Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Qupperneq 27
F
Fræg er sagan af hnefaleika-
manninum sem hrasaði við
vindhögg andstæðingsins og
komst ekki á fætur áður en
dómarinn taldi upp að tíu. Boxarinn
ólukkulegi varð ekki fyrir neinu höggi
en var orðinn svo lúinn eftir lang-
an bardagann að vöðvarnir brugð-
ust þegar hann hugðist brölta upp
á lappirnar á ný. Kiknaði í hnjánum
og lá örendur á gólfinu með ökklana
flækta í kaðlinum og höfuðið út af
pallinum.
Ég ætla nú ekki endilega að spá
ríkisstjórninni viðlíka örlögum en
nú þegar nýr stjórnmálavetur gengur
í garð er ekki alveg út í hött að hafa
þessa sögu í huga – sér í lagi núna
þegar virðist sem stjórnvöld ætli að
standa af sér atlögur stjórnarand-
stöðunnar.
Um koll að keyra
Óhætt er að segja að allt hafi ætlað
um koll að keyra þegar Guðmund-
ur Steingrímsson tilkynnti í vikunni
um úrsögn úr Framsóknarflokkn-
um og stofnun nýs frjálslynds flokks
á miðju stjórnmálanna. Og biðl-
aði um leið til frjálslyndra alþjóða-
sinnaðra hófsemdarmanna í öðrum
flokkum. En því var einmitt spáð í
þessum dálki fyrir viku að frjálslynd
öfl í Framsóknarflokki, Sjálfstæðis-
flokki og Samfylkingu gætu hæglega
tekið höndum saman um slíkt fram-
boð – enda væri allt galopið á miðju
íslenskra stjórnmála. Áherslan und-
anfarin misseri hefur nefnilega verið
á öfgarnar á meðan hinn breiði hóp-
ur frjálslynds hófsemdarfólks hef-
ur verið afskiptur. Íslensk stjórnmál
hafa eiginlega verið eins og þeyti-
vinda sem þrýstir öllum út á jaðar-
inn og skilur aðeins eftir tómarúm í
miðjunni.
Það varð nefnilega svo að þeg-
ar að Samfylkingin færðist til vinstri
í samstarfinu við VG, Bjarni Bene-
diktsson hraktist í fang harðlínuafla
og Sigmundur Davíð var upptekinn
við íslenska kúrinn og annað þjóð-
ernisbrölt þá galopnaðist miðsvæðið
upp á gátt.
Sóknarfæri
Kannski er það einmitt til marks um
hve augljóst sóknarfærið er á miðj-
unni að viðbrögðin við úrsögn Guð-
mundar úr Framsóknarflokknum
hafi verið svona feiknarlega hörð. Það
sem af er kjörtímabili hefur nefnilega
verið mikil traffík á milli þingflokks-
herbergja. Fyrir gáttir þeirra eru nú
eiginlega komnar snúningshurðir í
stað þeirra venjulegu. Fyrst fór Þrá-
inn Bertelsson úr Borgarahreyfing-
unni áður en hinir þrír þingmenn
hennar stofnuðu nýjan þingflokk,
Hreyfinguna. Svo yfirgáfu VG þau
Atli Gíslason, Lilja Mósesdóttir og
Ásmundur Einar Daðason. Sá síðast-
nefndi gekk í Framsókn og Þráinn fór
í VG eftir að hafa staðið utan þing-
flokka um skeið.
Það eru því engin sérstök tíðindi
lengur í flakki á milli þingflokka.
Tíðni slíkra skipta er slík að jafn-
vel ætti að taka upp sérstaka skipti-
glugga eins og gert er í fótboltan-
um til að koma skikki á flakkið. Til
dæmis síðsumars og á milli jóla og
nýárs.
Haustlægðir og hret
Sitjandi ríkisstjórn er einhver sú mest
sundur barða sem hangið hefur uppi
en alveg sama hvað á henni dynur
virðist hún standa allar atlögur af sér
– svo sem upphlaup órólegu deildar
VG, Icesave-helvítið, Magma-málið,
Evrópusambandsumsóknina, hrip-
lek fjárlög og ítrekaðar hótanir og
skærur eigin liðsmanna. Allt frá fæð-
ingu og í hverjum mánuði – ef ekki
í hverri einustu viku – hefur ríkis-
stjórninni verið spáð falli. En alltaf
hangir hún uppi. Allavega enn sem
komið er.
