Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Síða 40
40 | Lífsstíll 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað
Þ
etta gekk svo vel síð
ast að við ákváð
um að ég myndi
fæða heima núna,“
segir frjálsíþrótta
konan Þórey Edda Elís
dóttir en hún og kærastinn
hennar, íþróttamaðurinn
Guðmundur Hólmar, eign
uðust sitt annað barn þann
27. apríl. Þórey Edda og Guð
mundur fengu strák sem hef
ur fengið nafnið Ingi Hólm
ar en fyrir eiga þau soninn
Braga Hólmar sem verður
tveggja ára í september.
Þórey segir meðgönguna
og fæðinguna hafa geng
ið vel. „Þetta var bara alveg
frábært og yndislegt að geta
farið bara upp í sitt rúm eft
ir að hafa fætt hann,“ segir
hún og bætir við að pabbinn
hafi ekki verið neitt smeykur
við heimafæðingu. „Hann er
svo mikill sveitakarl og fannst
þetta bara spennandi. Þetta
var í rauninni hans ósk,“ seg
ir hún og bætir við að Guð
mundur hafi hjálpað mikið í
fæðingunni. „Við vorum með
alveg frábæra ljósmóður.
Hún leiðbeindi honum svo
hann gat tekið mikinn þátt
og var ofan í lauginni hjá mér
þegar hann fæddist.“
Þar sem Þórey fæddi
heima voru engar deyfingar
í boði. Aðspurð viðurkennir
hún að hugsanir um sjúkra
hús og deyfilyf hafi poppað
upp í huga hennar eitt and
artak. „Kannski í svona fimm
sekúndur. En það var bara
ágætt því þá vissi ég að hann
væri að koma,“ segir hún
brosandi og bætir við að stóri
bróðir sé ánægður með við
bótina. „Hann er alveg rosa
lega ánægður með hann og
vill helst geta leikið við hann
strax. Það er kostur að hafa
svona stutt á milli því þá er
afbrýðisemin minni. Hann
bara knúsar hann og kyssir
og er voðalega góður.“
Þórey Edda segist hætt að
keppa í frjálsum íþróttum.
„Nú hafa barneignir tekið
við,“ segir hún hlæjandi og
viðurkennir að hún væri til í
eitt barn í viðbót. „Ég ætla nú
samt ekki að halda áfram þar
til stelpan kemur. Ef næsta
barn verður strákur þá er það
bara flott. Ég held að þrjú
börn séu alveg nóg. Ég er orð
in 34 ára og ætla ekki að vera í
þessu endalaust.“
Þrátt fyrir að vera hætt að
keppa er Þórey staðráðin í að
koma sér aftur í form. „Ég er
komin með löngun til að fara
að hreyfa mig en þessi löng
un var alveg horfin eftir síð
ustu meðgöngu. Nú langar
mig að koma mér í form. Ég
er að þjálfa stangarstökkhóp
en ætla líka að gera eitthvað
fyrir sjálfa mig. Til dæmis að
fara út að hlaupa, taka spretti
og gera aðrar frjálsíþrótta
æfingar.“
indiana@dv.is
n Afreksíþróttakonan Þórey Edda Elísdóttir er orðin tveggja barna móðir.
Barneignir teknar
við af íþróttunum
„Ef næsta
barn verð-
ur strákur þá er
það bara flott.
Falleg mæðgin Þórey og kærastinn hennar, Guðmundur Hólmar, eiga synina Braga Hólmar og Inga Hólmar. Mynd: GunnAr GunnArsson
Lítil hjálp
í soja
Matur sem er ríkur af soja, líkt
og tofu, veitir litla vörn gegn
einkennum breytingaskeiðs
ins, eins og haldið hefur verið
fram. Í rannsókn, sem birtist í
Archives of Internal Medicine,
á yfir 250 bandarískum kon
um, kom í ljós að sojatöflur
veittu hvorki vörn gegn hita
köstum né beinþynningu. Á
meðan aðrar rannsóknir hafa
sýnt fram á að sojaafurðir geti
dregið úr einkennum breyt
ingarskeiðsins kom nú í ljós að
ástand kvenna sem fengu töfl
urnar var alveg eins og þeirra
kvenna í samanburðarhópi
sem fengu lyfleysu.
Sjónvarpsgláp
seinkar þroska
Börn sem horfa mikið á sjón
varp eru á eftir í vitsmuna
og málþroska við 14 mánaða
aldur. Sérstaklega ef þau hafa
horft á efni ætlað fullorðnum
og eldri börnum. Börn sem
horfðu í klukkustund á sjón
varp daglega skoruðu einum
þriðja lægra á prófi en börn
sem horfðu ekki eins mikið.
Þroski barnanna var þó innan
eðlilega marka. Vísindamenn
telja muninn tilkominn vegna
þess að börn sem horfa mikið
á sjónvarp eyða minni tíma í
að leika sér og spjalla við for
eldra sína. Rannsóknin kom
fram Archives of Pediatric and
Adolescent Medicine.
Fyrsti
smókurinn
hættulegur
Þeir sem kveikja sér í sígar
ettu um leið og þeir vakna á
morgnana eru líklegri til að
fá krabbamein en þeir sem
fá sér fyrsta smókinn síðar
um daginn. Þetta kom fram
í bandarískri rannsókn á yfir
7.600 reykingamönnum en
rannsóknin birtist í tímaritinu
Cancer. Í niðurstöðunum kom
í ljós að þeir sem fá sér smók
á fyrsta hálftímanum eftir að
þeir stíga úr rekkju eru meira
en helmingi líklegri til að
veikjast af lungnakrabbameini
en þeir sem bíða í klukku
tíma áður en þeir kveikja sér í.
Vísindamenn segja áhrifin af
fyrstu sígarettunni mjög mikil
jafnvel þótt breytur eins og
fjöldi sígaretta séu teknar með
í reikninginn.
1. Af hverju?
Hefur þú áhyggjur af ein
hverju? Hvað borðaðir þú í
dag? Hreyfðirðu þig? Reyndu
að slaka á og losa þig við allan
kvíða.
2. dreifðu huganum
Reyndu að gleyma þeirri stað
reynd að þú verður að sofna.
Því meira sem þú hugsar um
að sofna því erfiðara verður
það.
3. Borðaðu hollan mat
Matur getur spilað stórt hlut
verk. Koffein getur valdið
svefnleysi. Forðastu mat sem
er ríkur af koffeini eins og kaffi,
kók, súkkulaði, te og orku
drykki. Passaðu líka að fara
ekki að sofa á fullan maga því
meltingin getur truflað svefn
inn.
4. Farðu snemma að sofa
Ákveddu hvenær þú ætlar að
vera komin/n í rúmið á kvöld
in og stattu við það. Líka þeg
ar þú ert ekki þreytt/ur. Eftir
smátíma aðlagast líkaminn og
þú ferð að finna fyrir þreytu á
þessum tíma.
5. Gerðu svefnherbergið
notalegt
Passaðu að herbergið sé nota
legt og hljóðlátt og hreint loft
streymi um það.
Sigrast á andvökunni
n Það eru margar ástæður fyrir svefnleysi