Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Side 29
Viðtal | 29Helgarblað 26.–28. ágúst 2011
Svefnvana í kjarabaráttu
Kennaraháskóla Íslands árið
2006 sendu þeir Heiðar Örn
frá sér plötuna Pollapönk. Plat-
an féll í góðan jarðveg bæði
hjá börnum og fullorðnum
enda er það stefnan hjá þeim. Í
sveitinni með Heiðari og Halla
eru Arnar Gíslason og Guðni
Finnsson úr hljómsveitunum
Ensími og Dr. Spock. Þetta er
því þungavigtarsveit, ekki satt?
„Jú, það má enginn gera
þau mistök að taka okkur ekki
alvarlega,“ segir Halli. „Þetta
er svo rosalega skemmtilegt,
þetta gefur mér ótrúlega mik-
ið. Ekki er verra að við dönsum
aðeins á línunni í textunum og
laumum smá samfélagsrýni í
þá. Markmiðið með Pollapönki
er að búa til tónlist og texta
sem bæði börn og fullorðn-
ir hafa gaman af. Þótt þetta
sé hugsað fyrir börn reynum
við að tengja þetta þannig að
fullorðnir geti ekki síður haft
gaman af tónlistinni.“
Aukatekjur með
tónlistinni
Tónlistin hefur fært Halla
aukatekjur í aðra hönd í gegn-
um tíðina. Hann segir það
hafa bjargað afkomunni því
laun þeirra hjóna hafi verið
lág. „Ég starfaði sem leikskóla-
kennari og konan mín sem
þroskaþjálfi. Hvorugt þessara
starfa er metið að verðleikum.
Tekjurnar af tónlistinni voru
því kærkomnar.“
Á sjötíu þúsund króna bíl
Halli segir marga leikskóla-
kennara ekki hafa ráð á að
borga alla reikningana. „Ég
hefði ekki getað það heldur.
Ég er ekki að segja að með
tónlistinni hafi ég getað lifað í
vellystingum, ég á sjötíu þús-
und króna bíl og hóflega stóra
íbúð!“
Halli vakti athygli áður en
hann landaði nýjum kjara-
samningi og fór út í Bónus
og fyllti þar vörukörfu fyrir 15
þúsund krónur. „Ég fór í Bón-
us og fyllti körfuna til þess að
sýna fram á að það sem boðið
var upp á var í raun og veru
ein ferð í Bónus. Þetta var
gert bæði í alvöru og gamni.
Eftir á að hyggja hefði ég
átt að fylla körfuna af holl-
ari mat,“ segir hann og hlær.
„Gott að þetta náðist ekki á
mynd enda var ég með kók-
osbollur og alls kyns gúm-
mulaði í körfunni. Konunni
minni finnst kókosbollur svo
góðar,“ segir hann.
Saknar þess að kenna
Halli segist sakna þess að
kenna og ætlar sér ekki að fest-
ast inni á skrifstofu.
„Ég ætla að vera duglegur
að fara í leikskólana og taka
í gítarinn. Ég sakna þess að
kenna, alveg virkilega. Ég þarf
líka að spila fyrir krakkana til
að sjá hvað virkar. Við nefni-
lega hendum þeim lögum
sem krakkarnir eru fíla ekki.
Mig langar að reyna að heim-
sækja alla leikskóla á landinu
sem vilja á annað borð fá mig
í heimsókn.“
Halli ætlar ekki bara að
heimsækja leikskóla til þess
að spila fyrir krakkana. Hann
vill ná til kennara, foreldra og
samfélagsins alls. Stóra mark-
miðið er að leikskólakennara-
stéttin njóti virðingar í sam-
félaginu og fái greidd laun í
samræmi við þá miklu ábyrgð
sem leikskólakennarar bera.
„Það viðurkenna allir að
við erum að vinna með það
dýrmætasta sem fólk á. Það
viðurkenna líka flestir að við
eigum skilið góð laun fyr-
ir þá ábyrgð sem við berum.
Ábyrgð kennara er gríðarlega
mikil,“ segir Halli. „Fólk áttar
sig ekki á því hversu mikil hún
er og gleymir að setja þessa
ábyrgð í víðara samhengi. Við
berum ábyrgð á þroska, námi,
vellíðan og öryggi barnsins.
Þegar við förum út með barn-
ið í göngutúr væri skelfilegt að
ímynda sér það ef eitt barnið
myndi verða fyrir bíl. Þá væri
það á okkar ábyrgð. Sá kenn-
ari sem myndi lenda í því ætti
ekki afturkvæmt.“
Góður vinur bregst ekki
„En það er líka okkar ábyrgð-
arhlutverk að fylgjast með því
hvort barn sé beitt ofbeldi
og þarfir þess vanræktar. Við
hljótum þjálfun í því að fylgj-
ast með því hvort barn hef-
ur verið beitt ofbeldi og eig-
um að tilkynna öll merki um
slíkt til barnaverndar og koma
barninu til hjálpar.“
Halli leggur áherslu á að
skylda kennara til að koma
þessum börnum til aðstoð-
ar með þessum hætti sé gríð-
arlega rík. „Hún er líka erfið,“
segir hann. „Foreldrar og að-
standendur bregðast hart við.
En þetta er nauðsynlegt, það
er alltof mikið af börnum sem
eru nú vaxin úr grasi og segja
sögu af áralöngu ofbeldi og
afskiptaleysi kennara sinna.
Kennari á að vera vinur og
góður vinur bregst ekki.“
„Ég hlakka
til að eyða
meiri tíma með
litlu stúlkunni
minni
Var óþekkur og
uppátækjasamur
Halli skilur vel fjörugu
strákana sem margir eiga
í basli með að ná til á leik-
skólanum. Enda var hann
ansi fjörugur sjálfur. „Ég
hljóp alltaf á harðaspretti
heim úr skólanum. Ég
var að reyna að ná heim
áður en kennarinn hringdi
í mömmu til að segja
henni af prakkarastrikum
dagsins.“ mynd SiGtryGGur Ari