Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Síða 32
K
ristján fæddist í Minnea-
polis í Bandaríkjunum
en ólst upp í Vesturbæn-
um í Reykjavík. Hann var í
Grandaskóla og Hagaskóla,
stundaði nám við Fjölbrautaskólann
í Ármúla og lauk þaðan stúdents-
prófi 2002, stundaði nám í íþrótta-
fræðum við Háskólann í Reykjavík
og lauk þaðan BS-prófi í íþróttafræði
árið 2008. Hann stundaði síðan nám
í lýðheilsuvísindum við University
of Minnesota í Bandaríkjunum árið
2010–2011.
Kristján sinnti ýmsum störfum
á námsárunum, m.a. við kennslu
og þjálfun. Að námi loknu hóf hann
störf við frístundastarf barna hjá
Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavík-
urborgar. Hann starfar nú við göngu-
greiningar hjá Flexor í Orkuhúsinu.
Kristján æfði og keppti í körfu-
bolta með yngri flokkum KR á ung-
lingsárunum og leikur nú með 2.
deildar körfuboltaliðinu Augnabliki.
Fjölskylda
Unnusta Kristjáns er Arndís Svein-
björnsdóttir, f. 5.10. 1983, lögfræð-
ingur.
Sonur Kristjáns og Arndísar er
Sveinbjörn Daði Kristjánsson, f. 15.6.
2009.
Systkini Kristjáns eru Jóhannes
Páll Friðriksson, f. 26.4. 1984, starfs-
maður hjá Reiknisstofnun Háskóla
Íslands; Þorbjörg Andrea Friðriks-
dóttir, f. 24.7. 1991, nýstúdent.
Hálfbróðir Kristjáns er Gauti Frið-
riksson, f. 30.5. 1979, starfsmaður hjá
CCP.
Foreldrar Kristjáns eru Friðrik Kr.
Guðbrandsson, f. 16.7. 1950, læknir í
Reykjavík, og Sóley Sesselja Bender,
f. 26.7. 1953, prófessor við Háskóla
Íslands.
32 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað
K
jartan fæddist á Selfossi
og ólst þar upp. Hann var
í Barnaskóla Selfoss og
Gagnfræðaskóla Selfoss,
stundaði nám við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands og lauk það-
an sveinsprófi í húsasmíði, stundaði
síðan nám við Horsens Politeknikum
í Horsens í Danmörku og lauk þaðan
prófi í byggingariðnfræði, stundaði
síðan nám í uppeldis- og kennslu-
fræði við Háskólann á Akureyri og
lauk þaðan prófum árið 2000.
Kjartan var í sveit á Mýrum í Álfta-
veri á æsku- og unglingsárunum.
Hann var tollvörður á Keflavíkurflug-
velli með námi og var háseti á síldar-
bátum og á netaveiðum frá Þorláks-
höfn.
Kjartan kenndi við Framhalds-
skólann á Húsavík 1998–2005 og hef-
ur kennt við Fjölbrautaskóla Suður-
lands frá 2005.
Kjartan er varabæjarfulltrúi á Sel-
fossi fyrir Samfylkinguna frá 2010 og
var formaður umhverfis- og bygg-
ingarnefndar Árborgar 2006–2010.
Hann var meðlimur í karlakórnum
Hreimi í Þingeyjarsýslu.
Fjölskylda
Kjartan er í sambúð með Valgerði
Bjarnadóttur, f. 26.1. 1961, grunn-
skólakennara.
Dætur Kjartans og Valgerðar eru
Melkora Kjartansdóttir, f. 21.8. 1989,
háskólanemi; Elín Svava Kjartans-
dóttir, f. 4.10. 1995, framhaldsskóla-
nemi.
Synir Kjartans frá því áður eru
Haraldur Óli Kjartansson, f. 29.10.
1981, verkamaður á Selfossi; Hjalti
Þór Kjartansson, f. 17.2. 1983, d. 12.6.
2009, verkamaður á Selfossi.
Systkini Kjartans eru Anna María
Óladóttir, f. 16.9. 1964, skrifstofu-
maður við Háskóla Íslands; Guð-
bjartur Ólason, f. 31.7. 1969, skóla-
stjóri við Vallaskóla á Selfossi.
Foreldrar Kjartans eru Óli Þ. Guð-
bjartsson, f. 27.8. 1935, fyrrv. skóla-
stjóri Vallaskóla og fyrrv. alþm. og
dómsmálaráðherra, og Þuríður
Svava Kjartansdóttir, f. 9.5. 1933, hús-
móðir.
