Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Síða 42
42 | Tækni 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað
Hættir
Nintendo
við 3D?
Japanski tölvuleikjafram-
leiðandinn Nintendo lækkaði
nýverið verð á 3DS-leikjatölvu
fyrirtækisins með þeim af-
leiðingum að aldrei hafa fleiri
eintök af tölvunni selst. Það
mun þó ekki vera nógu gott
að mati stjórnenda fyrirtækis-
ins en TechCrunch greinir frá
því að Nintendo íhugi nú að
gjörbreyta tölvunni með þeim
afleiðingum að dregið verði úr
gæðum þrívíddarinnar sem
notendur tölvunnar upplifa.
Tölvan er einstök að því leyti
að þrívíddina í leikjunum er
hægt að sjá án þess að vera
með sérstök gleraugu eins og
venjulega er nauðsyn.
Framsókn
með app
Framsóknarflokkurinn hefur
gömul og þjóðleg í heiðri en
hann hefur engu að síður
tekið skref sem enginn annar
íslenskur stjórnmálaflokkur
hefur tekið. Flokkurinn hefur
sent frá sér snjallsímaforrit
sem gerir áhugasömum
framsóknarmönnum
tækifæri til að fylgjast með
öllu því nýjasta sem er að
gerast í flokknum. Forritið er í
raun einföld efnisveita sem
miðlar efni af vefjum
flokksins. Það ætti því ekki að
reynast öðrum stjórnmála-
flokkum erfitt að koma með
skemmtilegri útgáfu af
snjallsímaforriti.
Handhægt
lyklaborð
Bandaríska tæknifyrirtækið
Logitech hefur verið duglegt
við að senda frá sér aukahluti
fyrir önnur raftæki. Fyrirtæk-
ið hefur nú sent frá sér enn
einn aukahlutinn fyrir iPad
– lyklaborð sem hægt er að
brjóta saman. Lyklaborðið er
þunnt og hægt að brjóta það
saman til að gera auðveld-
ara að færa það á milli staða.
Lyklaborðið virkar líka sem
höfn fyrir iPad-spjaldtölv-
ur. Lyklaborðið tengist með
Bluetooth-tækni í iPad-tölv-
una þannig að þú ættir að
geta notað lyklaborðið þó þú
festir tölvuna ekki á það.
Í
slenska tæknibloggið sim-
on.is hóf göngu sína fyrir
stuttu en þar eru snjallsím-
ar í sviðsljósinu. „Simon.
is er tækniblogg með áherslu
á snjallsíma og allt sem þeim
tengist. Vefurinn er nefnd-
ur í höfuð á fyrsta snjallsíma-
num sem var framleiddur árið
1993 af IBM,“ segir Atli Stef-
án Yngvason, hjá simon.is.
„Markmið okkar er að skrifa
skemmtilegt, faglegt og áhuga-
vert blogg.“
Vefurinn var stofnaður af
þremur strákum sem hafa
brennandi áhuga á að koma
upp góðu íslensku tækni-
bloggi. Í dag hefur hópurinn á
bak við vefinn stækkað mikið
og eru um sextán manns sem
koma að skrifum á vefnum.
„Simon.is er rekinn af áhuga-
mönnum um snjallsíma sem
eru sumir hverjir tengdir fjar-
skiptageiranum. Simon er
mjög félagslyndur og hittumst
við reglulega til að ræða um
stefnu, árangur, verkefni og
áhugaverða hluti sem tengjast
snjallsímum,“ segir Atli Stefán.
„Vefsíðan gefur út stuttar og
lengri greinar sem fjalla ítar-
lega um nýja snjallsíma, app og
leiki fyrir snjallsíma og ýmsar
spennandi tæknifréttir,“ segir
Atli Stefán aðspurður hvernig
síðan gangi fyrir sig. Meðal þess
efnis sem þegar er komið á vef-
inn er úttekt á verði íslenskra
símafélaga á gagnaáskriftum.
Síðan er opin öllum og ekki
þarfnast áskriftar til að skoða
efnið sem þar er að finna.
