Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Side 56
Óli fer, sem
betur fer!
Ráðherra á
vetnisrafbíl
n Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
keyrði í vikunni um á vetnisrafbíl.
Bifreiðin er af gerðinni Hyundai
Tucson ix35 og er glæný og í fullri
stærð. Bifreiðina fékk Katrín að láni
frá skandinavísku vetnisvegasam-
tökunum (SHHP) og Íslenskri ný-
orku. Koma bílsins hingað til lands
er hluti af bílaprófunum Hyundai
á vetnisrafbílum á Norðurlöndun-
um. Hægt er að aka bílnum svipaða
vegalengd á fullum tanki og venju-
lega bensín- eða díselbíla. Áfylling
bílsins tekur aðeins um þrjár mín-
útur en bíllinn er skýrt dæmi um
hversu hröð þróun hefur verið á raf-
bílum á undanförnum árum.
Óli fer en Geir tórir
n Staðfesting á hinu óumflýjan-
lega barst frá höfuðstöðvum KSÍ
á fimmtudag. Ólafur Jóhannesson,
landsliðsþjálfari karla í fótbolta,
fær ekki að halda áfram að þjálfa
landsliðið. Samningur hans renn-
ur út í haust, en KSÍ ætlar ekki að
reka hann heldur leyfa honum að
stýra liðinu þrjá leiki í viðbót. Ár-
angur Ólafs með landsliðið hefur
verið hreint út sagt hörmulegur og
hrapar íslenska liðið niður heims-
listann í hvert skipti sem hann er
birtur. Ísland er í 124.
sæti og hefur aldrei
verið neðar. Geir Þor-
steinsson og Þórir
Hákonarson, for-
kólfar KSÍ, taka hins
vegar enga ábyrgð
á hörmulegu gengi
og ætla að sitja
áfram í
foryst-
unni.
É
g fór bara inn á heima-
bankann minn áðan og
sá að skuldin var komin
upp í fimmtán milljarða
króna. Ég veit ekki meir,“ segir
Hólmfríður Erna Kjartansdótt-
ir, einstæð móðir frá Selfossi,
sem varð fyrir því í á fimmtu-
daginn að fá himinháa kröfu
frá íslenska ríkinu inn á heima-
bankann sinn.
„Ég held þetta sé vegna
þess að ég skuldaði 15 þúsund
kall vegna bifreiðar sem ég
nota ekki en er á mínu nafni.
Ég vissi af þeim reikningi,“ seg-
ir hún. Hólmfríður viðurkenn-
ir að þetta sé hæsti reikning-
ur sem hún hafi séð. „Þetta er
komið í vanskil svo ég bíð bara
eftir dráttarvöxtunum,“ segir
hún létt í bragði. Hún segist
þrátt fyrir allt hafa tekið þess-
ari uppákomu af mikilli ró. Um
mistök sé að ræða enda hafi
hún alls ekki farið fram úr sér í
eyðslu undanfarið. „Mér finnst
þetta bara fyndið. Ég hlýt að fá
einhverja skýringu á þessum
mistökum. Ég hef ekkert ver-
ið að fara offari,“ segir hún og
hlær. Hún bætir því við að hún
ætli að bíða róleg og sjá hvort
krafan lækki ekki. Að öðrum
kosti væri þetta upphæð sem
myndi hafa teljanleg áhrif á
fjárhaginn. „Þetta yrði þungur
róður. Ég vona að þetta leysist,“
segir hún í gamansömum tón.
baldur@dv.is
Einstæð móðir rukkuð um 15 milljarða
n Hólmfríður Erna fékk óvæntan „glaðning“ á heimabankann sinn
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 26.–28. áGúst 2011 97. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
15 milljarðar „Þetta yrði þungur róður,“ segir Hólmfríður Erna.
Komið í vanskil Hólmfríður Erna
bíður eftir leiðréttingu.
Landsliðsmenn
yrðu feitir
n Meira af íslenska landsliðinu í
fótbolta. Matgæðingurinn og met-
söluhöfundurinn Friðrika Hjördís
Geirsdóttir er í viðtali í nýjasta Moni-
tor-blaðinu. Þar fær hún nokkuð
óvænta spurningu þegar hún er
spurð hvort hún myndi ekki vilja
taka að sér að þjálfa landsliðið í
haust, þegar Ólafur Jóhannesson
hættir. Friðrika hefur hingað til ekki
verið þekkt fyrir knattspyrnuhæfi-
leika og segir í viðtalinu: „Það er
spurning hvort þeir
myndu vilja ráða
mig. Yrðu þeir
ekki bara feitir?“
Friðrika hefur
mokselt mat-
reiðslubækur
sínar á árinu.
Samtals hafa
meira en 20
þúsund ein-
tök af
bókum
hennar
selst á
árinu.
Við getum
það allar
— og þú líka —
Við getum allar ræktað sál okkar og líkama.
Í Baðhúsinu hefurðu aðgang að því sem til þarf
fyrir aðeins 6.190* á mánuði.
Með þátttöku í KK klúbbnum kemstu jafnt
í opna sem LOKAÐA tíma. KK klúbburinn
er klárlega hagstæðasta leiðin.
Allt þetta er innifalið í Baðhúsinu
fyrir aðeins 6.190* kr. á mánuði;
- Zumba.
- Hot jóga.
- Lene Hansson námskeið.
- Fit Pilates.
- CX30.
- Afró.
- Jane Fonda.
- Heilsuátak.
- Spinning Express.
- Tabata (Trx, Bosu, ketilbjöllur).
- Magadans.
- Les Mills tímar.
- Salsa.
- TKT.
- Tæbox.
- o.mfl.
Og auðvitað hefurðu líka aðgang að heitri laug,
vatnsgufu, sauna og notalegu hvíldarhreiðri.
Komdu í Baðhúsið - og náðu markmiðum þínum.
Við getum það allar. Og þú líka.
Vertu velkomin.
Nánari upplýsingar á www.badhusid.is/kk
Komdu strax í klúbbinn og byrjaðu að æfa,
fyrsta greiðsla kemur ekki fyrr en í október!
6.190* á mánuði í KK áskriftarklúbbnum, lágmarkstími 12 mánuðir. Hægt er að velja um 4 leiðir, með mismunandi bindingu
og fríðindum; Skólaáskrift, Grunnáskrift, Eðaláskrift eða Frjálsáskrift. Frír aðgangur að lokuðum tímum, og frí barnagæsla
fylgir öllum leiðum nema Skólaáskrift.
Lj
ós
m
yn
da
ri
G
as
si