Ætt
Óli er sonur Guðbjarts, skipstjóra á
Bíldudal, síðar bókara í Reykjavík
Ólasonar, sjómanns á Bíldudal Þor-
bergssonar, b. í Efri-Miðvík í Sléttu-
hreppi Jónssonar, bróður Kristjáns,
afa Valdimars Jónssonar prófess-
ors. Móðir Óla var Margrét ljósmóðir
Þorsteinsdóttir, systir Júditar, móð-
ur Klemensar Kristjánssonar, korn-
ræktarstjóra á Sámsstöðum í Fljóts-
hlíð. Móðir Guðbjarts var Guðbjörg
Guðbjartsdóttir, b. á Ósi í Arnarfirði,
bróður Árna, afa Sigurðar Samúels-
sonar prófessors. Annar bróðir Guð-
bjarts var Jens, langafi Ingunnar
Jensdóttur leikkonu, konu Friðjóns
Guðröðarsonar, sýslumanns á Hvols-
velli. Guðbjartur var sonur Kristjáns,
b. á Borg í Arnarfirði Guðmunds-
sonar og Guðbjargar, systur Matth-
íasar, afa Ásgeirs Ásgeirssonar for-
seta. Systir Guðbjargar var Sigríður,
móðir Markúsar Bjarnasonar, skóla-
stjóra Stýrimannaskólans, afa Rögn-
valdar Sigurjónssonar píanóleik-
ara. Guðbjörg var dóttir Markúsar,
pr. á Álftamýri Þórðarsonar, stúd-
ents í Vigur Ólafssonar, lögsagnara
á Eyri Jónssonar, ættföður Eyrarætt-
arinnar, langafa Jóns forseta. Móð-
ir Guðbjargar Guðbjartsdóttur var
Guðríður, systir Jóns, ættföður Löve-
ættar og afa Jóns Ásgeirssonar tón-
skálds. Guðríður var dóttir Þórðar,
b. á Kistufelli í Lundarreyjadal Jóns-
sonar og Guðríðar Þorvaldsdóttur,
b. á Stóra-Kroppi Jónssonar, dbrm. í
Deildartungu Þorvaldssonar, ættföð-
ur Deildartunguættar, langafa Helgu,
langömmu Guðrúnar, móður Svav-
ars Gestssonar sendiherra.
Móðir Óla, fyrrv. ráðherra var
María, dóttir Guðmundar, b. á Barmi
í Gufudalssveit Arasonar, b. á Barmi
Guðmundssonar, b. á Hallsteinsnesi
Arasonar, b. á Svarfhóli Jónssonar.
Móðir Ara á Barmi var Guðrún Jóns-
dóttir, b. á Galtará Guðnasonar, b. á
Fjarðarhorni Jónssonar, b. í Fremri-
Gufudal Bjarnasonar. Móðir Jóns
Bjarnasonar var Unnur Pálsdótt-
ir, systir Magnúsar, föður Ara, lang-
afa Gests Pálssonar skálds og Ara
Arnalds, afa Ragnars Arnalds, fyrrv.
alþm. og ráðherra og fyrrv. formanns
Heimssýnar. Móðir Maríu var Þor-
björg, systir Sveinbjarnar, kennara
og fræðimanns, afa Jóns Óskarsson-
ar, lögfræðings í Vestmannaeyjum.
Þorbjörg var dóttir Guðmundar, b. í
Skáleyjum Jóhannessonar og Stein-
unnar, systur Jóhanns, langafa Krist-
jáns Torfasonar, fyrrv. bæjarfógeta
í Vestmannaeyjum. Steinunn var
dóttir Sveinbjarnar, b. í Skáleyjum
Magnússonar, b. í Hvallátrum Ein-
arssonar, bróður Eyjólfs eyjajarls,
langafa Jónasar, föður Snæbjarnar,
fyrrv. vegamálastjóra. Móðir Stein-
unnar var María Jónsdóttir, systir
Sigríðar, móður Björn Jónssonar ráð-
herra, föður Sveins forseta og Ólafs,
ritstjóra Morgunblaðsins og afa Ólafs
B. Thors, fyrrv. forstjóra og bogarfull-
trúa. Önnur systir Maríu var Sesselja,
móðir skáldanna Herdísar og Ólínu
Andrésdætra.
Þuríður Svava er dóttir Kjartans,
b. á Torfastöðum og Vatnsdal í Fljóts-
hlíð Magnússonar frá Brekkum í
Landsveit.
Móðir Þuríðar Svövu var Anna,
systir Guðmundar, föður Sigurð-
ar, framkvæmdastjóra SG-eininga-
húsa á Selfossi. Anna var dóttir
Guðmundar, b. á Núpi Magnússon-
ar b. á Núpi Magnússonar. Móðir
Önnu var Þuríður Sigurðardóttir,
b. á Torfastöðum í Fljótshlíð Ólafs-
sonar, b. á Kvoslæk í Fljótshlíð Arn-
björnssonar, b. á Kvoslæk Eyjólfs-
sonar. Móðir Þuríðar var Guðrún
Ólafsdóttir, b. á Múlakoti í Fljóts-
hlíð Árnasonar og Þórunnar, ljós-
móður Þorsteinsdóttur, b. og smiðs
á Vatnsskarðshólum Eyjólfssonar.