Og nú þegar komið er fram yfir
mitt kjörtímabilið hefur þeim fækkað
sem spá ríkisstjórninni skjótu and-
láti. En það er einmitt í slíku ástandi
sem mesta hættan er á því að stjórn-
völd hrasi um eigin flækjufót. Stjórn-
arþreytan er nefnilega slík að jafnvel
meinlausustu vindhögg stjórnarand-
stöðunnar geta feykt ríkisstjórninni
um koll. Eftir tvo stormharða frosta-
vetur má áfram gera ráð fyrir hrá-
slagalegum hretum í stjórnmálun-
um. Spennandi verður að sjá hvernig
ríkisstjórninni mun ganga að standa
af sér haustlægðirnar sem nálgast nú
óðfluga.
Umræða | 27Helgarblað 26.–28. ágúst 2011
Hver á að verða næsti landsliðsþjálfari í fótbolta?
„Eyjólfur Sverrisson eða Rúnar Kristinsson.“
Stefán Freyr Gunnlaugsson
18 ára menntaskólanemi
„Eyjólfur Sverrisson.“
Benedikt Andrason
18 ára nemi
„Mér gæti ekki verið meira sama.“
Tjörfi Karlsson
20 ára nemi
„Mér er alveg sama.“
Ísak Ívarsson
24 ára nemi
„Eiður Smári, það væri alveg flott að sjá
hann sem þjálfara.“
Aron Bjarni Einarsson
19 ára slakar á
Myndin Fest á filmu Fígúran Maximus Musicus var í banastuði fyrir utan Hörpu í góða veðrinu á fimmtudaginn og leiddist ekki athyglin. mynd SiGTryGGUr Ari
Maður dagsins
Gestir villast
í landamæra-
leysi tónlist-
arinnar
Pétur Grétarsson
Pétur Grétarsson er framkvæmdastjóri og
listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Reykjavíkur
sem stendur til 4. september. Hann hóf
hljóðfæranám sitt á harmonikku en endaði
sem trommari.
Hver er maðurinn?
„Pétur Grétarsson, Jazzhátíðarstjóri í
Reykjavík.“
Hvar ert þú alinn upp?
„Í Reykjavík.“
Hvað drífur þig áfram?
„Jazz og önnur góð músík.“
Átt þú þér fyrirmynd?
„Nei.“
Hver er uppáhaldstónlistarmað-
urinn þinn?
„Það fer eftir því hvernig veðrið er. Það getur
verið Mugus eða Maler.“
Á hvaða hljóðfæri spilar þú?
„Ég er trommari, en lærði fyrst á harmon-
ikku.“
Hvað varst þú gamall þegar þú
byrjaðir að læra á hljóðfæri?
„Ég hef verið svona 10 ára.“
Hverju mega gestir Jazzhátíðar
reykjavíkur búast við í ár?
„Þeir mega búast við mikilli óvissuferð og að
villast í landamæraleysi tónlistarinnar.“
Hvaða atriði ert þú spenntastur
fyrir?
„Ég er spenntastur fyrir heildarmyndinni.
Mér finnst rosalega gaman að eiga eftir
að upplifa Mezzoforte í troðfullri Eldborg í
Hörpu og svo er líka Danilo Perez flottur.“
Hvaða þýðingu hefur hátíðin fyrir
tónlistarlíf reykjavíkur?
„Hún hefur þá þýðingu að við getum boðið
upp á nokkra af okkar bestu tónlistar-
mönnum við toppaðstæður.“
Kjallari
dr. Eiríkur
Bergmann
Skiptiglugginn er opinn
Dómstóll götunnar
„Kannski er það
einmitt til marks
um hve augljóst sóknar-
færið er á miðjunni að
viðbrögðin við úrsögn
Guðmundar úr Fram-
sóknarflokknum hafi ver-
ið svona feiknarlega hörð.