Atli Stefán segir að síðan
hafi fengið góð viðbrögð síð-
an hún hóf göngu sína. „Við-
brögðin er mjög góð! Okkur
hefur gengið vel að fá vini á
Facebook og erum hægt og
rólega að byggja upp dyggan
lesendahóp með markaðs-
setningu á samfélagsmiðlum,“
segir hann.
adalsteinn@dv.is
n Íslenskt efni um snjallsíma á netinu
Íslenskt snjallsímablogg
Þ
ess er skammt að bíða
að þú getir borgað fyr-
ir vörur úti í búð með
snjallsímanum þín-
um. Fyrirtækið Square
hefur verið leiðandi á undan-
förnum mánuðum í þróun á
hugbúnaði fyrir snjalltæki sem
gerir notendum kleift að bæði
taka við greiðslum og greiða
fyrir vörur og þjónustu í gegn-
um tækin. Til að byrja með er
lausnin fyrir þá sem nota iOS-
snjalltæki á borð við iPhone og
iPad og enn sem komið er verð-
ur að teljast ólíklegt að þú get-
ir notað lausnina annars staðar
en í New York og San Francisco
í Bandaríkjunum.
Virkar svipað og PayPal
Öllum þeim sem hafa versl-
að á netinu hefur á einhverj-
um tímapunkti verið boðið að
greiða fyrir vörur og þjónustu
með PayPal. Snjallsímaviðbót-
in frá Square virkar með mjög
svipuðum hætti fyrir hinn al-
menna notanda. Til að nota
snjallviðbótina þarftu að skrá
kreditkortið þitt í kerfið hjá
Square en forritið notar mynd
af þér til að staðfesta að þú en
ekki einhver annar sé að nota
kortið. Öryggið er því ágætt.
Þeir búðareigendur sem taka á
móti snjallsímagreiðslum kom-
ast hins vegar aldrei yfir kredit-
kortanúmer viðkomandi og því
er öryggið talsvert meira þar
fyrir kaupandann en í venju-
legum kreditkortaviðskiptum.
Upplifun viðskiptavinarins er
svipuð og með PIN-greiðslum
sem nú á að taka upp á Íslandi
að því leyti að bæði viðskipta-
vinurinn og seljandinn taka
virkan þátt í að framkvæma
greiðsluna.
Hröð þróun að undanförnu
Viðbótin hefur þróast hratt á
undanförnum mánuðum en í
nýjustu útgáfunni er ekki leng-
ur krafist staðfestingar í formi
myndar eða undirskriftar fyr-
ir viðskipti undir 25 dölum.
Færslunum hefur þá verið flýtt
þannig að það tekur innan við
fjórar sekúndur að fá stað-
festingu á kaupum. Það þýðir
að auðveldara og fljótlegra er
að nota þessa snjallsímaleið
til að greiða fyrir litla og ein-
falda hluti en með venjulegu
greiðslukorti eða peningum.
Í nýlegri breskri könnun
kom fram að iPhone-eigendur
eru líklegri til að nota svipaða
tækni og þessa til að ganga
frá greiðslum. Um 45 prósent
þeirra iPhone-notenda sem
tóku þátt í könnuninni sögðust
líklega myndu nýta sér þessa
tækni gæfist þeim kostur á því.
Talsvert lægra hlutfall var hjá
öðrum snjallsímanotendum
en um 17 prósent töldu líklegt
að þeir myndu nýta sér þessa
tækni. Engu að síður verður að
teljast líklegt að þessi greiðslu-
máti muni ná talsverðum vin-
sældum en snjallsímatækni
hefur náð ótrúlegri fótfestu á
mjög stuttum tíma.
n Snjallsímagreiðslur eru nú mögulegar n Hröð þróun á síðustu
mánuðum n Einfaldar greiðslur taka innan við fjórar sekúndur
Borgaðu með
snjallsímanum
„Forritið notar
mynd af þér
til að staðfesta að þú
en ekki einhver annar
sé að nota kortið.
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Snjallsímar
Einfalt í notkun
Það er einfalt að nota
snjallsímalausnina.
Margir skrifa Um 16
einstaklingar koma að
skrifum á simon.is
Mynd Sigtryggur ari