Móðir Þórunnar var Karítas, ljós-
móðir Jónsdóttir, klausturhaldara
á Reynistað Vigfússonar, stúdents
á Hofi Gíslasonar, rektors á Hólum
Vigfússonar. Móðir Jóns var Helga
Jónsdóttir, biskups á Hólum Vigfús-
sonar, bróður Gísla. Móðir Karítas-
ar var Þórunn Hannesdóttir Schev-
ings, sýslumanns á Munkaþverá,
Lárussonar og konu hans, Jórunn-
ar Steinsdóttur, biskups á Hólum
Jónssonar.
Kjartan Ólason
framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskóla Suðurlands
Eva Rán Árnadóttir
verslunarmaður í London
Kristján Theódór
Friðriksson
íþróttafræðingur í Kópavogi
30 ára á föstudag 50 ára á föstudag
M
artin fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp í Breið-
holtinu. Hann var í Ísaks-
skóla, Hólabrekkuskóla
og í Réttarholtsskóla,
stundaði nám við Menntaskólann í
Reykjavík, var skiptinemi í Banda-
ríkjunum í eitt ár og stundaði síðan
nám við Menntaskólann í Hamrahlíð
og lauk þaðan stúdentsprófi.
Martin starfaði við Urriðavöll gof-
klúbbs Oddfellowa á árunum 1999–
2007 en hefur síðan verið lagermað-
ur hjá Aðföngum í Reykjavík.
Martin spilaði sinn fyrsta golf-
hring fimm ára og hefur æft golf frá
ellefu ára aldri. Hann situr í nefnd á
vegum Golfklúbbs Öndverðarness.
Fjölskylda
Sambýliskona Martins er Heiða Rún
Sveinsdóttir, f. 30.7. 1983, deildar-
stjóri við sambýlið að Barðastöðum.
Börn Martins frá því áður eru
Gabríel Máni Martinsson, f. 21.12.
2004; Bryndís Lilja Martinsdóttir, f.
31.12. 2006.
Systir Martins er María Ágústs-
dóttir, f. 4.4. 1972, MA-nemi í við-
skiptalögfræði.
Foreldrar Martins eru Ágúst Þórð-
arson, f. 4.10. 1951, byggingafræð-
ingur í Reykjavík, og Edda Ólafsdótt-
ir, f. 14.12. 1951, hjúkrunarfræðingur
hjá Eirbergi.
Martin Ágústsson
lagerstarfsmaður
30 ára á laugardag
Á
Ármann fæddist á Akranesi
og ólst þar upp. Hann var í
Brekkubæjarskóla, stund-
aði nám við Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi og
lauk þaðan stúdentsprófi árið 2000,
stundaði síðan nám í tölvunarfræði
við Háskólann í Reykjavík og lauk
þaðan prófum 2004. Hann er nú að
hefja MSc-nám í tölvunarfræði við
Háskólann í Edinborg.
Ármann vann við bátasmíðar hjá
föður sínum á Akranesi með fram-
haldsskóla, starfaði hjá Norðuráli á
Grundartanga í tvö sumur. Hann var
tölvunarfræðingur hjá fyrirtækinu
Landmati ehf á árunum 2004–2006
en hefur verið hugbúnaðarsérfræð-
ingur hjá Opnum kerfum frá 2006.
Fjölskylda
Eiginkona Ármanns er Ástrún Eva
Sívertsen, f. 21.8. 1983, líffræðingur
hjá Náttúruminjasafni Íslands.
Systkini Ármann eru Svavar Páll
Guðgeirsson, f. 5.7. 1986, nemi í
japönsku við Háskóla Íslands; Lára
Guðríður Guðgeirsdóttir, f. 29.11.
1989, nemi í hjúkrunarfræði við Há-
skóla Íslands.
Foreldrar Ármanns eru Guðgeir
Svavarsson, f. 4.5. 1961, skipasmiður
á Akranesi, og Kristín Ármannsdótt-
ir, f. 25.3. 1963, skólaliði við Grunda-
skóla á Akranesi.
Ármann Veigar
Guðgeirsson
tölvunarfræðingur í Reykjavík
30 ára á sunnudag
E
va Rán fæddist í Reykja-
vík en ólst upp á Seltjarn-
arnesi. Hún var Mýrar-
húsaskóla, Valhúsaskóla,
Suðurhlíðaskóla og
Hvassaleitisskóla og stundaði nám
við Menntaskólann í Hamrahlíð.
Eva Rán starfaði við Björns-
bakarí við Hringbraut og á Fálka-
götu í nokkur ár. Hún er nú búsett
í London þar sem hún sinnir versl-
unarstörfum við verslun systur
sinnar.
Fjölskylda
Systkini Evu Ránar eru Jón Valgeir
Williams, f. 25.11. 1973, stuðnings-
fulltrúi í Hafnarfirði; Kristjana S.
Williams, f. 20.12. 1974, kaupmaður
í London.
Foreldrar Evu Ránar eru Árni G.
Jónsson, f. 24.9. 1955, SAP-fulltrúi í
London, og Matthildur Magnúsdótt-
ir, f. 16.9. 1945, húsmóðir í London.
30 ára á laugardag