinn Berg segir að eftirmaður Fulgonis verði ráðinn í haust. Leita að nýjum forstjóra Astraeus, breskt flugfélag í eigu Pálma Haralds- sonar, er forstjóralaust eftir að Mario Fulgoni lét af störfum hjá félaginu. „Fulgoni segir engar deilur hafa verið milli hans og Pálma Haraldssonar. Lima hrísmjólk er lífræn, bragðgóð, fitusnauð, án kólesteróls, laktósa og sykurs. Tedrykkirnir eru hollir, hressandi sumardrykkir fullir af andoxunarefnum. Trönuberjasafinn frá healthy people er án viðbætts sykurs og einstaklega bragðgóður. » » » Berry drykkirnir eru verðlaunavara. Hreinir og án litar- og rotvarnarefna. Án viðbætts sykurs. Ber eru full af vítamínum og andoxunarefnum. Gojiberið er oft kallað Hamingjuberið! » HREIN HOLLUSTA Arka ehf | Sundaborg 1 | 104 Reykjavík | Sími 562 6222 | info@arka.is Lima hrísmjólk er lífræn, bragðgóð, fitusnauð, án kólesteróls, laktósa og sykurs. Tedrykkirnir eru hollir, hressandi sumardrykkir fullir af andoxunarefnum. Trönuberjasafinn frá healthy people er án viðbætts sykurs og einstaklega bragðgóður. » » » Berry drykkirnir eru verðlaunavara. Hreinir og án litar- og rotvarnarefna. Án viðbætts sykurs. Ber eru full af vítamínum og andoxunarefnum. Gojiberið er oft kallað Hamingjuberið! » HREIN HOLLUSTA Arka ehf | Sundaborg 1 | 104 Reykjavík | Sími 562 6222 | info@arka.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.